Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 ✝ Hilmar fæddist áSiglufirði 23. apr- íl 1934. Hann lést á Droplaugarstöðum, Reykjavík, aðfara- nótt sunnudagsins 7. nóvember 2010. Hilmar var sonur hjónanna Guðjóns Jónssonar frá Dag- verðarnesi á Rang- árvöllum, f. 1898, d. 1977, og Magneu Halldórsdóttur frá Böggvisstaðagerði í Svarfaðardal, f. 1896, d. 1984. Föðurforeldrar voru Jón Böðvarsson, f. 1853, d. 1914, og Margrét Þórðardóttir, f. 1857, d. 1944. Móðurforeldrar voru Halldór Jónsson, f. 1864, d. 1941, og Mar- grét Friðriksdóttir, f. 1865, d. 1954. Systkini Hilmars eru Jón, f. 1924, d. 2005, Halldór Grétar, f. 1925, Bogi Þórir, f. 1926, Þórmar, f. 1929, Hlín, f. 1931, Einar Ingi, f. 1932, d. 2004, Bragi, f. 1936, d. 2010, og Elísa Dagbjört, f. 1937. Fyrri kona Hilmars er Dagbjört Halldórsdóttir, f. 1930. Þau skildu. Saman áttu þau fjóra syni. 1) Hall- dór Gunnar, f. 1953, giftur Sigríði bónda í Vorsabæjarhjáleigu, f. 1908, d. 1979. Börn þeirra eru 1) Björgvin, f. 1975, giftur Satu Rämö, f. 1980. Dóttir þeirra er Saga, f. 2010. 2) Guðný, f. 1976, gift Jordi Pujolà, f. 1972. Börn þeirra eru Christian, f. 2007, og Anný, f. 2009. 3) Aldís, f. 1978, gift Arnari Má Elíassyni, f. 1979. Synir þeirra eru Axel, f. 2007, og Kjart- an, f. 2009. Hilmar ólst upp á Siglufirði til sjö ára aldurs. Þá keypti faðir hans Málmey á Skagafirði og flutti þangað með fjölskylduna, þar sem þau dvöldust á stríðsárunum. Á friðardaginn 8. maí 1945 fluttust þau svo í Kópavoginn. Hilmar gekk í Austurbæjarskóla sem barn. Hann fór í Bændaskólann á Hvann- eyri og útskrifaðist sem búfræð- ingur árið 1953. Hann starfaði í fyrirtæki föður síns, Rörsteypunni í Kópavogi, frá unglingsaldri og var síðan meðeigandi þess til árs- ins 1976. Þá starfaði hann hjá birgðastöð Ríkisspítalanna á ár- unum 1977-1985. Síðan hjá Osta- og smjörsölunni allt til ársins 2001 en þá fór hann á eftirlaun. Hann var meðlimur í Rótarýklúbbi Kópa- vogs, sat í stjórn safnaðarfélags Áskirkju, vann í mörg ár sjálfboða- vinnu við bindindismótin í Galta- lækjarskógi og var félagi í reglu musterisriddara. Útför Hilmars fer fram frá Ás- kirkju í dag, 15. nóvember 2010, og hefst athöfnin kl. 15. Finnbjörnsdóttur, f. 1954. Þau eiga saman soninn Theodór, f. 1991. Börn Halldórs úr fyrra sambandi með Þóru Gunn- arsdóttur, f. 1953 eru Guðni Hilmar, f. 1974, Dagbjört Ósk, f. 1978, Halldór Þór, f. 1984. Fyrir átti Sigríður tvíburana Kristján og Björn, f. 1979. 2) Eysteinn Smári, f. 1955. Unn- usta hans er Irena Dzielak. Sonur Eysteins er Eðvald Smári, f. 1982. 3) Óskar Árni, f. 1960, giftur Maríu Ragnarsdóttur, f. 1962. Dætur þeirra eru Íris Rós, f. 1987, og Hanna María, f. 1990. 4) Emil, f. 1964. sambýliskona hans er Hafdís Svavarsdóttir, f. 1967. Börn þeirra eru Nadía Ýr, f. 1993, og Leó Snær, f. 1997. Hafdís átti fyrir Guðlaugu Svövu, f. 1986. Langafabörnin eru þrjú. Eftirlifandi eiginkona Hilmars er Guðrún Guðmundsdóttir, f. 1940. Dóttir Annýjar Guðjóns- dóttur ljósmóður, f. 1908, d. 1993, og Guðmundar Guðmundssonar, Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyr- ir að hafa fengið að kveðja þig og óska þér góðrar ferðar. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið vera hjá þér við síðasta andardráttinn og sjá hversu friðsæll þú varst. Umfram allt er ég þó þakklát fyrir að hafa fengið að eiga svona góðan pabba, mann sem ég hef alltaf getað litið upp til og alltaf getað treyst. Þú varst yndislegur maður og ég hlakka til að segja Kjartani frá þér og rifja upp með Axel stundir ykkar saman. Axel segir að þú sért kominn upp í geiminn þótt hann sé enn að velta fyrir sér hvernig þú komst þangað. Það var ómetanlegt að sjá þig með sonum mínum, þú sást ekki sólina fyrir þeim og vildir allt fyrir þá gera. Þú mátt vera stoltur af þeim og þín- um þætti í uppeldi þeirra. Takk fyrir allt elsku pabbi, takk fyrir að hafa gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Takk fyrir að hafa hugsað svona vel um mömmu og elskað hana svona mikið. Takk fyrir þína óeigingirni og hjálp- semi. Ég elska þig, pabbi minn, Aldís. Ég kýs að líta á lífið sem göngu um grýttan malarveg. Leið sem við öll verðum að fara, leið sem endar bara á einum stað. Við vitum ekki hvað bíður okkar á leiðarenda en ég trúi því að þeir sem hjálpuðu sam- ferðamönnum sínum sem hrasað höfðu um steinana á veginum, fái hrós fyrir, í það minnsta. Núna er örugglega verið að hrósa pabba mín- um í bak og fyrir. Hann hugsaði allt- af svo vel um þá sem minna máttu sín og passaði að enginn yrði útund- an, hvort sem um var að ræða menn, dýr eða náttúruna. Mér er það minnisstætt þegar hann, oftar en einu sinni, kom heim með eitthvað sem var sérstaklega handa mér, af því að ég var í miðj- unni. Því oftar en ekki lentu sameig- inlegar gjafir og verkefni í höndun- um á þeim elsta eða á þeirri yngstu. Þetta fann hann hjá sjálfum sér og sá að þarna átti greinilega ekki að gera upp á milli. Þetta er bara eitt dæmi um það hversu góðhjartaður og nærgætinn hann var. Elsku pabbi minn. Hann var góður maður. Það skein úr augunum á honum. Ég er ánægð að sjá þessi sömu augu líka þegar ég lít í spegil og finnst sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu líkur sonur minn er afa sínum. Þannig mun pabbi lifa áfram á meðal okkar. Kveðjustundin hefur verið löng og við höfum getað undirbúið okkur hægt og rólega undir fráfallið. Viss- um að það kæmi að því einn daginn. En það er samt sem áður erfitt og sérstaklega þegar farið er yfir allar ómetanlegu minningarnar. Allt sem hann gerði fyrir okkur, fólkið sitt. Fórnaði í raun sínu lífi til að við gæt- um notið þess að vera börn, ungling- ar og námsmenn. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hann hafi getað kynnst börnunum mínum og þau honum. Ég mun gera allt sem ég get til að halda minning- unni um hann lifandi svo að þau muni eftir tímanum með honum. Ég mun halda á lofti minningunni um pabba minn sem alltaf tók á móti öll- um með bros á vör og brandara í kaupbæti. Um handlagna heimilis- föðurinn sem kunni að laga allt. Um manninn sem tjáði sig ekki endilega í orðum en vissi hvenær átti að halda þétt í höndina. Minningunni um elsku besta pabba minn. Guðný Hilmarsdóttir. Pabbi gat lagað allt, fannst manni. Sannkallaður þúsundþjalasmiður. Ekki keypt nýtt í sífellu heldur reynt að nýta sem best. Hann var sem margir iðnaðarmenn í einum. Pabbi gerði allt vel og vandlega. Lét ekki frá sér hálf- eða illa unnið verk. Reglusamur, eyddi hvorki tíma né aur í eitthvert rugl. Pabbi var góður maður og alltaf til í að hjálpa öðrum og gleðja. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Ég hef fengið gott veganesti. Takk, pabbi. Björgvin. Ég hef alltaf litið á Hilmar sem myndarlegan mann, en þegar hann birtist innan um gotnesku súlurnar í ráðhúsinu í brúðkaupinu okkar Guð- nýjar, í kjólfötum og með sitt silkigráa fallega hár, gerði ég mér grein fyrir hversu glæsilegur maður hann var að auki. Ég man ekki eftir að hann hafi nokkurn tímann talað við mig öðru- vísi en á Íslensku. Yfirleitt beið ég bara eftir brosi frá honum og klappi á öxlina til að skilja hvað hann var að segja. Eini kosturinn við að vera útlend- ingur og skilja ekki neitt, er að mað- ur nýtir skynfærin til hins ýtrasta. Meðal annars tók ég strax eftir því að hann var mjög barngóður og mús- íkalskur – í hvert skipti sem hann gekk fram hjá götutónlistarmanni í Barselóna gaf hann pening í hattinn. Hendur hans voru færar um að laga hvaða hlut sem var, og ýmislegt sem ég hefði sent beina leið í ruslið. En umfram allt tók ég eftir því að hann var góður við þá sem minna máttu sín. Sá hópur manna er til, sem alla ævi fóru snemma á fætur til að vinna hörðum höndum, komu þreyttir heim eftir langan vinnudag, en samt sem áður með von um að hitta börnin sín og verja tíma með þeim. Þessi hópur manna fer allur upp til himna og Hilmar, án nokkurs vafa, er einn af þeim. Kæri Hilmar, takk fyrir samfylgd- ina. Spænski tengdasonur þinn, Jordi Pujolà. Elsku Hilmar langafi. Alltaf var gaman að koma í heim- sókn til þín. Þú kenndir mér að spila á orgelið þitt.Við spiluðum alltaf á það þegar ég kom í heimsókn. Fyrsta lagið sem þú kenndir mér var Gamli Nói. Þegar þú keyptir þér nýtt gafstu mér þitt gamla, og það hafa mörg lögin verið spiluð á það. Man líka að þú sagðir mér að það mikilvægasta væri að sitja beinn í baki þegar maður er að spila. Hvíldu í friði, Róbert Halldór. Nú er fjórði bróðirinn farinn í stórri fjölskyldu Guðjóns Jónssonar og Magneu Halldórsdóttur. Þau eignuðust níu börn, sjö drengi og tvær stúlkur. Nú horfum við á eft- ir frændfólki okkar einu af öðru og um leið missum við einhver tengsl sem erfitt er að halda í. Við afkom- endur þessa stóra systkinahóps höf- um reynt að halda í tengslin við hvert annað og ætlum að gera það áfram. Fyrir sjö árum hittumst við á Laugalandi í Holtum og áttum sér- lega góða helgi saman. Öll systkinin voru mætt með stóran hóp afkom- enda og við lékum okkur í sumar- blíðunni við börn og barnabörn á öll- um aldri. Þá var Hilmar frændi hress og glaður og hans afkomendur fjölmenntu á ættarmót „ Guddara“ eins og við nefnum okkur oft. Fyrir tveimur árum fór lítill hópur Guddara út í Málmey í Skagafirði til að skoða minjar um veru fjölskyldu Guðjóns og Magneu í Málmey. Það var mikil upplifun og fór Bogi bróðir með okkur og sýndi og sagði frá ár- unum í Málmey. Þar bjó þessi fjöl- skylda í mikilli einangrun í 3 ár og sótti aðföng til lands það sem ekki var hægt að rækta eða yrkja í eyj- unni. Þá voru systkinin á skólaaldri og fengu kennara út í Málmey og elsta bróðurinn til að sinna skólalær- dómi barnanna. Afar ljúfar minningar á ég og mín fjölskylda um árin á Hlíðarvegi í Kópavogi þar sem Guðjón afi reisti myndarlega rörsteypu sem var starfrækt árum saman í bragga á lóðinni. Síðar var reist nútímalegri verksmiðja við Fífuhvammsveg þar sem Hilmar starfaði með föður sín- um um árabil. Ljúfar eru þær minningar þar sem stórfjölskyldan hittist í mat eða kaffi á notalegu heimili Guðjóns og Magneu, tínd voru sólber og rifsber, farið í leiki og mikið hlegið og mikið borðað. Þá voru strákarnir hans Hilmars og Döggu aðalgrallararnir, enda heimavanir og bjuggu líka á Hlíðarveginum. Síðar eignast Hilm- ar nýja fjölskyldu og fleiri börn og marga afkomendur sem hafa verið duglegir að hitta okkur á barna- barnamótum. Ég og mínar systur áttum skemmtilega stund með Guð- nýju og fjölskyldu í Barcelona í júní á þessu ári. Það var alltaf gott að hitta Hilmar, það var stutt í glensið. Greinilegt var að Hilmar naut sín vel í stórum hópi barna og barnabarna hvenær sem við hittumst. Mig langar að þakka þér, Hilmar frændi, fyrir þennan góða hóp ætt- ingja sem ég á í dag, ef þið systkinin hefðuð ekki verið svona dugleg að eignast börn værum við stórfjöl- skyldan ekki svona rík. Ég þakka líka fyrir að Hilmar þurfti ekki að þjást lengi og berjast við illvígan sjúkdóm, svona vildi hann örugglega hafa lífslokin, fá að kveðja þegar lífs- þrekið þvarr. Kæra Guðrún og allir mínir frændur og frænkur, við skulum muna eftir hvert öðru og styrkja þegar við komum því við. Hvíl þú í Guðs friði, kæri frændi, ég veit að Jón bróðir þinn, Einar, Bragi og for- eldrar ykkar taka vel á móti þér í nýjum heimkynnum. Hildur Gréta Jónsdóttir. Hilmar Friðrik Guðjónsson Í dag fylgjum við til grafar Maríu Sigurð- ardóttur, vinkonu okkar til rúmlega 45 ára. Um það leyti kynntumst við nokkrar mæður og stofnuðum félag- ið „Urtur“ í sambandi við Skátafé- lagið Kópa í Kópavogi til styrktar börnum okkar sem þar voru með- limir. Við vorum ákaflega líflegur fé- lagsskapur, héldum basara, kaffisöl- ur, skemmtikvöld og bundumst um leið tryggðaböndum sem ekki hafa rofnað enn þann dag í dag. Eftir að við hættum að starfa að fjáröflun höfum við hist vikulega í kaffi- drykkju og spjall, farið saman í ferðalög, leikhús og gert ýmislegt annað okkur til gamans. María var ein af burðarstoðum þessa félagsskapar, glaðlynd, hress og tilbúin fram á síðustu stund að taka þátt í, hvort heldur voru fundir eða ferðalög. Reisn og rausn voru María Sigurðardóttir ✝ María Sigurðar-dóttir fæddist í Reykjavík 24. nóv- ember 1926. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 30. októ- ber 2010. Útför Maríu var gerð frá Grensásirkju 11. nóvember 2010. hennar aðalsmerki. Hún var ákaflega gestrisin og gjafmild. Að stinga að manni heimaprjónuðum sokkum, vettlingum eða bakstri þótti henni sjálfsagður hlutur. Síðustu árin hafa verið þeim hjónunum erfið, kannske miklu erfiðari en mann grunaði. En María stóð sig eins og hetja bæði í veikindum Konráðs og sínum eig- in. Enga okkar grunaði nokkrum dögum áður en hún dó að hún ætti ekki afturkvæmt. En þetta var stutt en hörð barátta. Við vitum það eitt að við eigum eftir að sakna hennar mikið og minnast þess oft hve dátt hún hló og stríddi okkur á hve við værum farn- ar að eldast. Svona tínumst við út hópnum ein og ein og hverrar er sárt saknað. Við kveðjum þig að lokum, elsku María, með þeim orðum að sá sem öllu ræður „leiði þig að lokum heim til sín í landið þar sem eilíf birta skín“. Kærar kveðjur og þökk fyrir allt. Anna, Ásta, Bjarndís, Dóra, El- ín A., Elín R., Geirþrúður, Hulda, Jórunn, Aðalheiður, Margrét, Ragnheiður og Steina. ✝ Ása Björgúlfs-dóttir fæddist í Reykjavík 16. janúar 1928. Hún lést á Landspítala í Foss- vogi 10. október 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Benediktsdóttir hús- móðir, f. 9.6. 1893, d. 29.11. 1981, og Björgúlfur Ólafsson læknir, f. 1.3 1882, d. 15.2. 1973. Systkini Ásu: Sig- rún, f. 1922, d. 1979, Egill, f. til Bandaríkjanna og starfaði þar næstu 20 árin við skrif- stofustörf hjá stóru skipafélagi og bjó fyrst Í Los Angeles en lengst af í San Francisco. Árið 1970 flutti hún aftur heim og starfaði lengstum hjá Náms- gagnastofnun þar til hún lét af störfum 1995. Af áhugamálum Ásu skipaði tónlistin hæstan sess, en þær sungu saman fjórar bekkj- arsystur í Versló, bæði á skemmtunum í skólanum og ut- an hans. Hún ferðaðist mikið og víða og heimsótti marga staði sem ekki var á almannafæri þá. Ása var einhleyp og barnlaus. Hún bjó til æviloka á Seltjarn- arnesi. Útför Ásu fór fram í kyrrþey. 1924, d. 2000, Þór- unn, f. 1931, og Ólafur, f. 1935. Á fyrsta ári futti Ása að Bessastöð- um á Álftanesi og ólst þar upp fram á unglingsár er hún fluttist með fjöl- skyldu sinni á Sel- tjarnarnes. Að loknu námi í Versl- unarskólanum vann hún í nokkur ár sem skrif- stofustúlka í Reykjavík. Árið 1950 flutti Ása Nú hefur móðursystir mín, Ása Björgúlfsdóttir, kvatt okkur og hald- ið inn í veiðilöndin eilífu. Ása bernsku minnar var spennandi kona og glæsileg sem hafði búið í Ameríku og kom oft heim hlaðin gjöfum handa okkur öllum systkinabörnum sínum. Hún hleypti ung heimdraganum og bjó í mörg ár vestra en sneri al- komin heim á sjöunda áratug liðinn- ar aldar. Hún ferðaðist víða og fór ekki endilega troðnar slóðir. Ása frænka mín var óaðskiljanlegur hluti fjölskyldu okkar og við öll hátíðleg tækifæri hló hún mest og söng hæst. Þegar líða tók á ævina gerðist frænka mín svolítill einfari, sinnti hvorki frændfólki né vinum. Það er svo sem ekkert nýtt að fullorðnir dragi sig inn í skel og flýi skarkala heimsins, það gerir hver sem honum sýnist í þeim efnum. Ég náði því að tala aðeins við þessa öldnu frænku mína nokkrum dögum áður en hún kvaddi og fyrir það er ég þakklát. Ég óska henni góðrar ferðar. Þórunn Hreggviðsdóttir. Ása Björgúlfsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.