Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Flokkurinn hafði skipað sér-staka umbótanefnd.
Í því fólst dálítil viðurkenning áþví að umbóta kynni að vera
þörf í flokknum.
En af því að þettavar Samfylk-
ingin þá breytti
nefndin sér snar-
lega í umbúðanefnd.
Niðurstaða um-búðanefndar Samfylking-
arinnar varð þó þrátt fyrir allt sú
að umbóta væri þörf.
En þær umbætur yrði Sjálfstæð-isflokkurinn að gera.
Og til að undirstrika það kom íljós þegar umbúðirnar voru
teknar utan af tillögum nefnd-
arinnar, sem var mikið verk og
flókið, að einnig var lagt til að af-
sökunarbeiðni yrði lögð fram.
Og hinn sérstaki iðrunarfundurSamfylkingarinnar má eiga
það að hann vék sér ekki undan
þeirri tillögugerð.
Keikur og með fullri reisn að sín-um hætti bað Samfylkingin
þjóðina auðmjúklega afsökunar á
framferði Sjálfstæðisflokksins í síð-
asta stjórnarsamstarfi.
Þetta var svo magnþrungið aðhin tilkomumikla ræða for-
manns flokksins féll í skuggann, og
var hún þó flutt í hinum seiðandi
tón sem helst minnir á silkiáferð
Bings Crosbys eða Veru Lynn um
leið og formaðurinn reytti af sér
brandarana svo Ómar og Bob Hope
hefðu verið fullsæmdir af.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Flott afsökunar-
beiðni
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.12., kl. 18.00
Reykjavík -4 heiðskírt
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -4 alskýjað
Egilsstaðir -6 skýjað
Kirkjubæjarkl. -4 heiðskírt
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn -1 snjókoma
Ósló -8 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 slydda
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 1 snjókoma
Brussel 1 skýjað
Dublin -2 þoka
Glasgow -2 heiðskírt
London 2 léttskýjað
París 2 skúrir
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg 2 súld
Berlín 0 snjókoma
Vín -6 þoka
Moskva -11 skýjað
Algarve 18 skýjað
Madríd 5 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -10 alskýjað
Montreal -5 snjóél
New York 0 skýjað
Chicago -4 snjókoma
Orlando 18 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:59 15:40
ÍSAFJÖRÐUR 11:38 15:10
SIGLUFJÖRÐUR 11:23 14:52
DJÚPIVOGUR 10:36 15:01
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
TILBOÐ 99.990
FULLT VERÐ kr. 139.990
Panasonic TXL22D28
22" Pure Line IPS LED LCD SJÓNVARP með 1366x768p upplausn,
Vreal 5, 50.000:1 skerpu, 24p Smooth Film/Play Back, 2msec
svartíma, 3D Colour, stafrænum háskerpu HDTV DVB-T móttakara
(MPEG4), 6w Nicam Stereó V-Audio Surround hljóði, SD/SDHC
kortalesara, 2 x Scart, 2 HDMI 1.3 (1x 1.4), Component, CI rauf,
SVHS, CVBS, PC, Optical út, heyrnatólstengi, iPod vöggu ofl.
MEÐ iPOD VÖGGU
5
DVB-T
HDMI
VGA
LED
Fæst hvítt
eða fjólublátt
Á ÍSLANDI
ideas for life
Landsmenn tóku vel í söfnunarátak-
ið Dag rauða nefsins sem Barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, UNI-
CEF, stóð fyrir á föstudag. Af þeim
173 milljónum króna sem söfnuðust
er stærstur hluti áheit um framlag
heimsforeldra til næstu fjögurra
ára, en einnig áætluð innkoma af
sölu rauðra nefja, símaleik í útsend-
ingu á Stöð 2, stuðningi fyrirtækja
og eingreiðslum sem er alls 16,9
milljónir.
Hátt í 2000 manns bættust í hóp
heimsforeldra, mánaðarlegra
styrktaraðila Barnahjálparinnar.
Heimsforeldrar eru því orðnir um
16.500 eða 5% þjóðarinnar og á árs-
grundvelli styrkja þeir börn í sárri
neyð um 250 milljónir króna.
Inntak Dags rauða nefsins var að
hafa gaman af því að gefa og gleðja
aðra. Fyrirtæki, skólar og stofnanir
tóku átakinu fagnandi og brydduðu
upp á ýmsu skemmtilegu.
Heimsfor-
eldrar orðnir
um 16.500
Baldur, félag ungra sjálfstæð-
ismanna á Seltjarnarnesi, mótmælir
harðlega fyrirhuguðum útsvars-
hækkunum bæjarstjórnar Seltjarn-
arness og telur þær með öllu órétt-
lætanlegar, sérstaklega á tímum
sem þessum þar sem ríkisstjórn
vinstrimanna herjar á fjárhag fjöl-
skyldna, segir í frétt frá Baldri.
„Fyrirhugaðar aðgerðir bæjar-
stjórnar ógna sérstöðu Seltjarnar-
nesbæjar sem fyrirmyndarbæjar-
félags og eru ekki í takt við þau
kosningarloforð sem gefin voru fyrr
á þessu ári,“ segir í tilkynningunni.
Félagið telur að þeir fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn sem
séu fylgjandi fyrirhuguðum skatta-
hækkunum séu að bregðast grund-
vallarhugsjónum Sjálfstæðisflokks-
ins um hóflega skattlagningu og
frelsi einstaklingsins.
Mótmæla
útsvars-
hækkun