Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Klappastíg 44 – Sími 562 3614
Diskamotta 695 kr. stk.
Kertakrans 5.900 kr.
Mikið úrval af
piparkökumótum
Sænska
jólavaran komin
„Mikil spenna liggur í loftinu í að-
draganda komandi kjarasamninga og
í hvaða farveg þeir munu fara,“ segir
Guðmundur Ragnarsson, formaður
Félags vélstjóra og málmtækni-
manna. Hann fjallaði um helgina um
undirbúning kjarasamninga í pistli á
vefsíðu VM og segir að í umræðunni
sé velt upp ýmsum hugmyndum um
samráð, „um einhverskonar kreppu-
samning til langs tíma með aðkomu
allra, stjórnvalda, Alþingis, atvinnu-
rekenda og launafólks“.
Snúið vandamál
Segir Guðmundur að þá verði að
halda því á lofti og leggja áherslu á
það að fram að því er samnings-
umboðið hjá VM fyrir hönd sinna fé-
lagsmanna.
„Verði það vilji félagsmanna VM að
við tökumst á við okkar viðsemjendur
án samráðs munum við gera það.
Vandamálið sem við blasir er hins-
vegar snúið og margir þættir sem
þarf að hafa inni í heildarmyndinni og
taka tillit til. Niðurskurður með upp-
sögnum, fyrirhugaðar hækkanir hjá
opinberum stofnunum og sveit-
arfélögum, gjaldþrot fyrirtækja og
lengi mætti halda áfram að telja,
hinsvegar verður að taka slaginn við
niðurskurð og tóman ríkiskassa,“
segir hann.
„Mikil spenna liggur í loftinu“
Frekar prósentuhækkun
» Félagar í VM vilja að að sam-
ið verði um heildarlaun frekar
en dagvinnulaun við gerð
kjarasamninga í framtíðinni.
» Málefni lífeyrissjóðanna
liggja þungt á félagsmönnum
VM, auk þess að kaupmætt-
inum verði náð upp aftur og
stöðugleiki tryggður.
» Á kjararáðstefnu í október
kom fram að meiri áhugi var
fyrir prósentuhækkunum en
krónutöluhækkunum og að VM
færi fram sem einn og óháður
aðili í komandi kjaraviðræður.
Vilji menn takast á við viðsemjendur
án samráðs verður það gert
Minningarathöfn um þá hermenn sem létust í fyrri og
síðari heimsstyrjöldinni fór fram á vegum breska
sendiráðsins í Reykjavík í hermannagrafreitnum í
Fossvogskirkjugarði í gærmorgun.
Ian Whitting, sendiherra Bretlands á Íslandi, leiddi
athöfnina en sr. Bjarni Þór Bjarnason stjórnaði henni.
Fulltrúar annarra þjóða, sem eiga landa sem hvíla í
Fossvogskirkjugarði, tóku einnig þátt í athöfninni.
Morgunblaðið/HAG
Minntust fallinna hermanna
Stytting, ekki lenging
Ranglega var haft eftir fram-
kvæmdastjóra Creditinfo í Morgun-
blaðinu á laugardag í frétt um fjölda
vanskilamála. Þar var átt við stytt-
ingu á fyrningartíma gjaldþrota í tvö
ár en ekki lengingu. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Lögreglan handtók á laugardags-
kvöldið karlmann á miðjum aldri,
sem veifaði hnífi í verslun Krón-
unnar við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði. Tilkynnt var um vopnað rán í
versluninni og var maðurinn enn þar
inni þegar lögregla kom á staðinn.
Maðurinn veitti enga mótspyrnu og
ekki var ljóst hvort hann hefði verið
með hótanir við starfsfólk eða rænt
fé. Að sögn lögreglu var maðurinn
undir áhrifum áfengis. Haft var eftir
honum, að hann vissi ekkert hvað
hann væri að gera.
Veifaði hníf ölvaður
inni í verslun
Hinn árlegi jólabasar Hrafnistu í
Hafnarfirði verður haldinn í dag,
mánudag, milli kl. 10 og 14.
Basarinn verður á vinnustofu
heimilisins, en hún er staðsett í
kjallara hússins.
Þar verða til sölu fjölbreytt verk
sem handverksfólk á Hrafnistu hef-
ur unnið.
Allir velkomnir.
Jólabasar Hrafnistu