Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 41
MINNINGAR 41
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Einar Valgeir
Arason prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp
á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðþjónusta kl. 12. Bein útsending frá
kirkju aðventista í Reykjavík. Einar Valgeir
Arason prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja-
nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðs-
þjónusta kl. 12. Jóhann Þorvaldsson
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á
Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðsþjónusta kl. 11. Stefán Rafn Stef-
ánsson prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst
með fjölskyldusamkomu kl. 11. Björgvin
Snorrason prédikar. Biblíufræðsla fyrir
börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50.
Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
Samfélag Aðventista Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11. með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12.
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Hildur Eir Bolladóttir, félagar úr
messuhópi aðstoða og félagar úr Kór Ak-
ureyrarkirkju syngja, organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í
safnaðarheimili kl. 11. Umsjón Sunna
Dóra Möller og Heimir Bjarni Ingimarsson.
Æðruleysismessa kl. 20. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré-
dikar, Kristina Kalló Skclenár organisti og
kirkjukórinn leiðir almennan safn-
aðarsöng. Fjóla Kristín Bragadóttir söng-
nemi úr Söngskóla Reykjavíkur syngur.
Sunnudagaskólinn á sama tíma í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Kaffi á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Börnin taka þátt í upphafi messunnar, en
fara síðan í safnaðarheimili ásamt Ásdísi
djákna og Ægi djáknanema. Sr. Hans
Markús Hafsteinsson héraðsprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari og ferming-
arbörn lesa ritningarlestra. Kór Áskirkju
syngur, einsöngvari er Unnsteinn Árna-
son, nemandi við Söngskólann í Reykja-
vík, organisti er Magnús Ragnarsson.
Kaffi og djús á eftir. Sjá www.askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11, léttmessa. Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds-
dóttur tónlistarstjóra, prestur er sr. Kjart-
an Jónsson. Sunnudagaskóli á sama
tíma. Heitt á könnunni eftir messu. Ferm-
ingarbörn og foreldrar þeirra eru boðin
sérstaklega velkomin.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 20. Um-
sjón hafa sr. Hans Guðberg Alfreðsson og
Bjartur Logi Guðnason kantor.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl.
11, í Brekkuskógum 1. Umsjón Heiða
Lind Sigurðardóttir ásamt yngri leiðtogum.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Fjöl-
skylduguðsþjónusta í Brautarholtskirkju
kl. 11. Kristín Þórunn og Rannveig Iðunn
þjóna. Páll organisti og Brynhildur flautu-
leikari leiða söng og tónlist.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa
kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, yngri
barnakór syngur. Kaffi í safnaðarheimili á
eftir. Tómasarmessa kl. 20. Máltíð Drott-
ins, fyrirbæn og tónlist. Kaffi á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
samvera með fræðslu og söng. Jónas Þór-
ir við hljóðfærið ásamt ungum blást-
urhljóðfæraleikurum. Guðsþjónusta kl.
14. Einsöngvari er Hulda Snorradóttir
sópran, kór Bústaðakirkju syngur undir
stjórn kantors Jónasar Þóris og prestur er
sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Yrsa Þórðardóttir, organisti Zbigniew
Zuchowicz, kór Digraneskirkju A-hópur.
Hlynur Andri Elsuson nemandi í Söngskól-
anum í Reykjavík syngur einsöng. Org-
anisti leikur á hljóðfæri 15 fyrir messu.
Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu.
Þórunn Arnardóttir og fleiri leiðtogar sjá
um stundina. Sjá digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari, sönghópur úr dómkórnum syngur,
organisti er Kári Þormar. Barnastarf á
kirkjuloftinu á meðan. Æðruleysismessa
kl. 20. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédik-
ar, en einnig þjóna sr. Hjálmar Jónsson og
sr. Karl V. Matthíasson. Bræðrabandið
sér um tónlistina. Kvöldkirkja á fimmtu-
dag.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son, kór Fella- og Hólakirkju leiðir almenn-
an safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar
Einarsdóttur organista. Una Dóra Þor-
björnsdóttir söngskólanemi syngur ein-
söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn-
aðarheimili. M.a. verða málaðar
piparkökur. Kirkjuvörður og meðhjálpari er
Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11, fyrir alla fjölskylduna. Kvöldmessa
kl. 20. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar,
organisti er Skarphéðinn Þór Hjartarson
og bassaleikari Guðmundur Pálsson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl.
11. Aldursskipt fræðsla og snarl í lokin.
Almenn samkoma kl. 13 í umsjón Greg
Aikins, kirkjugestum gefið orðið og boðið
að gefa vitnisburð. Lofgjörð, barnastarf og
brauðsbrotning. Kaffi í lokinni.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór
Glerárkirkju leiða söng undir stjórn Petru
Bjarkar Pálsdóttur. Barnastarf í safn-
aðarheimili kl. 11, sameiginlegt upphaf.
GRAFARVOGSKIRKJA | Dagur Orðsins.
Dagskrá tileinkuð þjóðskáldinu sr. Matt-
híasi Jochumssyni. Erindi um sr. Matthías
í Grafarvogskirkju kl. 10, flutt af Guð-
mundi Andra Thorssyni og Þórunni Valdi-
marsdóttur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Svavar Alfreð Jónsson sóknarprestur á
Akureyri prédikar og prestar safnaðarins
þjóna. Einsöngvari er Björg Þórhallsdóttir,
kór Grafarvogskirkju syngur og organisti
er Hákon Leifsson. Á eftir verður boðið
upp á veitingar. Sunnudagaskóli á sama
tíma í kjallara kirkjunnar.
Borgarholtsskóli Messa kl. 11. Sr. Lena
Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari, organisti er Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Erlu Rutar. Messa kl. 11. Alt-
arisganga og samskot til langveikra
barna. Messuhópur þjónar. Stúlknakór
Reykjavíkur, yngri deild annast söng,
stjórnandi er Guðrún Árný Guðmunds-
dóttir og organisti er Ásta Haraldsdóttir,
prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi
eftir messu. Hversdagsmessa á fimmtu-
dag með Þorvaldi Halldórssyni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Messa kl. 14. Sr. Ingimar Ingimarsson
messar og söngstjóri er Kjartan Ólafsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11.
Álftaneskórinn syngur undir stjórn Bjarts
Loga Guðnasonar organista. Arndís
Hauksdóttir guðfræðingur predikar, sr.
Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar fyrir alt-
ari. Sunnudagaskóli á sama tíma kl. 11.
Morgunmessa kl. 8.15 á miðvikudaginn.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Ung-
lingar úr Æskulýðsfélagi Hallgrímskirkju
og hópur messuþjóna aðstoða. Félagar úr
Mótettukór syngja og Íris Elíasdóttir nemi
í söngskólanum í Reykjavík syngur, org-
anisti er Kári Allansson.
HAUKADALSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur,
annast prestsþjónustuna, organisti er Jón
Bjarnason.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Umsjón með barnastarfi
Páll Ágúst og Anna Bergljót. Salka Rún
Sigurðardóttir söngnemi, syngur einsöng,
organisti Douglas A. Brotchie, prestur er
Tómas Sveinsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Þorgils Hlynur Þorbergsson guð-
fræðingur predikar, sr Sigfús Kristjánsson
þjónar, organisti Jón Ólafur Sigurðsson og
Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir syng-
ur einsöng. Sunnudagaskóli kl. 13.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Bæna-
stund kl. 16.30. Samkoma kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 14. Ræðumaður Margaret Marti.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Ræðumaður er Sheila Fitz-
gerald. Aldursskipt barnastarf. Kaffi á eft-
ir. Samkoma á ensku kl. 11 hjá
Alþjóðakirkjunni. Sonia Wahome prédikar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl.
11 í aldurskiptum hópum. Fræðsla á
sama tíma. Kristleifur Kristjánsson kenn-
ir. Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Friðrik Schram predikar.
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir.
Barnastarfið í höndum Systu, Jóns Árna
og leiðtoganna. Félagar úr Kór Keflavík-
urkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vil-
bergssonar. Messuþjónar taka þátt í at-
höfninni. Súpa eftir messu.
KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhannsson flytur ræðu og um tón-
listarflutninginn sjá Páll Ágúst og félagar.
Á eftir verður sælgætissala á vegum KSS
og samvera.
KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarmessa kl.
11. Kór Kópavogskirkju flytur tónlist undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar
og Berta Dröfn Ómarsdóttir nemi í Söng-
skólanum í Reykjavík syngur einsöng. Dr
Sigurjón Árni Eyjólfsson predikar og þjón-
ar fyrir altari. Sunnudagaskólinn hefst í
kirkjunni en fer síðan í safnaðarheimilið
Borgir. Umsjón hafa Þóra Marteinsdóttir
og Sólveig Aradóttir.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta í Fossvogi
kl. 10.30 á stigapalli á 4. hæð. Sr. Kjart-
an Örn Sigurbjörnsson og Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfsson
messar, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir
syngur einsöng og organisti er Jón Stef-
ánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en
síðan fara börnin í safnaðarheimilið.
