Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 324. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vala Grand í Ungfrú Ísland …
2. „Ég er númer eitt, Ásdís Rán er …“
3. Gunnar Rúnar játaði fyrir dómi
4. Líðan Ólafs óbreytt
Á morgun kl. 14 verður opnuð sýn-
ingin Budo: saga japanskra bardaga-
lista í Norræna húsinu. Á sýningunni
er varpað ljósi á þróun þeirra lista og
áhrif þeirra á daglegt líf í Japan.
Morgunblaðið/Eggert
Japanskar bardaga-
listir í Vatnsmýrinni
Á sunnudaginn, 21. nóvember,
verða haldnir síðdegistónleikar kl. 17
í Selfosskirkju. Á tónleikunum flytja
söngvararnir Maríanna Másdóttir
(sem sést á meðfylgjandi
mynd), Ragnheiður Blön-
dal, Gísli Stefánsson og
Gospelkór Suðurlands
dægurlaga- og gosp-
eltónlist. Á píanó leik-
ur Óskar Einarsson.
Miðasala fer fram í
anddyri kirkjunnar.
Dægurlög og gospel
í Selfosskirkju
S.H. Draumur
spilar meist-
araverk sitt Goð á
Græna hattinum,
Akureyri, í kvöld.
Er þetta gert til
að kynna tveggja
diska lúxuspakk-
ann GOÐ+ sem
Kimi Records hef-
ur gefið út. Þar er safnað saman öll-
um plötum tríósins, en áherslan lögð
á LP-plötuna Goð sem kom út 1987
og hefur löngum verið talin til ís-
lenskrar rokkklassíkur.
S.H. Draumur á
Græna hattinum
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða 3-8 m/s, þurrt að mestu vestan- og norðanlands, annars
rigning með köflum. Hiti 2 til 8 stig.
Á sunnudag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag Hæg breytileg átt, yfirleitt úrkomu-
laust og bjart á köflum. Lengst af frostlaust við suður- og vesturströndina, en annars
frost 0 til 7 stig og kaldast í innsveitum.
Á fimmtudag Útlit fyrir norðanátt með éljum, en bjart sunnan til á landinu. Kalt í veðri.
Telma Björk Fjalarsdóttir, fyrirliði
bikarmeistara Hauka í körfuknattleik,
segir að brotthvarf Heather Ezell
skilji eftir sig risaskarð hjá Haukum.
Ezell var langbesti leikmaður deild-
arinnar á síðustu leiktíð en er nú
hætt að leika körfuknattleik og Kat-
hleen Snodgrass er komin á Ásvelli í
hennar stað. Morgunblaðið kynnir lið
Hauka til leiks í dag. »4
Risaskarð sem Heather
Ezell skilur eftir sig
Ragna Ingólfsdóttir féll í
gær út í 16 manna úrslitum
Norwegian International, al-
þjóðlega badmintonmótsins
í Noregi, þegar hún beið
lægri hlut fyrir Chloe Magee
frá Írlandi í oddalotu í gær-
kvöldi.
Magee var metin sjöunda
sterkust á mótinu en Rögnu
var ekki raðað fyrirfram á
meðal átta sterkustu á
styrkleikalista mótsins. »3
Ragna tapaði fyrir
Íra í Noregi
Stella Sigurðardóttir og samherjar
hennar í handboltaliði Framara spila
tvo mikilvæga leiki um helgina. Þær
taka á móti Podatkova frá Úkraínu í
Evrópukeppni bikarhafa og fer fyrri
leikurinn fram klukkan 19 í kvöld og
sá seinni á morgun, báðir í
Framhúsinu. „Við erum
ákveðnar í að fara í
næstu umferð og ljúka
árinu án taps,“ sagði
Stella við Morg-
unblaðið. »3
Framkonur ætla sér að
slá út liðið frá Úkraínu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tónlistarskólinn í Reykjavík var
stofnaður árið 1930 og fagnar því 80
ára afmæli sínu um þessar mundir.
Sérstakir hátíðartónleikar verða í
Neskirkju klukkan 17.00 í dag.
Hljómsveit skólans flytur Sinfóníu
nr. 9 eftir A. Dvorák og Fiðlukonsert
nr. 3 eftir C. Saint-Saëns, en Sólveig
Steinþórsdóttir, 14 ára nemandi í 10.
bekk Hagaskóla, leikur einleik á fiðlu
með hljómsveitinni.
Það er eitthvað mjög heillandi við
fiðlu og fiðluleik og því ekki að undra
að Sólveig skuli hafa fallið fyrir hljóð-
færinu. Foreldrar hennar, Valgerður
Bragadóttir og Steinþór Sigurðsson,
eru ekki í tónlistinni en vildu að dæt-
urnar reyndu fyrir sér á því sviði.
Sólveig byrjaði í Allegro Suzuki-
skólanum og var þar nemandi Lilju
Hjaltadóttur en núverandi kennari
hennar er Guðný Guðmundsdóttir,
fyrrverandi konsertmeistari Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands. „Þegar ég
var þriggja ára var Ásgerður, systir
mín, að æfa á píanó, ég sá fiðluhóp og
vildi spila á fiðlu,“ segir Sólveig, en
hún hefur æft stíft alla tíð síðan og
tekur 7. stig í næsta mánuði.
Hefur átt sjö fiðlur
Fiðluleikarar leika á margar fiðlur
og Sólveig hefur átt sjö mismun-
andi fiðlur. „Þetta eru ýmsar
stærðir og mismunandi
hljómur,“ segir hún. „Það er
aðeins minni hljómur í minni
fiðlum.“
Sólveig segir tónlistarnámið
vera mjög gefandi. „Námið
veitir mörg tækifæri, ég læri
að koma fram og spila fyrir
marga,“ segir hún og bætir
við að vissulega sé hún oft
feimin, þegar hún á að stíga á
svið. „En þá reyni ég bara að
hugsa jákvætt.“
Í tengslum við fiðlunámið
hefur Sólveig sótt námskeið erlendis
og meðal annars farið til Englands,
Slóveníu, Noregs og Póllands í þeim
tilgangi. Hún segir þessar ferðir hafa
víkkað mjög sjóndeildarhringinn auk
þess sem hún hafi kynnst mörgum í
tónlistinni. Hún segist hlusta mikið á
klassíska tónlist og bandaríski fiðlu-
snillingurinn Joshua Bell sé í miklu
uppáhaldi hjá sér.
Í fyrra spilaði Sólveig með Rann-
veigu Mörtu Sarc, vinkonu sinni, á
jólatónleikum Sinfóníuhljómsveit-
arinnar í Háskólabíói og segir hún
það hafa verið mikla upplifun.
Sólveig ætlar í Menntaskólann við
Hamrahlíð að ári vegna þess að þar
fær hún tónlistina metna og síðan
stefnir hún á frekara fiðlunám. „Ég
ætla að halda áfram að læra á fiðlu,“
segir hún.
Fjórtán ára einleikari á fiðlu
Sólveig leikur á
hátíðartónleikum í
Neskirkju í dag
Morgunblaðið/RAX
Einleikari Sólveig Steinþórsdóttir byrjaði þriggja ára að leika á fiðlu, hefur spilað með Sinfóníuhljómsveit Íslands
og leikur einleik með hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík á hátíðartónleikum í Neskirkju í dag.
Einleikari í dagskrá Tónlistarskól-
ans í Reykjavík er valinn að lok-
inni keppni nemenda og er Sól-
veig Steinþórsdóttir annar
nemandi Guðnýjar Guðmunds-
dóttur í röð til að bera sigur úr
býtum í keppninni.
Guðný segir að hún kenni mjög
efnilegum krökkum sem eigi það
sammerkt að vera mjög duglegir
og hafi ástríðu fyrir hljóðfæri
sínu. Þeir æfi sig marga tíma á
dag og það sé eina leiðin til
þess að ná árangri. „Sólveig er af-
skaplega vinnusöm og dugleg og
efni í mjög góðan fiðluleikara,“
segir hún.
Fiðlukonsertinn í dag er langur.
„Það er afrek fyrir 14 ára barn að
geta gert þessu svona skil,“ segir
Guðný og leggur áherslu á að hún
sé með marga afrekskrakka í
höndunum, en Sólveig sé yngsti
nemandi Tónlistarskólans í
Reykjavík til þess að leika þennan
konsert.
Ástríða og efni í tónlistinni
ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN