Morgunblaðið - 06.12.2010, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÚLLA ÞORMAR GEIRSDÓTTIR ÁRDAL,
Lindarsíðu 2,
Akureyri,
sem lést miðvikudaginn 1. desember, verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 9. desem-
ber kl. 13.30.
Kristín Árdal, Friðrik Jósepsson,
Geir Árdal, Margrét Bjarnadóttir,
Tómas Árdal, Selma Hjörvarsdóttir,
Páll Hallfreður Árdal, Ólöf Kristín Stefánsdóttir,
Álfheiður Árdal
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, bróðir okkar og
mágur,
FRIÐÞJÓFUR VALGEIR ÓSKARSSON
Hátúni 10a,
Reykjavík,
lést að morgni þriðjudagsins 30. nóvember á
Landspítalanum við Hringbraut. Útförin mun fara
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Magnea Ósk Óskarsdóttir,
Helga Óskarsdóttir,
Stella Gróa Óskarsdóttir, Guðmundur Sigurjónsson,
Sigþór Óskarsson, Hjördís Lúðvíksdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
UNNUR BENEDIKTSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 4. desember.
Birgir Guðjónsson,
Sonja Guðjónsdóttir,
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGFÚS HAUKUR ANDRÉSSON
sagnfræðingur,
andaðist laugardaginn 27. nóvember. Útför fór
fram í kyrrþey frá Fossvogskapellu 3. desember.
Gudrun Lange,
Gunnar H. Sigfússon, Sigrún Lange Sigfúsdóttir,
Elsa Einarsdóttir, Jameel M. Inal
og barnabörn.
✝ Eymar ÍsfeldKarlsson fæddist
í Bolungarvík 23.
okt. 1927. Hann lést
27. nóvember sl. á
Landakotsspítala.
Eymar var sonur
Jón Karls Helgason-
ar f. á Eskifirði 30.
nóvember 1890, d.
24. mars 1943 og
Gunnjónu Valdísar f.
á Mýrum, Mýrarhr.,
19. júní 1903, d. 16.
júní 1985.
Eymar giftist Sig-
ríði Kristínu Guðmundsdóttur 14.
ágúst 1955, d. 19. júní 2008 og
eignuðust þau 3 börn. Gunn-
hildur María Eymarsdóttir f. 12.
nóv. 1953. Eiginmaður Steinar
Ingi Einarsson f. 13. jan. 1949.
Börn þeirra eru María Björk
Steinarsdóttir f. 2.des. 1973, í
sambúð með Konstantín Shcher-
bak f. 22. mars 1978. Einar Ísfeld
Steinarsson f. 3. okt. 1978. Eig-
inkona hans Erin Elizabeth Jor-
gensen f. 30 mars 1975. Barn
þeirra Valur Ísfeld Einarsson
fæddur 23. júní
2009.
Gunnar Hafþór
Eymarsson f. 23.
okt. 1957, dóttir
hans af fyrra sam-
bandi er Petra
María Gunnarsdóttir
f. 23. okt. 1991. Eig-
inkona Salome
Rannveig Birg-
isdóttir f. 4. okt.
1965, dóttir hennar
af fyrra sambandi
Elva Guðrún Gunn-
arsdóttir f. 30. ágúst
1985. Börn þeirra Hermann Karl
Gunnarsson f. 2. ágúst 1999. Alda
Kristín Gunnarsdóttir f. 4. júní
2001. Berglind Brimdís Eymars-
dóttir f. 20. nóv. 1966, eig-
inmaður Birgir Bjarnfinnsson f.
19. mai 1967. Synir þeirra eru
Eymar Andri Birgisson f. 19.
ágúst 1991. Arnar Daði Birgisson
f. 13. maí 1999.
Útför Eymars Ísfeld fer fram í
dag, 6. desember 2010, frá Graf-
arvogskirkju og hefst athöfnin kl
11.
Elsku pabbi minn.
Nú ertu kominn í góðan faðm, já
faðminn hennar mömmu sem þú
saknaðir svo mikið, það róar mig og
gefur mér fallega sýn.