Kaffisopi. Tónleikar Kórs Langholtskirkju
kl. 20. Sjá www.langholtskirkja.is.
LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur og
æskulýðsfulltrúi Laugarneskirkju prédikar
og þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni org-
anista, kór Laugarneskirkju, sunnudaga-
skólakennurum og hópi messuþjóna.
Kaffi.
LÁGAFELLSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Skírnir Garðarsson predikar og þjónar fyrir
altari, Sönghópurinn Fjörðurnar syngja,
undirleik annast Arnhildur Valgarðsdóttir.
Sunnudagaskóli kl. 13 í umsjá Arndísar
Linn, Hreiðars Arnar og Arhildar.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnudags-
skóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Lindakirkju undir stjórn Óskars Ein-
arssonar og Guðni Már Harðarson þjónar.
LINDASÓKN | Sunnudagsskóli kl. 11 í
Boðanum, Boðaþingi.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Há-
skólakórnum leiða safnaðarsöng,
Stúlknakórinn syngur, Nanna Halldóra
Imsland syngur einsöng, stjórnandi og
organisti er Steingrímur Þórhallsson. Dr.
Arnfríður Guðmundsdóttir prédikar, sr.
Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari.
Messuþjónar aðstoða. Umsjón með
barnastarfi: Sigurvin, Lísbet, Andrea og
Ari. Á eftir mun Arnfríður og listakonan
Æja kynna nýja bók, Út í birtuna. Veitingar.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
safnaðarheimili Grensáskirkju. Kristni-
boðarnir Kristján Þór Sverrisson og Helga
Vilborg Sigurjónsdóttir koma í heimsókn.
Samfélag Aðventista Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12.
SELJAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Al-
menn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jó-
hann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir
altari, kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng-
inn, organisti: Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar
leiða tónlistarflutning undir stjórn Friðriks
Vignis Stefánssonar organista, einsöng
syngur Hrafnhildur Þórólfsdóttir, nemandi
í Söngskólanum í Reykjavík. Sunnudaga-
skólinn á sama tíma. Ritningarlesari er
Ólafur Egilsson fv. sendiherra, prestur er
sr. Halldór Reynisson. Kaffi í safn-
aðarheimilinu á eftir.
SJÓMANNAHEIMILIÐIÐ Örkin | Samkoma
í Færeyska sjómannaheimilinu kl. 17.
Kaffisamsæti á eftir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur, ann-
ast prestsþjónustuna og organisti er Jón
Bjarnason.
STOKKSEYRARKIRKJA | Messa kl. 11.
Organisti Haukur A. Gíslason, sr. Sveinn
Valgeirsson. Þátttöku fermingarbarna sér-
staklega vænst.
VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl.
14. Barnastarf, lofgjörð, predikun og fyr-
irbæn. Högni Valsson predikar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skólinn kl. 11. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Sönghópurinn Veirurnar syngur undir
stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Sunnudagaskólinn í umsjón Tómasar
Odds Eiríkssonar æskulýðsfulltrúa. Djús
og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlist-
arguðsþjónusta kl. 11. Kvennakór Hafn-
arfjarðar syngur undir stjórn Ernu Guð-
mundsdóttur, prestur er. Bragi J.
Ingibergsson. Sunnudagaskóli kl. 11 í
norðursal kirkjunnar.
ORÐ DAGSINS:
Þegar mannssonurinn
kemur.
(Matt.25)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Núpskirkja í Dýrafirði.
Elsku Bogga.
Þegar ég var lítil bjóst þú á
Akranesi og ég í sveitinni. Ég man
hvað það var gott að koma til þín.
Þú tókst alltaf svo vel á móti öllum.
Sérstaklega man ég eftir að þú
varst alltaf búin að smyrja brauð
með alls konar áleggi þegar við
komum. Eftir að þú fluttir til
Reykjavíkur gisti ég hjá þér þegar
ég fór þangað. Svo flutti ég sjálf til
Borghildur
Jakobsdóttir
✝ BorghildurJakobsdóttir
fæddist að Hömr-
um, Reykholtsdal í
Borgarfirði 20. maí
1945 og ólst þar
upp. Hún lést á
Landsspítala við
Hringbraut 3. nóv-
ember 2010.
