Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 33
UMRÆÐAN 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Eftir að fjöldi manns hafði lagt líf sitt og limi í hættu við að koma okkur til aðstoðar í snarvitlausu veðri og koma okkur til frekari aðhlynningar í Reykja- vík mætti okkur ein- kennileg þjónusta þar á bæ. Ég skrifaði heil- brigðisráðherra, sem er mér að góðu kunnur, um þennan atburð skömmu síðar. Þar sem fjölmargir hafa hvatt mig til að birta þessa sögu opinberlega, ekki síst í ljósi umræðna um skerta heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni, birti ég hér bréfið sem ég ritaði Guðbjarti Hannessyni. Ég tek það fram að Guðbjartur svar- aði bréfinu innan örfárra daga á þann hátt sem mér hugnaðist og hafði þá þegar komið viðeigandi ábendingum á framfæri til réttra aðila. En óbreytt er bréfið svona: „Sæll kæri vinur. Ég þykist vita að skammirnar dynja á þér víða að þessa dagana, og oft að ósekju. Ég get þó ekki látið hjá líða að segja farir mínar ekki sléttar eftir að hafa lent í umferðaróhappi á mánu- dagskvöld. Þannig var að við hjónin vorum flutt með sjúkrabíl frá Skriðu- landi í Dölum á Landspítalann í Fossvogi. Þar gengumst við undir skoðun og góðu heilli reyndist ég að- eins vera marin hér og þar og stirð og aum eftir bílbeltið en Alfreð, mað- urinn minn, tognaður á öxl og hálsi og með tals- verða verki. Eftir um tveggja tíma ferli (myndatökur og ýmsar athuganir) vorum við útskrifuð. Við urðum nú fremur hissa og vorum þá spurð hvort við ætt- um ekki ættingja í bæn- um. Ég svaraði sem var að við ættum enga mjög nána ættingja, og viss- um ekki um neinn sem við kærðum okkur um að vekja um miðja nótt. Þá komu nú vöflur á hjúkrunarfólkið, sem virtist ekki geta boðið okkur upp á að vera lengur. Ég fór þá og fékk að fara á netið til að athuga með orlofs- íbúðir hjá Kennarasambandinu sem hægt er að bóka á netinu. Starfs- fólkið fylgdist með og ég sagðist ekki alveg hafa tryggingu fyrir að þetta gengi fyrr en ég kæmi á staðinn og sæi hvort talnalás á útihurð virkaði. Þá var okkkur sagt að við gætum bara komið á slysadeildina aftur ef við lentum í vandræðum! Síðan þeg- ar kom að því að fara sagðist Alfreð ekki almennilega treysta sér, enda var hann ennþá með mikinn svima. Var honum þá boðið að leggja sig í klukkutíma og athuga hvort honum liði betur eftir það. Mér var hins veg- ar aldrei boðið að leggjast út af og var ég orðin ansi þreytt og stirð eftir að hanga fyrst út á hlið í bílbelti góða stund, híma síðan í rútunni, sem hafði lent á hliðinni, í tæpan klukku- tíma meðan beðið var eftir sjúkrabíl, sitja í sjúkrabíl í þrjá tíma í brjáluðu veðri og síðan á óþægilegum stól inni á slysadeild í tvo tíma – samtals um sex tímar eftir að óhappið átti sér stað. Við ákváðum því að komast frekar í náttstað og fá að hvíla okkur. Var mér þá boðinn hjólastóll til að keyra Alfreð fram í anddyri að leigu- bílnum, en ég taldi það nú lítið hafa að segja þar sem ég þyrfti hvort sem er að drösla honum upp tröppur þeg- ar í náttstað kæmi. Þess má geta að við vorum rukkuð um 32.000 krónur, hann 27.000 fyrir myndatöku og ég 4.900 fyrir að láta skoða far eftir bíl- belti á bringu og láta mig anda einu sinni djúpt. Og jú, það má kannski taka fram að við fengum hvort sitt djúsglasið og tvær ristaðar brauð- sneiðar með osti. Aldrei var okkur boðin áfallahjálp, sem ég var svo illa upplýst að halda að væri vinnuregla þegar fólk lendir í svona, og ekki var spjallað meira við okkur en þurfti. Ég verð þó að taka fram að sjúkra- flutningamennirnir, læknirinn í Búð- ardal og fólkið sem kom á vettvang var sérlega almennilegt og á miklar þakkir skildar. Er þeim hér með komið á framfæri. Ég leyfi mér að fullyrða að þegar okkur bar að var ekki mikill erill á slysadeild því ég heyrði tvo starfs- menn tala um það sín á milli að það væri farið að róast mikið. Þar sem við vorum nálægt vaktrýminu sá maður líka að þar voru allt upp í átta starfs- menn, að því er virtist í rólegheitum, á hverjum tíma. Þegar kom í kennaraíbúðina reyndist svo talnalásinn ekki virka svo við hringdum á annan leigubíl og biðum úti á meðan, Alfreð á peysunni í hörkufrosti þar sem yfirhöfnin hafði orðið eftir í bílnum á slysstað. Við hringdum síðan á hótel og fengum inni á öðru hótelinu sem ég náði í þarna um miðja nótt. Klukkan hálf- fimm um nóttina vorum við því kom- in í næturstað. Ég spyr því: Var okkur ekki boðin gisting í þessa fjóra tíma sem vantaði til morguns, af því að þá hefðum við verið lögð innn og ekki þurft að borga? Er virkilega svona illa fyrir okkur komið að fólk sem lendir í svona óhöppum lengst úti á landi geti ekki fengið að leggja sig í sjúkrarúmi í nokkra klukkutíma? Fegin hefði ég greitt fyrir þvottinn á rúmfötunum og skúringuna á stofunni ef það er málið! Með kveðju Kristín Sigurrós.“ Sem fyrr segir svaraði Guðbjartur þessu bréfi innan örfárra daga og tek ég undir þau orð hans að svona lagað hefði líklega hvergi gerst á lands- byggðarsjúkrahúsi. Hvað kostar að gista hálfa nótt í Fossvoginum? Eftir Kristínu Sig- urrós Einarsdóttur » Fyrir um tveimur vikum varð ég, ásamt eiginmanni mín- um, fyrir því óhappi að lenda í bílveltu skammt frá Skriðulandi í Saurbæ í Dölum. Kristín Sigurrós Einarsdóttir Höfundur er verkefnastjóri og búsett á Hólmavík. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið M.MBL.IS FÆRIR ÞÉR INNLENDAR FRÉTTIR Á FERÐINNI Innlent - V I L T U V I T A M E I R A ? ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 51 87 2 11 /1 0 Öryggisíbúðir í Eirborgum Við Fróðengi 1 – 11 í Grafarvogi, 112 Reykjavík hefur Hjúkrunarheimilið Eir byggt öryggisíbúðir Íbúðirnar eru af ýmsum stærðum og gerðum og eru með 24 stunda vöktun Íbúðirnar sýnir Ragnheiður Gunnarsdóttir staðarhaldari sími: 560 1091 milli kl. 10 og 16 alla virka daga Upplýsingar um verð og skilmála veitir Vilborg Ólöf Sigurðardóttir rekstrarstjóri sími: 522 5700 mill i kl. 8 og 14 alla virka daga Eyjólf Ármannsson á stjórnlagaþing Framboð 8914 Lýðræði í stað flokksræðis. Aðskilja framkvæmdavald og löggjafarvald með beinni kosningu æðsta handhafa framkvæmdavalds (forseta) og persónukjöri þingmanna. Kynnið ykkur viðfangsefni þingsins og mína skoðun á: eyjolfurarmannsson.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.