Morgunblaðið - 20.11.2010, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Tilboð/útboð
Auglýsing um uppboð
á m.v. OBSHA
,,óreiðuskipi” í Hafnarfjarðarhöfn
Það tilkynnist að í samráði við sýslumanns-
embættið í Hafnarfirði fer fram uppboð á m.v.
OBSHA, skrásetninganúmer 3937, RU-999, sem
er svonefnt ,,óreiðuskip” og er staðsett í Hafn-
arfjarðarhöfn. Skipið er skráð í eigu Brandford
Commerce Ltd. í Belize City, í Belize.
Uppboðið fer fram hinn 2. desember 2010
kl. 11.00 og fer fram á skrifstofu
sýslumanns í Hafnarfirði að Bæjarhrauni
18, Hafnarfirði.
Varðandi uppboðsheimild er vísað til 21. gr.
Hafnarlaga nr. 61/2003.
Hafnarfirði, 19. nóvember 2010.
Hafnarstjórinn í Hafnarfjarðarhöfn.
SANDGERÐISBÆR
Framleiðsla máltíða
ÚTBOÐ
Sandgerðisbær óskar eftir tilboðum í framleiðslu á
mat fyrir skóla og stofnanir í bænum. Verkefnið
felst í því að framleiða matinn og afhenda hann á
tilteknum tíma í upphituðum bakkavögnum í
viðkomandi stofnunum, tilbúinn til framreiðslu á
diska eða í ákveðnum skammtastærðum eftir því
sem við á.
Alls er um að ræða máltíðir fyrir 438 einstaklinga.
Þar af eru 120 máltíðir fyrir leikskólabörn, 265 fyrir
börn á grunnskólaaldri, 20 fyrir aldraða borgara og
33 fyrir starfsmenn þessara stofnana.
Beiðni um útboðsgögn skal senda á netfangið
matur@sandgerdi.is með upplýsingum um nafn
þess sem óskar eftir gögnunum, síma, heimilis-
fang og netfang.
Tilboðum skal skila á bæjarskrifstofur Sandgerðis-
bæjar, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði
eigi síðar en mánudaginn 6. desember 2010
kl. 11:00, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
Reykjavíkurborg
Innkaupaskrifstofa
Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík
Sími 411 1042/411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
F.h. Reykjavíkurborgar:
Rammasamningur um eftirlit með slökkvitækjum og öðrum
eldvarnabúnaði - EES útboð nr. 12432.
Útboðsgögn á geisladiski fást afhent frá og með 23. nóvember
2010 í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 17. janúar 2011, kl. 10:00 í Ráðhúsi
Reykjavíkur.
12432
ÚTBOÐ
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Uppboð
Forval/Alútboð
Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi,
Sæmundargötu 4 í Reykjavík, óskar eftir
umsóknum verktaka til forvals um þátttöku í
alútboði vegna hönnunar og byggingar á 280-
300 herbergjum og einstaklings- og para-
íbúðum fyrir stúdenta við Sæmundargötu í
Reykjavík.
Heildar byggingarmagn er áætlað um 12.000
m² brúttó.
Leitað verður til þriggja til fjögurra aðila um að
gera tilboð í verkið.
Forvalsgögn skulu sótt á skrifstofu Félagsstofn-
unar stúdenta, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4,
101 Reykjavík, 22.-25. nóvember 2010 á milli
kl. 9-16.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á
skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta eigi síðar
en kl.16.00 miðvikudaginn 8. desember 2010,
merktum:
Forval vegna stúdentaíbúða
við Sæmundargötu í Reykjavík
fyrir Félagsstofnun stúdenta.
Aðalfundur Golfklúbbsins
Odds (GO)
verður haldinn í golfskálanum Urriðavelli
þriðjudaginn 30. nóvember nk. kl. 20:00.
Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir
liðins starfsárs.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til
samþykktar.
Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
Umræður og atkvæðagreiðslur um tillögur
og lagabreytingar löglega fram bornar.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
Kosning tveggja endurskoðenda og eins til
vara.
Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Aðalfundur 2010
Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur
verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík,
Sigtúni 38, laugardaginn 27. nóvember 2010
kl. 13.30.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Utankjörfundakosning fer fram á skrifstofu
félagsins 22. – 26. nóvember kl. 11 til 16, sam-
kvæmt lögum félagsins.
Nánari upplýsingar um framboð til stjórnar og
fulltrúaráðs er að finna á heimasíðu félagsins,
www.svfr.is og í Veiðifréttum.
Stjórnin
Axarvegur (939), Hring-
vegur í Skriðdal og Hring-
vegur um Berufjarðarbotn
Mat á umhverfisáhrifum
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipu-
lagsstofnunar frummatsskýrslu um lagningu
Axarvegar og breytingar á Hringvegi í Skriðdal
og um Berufjarðarbotn á Fljótsdalshéraði og í
Djúpavogshreppi.Tillaga að ofangreindri
framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfis-
áhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá
19. nóvember 2010 til 7. janúar 2011 á
skrifstofum Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs-
hrepps og á bókasafni Héraðsbúa á Egils-
stöðum. Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er
aðgengileg á eftirtalinni heimasíðu:
www.vegagerdin.is.
Allir hafa rétt á að kynna sér framkvæmdina og
leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu
vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. janúar
2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166,
150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000 með síðari breytingum.
Vegagerðin mun standa fyrir opnum húsum á
Hótel Framtíð á Djúpavogi þriðjudaginn
7. desember kl. 17:00-19:00 og á Hótel
Héraði á Egilsstöðum miðvikudaginn
8. desember kl. 17:00-19:00 þar sem
framkvæmdin og mat á umhverfisáhrifum
hennar verða kynnt og eru allir velkomnir.
Skipulagsstofnun.
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Golfklúbbs
Oddfellowa
verður haldinn í golfskálanum Urriðavelli
sunnudaginn 28. nóv. nk. kl. 11:00.
Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Fundargerð síðasta aðalfundar lesin upp.
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir
liðins starfsárs.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til
samþykktar.
Umræður og atkvæðagreiðslur um laga-
breytingar og tillögur félaga.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
Kosning endurskoðenda og endurskoðanda
til vara.
Önnur mál.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur