Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 16

Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 16
16 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Íslendingar fengu á dögunum góðan gest í Íslandsvininum Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands og sér- legum fulltrúa Frakk- landsforseta í mál- efnum heimskautasvæða. Frakkar hafa áttað sig á þeim tækifærum og ógnum sem fylgja bráðnun íshell- unnar á norðursheimskautinu og innan Evrópusambandsins eru þeir meðal forysturíkja um stefnumótun um norðurslóðir. Skilaboð Rocard til okkar Íslendinga voru skýr: Að- ild að Evrópusambandinu mun styrkja hagsmuni Íslands á norð- urslóðum. Ísland getur í krafti landfræðilegrar legu, reynslu og sérþekkingar orðið leiðandi innan ESB í norðurslóðamálum. Norðurslóðir eru kjarnamál Ísland er eina ríkið í heiminum sem í heild sinni er staðsett á norð- urslóðum. Þess vegna mun þróunin þar á næstu árum og áratugum hafa bein áhrif á afkomu okkar Ís- lendinga. Það er einungis spurning um tíma hvenær sumarsiglingar hefjast yfir norðurpólinn en þær stytta vegalengdina milli heimsálfa um þúsundir mílna. Bráðnun íssins mun líka leiða til sóknar í að nýta nátt- úruauðlindir á norð- urslóðum, hvort sem horft er til olíu, gass eða sjávarauðlinda. Þessar auðlindir munu verða nýttar – spurn- ingin er einungis af hverjum og með hvaða hætti. Norðurslóðir eru því hagsmunamál fyrir mörg ríki. Fyrir fáar þjóðir geta þær þó haft jafn- mikla þýðingu og fyrir okkur Ís- lendinga. Verði til að mynda olíu- slys á norðurslóðum ógnar það okkur, ekki síst í ljósi fimbulkulda norðursins sem veldur miklu hæg- ara niðurbroti olíu en annars stað- ar. Íslendingar þurfa líka sterka stöðu til að geta spornað gegn mögulegri rányrkju sjávarauðlinda á norðurslóðum. Ekki má heldur gleyma að spili Íslendingar rétt úr sínum kortum getur þjónusta við norðurslóðasiglingar og sanngjörn hlutdeild í sjálfbærri nýtingu auð- linda haft jákvæð efnahagsleg áhrif á Íslandi og skapað fjölda starfa til framtíðar. Stórveldin stíga dans Í Norðurskautsráðinu, sem Ís- land er stofnaðili að, eigum við samstarf við stórveldin tvö, Banda- ríkin og Rússland, auk Kanada og Norðurlandanna, um sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum. Auk þess hefur Kína sýnt mikinn áhuga enda sjá Kínverjar siglingaleiðina yfir norðurpólinn sem meginflutn- ingaæð á útflutningsvörum til Evr- ópu og Bandaríkjanna. Út frá sjón- arhóli öryggismála fer vægi norðurslóða hratt vaxandi, ekki síst með tilliti til björgunar á sjó og umhverfisöryggis. Í ljósi hinna miklu hagsmuna sem eru í húfi benti Michel Rocard á að þrátt fyr- ir farsælt samstarf á vettvangi Norðurskautsráðsins kenndi mann- kynssagan að stórveldin myndu ráða mestu um framtíð norð- urslóða. „Stórveldin virða aðeins risa“ sagði Rocard og því kunni að verða erfitt fyrir lítið ríki eins og Ísland að hafa áhrif á eigin örlög. ESB-aðild styrkir Ísland Hvernig tryggjum við þá hags- muni Íslands á norðurslóðum? Grundvallaratriði er að eiga áfram sem nánasta samvinnu við önnur ríki, hvort sem er innan Norð- urskautsráðsins eða á öðrum þeim vettvangi þar sem fjallað er um málefni norðurslóða. Ísland má aldrei verða eitt á báti og ein- angrað, það er grunnur íslenskrar utanríkisstefnu og einn helsti lær- dómur hrunsins. En í alþjóðlegri samvinnu er hins vegar ekki sjálf- sagt að hlustað sé á sjónarmið smærri ríkja. Þess vegna er ég sammála Michel Rocard um að að- ild Íslands að Evrópusambandinu myndi verulega styrkja stöðu Ís- lands í umfjöllun um norðurslóðir. Varðandi norðurslóðir myndi aðild augljóslega þjóna okkar hags- munum. Það er jákvætt að stefnu- mið ESB eins og þau birtast í yf- irlýsingum framkvæmdastjórnarinnar frá árinu 2008 og í nýlegum skýrslu- drögum fyrir utanríkismálanefnd Evrópuþingsins eru um margt samhljóma áherslumálum Íslands. Með aðild og ábyrgu framlagi til stefnumótunar gæti Ísland haft allt Evrópusambandið á bak við sig í málaflokknum. Norðmenn óttast ekki ESB Því hefur verið haldið á lofti að Evrópusambandið sé einungis áhugasamt um aðild Íslands vegna þess að það vilji komast í auðlindir Íslands, og norðurslóða. Þetta er tilbrigði við fullyrðinguna um að Ís- land sé í umsátri Evrópusambands- ins. Umsáturskenningin er stað- leysa. Staðreyndin er sú að Evrópusambandið og aðildarríki þess vita að þróun mála í þessum heimshluta mun snerta hagsmuni þeirra. Þess vegna vilja þau hafa áhrif til að tryggja jafnvægi á milli sjálfbærrar nýtingar auðlinda og verndunar umhverfis, og koma í veg fyrir ofveiði, rányrkju eða kapphlaup í anda kalda stríðsins yfirráð. Norðmenn óttast ekki áhuga ESB á málefnum norð- urslóða og engum dettur í hug að auðlindir Noregs séu í hættu. Þvert á móti er það hagsmunamat norskra stjórnvalda að afar jákvætt sé ef ESB geti t.d. stutt við rann- sóknir og vöktun á viðkvæmu um- hverfi svæðisins, og beitt pólitísku afli til að setja skýrari alþjóðlegar reglur um öryggi og meng- unarvarnir vegna siglinga á heim- skautasvæðum. Íslendingar þurfa ekki síst á því að halda. Norðmenn, sem hafa svipaða hagsmuni og Ís- lendingar á norðurslóðum, líta á ESB sem bandamann í mörgum lykilmálum í norðurslóðastefnu sinni. Við Íslendingar eigum að gera slíkt hið sama. Rocard – auðlindir Íslands eru tryggar Eftir Össur Skarphéðinsson »Norðurslóðir eru hagsmunamál fyrir mörg ríki. Fyrir fáar þjóðir geta þær þó haft jafnmikla þýðingu og fyrir okkur Íslendinga. Össur Skarphéðinsson Höfundur er utanríkisráðherra. Ekki er ofsögum sagt um hrun bank- anna. Fólk er reitt og vantrúað á starfsemi þeirra í framhaldi af hrikalegu áfalli, sem á rót sína að rekja helst til gjörspilltrar starf- semi, en ekki þarf að rökstyðja það nánar eftir tilkomu „sann- leiksskýrslu“ þingsins. En spillingin á við um fv. stjórn- endur en ekki venjulegt bankafólk, sem vinnur sín venjulegu störf sam- viskusamlega og ber ekki ábyrgð á vafasömum fyrirskipunum. Almenn- ingur veit ekki hver tekur hvaða ákvarðanir og því bitnar reiði fólks oft á þeim, sem ber ekki ábyrgð á spillingarmálum. Sagt hefur verið, að sumt bankafólk sé þrúgað af því andrúmi, sem ríkir í þjóðfélaginu og þeirri andúð, sem það verður fyrir. Flestir átta sig á, að þessi mál verða að gerjast út. Það er furðulegt, að ekki hafi ver- ið gripið í taumana fljótlega eftir að LÍ og KB-banki voru einkavæddir. Þá bárust fréttir af yfirgengilegum sjálftökum bankastjóra og ýmsum greiðslum þeim til handa svo lands- lýður hneykslaðist vægast sagt. Og það hélt áfram þrátt fyrir mikla reiðilestra. Og sjálftökur urðu einn- ig í Glitni, en þar gerðust ámóta hlutir og bankastjóri virtist í kapp- hlaupi við kollega í spilling- arbönkum í BNA. Þau mál hafa nú verið gerð upp og bankastjórar fangelsaðir og fyrirtæki jöfnuð við jörðu. Nei, málin héldu áfram hér fram yfir hrun. Bankarnir íslensku voru orðnir það stórir fyrir hrun, að velta þeirra jafnaðist á við tífalda þjóðarframleiðsluna. Þetta fékk fólk að heyra eftir hrun. Þetta var alveg stórhættulegt. En svo fékk fólk líka að heyra, að hluti þessa væru bara sápukúlur vegna þess, að eignir bankanna voru útblásnar með því að skrá ýktar væntingar og við- skiptavild sem eignir. Rótin að hruninu mun víst hafa falist í blekk- ingarleiknum. Þetta var allt sorg- arsaga. En nú eftir hrun hljóta bankarnir að koma við sögu í upp- byggingu nýs efna- hagskerfis. En hvernig eiga þeir að verða? Stórir sparisjóðir, sem stunda grunnviðskipti og útlán til einfaldra hluta, kaupa á fast- eignum og atvinnu- tækjum? – Eða eiga bankarnir að verða fjárfestingarbankar í sama stíl og þeir voru fyrir hrun? Með alls konar fjárfest- ingum og braski, sem almenningur hefur enga innsýn í og honum sagt, að fólki komi það bara ekkert við? Á að líta á bankana eins og gerjunart- anka, sem framleiða afurðir, sem eru verðmætar? Og taka áhættu og bralla í viðskiptum við alls konar ævintýramenn og peningafursta? Hvað hefur komið frá stjórnvöldum um þessi mál? Lítið sem ekkert. Fyrrverandi bankamálaráðherra olli vonbrigðum með því að gera ekki tillögur um hvernig bankar eigi að rísa úr rústunum. Einhverjar breyt- ingar urðu á lögum um fjármála- starfsemi, en þær snertu ekki bankaleyndina illræmdu. Ritari leyfir sér að halda því fram, að bankaleynd, eins og hún er viðhöfð víða erlendis, geti ekki gengið á Ís- landi. Í ESB er barist við banka- leynd eins og hverja aðra pest og í Þýskalandi eru stjórnvöld farin að kaupa stolnar upplýsingar um bankainnistæður ríkra manna í Sviss. Ef á þetta er minnst, þá kveð- ur við væl hjá frjálshyggjuöflum. Það er vandalaust að viðhafa vissa leynd og aðeins löggiltum eftirlits- mönnum leyft að skoða allar bækur. Fyrir stuttu fréttist, að LÍ hefði afskrifað 2,6 milljarða af skuldum fyrirtækisins Mónu, eign Skinn- eyjar-Þinganess, eða helming skulda. Móna er smáfyrirtæki, sem á tvær trillur. Mikill hvellur varð út af þessu og aðsúgur gerður að bank- anum. Svo kom fréttatilkynning frá honum. Hann sagðist hafa farið eftir verklagsreglum. Svo komu óskiljan- legar útlistanir um eignavirði o.fl., en bankinn virðist ekki hafa áttað sig á, að um er að ræða stórkostleg- ar pólitískar deilur um kvótakerfið í sjávarútvegi. Það hefur afgerandi áhrif á allt þetta, sem bankinn var að bralla. Og hann tekur einn ákvarðanir um afskriftir og í raun pólitísk mál. Fjármálaráðherra var spurður og hann vissi ekki neitt. Ja hérna. Viðkvæmustu mál virðast í gerjunartanki í banka og stjórnvöld vita ekkert. Er LÍ að verða að nýju mammonsklaustri? Borist er á banaspjót um hófsamar eftirgjafir á skuldum heimila og miklu lægri upphæðir en þær, sem virðast verða afskrifaðar af skuldum útgerða, en þær eru 5-600 milljarðar. Nýlega fréttist um greiðslur til skilanefndarmanna og þær voru yf- irgengilegar eða að meðaltali sjö sinnum hærri en laun forsætisráð- herra. Þetta bendir til þess, að þeir gangi eins langt og komist verður og að stjórnvöld hafi ekkert sett þeim kostina. Þeir ganga bara um eins og rotturnar í ostakjallaranum og segja, að einkabankarnir séu í eigu útlendra kröfuhafa. Þetta hlýt- ur að vera gamla Ísland. Auðvitað er mikið að gera í uppgjöri á milli gömlu og nýju bankanna og á með- an er erfitt að átta sig á stærð þeirra. En setja verður ramma til að minnka umfang þeirra. Í skýrslu Bankasýslu fyrir 2009 sést, að starfsfólk í fjármálaþjónustu hér var 4,69% af heildarvinnuafli, en það er tvöfalt miðað við Norðurlanda- þjóðir. Það getur ekki gengið. Þótt megrunarkúrinn verði erfiður, þá er ekki unnt að komast hjá honum. Og bankastjórar mega ekki verða aftur eins og lénshöfðingjar og umgang- ast laxveiðileyfi eins og aðrir nota matarmiða. Sparisjóðir eða mammonsklaustur Eftir Jónas Bjarnason » Spilling hjá stjórn- endum bankanna bitnar á starfsfólki. LÍ afskrifaði 50% skulda útgerðar. Starfsfólk banka hér er tvöfalt fleira en á Norðurlönd- um. Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur. Það sem haft hefur verið eftir þjóð- garðsverðinum á Þingvöllum, Ólafi Erni Haraldssyni, að ferðaþjón- ustan geri ekki athugasemdir við gjaldtöku á Þing- völlum, er ekki alls kostar rétt. Ólafur kynnti þetta sem ein- hliða ákvörðun stjórnar þjóð- garðsins og rök- semdin fyrir gjaldinu er að greiða þurfi fyrir uppbyggingu og viðhald salerna, stíga og fleiri þátta sem snúa að þjónustu við ferðamenn. Auðvitað gerir ferðaþjónustan sér grein fyrir því að það þarf fjármagn til að byggja upp ferðamannastaði og viðhalda þeim, en þessi leið að taka út ákveðinn hóp fyrirtækja og ætla að skattleggja þau með þessum hætti en sleppa öðrum, gengur ekki upp, það stenst einfaldlega ekki lög um jafnræði. Nú er þessi umræða komin af stað og þá má búast við því að þró- unin verði með sama hætti og víða erlendis, en þar er fólk víða rukkað um aðgangseyri að vinsælum ferða- mannastöðum og í sjálfu sér ekkert athugavert við það ef jafnræðis er gætt og gjaldið hóflegt. Það sem er athugavert við þessa umræðu hér er framkvæmdin á fyrirhugaðri gjaldtöku og verðlagningin. Að ætla að rukka rútufyrirtæki um allt að 300 kr fyrir farþega sem hefur viðkomu á Þingvöllum er allt of hátt gjald, á sama tíma og farþeg- um t.d. jeppafyrirtækja, minni hóp- ferðafyrirtækja og einstaklinga verði sleppt. Það felur í sér gríð- arlega mismunun sem verður aldrei samþykkt.Ef svona gjaldtaka á að geta gengið upp verður gjaldið að vera hóflegt og það sama að gilda fyrir alla, hvort sem um er að ræða farþega fyrirtækja, stórra eða þeirra minni, og einnig ein- staklinga. Ferðaþjónustan er gríðarlega mikilvæg og tekjur af erlendum ferðamönnum voru 155 milljarðar árið 2009 eða u.þ.b. 20% af öllum gjaldeyristekjum Íslendinga skv. ferðaþjónustureikningi og í ferða- þjónustunni störfuðu hátt í tíu þús- und manns. Allar álögur sem bæt- ast við draga úr áhuga ferðamanna á að koma til Íslands og það er al- veg hægt að skattleggja landið út af markaðnum, því við erum í harðri samkeppni við önnur lönd um farþegana. Ef áform ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur um stórauknar álögur á ferðamenn ganga eftir og við það bætast óhófleg komugjöld á vinsælustu ferðamannastaðina, fær- umst við enn nær því að skatt- leggja Ísland út af markaðnum og hver ætlar þá að greiða fyrir upp- byggingu og viðhald ferða- mannastaða? EINAR STEINÞÓRSSON, framkvæmdastjóri Kynnisferða ehf. Óhófleg gjaldtaka ferðamannastaða Frá Einari Steinþórssyni Einar Steinþórsson flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Sími 551 3010 Hárgreiðslustofan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.