Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 6. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  284. tölublað  98. árgangur  SÝNING VALDÍSAR THOR STEFNAN SETT Á MILLIRIÐIL SÁDI-ARABÍA MESTA HINDRUN EM Í HANDBOLTA 2 Þ́YKIR LÍTILL KVENNALJÓMI 15FLUGAN 30 Fréttaskýring eftir Baldur Arnarson Spennandi leikur á www.jolamjolk.is dagar til jóla 18 Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Mikill fjöldi fólks á leið úr verslunar- ferðum til Bandaríkjanna hefur farið í gegnum tollhliðin á Keflavíkurflug- velli að undanförnu en 40-50 prósenta aukning hefur orðið á ferðum Íslend- inga til Boston í haust. Mæðgur sem lentu í óvæntu eftirliti þurftu að borga yfir 100 þúsund krónur í skatta og sektir við heimkomuna. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir mikla aukn- ingu í Ameríkufluginu, sérstaklega til Boston. „Þetta er langtum meira en í fyrra og síðustu mánuði hafa um 40- 50 prósent fleiri Íslendingar farið til Boston en á sama tíma fyrir ári.“ Aug- ljóst er að hagstætt verðlag í Banda- ríkjunum hefur þar sín áhrif en greiða þarf virðisaukaskatt og tolla af inn- kaupum umfram 65 þúsund krónur. Leituðu að kvittunum Kári Gunnlaugsson yfirtollvörður segir ekki aukið eftirlit í tollhliðunum vegna vinsælda Ameríkuflugsins. „Það eru bara teknar stikkprufur eins og alltaf en það hefur aukist mikið að fólk framvísi varningi við heimkomu til að borga þau gjöld sem vera ber. Flestir standa skil á sínu og það hefur verið mikil traffík í rauða hliðinu.“ Hann segir að miðað sé við inn- kaupsverðið ytra og þar sem það sé töluvert lægra en hér heima sé hagn- aður fólks eftir sem áður töluverður, jafnvel þótt það borgi virðisaukaskatt og tolla af varningnum. „Ef menn eru gripnir geta þeir lent í því að borga sekt til viðbótar við skattinn og það borgar sig ekki á endanum.“ „Við vorum ekki þær einu sem lent- um í þessu, en aðallega voru teknar konur sem höfðu tvær töskur með- ferðis. Þær sem voru með eina tösku fengu að labba í gegn,“ segir Sigríður Jóhannesdóttir sem er ósátt við þá tollameðferð sem dóttir hennar fékk þegar þær komu heim frá Boston á dögunum. Tollvörður hafi leitað í handveski hennar að nótum fyrir innkaupunum og þegar þær fundust hafi hún verið rukkuð um 95 þúsund krónur. Sjálf hafi Sigríður sloppið með bakreikning upp á rúmar 18.400 krónur. „Munurinn liggur greinilega í því hvort þú ert með nótur eða ekki því þeir geta ekki áætlað kostnaðinn á til dæmis barnafötum sem eru á mis- jöfnu verði.“ Miklar annir í rauða hliðinu  Ekki aukið tollaeftirlit en fleiri sjá sér hag í að framvísa varningi við heimkomu  40-50 prósenta aukning í flugi til Boston í haust miðað við sama tíma í fyrra Morgunblaðið/Ómar Lent Margir hafa verslað ytra. Kirkjustrætið hefur fengið nýjan svip eftir að Skúlahús tók sér þar bólfestu við hlið hússins Skjaldbreiðar í gær. Þar með er lokið flutningi á þyngsta húsi sem farið hefur á flakk hérlendis. Skúlahús stóð áður við Vonarstræti, gegnt Ráð- húsinu og flutti því aðeins um 50-60 metra auk þess að því var snúið um 180 gráður. Sigurður Einarsson, arkitekt hjá Batteríinu, sem skipulagði flutningana viðurkennir að það sé nokk- ur „léttir“ að húsið sé lent, en eins og kunnugt er kom í ljós við flutningana að húsið var um 40 tonn- um þyngra en áætlað var í upphafi. „Við vorum bú- in að reikna þyngdina ofan í skrúfu þannig að eina skýringin á því hversu vitlausir útreikningarnir voru hlýtur að vera að grind hússins sé full af grjóti. Það var ekki óalgengt á þessum tíma.“ Morgunblaðið/Júlíus Gerbreytt götumynd við Kirkjustræti í miðborginni Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég held að margir sem hafi yfirskuldsettar eignir meti stöðuna þannig að það sé best að fara í gjaldþrot,“ segir Lilja Mósesdóttir, þing- maður Vinstri grænna, aðspurð hvort hún telji að fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda í málefnum skuldara muni að óbreyttu leiða til þess að margir muni gefast upp á skuldunum, í stað þess að reyna að standa undir afborgunum. Lilja segir aðspurð að erfitt sé að áætla hversu margir kunni að velja að fara í gjald- þrot með 2 ára fyrningartíma krafna, eins og nú stendur til að bjóða upp á. Hitt sé óhætt að benda á að í skýrslu sérfræð- ingahóps ríkisstjórnarinnar sé áætlað að 15.200 heimili séu yfirskuldsett, þ.e. skuldi meira en 110% af verðmæti eignar. Ríflegar vaxtabætur skilyrði Lilja telur að „stór hluti„ þess hópi muni „velta því alvarlega fyrir sér“ að skila hús- lyklunum fremur en að semja um ný skil- yrði afborgana nema til komi ríflegar vaxtabætur frá ríkisstjórninni. „Það er reiði gagnvart þessari 110% leið vegna þess að Arion banki og Íslandsbanki buðu áður mjög tekjuháum einstaklingum betri leið. Fólk er reitt yfir því að það sé ekki einu sinni verið að bjóða upp á fulla niðurfellingu á töpuðum skuldum bank- anna,“ segir Lilja. Kjósa að fara í þrot  Fjöldi fólks kann að gefast upp á lánabyrði Lilja Mósesdóttir  Tilraun hefur verið gerð með að selja ferska lifur úr skötusel á sæl- keramarkað í Bandaríkjunum. Verkefnið hefur farið vel af stað að sögn Páls Ingólfssonar, fram- kvæmdastjóra Fiskmarkaðar Ís- lands í Ólafsvík, og gott verð hefur fengist fyrir lifrina, sem áður var hent í sjóinn. „Á þriðjudag söfnuðum við síð- degis rúmlega tonni af lifur frá tíu bátum á Rifi, Ólafsvík, Arnarstapa og Grundarfirði. Við snyrtum lifr- ina, pökkuðum í litlar frauðöskjur og sendum þetta suður um nóttina. Varan fór síðan með flugi til Bandaríkjanna og var komin á dýr- ustu sushi-staði rúmum sólarhring eftir að fiskurinn veiddist. Menja í Reykjavík stendur fyrir þessari til- raun, þeir fá sitt, fiskmarkaðurinn sitt og karlarnir fengu 517 krónur fyrir kílóið,“ segir Páll. „Ég viðurkenni að mér finnst þetta ekki kræsilegur matur, en þeir dásama lifrina þarna úti. Hún þykir herramannsmatur og ekki skemmir að hún er sögð kynörv- andi,“ bætir Páll við. »16 Lifur skötusels á sælkeramark- að vestan hafs Góður afli Pétur Pétursson, skipstjóri á Bárði SH, kemur að landi með skötusel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.