Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 22

Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 22
22 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Sudoku Frumstig 1 2 5 6 7 2 1 4 7 4 3 6 2 9 5 5 3 1 7 1 6 4 2 9 4 9 3 5 1 9 8 2 8 9 7 9 2 3 5 6 5 6 7 6 1 2 5 3 7 7 1 8 7 2 5 8 6 4 2 9 9 1 4 7 6 8 9 2 5 4 1 1 5 8 5 6 9 1 4 6 5 9 1 2 7 8 3 2 1 3 7 5 8 9 6 4 7 9 8 4 6 3 5 2 1 6 7 4 8 9 5 3 1 2 5 3 1 6 2 7 4 9 8 8 2 9 1 3 4 6 7 5 3 8 6 2 4 9 1 5 7 9 5 7 3 8 1 2 4 6 1 4 2 5 7 6 8 3 9 9 5 7 8 4 2 6 3 1 6 3 8 5 9 1 7 2 4 1 2 4 3 6 7 9 8 5 4 7 1 6 5 8 3 9 2 2 8 3 9 7 4 1 5 6 5 6 9 1 2 3 8 4 7 8 4 6 7 3 5 2 1 9 7 1 2 4 8 9 5 6 3 3 9 5 2 1 6 4 7 8 5 4 2 3 1 9 8 7 6 8 3 1 7 6 4 2 9 5 6 7 9 2 8 5 1 4 3 1 6 4 8 2 3 7 5 9 7 5 3 9 4 1 6 8 2 9 2 8 6 5 7 3 1 4 2 8 5 4 7 6 9 3 1 4 9 6 1 3 8 5 2 7 3 1 7 5 9 2 4 6 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 15. nóvember, 319. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En ég mun sakir réttlæt- isins skoða auglit þitt, þá er ég vakna, mun ég mettast af mynd þinni. (Sálm. 17, 15.) Að segja að líf okkar nútíma-mannfólksins sé fullt af álagi og streitu er jafn klisjukennt og það er satt. Með því verður ekki sagt að líf forfeðra okkar hafi verið laust við streitu, líf bóndans fyrr á öldum hef- ur án efa verið streitukennt. Bóndi, sem á allt sitt undir veðrinu þegar að heyskap kemur, er eflaust stress- aður, að minnsta kosti þar til hey er þurrt og komið í hlöðuna. x x x Hvað um það. Þrátt fyrir alla þástreitu sem við lifum við höfum við margar mismunandi aðferðir til að losa um þessa streitu og létta lundina. Íþróttir og líkamsrækt eru afar góðar aðferðir til að slaka á og þá er hófleg neysla áfengis í góðra vina hópi það sömuleiðis, en leggja ber áherslu á hófið í því sambandi. Ofdrykkja er hvorki slakandi né andlega holl. x x x Víkverji hefur fundið enn aðraleið til að slaka á eftir langan vinnudag og það er bakstur. x x x Víkverji er hins vegar kenjótturþegar kemur að bakstri í lækn- ingatilgangi. Bakstur á rjóma- eða súkkulaðikökum þykir honum ekki hjálpa til, heldur vill hann frekar baka kryddkökur og annan haust- bakstur, enda er ilmurinn af kökunni stór hluti af lækningakraftinum. Getur hann til dæmis mælt með kúmenköku (e. Seed Cake) Deliu Smith, sem finna má á vefsíðu henn- ar, www.deliaonline.com. x x x Best af öllu er hins vegar að bakabrauð. Gerdeig er lifandi og það er eitthvað róandi og afslapp- andi við að hnoða brauðdeig í hönd- unum. Þá verður sálin svo meyr og mjúk þegar maður sest niður með ilmandi og rjúkandi heitt brauð í annarri hendinni og kaffibolla í hinni og horfir á smjörið bráðna í brauð- sneiðina áður en maður bítur í. Það er ekkert sem kemst nálægt slíkri stund þegar maður leitast við að róa sálarskarnið. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 gosdrykkurinn, 8 gjalds, 9 venja, 10 kjöt, 11 gæfa, 13 peningar, 15 stillt- ar, 18 vondan, 21 ríkidæmi, 22 kalviður, 23 sigruðum, 24 matarskrína. Lóðrétt | 2 leyfi, 3 röska, 4 sjúga, 5 lykt, 6 þvottasnúra, 7 at, 12 spil, 14 reyfi, 15 ræma, 16 greppatrýni, 17 hunda, 18 svelginn, 19 láðs, 20 að undanteknu. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gaufa, 4 hælum, 7 uggur, 8 lætur, 9 sót, 11 aumt, 13 árar, 14 ókátt, 15 hagl, 17 alur, 20 áta, 22 fánýt, 23 gætin, 24 romsa, 25 agnir. Lóðrétt: 1 gaupa, 2 ungum, 3 aurs, 4 holt, 5 letur, 6 múrar, 10 ófátt, 12 tól, 13 áta, 15 hafur, 16 gónum, 18 látin, 19 Rúnar, 20 átta, 21 agga. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. a4 Rc6 7. Be2 e6 8. O-O Be7 9. Be3 O-O 10. f4 Dc7 11. Kh1 He8 12. Bg1 Hb8 13. Dd3 Rxd4 14. Bxd4 e5 15. Ba7 Ha8 16. Be3 exf4 17. Bxf4 Be6 18. Had1 Hed8 19. Dg3 Re8 20. e5 dxe5 21. Bxe5 Bd6 22. Hxd6 Hxd6 23. Re4 Dxc2 24. Rf6+ Rxf6 25. Bxf6 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti í Bor í gömlu Júgóslavíu árið 1984. Jón L. Árnason, sem er nýorðinn fimm- tugur, hafði svart gegn Sergey Ku- drin sem tefldi þá undir fána Sov- étríkjanna. 25. … Bg4! 26. Dxg4 Hxf6 27. Hxf6 h5! 28. Df5 Dxe2 29. Hxf7 De8! og hvítur gafst upp enda mát eða liðstap óumflýjanlegt. Kudrin varð síðar öflugur stórmeistari og hefur nú um langt skeið teflt undir fána Bandaríkjanna. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Búið spil. Norður ♠ÁG4 ♥ÁKG10 ♦G762 ♣K9 Vestur Austur ♠K73 ♠D985 ♥986 ♥7532 ♦K1084 ♦5 ♣1073 ♣8652 Suður ♠1062 ♥D4 ♦ÁD93 ♣ÁDG4 Suður spilar 6G. Útspilið er ♥9 og sagnhafi sér fram á tólf auðvelda slagi ef tígullinn hegðar sér skikkanlega. Hann tekur fyrsta slaginn í blindum og spilar strax tígli á drottninguna. Búið spil – vestur drep- ur og síðan fær vörnin hægfara slag á spaða í lokin. Út frá tíglinum einum og sér er ekki rangt að svína ♦D, en sagnhafi hefur óbeinan hag af því að spila frekar ♦Á og síðan tígli að gosa. Vestur má ekki fara upp með ♦K og sú staðreynd gef- ur sagnhafa svigrúm til að nýta spað- ann. En hann þarf að vanda sig. Réttu handtökin eru að taka fyrst hjartaslag- ina og laufin á eftir. Síðasta laufið neyðir vestur til að fara niður á ♠Kx. Þá er spaða spilað á gosann. Austur fær á ♠D, en síðan fellur ♠K bljúgur undir ásinn og ♠10 verður tólfti slagur sagnhafa. 15. nóvember 1923 Þórbergur Þórðarson rithöf- undur byrjaði, að eigin sögn, að skrifa bréf til Láru Ólafs- dóttur. Bréfið var birt í sam- nefndri bók, Bréf til Láru, ári síðar og vakti mikla athygli. Stefán Einarsson prófessor sagði að bréfið hefði verið „ritað í glæsilega snjöllum stíl“. 15. nóvember 1951 Útvarpsstöð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, Radio Station TSK, hóf útsendingar. Útvarpað var „fréttum, hljóm- list og þar fram eftir göt- unum,“ að sögn Dags. 15. nóvember 1978 Mesta slys íslenskrar flugsögu varð þegar 197 manns fórust er þota sem var í eigu Flug- leiða hf. hrapaði í lendingu á Colombo á Sri Lanka. Flug- vélin var í pílagrímaflugi. Átta íslenskir flugliðar létust en fimm komust lífs af. 15. nóvember 1999 Guðjón Þórðarson tók við starfi knattspyrnustjóra hjá Stoke City. Nokkrum dögum áður höfðu íslenskir fjárfestar keypt meirihluta í þessu enska annarrardeildarliði. 15. nóvember 1999 Edduverðlaun Íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsaka- demíunnar voru afhent í fyrsta sinn. Ungfrúin góða og húsið, kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, hlaut fimm af þeim ellefu verðlaunum sem veitt voru. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist… „Ég hafði hugsað mér að halda „low profile“ að þessu sinni,“ segir afmælisbarn dagsins, Hjálmar Árnason, sem fyllir sjötta tuginn í dag. „Í mínum huga er þessi dagur ekkert merki- legri en aðrir, mér finnst allir dagar skemmti- legir. Það er svo gaman að vera til. En auðvitað er gaman að gera sér dagamun með vinum og fjöl- skyldu,“ segir Hjálmar. „Ég held upp á daginn í nokkrum lotum. „Ég býð mínum nánustu í brunch á afmælisdaginn og næstu helgi býð ég börnum mínum og tengdabörnum í sumarbústað. Barna- börnin fá ekki að koma með að þessu sinni, þetta verður fullorðinsferð.