Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Lögreglan í Nara-héraði í Japan ræður yfir sérstakri sveit sem send er á
hamfarasvæði og nú hefur hún fengið nýjan liðsmann, chihuahua-tíkina
Momo sem er sjö ára. Hún fékk á lokaprófinu það hlutverk að leita uppi á
æfingu fólk sem lokast hafði undir braki og leysti það á fimm mínútum.
Momo á að ganga til liðs við lögregluna í janúar og með tíkinni munu
starfa schäfer-hundur og annar af retriever-kyni, að sögn lögreglunnar.
Chihuahua er ein af minnstu hundtegundum í heimi. „Við erum líklega
eina liðið í heimi sem notar chihuahua sem lögregluhund,“ sagði talskona
lögreglunnar í Nara. „En við höldum að hún muni fá nóg að gera af því að
hún er svo agnarlítil.“
Chihuahua í lögregluna
Reuters
Þúsundir manna komu saman í mið-
borg Bangkok í gær til að minnast
þess að hálft ár er liðið frá blóðs-
úthellingunum þegar her Taílands
kvað niður mótmæli svonefndra
„rauðstakka“ sem styðja Thaksin
Shinawatra, fyrrverandi forsætis-
ráðherra landsins. Yfir 90 manns
biðu þá bana og nær 1.900 særðust.
Taílendingar kveikja hér á kertum,
sem mynda hjarta, til minningar
um þá sem létu lífið.
Reuters
Blóðsúthellinganna minnst
ins og Bandaríkin
hafa þegið boðið
og sendiherra
Japans verður
ekki eini fulltrúi
landsins, heldur
kemur hann með
sendinefnd með
sér.
Geir Lunde-
stad segir að
verðlaunaat-
höfnin eigi að fara fram þótt líklega
verði verðlaunin ekki afhent að þessu
sinni vegna þess að Liu Xiaobo er í
fangelsi í Kína fyrir andóf og fjöl-
skylda hans fær ekki að fara til Nor-
egs til að taka við verðlaununum.
Mjög glæsileg athöfn
„Þetta verður mjög glæsileg og
virðuleg athöfn fyrir fullu húsi,“ hef-
ur fréttastofan AFP eftir Lundestad.
„Ef enginn úr fjölskyldu Liu kemst
þurfum við að sleppa þessum tveim-
ur eða þremur mínútum þegar verð-
launin eru afhent.“
Venja er að friðarverðlaunahafinn
flytji langa ræðu en Lundestad segir
að norska leikkonan Liv Ullman hafi
samþykkt að lesa ræðu sem Liu
Xiaobo samdi áður en hann var
hnepptur í fangelsi.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fimm ríki, auk Kína, hafa afþakkað
boð um að senda fulltrúa á verðlauna-
athöfnina í ráðhúsi Óslóar 11. desem-
ber vegna friðarverðlauna Nóbels.
Kínverski andófsmaðurinn Liu
Xiaobo varð fyrir valinu í ár og
stjórnvöld í Kína vöruðu önnur lönd
við því að senda fulltrúa á athöfnina.
Frestur til að svara boðinu rann út
á mánudaginn var. Geir Lundestad,
ritari norsku Nóbelsnefndarinnar,
segir að 36 ríki hafi þegið boð um að
senda fulltrúa en svar hafi ekki enn
borist frá sextán löndum. Sex ríki af-
þökkuðu boðið: Kína, Rússland, Kas-
akstan, Kúba, Íran og Marokkó.
Fréttavefur norska dagblaðsins
Aftenposten hefur eftir Lundestad að
ekki sé óvenjulegt að mörg ríki svari
ekki áður en fresturinn rennur út og
biðji um meiri tíma. Hann tekur fram
að þegar ríki afþakka boðið sé það
ekki alltaf af pólitískum ástæðum.
Tíu ríki hafi til að mynda ekki sent
fulltrúa á verðlaunaathöfnina árið
2008 þótt verðlaunahafinn, Martti
Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finn-
lands, hafi ekki verið sérlega um-
deildur.
Öll aðildarlönd Evrópusambands-
Sex ríki senda ekki
fulltrúa til Óslóar
Liv Ullman á að lesa ræðu Liu Xiaobo
Andófsmaðurinn
Liu Xiaobo.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Hörð valdabarátta er hafin í Jafn-
aðarmannaflokknum í Svíþjóð eftir
afsögn Monu Sahlin sem ákvað að
víkja sem leiðtogi flokksins eftir
þingkosningarnar í september þeg-
ar flokkurinn fékk 30,6% at-
kvæðanna, sem er minnsta fylgi
hans eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Margir hafa verið nefndir sem
hugsanlegir eftirmenn Sahlin en
vandamálið er að enginn þeirra,
sem þykja öflugastir, vill verða leið-
togi flokksins.
Wallström segir nei
Nýleg skoðanakönnun bendir til
þess að rúmur helmingur Svía vilji
að Margot Wallström verði leiðtogi
jafnaðarmanna. Wallström sat í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins um árabil og starfar nú
hjá Sameinuðu þjóðunum sem sér-
legur fulltrúi þeirra í málum sem
varða kynferðislegt ofbeldi á átaka-
svæðum. Wallström hefur sagt að
það sé „algerlega útilokað“ að hún
taki við af Sahlin og Dagens Nyhet-
er leiðir getum að því að hún stefni
að því að verða framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna fyrst kvenna.
Í könnuninni sögðust 28% vilja að
þingkonan Veronica Palm yrði
næsti leiðtogi flokksins og 27%
nefndu Thomas Bodström, fyrrver-
andi dómsmálaráðherra. Hermt er
að Bodström ljái ekki máls á því að
verða leiðtogi flokksins og Palm
hefur farið undan í flæmingi þegar
hún hefur verið spurð hvort hún
hafi áhuga á embættinu.
Sven-Erik Österberg, talsmaður
þingflokks sænskra jafnaðar-
manna, þykir einnig koma til greina
í embættið en sænska dagblaðið
Expressen bendir á að hann ber
ábyrgð á atvinnumálastefnu flokks-
ins sem er talin hafa stuðlað að
fylgistapinu.
Vilja ekki fara
fyrir flokknum
Sterkustu leiðtogaefni sænskra jafn-
aðarmanna vilja ekki taka við af Sahlin
Reuters
Vinsæl Wallström er sögð stefna að
því að verða framkvæmdastjóri SÞ.
Sænskum stjórnvöldum var skýrt
frá eftirliti bandaríska sendiráðsins
með mannaferðum við sendiráðs-
bygginguna í Stokkhólmi árið 2002
þótt sænska stjórnin hefði neitað því
að hún hefði vitað af eftirlitinu, að
sögn Dagens Nyheter. Blaðið segir
að fram komi í leynilegu skjali í
sænska utanríkisráðuneytinu að
fyrrverandi ríkisstjórn sænskra
jafnaðarmanna hafi fengið upplýs-
ingar um eftirlitið.
Áður hafði Beatrice Ask, dóms-
málaráðherra Svíþjóðar, neitað því
að dómsmálaráðuneytið eða sænska
öryggislögreglan hefði vitað af eftir-
litinu.
Sænskir saksóknarar hafa hafið
rannsókn á því hvort eftirlitið hafi
verið ólöglegt.
Yfirvöld í Danmörku og Noregi
viðurkenndu fyrr í vikunni að lög-
reglu hefði verið skýrt frá eftirliti á
vegum bandarísku sendiráðanna í
Kaupmannahöfn og Ósló.
Var sagt
frá eftirliti
sendiráðsins
Hjón í Kali-
forníu, Wayne og
Laurie Hallquist,
hafa hreppt tit-
ilinn hæstu hjón
heims í Heims-
metabók Guin-
ness. Þau eru
samanlagt 4,074
metrar á hæð, en
Wayne er 209,3
sentimetrar og
Laurie um það bil 198 sentimetrar.
Hjónin búa í Stockton í Kali-
forníu og kynntust á samkomu ein-
hleypra meðlima í kirkjusöfnuði ár-
ið 2003. Wayne, sem er 57 ára,
kvaðst hafa séð að þau væru sköpuð
hvort fyrir annað og orðið ástfang-
inn við fyrstu sýn. Öðru máli gegndi
um Laurie sem er 46 ára. „Hann tal-
aði um stærðina á höndunum og fót-
unum á mér og ég heillast ekki af
slíku tali,“ sagði hún en kvaðst hafa
gefið honum annað tækifæri.
Talin hæstu
hjón heims
Wayne og Laurie
Hallquist kyssast.
„Þetta er alger glundroði. Þetta
hefur gengið fram af mörgum Sví-
um,“ segir Stig-Björn Ljungren,
vinstrisinnaður stjórnmálafræð-
ingur og álitsgjafi, um leit
sænskra jafnaðarmanna að nýjum
leiðtoga. Sahlin var leiðtogi
flokksins í fjögur ár, sem er mjög
skammur tími þegar miðað er við
forvera hennar. Tage Erlander var
leiðtogi flokksins í 23 ár, 1946-
1969, Olof Palme frá 1969 og þar
til hann var myrtur 1986 og Göran
Persson fór fyrir flokknum í tíu ár.
Nokkrir fréttaskýrendur telja að
hörð valdabarátta sé hafin milli
fylkinga í flokknum. Ekki sé nóg að
skipta um leiðtoga, heldur þurfi að
stokka upp í allri forystusveitinni
og breyta áherslum flokksins.
„Þetta er alger glundroði“
STEFNIR Í HARÐA VALDABARÁTTU MILLI FYLKINGA