Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali
Húsið er að mestu leyti til-
búið til innréttingar. Í hús-
inu sem skiptist í 2 stiga-
ganga eru 28 íbúðir, auk 32
stæða í bílakjallara. Allir
milliveggir eru komnir og
eru þeir hlaðnir og pússaðir
og eru tilbúnir til spörtlunar
og málunar. Loft eru slípuð
og tilbúin til spörtlunar og
málunar. Rafmagn er að
mestu frágengið. Allar
pípu- og vatnslagnir eru
komnar, einnig ofnar.
Sprinkler kerfi í bíla-
geymslu. Húsið verður frá-
gengið að utan.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA SÖLUMENN EIGNAMIÐLUNAR.
Boðaþing - fjölbýlishús
með 28 íbúðum
(allt húsið) til sölu
Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is
WWW.N1.IS
SÍMI 440 1000 Meira í leiðinni
TILBOÐ Á
OFFICE ONE
FJÖLNOTAPAPPÍR
500 A4 BLÖÐ Á AÐEINS 490 KR.
N1verslanir: Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík, Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði, Ísafirði, Grindavík og Höfn.
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur
nam 16,8 milljörðum króna á
fyrstu níu mánuðum ársins en á
sama tímabili í fyrra nam tap fé-
lagsins 11,3 milljörðum. Skýrist
þetta af hækkun á gengi íslensku
krónunnar og lægri fjármagns-
kostnaði. Heildarskuldir nema 229
milljörðum kr. en hafa lækkað um
12,3 milljarða frá áramótum.
Heildareignir eru 286 milljarðar
og eiginfjárhlutfall því 20,1%.
Greiddir vextir fyrstu níu mánuði
ársins námu 1,5 milljörðum króna.
Samsvarandi fjárhæð 2009 var 4,1
milljarður króna. Vaxtakostnaður
lækkar því á milli ára um tvo
þriðju, eða 2,6
milljarða, segir í
tilkynningu frá
fyrirtækinu.
„Þessi afkomu-
bati er mjög já-
kvæður og við
vinnum að því að
framhald verði á.
Ennþá byggist
hinn bókhalds-
legi hagnaður að
mestu leyti á hagstæðum ytri skil-
yrðum eins og hækkuðu gengi
krónunnar og hærra álverði,“ seg-
ir Helgi Þór Ingason, forstjóri OR,
í tilkynningunni.
Helgi Þór
Ingason
Hagnaður hjá Orkuveit-
unni um 16,8 milljarðar
Ekki liggur fyrir hvenær Geir H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, fær formlega skipaðan verj-
anda vegna málshöfðunar fyrir
landsdómi. Það getur skipt hann
miklu vegna möguleika á gagnaöfl-
un. Geir telur að óhæfilegur dráttur
hafi orðið á þessu og hefur ritað Ingi-
björgu Benediktsdóttur, forseta
landsdóms, bréf þar sem hann óskar
eftir því að Andri Árnason hrl. verði
skipaður verjandi sinn og krefst þess
að skipunin fari fram tafarlaust.
Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofu-
stjóri Hæstaréttar, segir það spurn-
ingu um túlkun á 15. grein laga um
landsdóm hvenær heimilt sé að skipa
Geir verjanda. Í 15. grein segir að
forseti landsdóms skipi ákærðum
verjanda svo fljótt sem verða megi.
Spurningin sé sú hvort líta beri svo á
að Geir sé þegar ákærður eftir að Al-
þingi samþykkti þingsályktunartil-
löguna um málshöfðun á hendur
honum eða hvort hann teljist ákærð-
ur við útgáfu ákæruskjals saksókn-
ara, eins og almennt tíðkist í saka-
málum. „Erindinu verður svarað
fljótlega,“ segir hann.
Ráðuneyti metur kostnaðinn
Dómsmálaráðherra kynnti í gær í
ríkisstjórn minnisblað með yfirliti
yfir áætlaðan kostnað vegna lands-
dóms. Kostnaður vegna saksóknara
er þar ekki meðtalinn, þar sem Al-
þingi greiðir þann kostnað. Í mati
ráðuneytisins er gert ráð fyrir að
kostnaður við að kalla landsdóm
saman verði 113 milljónir. Þá er mið-
að við að málsmeðferð taki fjóra
mánuði en dragist það í tvo mánuði
til viðbótar eykst kostnaður um 43
milljónir. Hluti af kostnaðinum felst í
leigu á sal í Þjóðmenningarhúsinu ef
þinghaldið fer fram þar. Að sögn
Þorsteins A. Jónssonar er enn ekki
frágengið í hvaða húsnæði lands-
dómur verður.
Í kostnaðarmati ráðuneytisins er
ekki innifalinn viðbótarkostnaður
sem fellur á Hæstarétt, við að fimm
dómarar við réttinn sitja jafnfram í
landsdómi. omfr@mbl.is
Skipun verj-
anda háð túlkun
Málsmeðferð landsdóms talin kosta
113 milljónir Húsnæðismál ófrágengin
Alþingi greiðir kostnað sak-
sóknara Alþingis vegna máls-
höfðunar á hendur Geir H.
Haarde fyrir landsdómi. Í bréfi
forseta Alþingis til fjárlaga-
nefndar er gert ráð fyrir því að
kostnaðurinn verði 11 milljónir í
ár og 24,4 milljónir á næsta ári
eða alls 35,4 milljónir kr. Þessi
áætlun tekur m.a. til launa sak-
sóknara og aðstoðarmanna
hans, húsnæðiskostnaðar o.fl.
Saksóknari hefur fengið að-
stöðu á Skúlagötu 17 í sama
húsi og sérstakur saksóknari er
með aðstöðu.
35,4 milljónir
KOSTNAÐUR SAKSÓKNARA
Morgunblaðið/Kristinn
Landsdómur Komið hefur til tals að Landsdómur verði til húsa í Þjóðmenn-
ingarhúsinu við Hverfisgötu, en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir.