Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.12.2010, Blaðsíða 11
því frá því diskurinn kom út hefur hann fengið gríðarlega góð við- brögð. „Fólk hefur hringt í mig all- staðar af landinu og óskað eftir diskinum, en ég ætlaði aðeins að hafa hann í sölu á Suðurlandi því þetta eru fréttir þaðan og ég hélt að aðrir en Sunnlendingar hefðu ekki áhuga á þessu efni, en það er öðru nær. Sveitavargurinn er sér- staklega spenntur því þetta eru vissulega mest fréttir úr sveitalíf- inu,“ segir Magnús Hlynur og bætir við að ástæðan fyrir því að á mynddiskinum eru aðallega svo- kallaðar furðufréttir, sé sú að hann sé mest fyrir slíkt efni sjálf- ur. Heillaður af kórum „Ég hef séð í gegnum árin að það eru slíkar fréttir sem virka í sjónvarpinu, þessar mannlegu, skemmtilegu sveitafréttir, eins og nýleg frétt frá mér um að það eru engir peningar á himnum, en þar er aftur á móti dansað og heil- mikið kórastarf, en þær upplýs- ingar koma frá framliðnum í gegn- um miðla,“ segir hann og bætir við að fyrst svo sé þurfi enginn að kvíða því að deyja. Árið 2001 var gert grín að Magnúsi Hlyni í Áramótaskaupinu og hann hefur þau innslög með á diskunum. „Einfaldlega vegna þess að þetta er sú mesta upphefð sem ég hef fengið á fréttamanns- ferlinum.“ Á diski þessum er einnig að finna skemmtilegt aukaefni, kór- söng frá hinum ýmsu kórum á Suðurlandi. „Ég er alveg heillaður af kór- um frá því ég byrjaði sjálfur að syngja með Karlakór Selfoss í fyrra en þá fékk ég loks leyfisbréf frá konunni minni sem ég hafði beðið eftir í tíu ár. Á diskinum er eitt lag frá hverjum kór.“ Tvenna Tvíburafolöld frá Berjanesi undir Eyjafjöllum sem Magnús Hlynur segir frá. Diskurinn er seldur í verslunum á Suðurlandi en aðeins á einum stað á höfuðborgarsvæðinu, hjá Olís í Norðlingarholti. Það er líka hægt að panta hann beint hjá Magnúsi Hlyn í gegnum netfangið mhh@selfoss.is DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 Jólamarkaður Skógrækt-arfélags Reykjavíkur á El-liðavatni í Heiðmörk verður opinn allar helgar fram að jólum milli klukkan 11 og 17. Þetta er í fjórða sinn sem mark- aðurinn er haldinn í Heiðmörk og hefur aðsóknin farið stigvaxandi. Skógræktarfélagið selur jólatré og tröpputré og ýmsan annan varning sem á uppruna sinn í skógum Heið- merkur. Í Gamla salnum er hægt að nálgast kakó og ilmandi vöfflur og yfir sjötíu handverksmenn og hönn- uðir bjóða fram vöru sína, bæði í salnum og jólahúsum sem komið hefur verið fyrir á hlaðinu við bæ- inn á Elliðavatni. Rithöfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum, bæði fyrir börn og fullorðna, á hverjum Morgunblaðið/Golli Jólamarkaður í Heiðmörk degi. Harmonikkuleikarar þenja nikkur sínar og kórar koma í heim- sókn; Jósef ,,Elvis“ Ólafsson verður með elvisslagara og Sirrý spákona les í framtíð gesta í Spákonukjall- aranum. Klukkan 14 er alltaf sér- stök barnastund í Rjóðrinu skammt frá bænum; þar logar varðeldur, farið verður í leiki og rithöfundur les úr bók sinni. Þá býður mark- aðurinn upp á hestamennsku í fyrsta sinn, því teymt verður undir börnum á túninu neðan við bæinn. Meðfylgjandi myndir voru teknar á opnunarhelgi markaðarins. Jólamarkaður Skógrækt- arfélagið selur tré og greinar úr Heiðmörk. Forvitnilegt Það er margt fyrir börnin að skoða á mark- aðnum. Handverk Mikið af íslensku handverki er í boði við Elliða- árvatn. Matur Það er ýmsilegt að sjá og smakka. Huggulegt Það er margt jóla- dótið í boði. Jól Nánari upplýsingar um dagskrá jólamarkaðsins má finna á www.heidmork.is. ódýrt og gott Ódýrt ! Kjötfars 398kr.kg Þann 1. desember voru fimmtán ár liðin frá því að fyrsta Guinness bjórnum var dælt á Íslandi, en það var við opnun veitingahússins Dubliner í Hafnarstræti. Af því til- efni var fyrsti Guinnessinn afhentur með viðhöfn þann fyrsta þessa mánaðar. Sömu menn og stóðu í biðröð við dæluna á Dubliner árið 1995 fengu fyrstu kollurnar afhent- ar í nákvæmlega sömu röð, á ná- kvæmlega sama tíma, fimmtán ár- um síðar. Það voru félagar í hópnum Guinness-bræður sem voru þeir fyrstu sem fengu að bergja á Guinness hér á landi. Guinness- bræður hafa haldið saman alveg frá því að sala á Guinness hófst á Ís- landi. Enn í dag koma þeir saman í sérstöku herbergi á Dubliner fyrsta föstudag hvers mánaðar til þess að dreypa á bjórnum. Fimmtán árum síðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.