Morgunblaðið - 20.11.2010, Síða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Sunnudaginn 21. nóvember stíg-
ur hljómsveitin Spottarnir á svið á
Kaffi Rósenberg við Klapparstíg.
Hjómsveitin hefur frá upphafi lagt
megináherslu á tónlist og texta
sænska söngvaskáldsins Cornelius
Vreeswijks en hún hefur nú starfað
í sex ár.
Spottarnir spila á
Kaffi Rósenberg
Fólk
Ómar Hauksson, grafískur hönnuður og stutt-
myndaleikstjóri, mun standa fyrir mánaðar-
legum síðkvöldssýningum í Bíó Paradís og er sú
fyrsta haldin í kvöld. Þá mun hin gallsúra og
stórskrítna japanska hrollvekja Hús (Hausu) eft-
ir Nobuhiko Obayashi frá árinu 1977 verða sýnd.
Aðspurður hvert verði þema kvöldanna sem Óm-
ar hefur umsjón með segir hann að það verði
margt skrítið í boði hjá sér. „Ég verð með svona
raritís eða hvað kallar maður þetta á íslensku,
svona kúríósa. Blöndu af einhverju furðulegu,
sjaldséðar myndir, svona költ,“ segir Ómar. „Ég
mun einbeita mér að japönskum skrímslamynd-
um og bandarískum horror, en svo verð ég með
eitt íslenskt hrollvekjukvöld.“
Ómar er ekki ókunnur hrollvekjum enda gerði
hann stuttmyndina Örstutt jól sem var hroll-
vekja byggð á hugmyndum um íslenska jóla-
sveininn eins og hann birtist í upprunalegu sög-
unum. Myndin var sýnd á Þorláksmessu fyrir
jólin árið 2007 á undan finnskri hrollvekju um
svipað efni. „Finnarnir eiga svipaðan jólasvein
og við. Hann er að vísu bara einn en hann er með
geitarhöfuð, horn og ekkert næs. Þegar ég fór
með mína mynd á kvikmyndahátíð í Texas þurfti
ég að útskýra jólasveinahefðina heima því hún
er svo ólík því sem Bandaríkjamenn þekkja,“
segir Ómar.
Myndin sem sýnd verður í kvöld fjallar um sjö
stelpur sem fara í sumarfrí í sumarhús. Síðan
fara óhugnanlegir atburðir að gerast og þær
týna tölunni hver á fætur annarri. borkur@mbl.is
Gallsúr japönsk hrollvekja í Bíó Paradís
Súr Stilla úr hryllingsmyndinni Hús, eða Hausu.
Óhætt er að segja að þetta sé ár
kvikmyndagerðarmannsins Árna
Sveinssonar. Hann sýndi tvær vel
heppnaðar heimildarmyndir í ár,
Með hangandi hendi og Backyard,
leikstýrði tónleikamyndinni sem
fylgir nýjustu plötu Hjaltalín, Alp-
anon, og hefur einnig yfirumsjón
með þáttunum Rokk og Tjatjatja
sem nú eru sýndir á ÍNN. Með
hangandi hendi, sem fjallar um fer-
il hins ástsæla Ragnars Bjarnason-
ar söngvara, fer nú að fara úr sýn-
ingum en síðustu sýningar verða í
Bíó Paradís út næstu viku. Þá er
einnig nýútkominn diskur með upp-
tökum frá 75 ára afmælistónleikum
Ragnars
Síðustu sýningar á
Með hangandi hendi
Sérstök aukasýning á heimild-
armynd Ragnheiðar Gestsdóttur,
Eins og við værum, fer fram í Bíó
Paradís á morgun, laugardag kl.
20.30. Myndin er einslags hugleið-
ing kvikmyndagerðarkonunnar um
verk Ragnars Kjartanssonar á
Feneyjatvíæringnum, The End,
sem sýnt var í fyrrasumar.
Aukasýning á Eins
og við værum
Loksins er komin út safnplata með
Gus Gus. Bandið sem var stofnað
fyrir fimmtán árum hefur gefið út
margar plötur og lög þeirra komist
hátt á lista víða um heim en það er
ekki fyrr en nú að safnplata kemur
út með frægustu lögunum þeirra.
Aðspurður hversvegna þeir hafi ekki
gefið út safnplötu fyrr segir Bongo
að þetta sé ekkert seint, þvert á móti
finnist honum þessi útgáfa svona
frekar í fyrra lagi. „Þegar ég var í
ljósmyndaskólanum í París var talað
um að menn ættu ekki að gefa út
ljósmyndabók fyrr en menn hefðu
verið í bransanum að lágmarki 20 ár.
Þetta er öðruvísi hér, ég hef séð
bönd gefa út safnplötu þótt þau hafi
aðeins gefið út tvö stykki fram að
því,“ segir Bongo. Hann bætir við að
Daníel Ágúst hafi valið lögin á plöt-
una með smá ábendingum frá Bigga
Veiru og forsetanum. „Það er búið
að klippa hárið á þessum lögum, þau
eru nýkomin úr klippingu og komin í
lengdir sem passa í gott partí. Þetta
er viðhafnar-edit á plötunni. En það
er ekki búið að spila saxófón yfir allt
dæmið eða eitthvað svoleiðis. En við
munum ekki geta haldið útgáfu-
tónleika því við erum á fullu að taka
upp nýja plötu í augnablikinu. Við
stefnum aftur á móti að því að halda
„Best of“ tónleika í mars, en höldum
síðan útgáfutónleika fyrir nýju plöt-
una í lok apríl,“ segir Bongo eða for-
setinn. Bongo hefur gengið undir
mörgum nöfnum. Fyrst var hann
kallaður Dj Amore, svo Alfred More,
síðan president, síðan president
Bongo og loks Bongo. „Já, það er
saga á bakvið öll þessi nöfn, en regl-
an í Dj bransanum er að maður komi
ekki með nöfnin sín sjálfur. En Dag-
ur Kári byrjaði að kalla mig presi-
dent Bongo þegar ég kom frá Afríku
þarsem ég var í heimsókn hjá systur
minni sem er búin að búa í Gabon í
tólf ár. En fráfallinn forseti Gabon
hét einmitt Bongo,“ segir Bongo.
borkur@mbl.is
Fyrsta safnplata Gus Gus
lítur dagsins ljós
Morgunblaðið/Eggert
Hetjur Tríóið Gus Gus getur ekki haldið útgáfutónleika vegna nýju safn-
plötunnar því að sem stendur eru meðlimirnir í upptökum á nýrri plötu.
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Fyrir tveimur árum kom út platan
Oft spurði ég mömmu, ánöfnuð
Sigurði Guðmundssyni og Memfis-
mafíunni. Á henni eru hlustendur
leiddir ljúflega til horfinna tíma í
íslenskri dægurtónlist; hljómurinn
slíkur að það liggur við að maður
heyri snarkið í fallega rispuðum
vínylrákunum.
Bernskudraumar
„Við erum þannig séð að höggva
í sama knérunninn á þessari
plötu,“ útskýrir Sigurður
hæversklega en platan ber titilinn
Nú stendur mikið til. „Þeir sem
voru hrifnir af fyrri plötunni hafa
mikið verið að væla í manni um að
gera jólaplötu. Það var hins vegar
ekkert sérstaklega á dagskránni.
Við tókum svo til starfa í sumar,
helltum í eitt deig (brosir) og
prófuðum en það var mjög gaman
að gera litlu plötuna (fyrir jólin í
fyrra kom út forláta sjötomma
með lögunum „Það snjóar“ og „Þá
komu jólin“).“
Heilu Disneymyndirnar og jóla-
lög Bings Crosbys og Nats Kings
Coles koma upp í hugann þegar á
er hlýtt; lögin bera með sér for-
kunnarfagra strengi en um útsetn-
ingar og hljómsveitarstjórn sá
Hrafnkell Orri Egilsson.
„Ég hef verið að hlusta mikið á
þessa kalla, Scott Walker, Bing
Crosby og Tony Bennet,“ segir
Sigurður hugsi. Bætir svo við með
hálfbrosi og blik í augum: „Ég
held að einn af bernskudraum-
unum hafi verið að vera einn af
þeim! En svo verður maður líka
að halda sér gangandi, gera eitt-
hvað. Það er hægt að vera enda-
laust í reggíinu.“
Bögglar
Af ellefu lögum plötunnar eru
fjórar ábreiður en önnur lög eiga
þeir Sigurður, Leifur Jónsson og
Bragi Valdimar Skúlason en hann
semur auk þess alla texta. Þrátt
fyrir þetta hljóma öll lögin eins og
þau hafið verið tekin upp 1948.
Sigurður hlær við. „Við erum
greinilega orðnir svona naskir á
þetta, vanir kóperingum. En þessi
hljómur kemur óhjákvæmilega
með hljómsveitinni sem við brúk-
uðum. Ég er ánægður með þessi
lög okkar. Ég reyndi nú að böggla
saman textum líka en ráin er ansi
hátt uppi þegar Bragi situr við
hliðina á manni. Ég ákvað að láta
hann bara sjá um þetta.“
Sigurður segir að lögin hans
hafi komið fyrir í tíu sekúndna
innslögum í Sumarlandinu, mynd
Gríms Hákonarsonar.
„Mig langaði til að gefa þessum
lögum meira tækifæri og endur-
hannaði þau fyrir þessa plötu.“
Trauðla skýrt með orðum
Plötur sem þessar snúast mikið
um að fanga ákveðinn anda, sem
verður trauðla skýrður með orð-
um.
„Oftast tekur maður upp plötur
með því að setja niður grunna;
trommur, bassa o.s.frv. Svo klóra
menn sér í hausnum yfir því
hverju eigi nú að bæta við. En í
þessu tilfelli (platan var tekin upp
á þremur dögum) er fullt af fólki
mætt saman til að klára ákveðið
verkefni í sameiningu. Í kringum
Oft spurði ég mömmu settum við
upp ákveðinn ramma, við klædd-
um okkur upp, gæddum okkur á
bakkelsi og þetta kemur
ákveðnum anda í gang, fólk fer í
fílíng, verður jákvætt og stígur af
afli inn í ramm-
ann. Það er
skemmtilegt að
taka upp plötur
svona, það mynd-
ast ákveðið and-
rúmsloft sem þú
færð ekki með
hefðbundnum
vinnsluaðferðum.“
Jólin koma
með Memfis-
mafíunni
Sigurður Guðmundsson og Memfis-
mafían gefa út notalega jólaplötu
Jólin, jólin Sigurður Guðmundsson, krúnukall af nýja íslenska skólanum.
„Hönnuðurinn, Hrafn Gunn-
arsson, átti hugmyndina,“ út-
skýrir Sigurður. „En við vissum
hvað við vildum, málið var að
fanga þennan klassíska jóla-
anda. Þetta var hálfgert klúður í
byrjun, við létum taka af okkur
myndir en þær voru bara ekki
að gera neitt, voru ekki
að virka. Við leituðum
því annarra leiða og Ing-
ólfur Örn Björgvinsson
stílfærði svo teikn-
inguna eftir gamalli
mynd, bætti inn andlit-
inu á mér, aðventukransi
og slíku.“
Klassík
UMSLAG PLÖTUNNAR