“ Hjálmar var lengi kennari í grunn- og menntaskólum og var um tíma skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn 1995-2007. Hann starfar nú sem framkvæmda- stjóri Keilis. Hjálmar hélt veglega upp á 50 ára afmælið sitt. Gjafirnar voru ekki síður veglegar, meðal þeirra var heill karlakór sem hann fékk í gjöf frá eiginkonu sinni. Hann segist ekki búast við jafn umfangsmikilli gjöf í ár, á óskalistanum eru hlýjar óskir. annalilja@mbl.is Hjálmar Árnason er sextugur í dag Fékk karlakór í afmælisgjöf Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Flóðogfjara 15. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 1.17 2,9 7.32 1,6 13.52 3,0 20.16 1,4 9.57 16.29 Ísafjörður 3.31 1,5 9.34 0,9 15.53 1,7 22.21 0,7 10.21 16.14 Siglufjörður 5.49 1,0 11.48 0,6 17.57 1,1 10.05 15.57 Djúpivogur 4.25 1,0 10.55 1,7 17.08 0,9 23.28 1,7 9.31 15.54 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Í kvöld öðlast örlög þín meiri dýpt og ný persóna kemur inn í myndina. Eigðu frum- kvæði að nýjum fundi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þrátt fyrir að þú eigir meira en nóg af dóti, langar þig í eitthvað nýtt. Hvort þú hefur efni á því má alltaf deila um. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Löngun þín í frelsi og flótta frá hversdagslegu amstri er sterk í dag. Kannski verður hrifningin skammvinn, en þá er enn meiri ástæða til að gera hana eftirminnilega. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er nauðsynlegt að huga að hverju smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt. Mundu að haga orðum þínum kurteislega. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú skapast stund milli stríða. Ef vel- gegni þeirra sem þú kennir er helsta mark- mið þitt ertu svo sannarlega leiðtogi. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ef þú slakar hvergi á í lokin mun þetta verkefni færa þér mikið lof og prís. Tími breytinga er runninn upp. Þú munt alltaf eiga nóg til hnífs og skeiðar. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér tekst að vera í indælu skapi – jafnvel þó að ýmislegt bjáti á. Gaumgæfðu alla möguleika og reyndu að forðast óþarfa áhættu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert hreinlega að springa, þig langar svo að flytja öðrum boðskap þinn. Tíndu fyrst til kostina og láttu þá ráða ferð- inni, því þannig verða ókostirnir auðveldlega yfirunnir. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ef þið eruð sannfærð um ágæti eigin skoðana eigið þið að berjast fyrir þeim af festu og öryggi. Reyndu að vera ekki of plássfrek/ur. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það gengur ekki að ætla sér að halda áfram með alla enda lausa. Kláraðu verkið. Rómantík og galsi eiga upp á pall- borðið hjá þér. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú ert fullur af krafti og iðar í skinninu eftir að koma öllu því í verk sem hef- ur verið á biðlistanum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú veist alltaf strax hvernig leysa skal vandamál annarra. Ekki nota fyrstu lausnina sem kemur upp í hugann. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.