Morgunblaðið - 15.11.2010, Side 23
DAGBÓK 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR! JÓN,
JÓN, JÓN,
JÓN...
AF HVERJU
HORFIRÐU SVONA
Á MIG?
ÞÚ SKULDAR MÉR
ÞRJÚ „GRETTIR”
VELKOMINN
HEIM!
ER ALLT Í LAGI AÐ KLAPPA
HONUM ÞÓ HANN SÉ BÚINN
AÐ VERA VEIKUR?
ÉG MYNDI EKKI VILJA
SMITAST AF EINHVERJU! ERU ÞAÐ NÚFORDÓMAR!
MANSTU
ÞEGAR ÞÚ SAGÐIR
MÉR AÐ TAKA AÐEINS
ÞAÐ MIKILVÆGASTA
MEÐ MÉR FRÁ
BORÐI?
JÁ,
HVAÐ TÓKSTU
MEÐ ÞÉR?
UPPÁHÁLDS
PÖNNUNA MÍNA
EN ÉG HELD
AÐ ÉG VERÐI AÐ
SLEPPA HENNI
GRÍMUR, HELDURÐU
AÐ ÞAÐ SÉ MIKIL-
VÆGT AÐ FINNA
SÉR KONU MEÐ
GOTT SKOPSKYN?
JÁ, ÞAÐ ER FÁTT
JAFN MIKILVÆGT
FYRIR SAMBAND OG
ÞAÐ AÐ GETA
HLEGIÐ SAMAN
JÁ, ER
ÞAÐ?
ÉG
HELD AÐ
ÉG ELSKI
ÞIG!
HVAÐ ER
EIGINLEGA
Í GANGI?
ÞAÐ
LÍTUR ÚT
FYRIR AÐ HANN
HAFI VERIÐ AÐ
SVINDLA Á
OKKUR
HANN ER
BÚINN AÐ LOKA
SKRIFSTOFUNNI
SINNI OG FINNST
HVERGI
HVAÐ
LÉTUÐ ÞIÐ
HANN HAFA
MIKINN
PENING?
HELLING!
VIÐ ERUM
BÚIN AÐ
VERA MEÐ
HANN Í
20 ÁR
ÉG VISSI ALLTAF AÐ
ÞAÐ VÆRI EITTHVAÐ
BOGIÐ VIÐ HANN!
GREINILEGA
EKKI!
HVERNIG
VISSIRÐU ÞETTA?
HENRY FRÆNDI
SAGÐI MÉR ÞETTA
EN ÞÚ
VARST SVO
UNGUR ÞEGAR ÉG
FÓR Í
FANGELSI
BRÓÐIR
MINN LOFAÐI
AÐ SEGJA ÞÉR
EKKI FRÁ
ÞESSU
JÁ, EN ÞEGAR ÉG
VARÐ ELDRI ÁKVAÐ HANN
AÐ SEGJA MÉR ÞETTA
Fjarlægið
klumpinn
Gott fólk bjó til sín
heimili í Laugarnes-
inu. Nálægt Laugar-
nestanga sem er frið-
aður. Stutt í bæinn.
Árið 1956 var
ákveðið að Laugar-
nestúnið skyldi til-
einkað kjötiðnaði og
yfirlýst að fyrirheit
um grænt svæði hefðu
verið mannleg mistök.
1974 harmar borgar-
stjórn þessi mistök en
skipuleggur túnið fyr-
ir kjötvinnslu.
Síðar segir borgarstjóri skv. MBL
2. nóv. ’76: að gert væri ráð fyrir
auðu og opnu svæði þarna og gert
aðlaðandi, t.d. lítinn golfvöll. Fólk
sem staðsetti sig með sjóndeildar-
hring frá Reykjavík - Snæfellsjökul -
Akrafjall - Esju upp að Skálafelli var
svívirt og svipt vegna mannlegra
mistaka.
Sem sagt krakkarnir voru reknir
af þeirra leiksvæði og SS sláturhús
og pylsugerð sköðuðu túnið.
Alls skrifuðu 630 Laugarnesbúar
undir mótmæli en fengu enga mis-
Velvakandi
kunn frá borgaryfir-
völdum og klumpur
reis.
Núna er Listahá-
skóli Íslands á miðju
túninu og ekki bætir
að ríkið á spilduna.
Með virðingu fyrir
gildi fólks sem naut
móður náttúru með
óskertum sjóndeildar-
hring má nefna Hall-
gerði langbrók, Jón
Sigurðsson, sóma Ís-
lands sverð og skjöld –
og Þuríði formann.
Laugarnesbúar vilja
núna endurheimta rétt
sinn.
Finnið Listaháskóla Íslands góð-
an stað og fjarlægið klumpinn,
pylsugerðina. 630 þá, fleiri núna.
Viljum túnið sem yndisauka tengt
Laugarnestanga og komandi fái að
njóta sjóndeildarhringsins sem
mamma og pabbi, amma og afi nutu
og hinir eldri sem mótmæltu órétt-
læti öðlist trú á réttlætinu.
Helgi Steingrímsson,
Laugarnesvegi 88.
Ást er…
… að láta ennþá eins og
nýgift hjón.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Árskógar 4 | Handav./smíðar/útsk. kl. 9,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur allan
daginn, handavinna, leikf. kl. 13, sögu-
stund kl. 13.45.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín kl.
9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8, bænast./
umræða kl. 9.30, leikfimi kl. 11 og 14.
Upplestur.
Félag eldri borgara í Kópavogi Fé-
lagsvist er spiluð í Gjábakka á mið. kl. 13
og fös. kl. 20.30, í Gullsmára á mán. kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Jóga kl.
9.30. Brids kl. 13. Kaffi/spjall kl. 13.30,
danskennsla - námskeið kl. 18.
Félagsheimilið Boðinn | Handavinna og
jóga kl. 9, stafaganga kl. 16 (Glóðin),
hringdans kl. 18.
Glerbrennslunámskeið, síðasta á árinu, kl.
14.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía/gler/
postulín kl. 9.30, lomber kl. 13, canasta kl.
13.15, kóræf. kl. 17, skapandi skrif kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Postu-
lín kl. 9, ganga kl. 10, handav./brids kl. 13,
félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Kristbjörg
Kjeld gestur í Breiðholtslaug kl. 7.30.
Vinnustofur kl. 9, spilasal. op. e. hád. Kó-
ræf. kl. 15.30. Á morgun kl. 7.30 er Elsa
Yeoman gestur í pottakaffi í Fellaskóla kl.
9 Dagur íslenskrar tungu, Gerðubergs-
kórinn syngur.
Háteigskirkja - starf eldri borgara | Fé-
lagsvist kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna, bæna-
stund, matur, myndlist.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl.
10 frá Haukahúsi, kór kl. 10.30, Helgi Selj-
an næst 18. nóv. kl. 13.30, glerbræðsla/
tréskurður kl. 13, félagsv./botsía kl. 13.30.
Vatnsleikfimi kl. 14.40.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30, 9.30
og 10.30. Vinnustofa kl. 9, brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Þri. 16. nóv. kl. 20.
ræðir Sigurður Gylfi Magnússon, sagn-
fræð. um ævisögur. Miðasala stendur yfir
á Vínarhljómleika 7. jan.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smára kl.
11.30, ganga frá Boðanum kl. 16.
Korpúlfar Grafarvogi | Ganga í Egilshöll
kl. 10, skartgripa/kortagerð kl. 13. Sjúkra-
leikfimi í Eirborgum v. Fróðengi kl. 14.30.
Á morgun sundleikfimi kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, handavinna,
vinnustofa kl. 9-16, útskurður, samvera
með djákna kl. 14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band/postulín kl. 9, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, framhaldss. kl. 12.30,
handav.st. opin e. hádegi, spil, stóladans
kl. 13.
Séra Hjálmar Jónsson dóm-kirkjuprestur hitti nágranna
sína við Kirkjutorgið, Esther og
Karl í Pelsinum. Hann stóðst ekki
mátið:
Kalli er mættur, klæddur pels,
með konu sinni.
Hann er líkur Ernie Els
en aðeins minni.
Hjálmar Freysteinsson heyrði af
því að Bretadrottning hefði opnað
fésbókarsíðu:
Vinsæl lesning löngum var
um lausung, dufl og kvennafar,
nú má finna fréttirnar
á fésbókarsíðu drottningar.
Grétar Snær Hjartarson var að
tálga spýtur úti í kofanum sínum,
sjálfviljugur en ekki af sömu ástæð-
um og Emil í Kattholti, og varð
hugsað til fyrrverandi vinnufélaga
hjá Innkaupastofnun ríkisins, Axels
Benediktssonar aðalbókara: „Hann
var góður hagyrðingur, einlægur
krati og samdi um árabil vísur, sem
birtust á baksíðu Alþýðublaðsins,
dag hvern, undir dulnefninu „Kank-
vís“. Árið 1962 birtist eftir hann ljóð
sem, vegna komandi kosninga hygg
ég, fjallaði um fyrrverandi bónda,
sem sóttist sjálfsagt eftir þingsæti.
Ljóðið heitir einfaldlega „Fyrrver-
andi bóndi“ og fylgir hér með sem
viðhengi og hægt að syngja undir:
„Vertu hjá mér Dísa“:
Ég var einu sinni bóndi, sem bjó í dalakofa
og bölvaði þá stritinu af innstu hjartans list.
Ég lítið fékk að borða, en minna samt að
sofa,
um síðir gafst ég upp og fór í þurrabúð-
arvist.
En Framsókn hef ég alla tíð fylgt af mestu
prýði,
mér fagnandi var tekið og boðið inn hjá SÍS.
Og glaður skal ég andmæla öllu sveitaníði,
og auðvitað eru bændurnir sá flokkur, sem
ég kýs.
Nú hef ég lært að bölva öllum bæjaryf-
irvöldum,
en blessa það og dásama, sem áður hljóp
ég frá.
Og bændum flyt ég lofgjörð með þökkum
þúsundföldum,
því það er sveitatilveran, sem lífið veltur á.
Og sjálfsagt er að fjölga þeim, sem landið
okkar erja,
og annast kýr og rollur á hverjum sólar-
hring.
Og fyrir bæjarspillingu bændur þarf að
verja.
Því bið ég, kæru vinir; Ó, sendið mig á
þing.“
Vísnahorn
Af kosningum og fésbókarsíðu