Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Mundu að
panta posa fyrir
jólaverslunina!
Borgun býður vandaða posa til leigu á hagstæðum
kjörum. Hægt er að leigja posa í skemmri tíma, t.d.
helgar- og mánaðarleigu.
Einfaldir í notkun og uppsetningu
Uppsetning á höfuðborgarsvæðinu er ókeypis
Seljendur á landsbyggðinni fá posa
senda uppsetta endurgjaldslaust
Pantaðu posa á borgun.is eða leitaðu
frekari upplýsinga í síma 560 1600.
Ármúla 30 • 108 Reykjavík
Sími 560 1600 • www.borgun.is
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Búrma, segir í við-
tali við breska ríkisútvarpið BBC, að
hún vilji hitta herforingjana sem
stjórna landinu og leggja sitt af
mörkum til að ná sáttum.
Suu Kyi var látin laus úr stofufang-
elsi á laugardag. Hún hefur alls verið
í stofufangelsi í 15 ár af síðustu 20 ár-
um.
BBC hefur eftir Suu Kyi, að hún
ætli að hlusta á skoðanir almennings í
Búrma og alþjóðlegra stuðnings-
manna sinna.
„Ég vil hlusta á fólkið. Ég vil hlusta
á skoðanir annarra ríkja, hvað þau
telja sig geta gert fyrir okkur, hvað
við teljum að þau geti gert fyrir okk-
ur og komast síðan að niðurstöðu,
sem sé viðunandi fyrir sem flesta,“
sagði Suu Kyi í símaviðtali við BBC.
Hún sagðist vona að hún yrði ekki
handtekin aftur, en hún óttaðist hins
vegar ekki handtöku og stofufangelsi
nógu mikið til að hætta afskiptum af
mannréttindum og stjórnmálum.
Sagði hún að þrátt fyrir allt hefði hún
haft það betra í sinni fangelsisvist en
margir aðrir pólitískir fangar í
Búrma.
Það er eflaust ekki tilviljun að her-
foringjastjórnin beið með að láta Suu
Kyi lausa þar til eftir þingkosningar í
landinu, sem fóru fram fyrir rúmri
viku. Flokkur Suu Kyi, Lýðræðis-
bandalagið (NLD), tók ekki þátt í
kosningunum og var í kjölfarið bann-
aður. Hluti stjórnarandstöðunnar,
þar á meðal nokkrir flokksmenn
NLD, stofnuðu hins vegar annan
flokk og tóku þátt.
Kosningarnar hafa verið harðlega
gagnrýndar, bæði innan Búrma og
utan og hefur stjórnin verið sökuð
um stórfelld kosningasvik.
Telja sumir sérfræðingar að með
því að láta Suu Kyi lausa núna sé
stjórnin að reyna að slá á þessa gagn-
rýni. Eitt fyrsta verk Suu Kyi verður
væntanlega að reyna að ná sáttum
milli þeirra stjórnarandstæðinga sem
tóku þátt í kosningunum og þeirra
sem gerðu það ekki.
Fjölmargir þjóðarleiðtogar fögn-
uðu nýfengnu frelsi Suu Kyi, þar á
meðal Ban Ki-moon, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, og Barack Obama,
Bandaríkjaforseti.
„Þótt stjórnvöld í Búrma hafi
gengið ótrúlega langt til að einangra
og þagga niður í Aung San Suu Kyi
hefur hún haldið áfram hugrakkri
baráttu sinni fyrir lýðræði, friði og
breytingum í Búrma,“ sagði Obama.
„Hún er hetja í mínum augum og
veitir innblástur öllum þeim, sem
vilja vinna að framgangi mannrétt-
inda í Búrma og annarstaðar í heim-
inum.“
Aung San Suu Kiy vill ræða
við herforingjastjórn Búrma
Reuters
Stofufangelsi Gríðarlegur fjöldi fólks beið Suu Kyi og fagnaði með henni þegar henni var sleppt úr haldi.
Stjórnarandstöðuleiðtoganum og nóbelsverðlaunahafanum sleppt úr fangelsi
Leit að nýjum
flokksleiðtoga
Jafnaðarmanna-
flokksins í Sví-
þjóð hefst í dag
en Mona Sahlin
lýsti því yfir að
hún myndi
hætta sem leið-
togi flokksins í
mars. Enginn
þykir sjálfsagður eftirmaður Sa-
hlin en Margot Wallström hefur
verið nefnd til sögunnar. Wallst-
röm hefur lengi starfað utan Sví-
þjóðar en hún sat í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins um
árabil og starfar nú hjá Samein-
uðu þjóðunum í New York. Þá
þykir Thomas Bodström, fyrrver-
andi dómsmálaráðherra, einnig
koma til greina.
Leitin hafin að arf-
taka Monu Sahlin
Margot Wallström
Breski popp-
söngvarinn og
hermaðurinn
fyrrverandi
James Blunt
neitaði að fram-
fylgja skipunum
bandarísks hers-
höfðingja um að
skjóta á rúss-
neska hermenn
við flugvöll í Kósóvó árið 1999. Í
viðtali við BBC sagði Blunt að hann
hefði verið tilbúinn að mæta fyrir
herdómstól frekar en að skjóta á
Rússana.
Blunt var einn af fyrstu NATO-
hermönnunum sem fóru inn í Kó-
sóvó árið 1999 og var eitt af verk-
efnum hersveitar Blunts að taka yf-
ir flugvöllinn í Pristina.
Þegar þeir komu þangað tóku á
móti þeim um þrjú hundruð rúss-
neskir hermenn, sem beindu riffl-
um sínum að bresku hermönn-
unum.
Bandaríski hershöfðinginn Wes-
ley Clark skipaði Blunt að ráðast á
Rússana, en Blunt neitaði. Yfirmað-
ur Blunts, breski hershöfðinginn
Mike Jackson, studdi hann og sagði
að hans hermenn myndu ekki bera
ábyrgð á upphafi þriðju heimsstyrj-
aldarinnar. bjarni@mbl.is
Vildi ekki þriðju
heimsstyrjöldina
James Blunt
Hin sextíu og fimm ára gamla
Aung San Suu Kyi hefur varið
bróðurpartinum af síðustu tuttugu
árum á bak við lás og slá af ein-
hverju tagi vegna baráttu sinnar
fyrir auknu lýðræði í Búrma.
Suu Kyi er dóttir sjálfstæðis-
hetju landsins, hershöfðingjans
Aung San, sem var myrtur árið
1947. Hún flutti ásamt móður sinni
frá Búrma og giftist breskum há-
skólakennara og átti með honum
tvö börn. Hún sneri aftur til Búrma
árið 1988 og tók þátt í mótmæla-
hreyfingu lýð-
ræðissinna.
Hún sat í stofu-
fangelsi frá
1989 til 1995 og
frá 2000 til
2002. Sama ár
var hún aftur
sett í stofu-
fangelsi og hef-
ur verið þar til núna.
Suu Kyi hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1991 fyrir friðsamlega
baráttu fyrir lýðræði í Búrma.
Löng fangelsisvist
BARÁTTUKONA
Aung San Suu Kyi