Útför Borghildar
fór fram frá Reyk-
holtskirkju 12. nóv-
ember 2010.
Reykjavíkur, þá kom
ég oft til þín. Áttum
við margar góðar
stundir saman og fífl-
uðumst mikið eins og
þú sagðir.
Alltaf hugsaðir þú
um aðra en sjálfa þig.
Þegar þú lást bana-
leguna varstu að hafa
áhyggjur af því að
geta ekki verið að
kaupa jólagjafir.
Elsku Bogga mín, ég
vil þakka þér fyrir
allt sem þú hefur gert
fyrir mig í gegnum árin.
„Einstakur“ er orð sem notað er
þegar lýsa á því sem engu öðru er
líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða
manni sem veitir ástúð með brosi
eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast
af rödd síns hjarta og hefur í huga
hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá sem eru dáðir
og dýrmætir og hverra skarð verður
aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best
lýsir þér.
(Terri Fernandez)
Þín frænka,
Guðbjörg.
Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast þeirrar góðu konu Borg-
hildar Jakobsdóttur frá Hömrum í
Reykholtsdal, sem var jarðsungin
frá Reykholtskirkju föstudaginn
12. nóvember sl. enda var hún mér
að góðu kunn og móðir hennar Að-
albjörg, sem ættuð var frá Hellis-
sandi, og tengdafaðir minn Elías
Oddsson, sem þar bjó, voru þre-
menningar.
Borghildur, eða Bogga eins og
hún var alltaf kölluð, er fjórða
systirin frá Hömrum sem kveður
þetta jarðlíf en eftir lifa af systk-
inunum bróðirinn Magnús, og syst-
urnar Guðrún og Katrín.
Bogga ólst upp við mikið ástríki
hjá foreldrum og systkinum á
Hömrum. Þar var gestkvæmt og
glaðværð oft ríkjandi og ósjaldan
voru ættjarðarljóðin sungin við
raust á góðum samverustundum.
En þau Jakob faðir Boggu og Aðal-
björg móðir hennar báru líka hag
samferðamanna fyrir brjósti. Kom
það m.a. fram í hjálpsemi við aðra,
ekki síst þá sem minna máttu sín.
Það var því bæði upplagið og upp-
eldið er mótaði lífsviðhorf systk-
inanna frá Hömrum en Borghildur
heitin vann t.d. við umönnunarstörf
sem sjúkraliði til margra ára.
Hamrafólkið var og er vel metið
víða en ég hef þekkt fjölskylduna
allar götur frá 1963 er ég var
kaupamaður að Hurðarbaki í
Reykholtsdal. Þar sem ég veit, að
ljóð og söngur léku ósjaldan á
vörum í bænum undir hamrinum á
æskuheimili Boggu heitinnar og
hafa verið förunautar ættarinnar
gegnum tíðina finnst mér við hæfi
að kveðja hana með litlu ljóði, sem
er ætlað að lýsa hennar persónu,
alla vega að hluta til.
Það var sem brosið þitt Bogga mín
bjartari gerði heiminn
og óvenjuleg voru augun þín:
Angurvær, glettin og dreymin.
Heitt unnir þú Borgarfjarðarbyggð
og bænum Hömrum, er hélstu við
tryggð.
Borghildur mjög varstu hláturmild
með svo heillandi strengi.
Vísurnar komu og fóru að vild
og virkjuðu sönginn lengi.
Þitt hjartalag var þín helsta dyggð,
þér hugnaðist ekki vol og hryggð.
(Ól. B. Ól.)
Ég kveð Boggu frá Hömrum
með þakklæti og virðingu. Hún
hefur örugglega fengið hlýjar mót-
tökur foreldra og systra fyrir
handan og vel gæti ég trúað að
glaðværð þeirra og glettni smiti út
frá sér á himnum. Eftirlifandi
systkinum, afkomendum, frænd-
fólki og vinum sendi ég samúðar-
kveðjur.
Ólafur B. Ólafsson.
HINSTA KVEÐJA
Elsku amma, ég sakna þín,
ég elska þig. Ég man þegar við
förum á Dýrin í Hálsaskógi og
svo man ég þegar við fórum á
ættarmót. Ég sakna þín og
Simba.
Óska að þú eigir gott líf hjá
guði.
Kristófer Karl,
ömmustrákur.