Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 10

Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is „Aðalvandamál Súsönnu er ekki að vera útlendingur á Íslandi og í Pól- landi, heldur að hún er smámælt og heitir því ómögulega nafni: Súsanna Szczebrzeszyska sem enginn Ís- lendingur getur sagt, margir Pól- verjar hnjóta um og hún getur alls ekki sagt sjálf. Hún kallar sig því Birgittu Bragadóttur til að einfalda málið og gengur um með sam- heitaorðabók á sér til að finna orð sem ekki innihalda s,“ sagði Vala Þórsdóttir rithöfundur í samtali við blaðamann en hún er annar höf- undur bókarinnar Þankaganga Myślobieg. Meðhöfundur Völu er Agnieszka Nowak arkitekt og er þær stöllur nú á ferð um landið til að halda námskeið fyrir börn í sagnagerð og teikningu. Námskeiðshaldið hófu Vala og Agnieszka í Reykjanesbæ og fengu til þess afnot af húsnæði almenn- ingsbókasafnsins þar í bæ. Þaðan var haldið út á land og eitt námskeið hefur verið haldið í Reykjavík, öll á almenningsbókasöfnum. Á nám- skeiðunum sér Vala um sagnagerð- ina og talar íslensku en Agnieszka um teikninguna og talar pólsku. Námskeiðin eru því hugsuð bæði fyrir íslensk og pólsk börn en ekki endilega pólsk-íslensk börn á ald- ursbilinu 6 – 12 ára. „Við teljum mikilvægt að alíslensku krakkarnir komi líka því oft vill verða svo að „erlendir“ krakkar og íslenskir leiki sér ekki saman eftir skóla, því mið- ur. Þetta er því kjörið tækifæri til margvíslega liti til afnota. Fyrst teiknuðu þau sögusviðið og síðan var byggt ofan á það undir leiðsögn Ag- nieszku. Ritunarferill bókarinnar var þannig að þær Vala og Agnieszka tóku viðtöl við nokkur pólsk-íslensk börn og foreldra þeirra og skoðuðu upplýsingar um tvítyngi. Einnig öfl- uðu þær sér upplýsinga um innflytj- endur á Íslandi áður en þær hófust handa en bókin fjallar um pólsk- íslenska stelpu í Reykjavík. „Við komumst að því í gegnum viðtölin að það er ýmislegt sem tvítyngd börn upplifa sem alíslensk börn gera ekki, vegna þess að þau hafa tvenns- konar menningarlegan bakgrunn. Það er eitt tungumál notað heima hjá þeim og annað utan heimilis,“. Agnieszka sagði samfélagið sí- fellt vera að minna þessi börn á að þau eru ekki alíslensk, ekki bara börn og foreldrar heldur ekki síður menntakerfið. „Þetta er ekki bein- línis „vandamál“ en verður til þess að börnin vilja oft ekki tala „erlenda málið“ utan heimilis nema í ýtrustu neyð og neita jafnvel uppruna sínum til að reyna að passa betur inn í sam- félagið. Þannig tapa þau stundum tengslum við tungumálið.“ Þankagangar er gefin út á ís- lensku og pólsku til að undirstrika réttmæti beggja tungumála í tví- tyngdri fjölskyldu. „Pólska varð fyr- ir valinu vegna þess að Pólverjar eru stærsti innflytjendahópur á Íslandi og einnig vegna þess að okkur Ag- nieszku langaði til að vinna saman og hún er pólsk og ég íslensk,“ sagði Vala að lokum. „Hætta á að tengsl við tungu- málið tapist“ Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Einbeitt við myndskreytinguna Richard Dawson Woodhead og Inga Jódís Kristjánsdóttir sátu við sama borð á námskeiðinu í Reykjanesbæ og nutu leiðsagnar Agnieszku og Völu. Þær eru höfundar bókarinnar. Vala Þórsdóttir rithöfundur og Agnieszka No- wak arkitekt eru með námskeið í tengslum við út- gáfu bókar sinnar, Þankaganga Myślobieg, sem er íslensk-pólsk. að taka enn eitt skrefið til að blanda hópunum saman. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir enda er upp- lagt að nota þessa stund til að hafa það skemmtilegt með börnunum,“ sögðu Vala og Agnieszka. Gaman að mega gera það sem maður vill Richard Dawson Woodhead var einn þeirra sem sóttu nám- skeiðið á Bókasafni Reykjanes- bæjar og sagðist hafa komið vegna þess að boðið væri upp á frjálst teikninámskeið. „Mér finnst gaman að teikna, þess vegna kom ég og best finnst mér að ég má gera það sem ég vil.“ Börnin fengu sögu frá Völu sem þau áttu síðan að túlka með frjálsri aðferð á A2 blað og fengu Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Tónlistarfjölskyldan saman við píanóið Frá hægri Guðmundur Sigurðsson, þá börnin Harpa Sól, Hreinn Gunnar, Gylfi Björgvin, Guðmundur Óskar og Sigurður Guðmundsbörn. Við píanóið situr Gróa Hreinsdóttir móðir systkinanna. Svanhildur Eiríksdóttir svei@simnet.is Þau hafa víða leynst mús-íkölsku pörin. Eitt slíktvarð til í Ytri-Njarðvíkur-kirkju árið 1976 þegar Innri-Njarðvíkingurinn Guðmundur Sigurðsson hitti Ytri-Njarðvíkur- meyna Gróu Hreinsdóttur og þau felldu hugi saman. Hann söng með kirkjukórnum og hún var organisti. Tónlistin átti hug þeirra og hjörtu og heimilið var búið píanóum á öllum hæðum, gíturum á víð og dreif og sungið var út í eitt í barnaherbergj- unum. Í þessu umhverfi ólust börnin fimm upp og hafa öll áhuga á tónlist, enda ætíð fengið að hafa fallega tón- list í eyrunum, eins og sonurinn Guðmundur Óskar komst að orði í samtali við blaðamann. Guðmundur fagnaði fjörutíu ára söngafmæli 2. nóvember sl. á af- mælisdegi sínum og einkadótt- urinnar, Hörpu Sólar. Synirnir fjór- ir komu einnig við sögu og fyrrverandi eiginkona spilaði undir á píanó. Með tónum við töfrum liðið en tökum samt á því létt. Í söngnum við eigum sviðið að syngja er gleðifrétt. Svona orti Guðmundur eftir söngæfingu með syninum Gylfa Björgvin en Guðmundur fer ein- staklega létt með að setja saman vís- ur. Mörg laganna sem flutt voru á tónleikunum voru við ljóð hans í bland við aðrar þekktar perlur, m.a. úr smiðju Hjálma en Sigurður Hjálmamaður með meiru er einn sonanna. Yngri bræður hans þakka honum ekki síður örvunina í tónlist- inni, en Sigurður er langelstur þeirra systkina. „Eftir að ég var búinn að læra á fiðlu, selló og saxófón fór ég að fikta í dótinu hans Sigga, pakkaði upp gít- urunum og kenndi sjálfum mér,“ sagði Guðmundur Óskar, bassaleik- ari í Hjaltalín, en Sigurður var þá í ljósmyndanámi á Ítalíu. Hjól Guð- Alltaf með fallega tónlist í eyrunum Njarðvíkingurinn Guðmundur Sigurðsson fagnaði fjörutíu ára söngafmæli 2. nóvember sl. á afmælisdegi sínum með einsöngstónleikum. Fimm börn hans komu fram með honum en þau eru öll í tónlist. „Ég er ákaflega stoltur af börn- unum mínum,“ sagði Guðmundur þegar litið var inn á æfingu hjá fjölskyldunni. Á bloggsíðunni Gaymormonman- .blogspot.com segir Bandaríkjamað- urinn Calvin Thompson frá lífi sínu og vangaveltum. Hann er samkyn- hneigður karlmaður, búsettur í Utah, Mormónatrúar, giftur kvenmanni og er þriggja barna faðir. Presturinn hans, eiginkona og nokkrir nánir fjölskyldumeðlimir vita að hann er samkynhneigður og hann hefur sjálfur vitað það síðan hann var unglingur. Hann segir bloggið til- einkað þeim sem eru öðruvísi og þeim sem elska þá, og mormónum eða þeim sem þekkja mormóna og eru að reyna að skilja. Thompson er opinn og heiðar- legur bloggari sem hefur vakið nokkra athygli. Hann fylgist vel með því sem er að gerast í samfélagi Mormóna og samfélagi samkyn- hneigðra og fræðir lesendur sína um það. Sem dæmi er færsla frá því í október þar sem hann setur inn frétt af einum leiðtoga mormóna í Salt Lake City sem sagði í messu að það væri hægt að lækna þá sem löð- uðust að sama kyni. Hann skrifar líka um eigið líf og lífsreynslu og mormónatrúna en hann virðist vera mjög trúaður. Það er áhugavert að lesa Gaymor- monman.blogspot.com, lesa um það sem sumir myndu kalla undarlegt líf Thompsons og víkka sjóndeildar- hring sinn. Vefsíðan www.gaymormonman.blogspot.com Reuters Blóm og lauf Lífið og lífsviðhorfin eru ekki eins hjá öllum. Opinn og heiðarlegur bloggari Árið 2010 hófst í gær og mánuður- inn nóvember fyrir korteri. Tíminn líður hratt á gervihnattaöld sagði í laginu og eru það orð að sönnu. Í dag er nóvembermánuður hálfn- aður og það fer að nálgast það að það sé einungis mánuður til jóla. Stattu nú við stóru orðin og vertu tímanlega í jólaundirbúningnum þetta árið eins og þú hefur lofað þér. Það þarf ekki alltaf að vera á síðustu stundu þó það virðist vera orðið að vana hjá mörgum. Komdu þér út úr hegðunarmynstrinu sem kemur þér alltaf í klandur og hug- aðu að jólunum í tíma, ekki seinna en strax. Endilega … Morgunblaðið/G.Rúnar Jólaös Ekki enda á hlaupum. … áttið ykkur á því að tíminn líður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.