Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Styttur bæjarins Það er engu líkara en að hann sé svolítið hvumsa sá hvíti yfir því að fólk taki af honum myndir þar sem hann stendur nakinn og varnarlaus í vetrarkuldanum. Golli NEI til EU- hreyfingin í Noregi er ekki sammála afstöðu norskra stjórnvalda og ESB þegar kemur að makrílveiðum Íslands og Færeyja. Hreyfingin sem er þverpólitísk sendi frá sér ályktun þegar krafa Norð- manna var að setja við- skiptabann á Ísland vegna makrílveiða og afstaða hennar er óbreytt. Hreyfingin hvetur til samningaviðræðna í stað við- skiptabanns. Fordæming ESB og Noregs er byggð á misskilningi á hafréttar- ákvæðum sem hér gilda. Veiðar í efna- hagslögsögu strandþjóðar tilheyra henni og hún hefur óskoraða heimild til að ákvarða sinn eigin kvóta fyrir þær veiðar sem fram fara í lögsögunni samkvæmt 56. grein Hafréttarsátt- málans. Þar að auki hefur strandríkið eftirlit með fiskveiðiflota sínum sam- kvæmt eigin lögum ef veiðarnar fara fram á frjálsum hafsvæðum sam- kvæmt 89. grein Hafréttarsáttmálans. Eins og rannsóknarleiðangur norsku Hafrannsóknastofnunarinnar um Norður-Atlantshaf sýnir er dreif- ing makríls mjög mikil. Dreifing- arsvæði hans nær til dæmis bæði yfir Smugusvæðið og efnahagslögsögu Ís- lands. Á meðan ekki hafa verið gerðir fjöl- þjóðasamningar um makrílveiðar með þátttöku Færeyja og Íslands hafa þessar þjóðir bæði rétt og skyldu til að stjórna eigin nýtingu stofnanna. Það hafa þær gert með því að setja ein- hliða kvóta um makrílveiðar sínar. Þetta eru ekki „óábyrgar veiðar“ eins og útgerðarmaðurinn, sjávarútvegsráðherr- ann og ESB-sinninn Berg Hansen staðhæfir. Áköf fordæming full- trúa atvinnulífsins í ESB og Noregi á veið- um Íslendinga og Fær- eyinga er í áberandi ósamræmi við þá stað- reynd að ESB hefur lengi gefið einhliða út kvóta á syðsta dreifing- arsvæðinu, þ.e. fyrir Biscayaflóa. Það sem Ísland og Fær- eyjar gera nú er nákvæmlega það sama og ESB hefur sjálft lengi ástundað. Nei til EU hefur einnig mótmælt afstöðu samtaka í norskum sjávar- útvegi sem hafa beitt sér af hörku gegn Íslandi og Færeyjum í þessu máli. Það er vonandi að samningar takist nú innan Norðaustur- Atlantshafsveiðinefndarinnar (NEAFC). Nei til EU-hreyfingin í Noregi hefur lagt áherslu á að í þeim samningaviðræðum beri að skipta kvóta í samræmi við landfræðilega dreifingu makrílstofnsins. Eftir Peter Ørebech » Á meðan ekki hafa verið gerðir samn- ingar með þátttöku Færeyja og Íslands hafa þessar þjóðir bæði rétt og skyldu til að stjórna eigin nýtingu stofn- anna. Peter Ørebech Höfundur er þjóðréttarfræðingur við Háskólann í Tromsö í Noregi og vara- þingmaður fyrir Miðflokkinn Íslendingar standa ekki einir í makríldeilunni Nú standa Sunnlend- ingar frammi fyrir því að fæðast og deyja í Reykjavík og mestallt þar á milli. Stefnan er skýr í greinargerð með fjárlögum þar sem stefnt er að því að reka einungis tvö sjúkrahús á landinu, í Reykjavík og á Akureyri. Við landsbyggðarfólkið megum eiga það að keyra þangað hvort sem okkur líkar betur eða verr, í hvaða veðri sem er, yfir heiðar, sjó og fjallvegi, hundraða kílómetra leið í flestum tilfellum. Búið er að sýna fram á að sparnaður verður enginn, aðeins er um tilfærslu verkefna til Reykja- víkur að ræða og aukinn kostnað og áhættu sem lendir að sama skapi á okkur íbúum landsbyggðarinnar. Vanfærar og fæðandi konur keyri til Reykjavíkur Kona sem þarf að fæða barn á Suð- urlandi mun þurfa að sækja allar heimsóknir í aðdraganda fæðingar til Reykjavíkur verði niðurskurð- artillögur að veruleika. Fyrir sunn- lenskar vanfærar konur verður