Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Andri Karl
andri@mbl.is
Komi til handalögmála í miðborg
Reykjavíkur grípur lögregla á stund-
um til þess ráðs að skakka leikinn,
taka upp í lögreglubifreið æsta þátt-
takendur og aka stutta vegalengd frá
vettvangi en sleppa þeim þar. Leyfa
þeim að kæla sig niður. Með því móti
tekst að stöðva slagsmálin fljótt og
auðveldlega án þess að nokkur sé
handtekinn og lögregla getur haldið
áfram að sinna verkefnum sínum. En
ekki þessa helgi. Hæstiréttur hefur
kveðið upp úr um að ekki sé lagastoð
fyrir þessari vinnuaðferð lögreglu,
sem þó hefur tíðkast í áraraðir og jafn-
vel áratugi.
„Þetta kallar á enn meiri forgangs-
röðun verkefna lögreglu,“ segir Snorri
Magnússon, formaður Landssam-
bands lögreglumanna. „Og ég held að
þetta muni hafa áhrif á starfsaðferðir
lögreglu í miðborginni en ekki síður á
stærri viðburðum, s.s. útihátíðum
hingað og þangað um landið þar sem
engin starfsaðstaða lögreglu er til
staðar. Það sýnir sig með þessu að
ekki er hægt að vinna mál eins og þau
hafa verið unnin, s.s. til að koma í veg
fyrir að menn teppi lögreglumenn og
lögreglutæki. Mál sem flokkast undir
minniháttar og hægt er að afgreiða
með þessum hætti.“
Verður ekki vikið úr starfi
Þrátt fyrir dóm Hæstaréttar hefur
hann engin áhrif á störf viðkomandi
lögreglumanns. Farið var yfir málið
hjá embætti ríkislögreglustjóra og
ekki þóttu forsendur til brottvikning-
ar.
Þegar skoðuð eru lögreglulögin má
sjá að í 38. gr. er vikið að inntöku ný-
nema í Lögregluskólann. Þar segir að
lögreglumannsefni megi ekki hafa
gerst brotleg við refsilög, en það gildi
þó ekki ef brot er smávægilegt.
Sé ákvæðið skoðað með hliðsjón af
því sem kemur fram í dómi Hæsta-
réttar má glögglega sjá að brot lög-
reglumannsins má túlka sem smá-
vægilegt. Í dóminum segir að fyrir
lögreglumanninum hafi vakað „að
fjarlægja mann sem truflað hafði lög-
reglumenn að skyldustörfum og kom-
ast sem fyrst aftur til þess að sinna
brýnu löggæsluverkefni“ auk þess
sem ekki hafi verið hætta á að hinum
handtekna manni yrði meint af.
Eftir stendur hvaða áhrif verða af
dómnum, ekki síst í ljósi niðurskurðar
lögregluliða og hversu þunnskipuð
þau nú þegar eru. Ef lögreglu er
óheimilt að fjarlægja af vettvangi ein-
stakling, s.s. vegna almannahags-
muna eða allsherjarreglu, þegar þó
ekki er bein nauðsyn til að handtaka
viðkomandi eða flytja á lögreglustöð,
er ljóst að álag á varðstjóra – og lög-
reglustöðvar – eykst gríðarlega, ekki
síst um helgar í Reykjavík. Auk þess
sinna lögreglumenn ekki öðrum verk-
efnum á meðan þeir eru að klára
minniháttar mál.
Landssamband lögreglumanna
hefur þegar sent erindi til ríkislög-
reglustjóra vegna dómsins en ekki er
ljóst hver næstu skref verða.
Kallar á frekari
forgangsröðun
Dómur Hæstaréttar verður til þess
að breyta þarf vinnubrögðum lögreglu
Í dómi Hæsta-
réttar segir orð-
rétt: „Í 1. mgr.
16. gr. lög-
reglulaga er
mælt fyrir um
að handtekinn
maður sé færð-
ur á lög-
reglustöð eða á
annan stað þar sem lögregla
hefur aðstöðu. Á þetta við ef
honum er ekki þegar sleppt.
Ákvörðun [lögreglumannsins]
um að ekið skyldi með [unga
manninn] þá leið sem gert var
til að freista þess að róa hann
niður svo lögreglumennirnir
kæmust sem fyrst til að sinna
áfram því verkefni á veit-
ingastaðnum, sem þeir höfðu
verið kvaddir til, átti sér ekki
stoð í 15. gr. lögreglulaga. Að-
gerðin rúmast heldur ekki innan
þeirra almennu heimilda sem
lögregla hefur samkvæmt venju
til þess að halda uppi lögum og
reglu. Verður [lögreglumað-
urinn] samkvæmt því sakfelldur
fyrir brot gegn 132. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19/
1940.“
Ekki heimilt
HÆSTIRÉTTUR
Hæstiréttur
Guðrún Hálfdánardóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
„Það er bara áfram verið að vinna
í þessu. Það er ágætis framvinda í
þessu en það er ósköp lítið sem
hægt er að segja annað en að
þetta er bara í fullum gangi,“ segir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari vegna bankahrunsins,
en húsleit var gerð á vegum emb-
ættisins á fjölmörgum stöðum sl.
þriðjudag vegna rannsóknar þess
á Glitni.
Lárus Welding, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis, var yfirheyrð-
ur í gær og mætti í starfsstöð sér-
staks saksóknara klukkan 13. Ólaf-
ur Þór vildi ekki tjá sig um það
hverjir hefðu verið yfirheyrðir í
tengslum við málið í samtali við
mbl.is í gær.
Ólafur sagði þá að rannsókn yrði
haldið áfram fram á kvöld en koma
yrði í ljós hvort yfirheyrslur héldu
áfram um helgina. Við rannsókn af
þessu tagi breyttust hlutirnir
hratt og tæki rannsóknin mið af
gangi hennar á hverjum tíma fyrir
sig. Marktækur árangur hefði þó
náðst og línur skýrst.
Margir yfirheyrðir
Þeir sem hafa verið yfirheyrðir í
kjölfar húsleitarinnar á þriðjudag-
inn eru samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins þau Bernhard
Bogason, Bjarni Jóhannsson, Guð-
mundur Hjaltason, Guðný Sigurð-
ardóttir, Jóhannes Baldursson,
Magnús Pálmi Örnólfsson, Rósant
Már Torfason, Þorvaldur Lúðvík
Sigurðsson og Þórleifur Stefán
Björnsson, auk Lárusar Welding.
Allir þessir einstaklingar eru
núverandi eða fyrrverandi starfs-
menn Glitnis, FL Group og Sögu
Fjárfestingarbanka.
„Ágætis framvinda í þessu“
Sérstakur saksóknari segir rannsókn
embættisins á Glitni vera í fullum gangi
Morgunblaðið/Golli
Yfirheyrður Lárus Welding (t.h.), fyrrum forstjóri Glitnis, mætir í yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara.
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
29
69
Vá, hvenær?!
Nú, það er
ekkert annað!
Drögum
24. nó
vembe
r,
vertu
með!
Kl. 16.OO
á miðvikudaginn.
Og það er bara
dregið úr seldum
miðum!
1O manns
fá milljón!