breyt- ingin mikil með tilheyrandi áhættu og vinnutapi, enda þurfa þær sem lengst fara að keyra um 460 kílómetra leið til þessa með von um gott veður, opnar heiðar og auðvitað von um að fæða ekki á leiðinni. Deyjandi og veikir Sunnlend- ingar á faraldsfæti í sjúkrabílum Sú öfugþróun sem nú á að þvinga í gegn er ein sú ómanneskjulegasta að- gerð sem Íslendingar, eða öllu heldur íbúar landsbyggðarinnar, hafa fengið að kynnast um langan tíma. Líknandi meðferð mun flytjast til höfuðborg- arinnar sem og öll sjúkrahúslega okk- ar Sunnlendinga. Við fáum ekki að gefa upp öndina í nánd við fjöl- skyldur okkar lengur. Hver gleymdi að reikna vinnutapið, ferðakostn- aðinn og vanlíðan sjúk- linga inn í dæmið? Svo ekki sé nú talað um þá staðreynd að ódýrara er að reka sjúkrahúsin á landsbyggðinni og þá staðreynd að við borg- um þennan rekstur sjálf. Óskiljanleg áhætta tekin Árin 2000 og 2008 riðu yfir Suður- landssjarðskjálftar með þeim afleið- ingum að báðar brýrnar til Reykjavík- ur lokuðust vegna skemmda. Í febrúarlok 2000 gaus Hekla. Íbúar höfuðborgarsvæðisins fóru margir austur fyrir fjall til að berja nátt- úruundrið augum. Síðar þann dag þegar fólk hélt heim á leið brast skyndilega á aftakaveður með þeim afleiðingum að 1.500 manns sátu fastir í Þrengslunum í óratíma þar til veðr- inu slotaði og þeim var bjargað. Við búum í harðbýlu landi þar sem von er á öllu mögulegu af hálfu náttúrunnar eins og dæmin sanna. Í Vest- mannaeyjum verður meðal annars að loka skurðstofunni til að mæta nið- urskurðinum. Það sér það hver maður að án jarðganga til Reykjavíkur geng- ur það ekki upp. Ef sparnaðartillögur koma til fram- kvæmda er lífi og limum íbúa á lands- byggðinni stefnt í hættu. Ekki bara eitt og eitt tilfelli, heldur fjölmörg á hverju ári. Það eru þessar ástæður sem skipta hvað mestu máli og eru ástæða þess að sjúkrahús eru á lands- byggðinni. Þau eru ekki lúxus, þau eru lífsnauðsyn, ólíkt milljarða menn- ingarhúsum. Sjúkrahúsþjónustan á landsbyggð- inni hefur þróast um áratuga skeið og snýst aðeins um það að veita þá þjón- ustu sem okkur er nauðsynleg líkt og hún er þeim sem búa á þéttbýlli stöð- um. Þeim áróðri, að fækka þurfi litlum, dýrum einingum víðsvegar um landið, er vísað til föðurhúsanna. Sjúkrahúsþjónustan er ódýrari á landsbyggðinni, hún er grunnþjón- usta, hún er ekki sérhæfð. Við sækj- um alla sérhæfða þjónustu til Reykja- víkur. Algjör vanþekking, skilnings- leysi og mismunun eftir búsetu Menn verða að kynna sér málin of- an í kjölinn áður en farið er að sverma fyrir sparnaðartillögum sem þegar upp er staðið eru dýrari en fyrir breytingar. Menn geta ekki komið fram opinberlega og farið með rang- færslur sem eru svo alvarlegar og sýna fram á svo mikla vanþekkingu að maður tárast við tilhugsunina að þetta sama fólk hafi allt um líf og limi okkar landsbyggðarfólks að segja, geti í raun með einu pennastriki tekið kol- ranga beygju. Í hreinskilni sagt fær þetta mál allt í heild sinni fólk til að missa trúna á þá sem gefa sig út fyrir það að vera stjórnmálamenn. Við verðum að vanda okkur betur og for- gangsraða á manneskjulegan hátt. Ég er stjórnmálakona, ég myndi ekki leggja nafn mitt við þessar tillögur. Eftir Elfu Dögg Þórðardóttur » Sunnlendingar sætta sig ekki við það að sjúkrahúsum þeirra verði lokað og þeir verði að fæðast, liggja veikir og deyja á sjúkrahúsum í Reykjavík. Elfa Dögg Þórðardóttir Höfundur er umhverfisfræðingur, er íbúi á landsbyggðinni og formaður Sambands sunnlenskra sveitarfélaga. Eru mannslíf lands- byggðarinnar minna virði?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.