Þegar lífið slokknar,
þá sorgin inn skýst.
Oft þá andlitið blotnar,
því sorginni engin orð fá lýst.
Sorgin eftir skilur í hjartanu holu,
sem ekki er hægt að fylla upp í með
vind golu.
Maður getur ekki verið hennar þegn
en þó vill hún fylgja manni lífið út í
gegn.
Loks kemur gleðin,
þá birtir til,
svo jafnvel við dánarbeðin,
er hægt að kunna á því skil.
Gleðin sorginni burt víkur,
þannig að henni um tíma lýkur.
Bros og hlátur hlutar af gleðinni eru
og hún er stór þáttur í okkar tilveru.
(Aurora Borealis.)
Saknaðarkveðja.
Gunnhildur María
Eymarsdóttir.
Góður vinur minn Eymar Karls-
son hefur nú lagt aftur augun í hinsta
sinn. Eymar var giftur Sigríði Guð-
mundsdóttur frænku minni, en hún
lést fyrir fáum árum. Við Eymar átt-
um margar samverustundir í gegn-
um þau fimmtíu ár sem vinátta okk-
ar hefur staðið.
Eymar var til sjós á fyrri árum, en
kom alfarinn í landi árið 1964, fór þá
að vinna í Plastprenti og síðar í
Plastos út sína starfsævi. Eymar var
dulur maður, það datt enginn um
orðaflauminn hjá honum, en þegar
maður komst inn fyrir skelina, þá
fann maður hlýjan og viðræðugóðan
mann sem oftar en ekki sló á létta
strengi.
Ég vil þakka Eymari fyrir sam-
fylgdina og hlýjuna við mig og mín
börn. Ég óska honum góðrar ferðar
upp himnastigann, en þar bíður
Sigga á efsta þrepinu.
Elsku Gunnhildur mín, Gunnar og
Berglind, þið og ykkar fjölskyldur
hafið öll misst mikið á stuttum tíma
og það er huggun harmi gegn að
pabba ykkar og mömmu líður nú bet-
ur eftir öll veikindin sem á undan eru
gengin. Minning þeirra er ljós í
myrkrinu.
Kveðja,
Sigurhanna Gísladóttir.
Eymar Ísfeld Karlsson
Ég skrifa þessi orð
með sorg í hjarta
vegna frétta af fráfalli Ingibjargar
R. Guðmundsdóttur. Það er óend-
anlega sorglegt. Ég hef þekkt Ingi-
björgu í 25 ár, en samvinna okkar
hófst þegar VR var í fyrsta skipti
gestgjafi á höfuðborgaráðstefnu
verslunarmannafélaga á Norður-
löndum árið 1985. Við bjuggum á
hótel Loftleiðum og Ingibjörg var
frábær gestgjafi, virðulegur fulltrúi
Íslands og VR meðan á þessari
heimsókn stóð.
Áhugi minn á Íslandi var vakinn
og grunnurinn að 25 ára langri og
góðri samvinnu milli HK Kaup-
mannahöfn og VR/LÍV lagður,
framlag Ingibjargar í því ferli verð-
ur seint metið. Í gegnum árin þróað-
ist samvinna okkar Ingibjargar í
nána vináttu og hjá HK var Ingi-
björg ekki aðeins metin sem góður
félagi, heldur sem kær vinur og
mikilvægur hluti af okkar faglegu
norrænu fjölskyldu.
Við munum minnast Ingibjargar
vegna hennar miklu sérþekkingar
og víðsýni, óþreytandi framlags
hennar til félagsmannanna og ekki
síst vegna þeirra banda sem hún
batt í samvinnu HK og VR/LÍV, og
auðvitað hennar vingjarnlegu og
brosandi nærveru, þar sem alltaf
var pláss fyrir þig, ef þú þurftir á
góðum ráðum að halda eða hjálp-
arhönd. Þannig mun Ingibjargar
verða minnst og saknað mikið hérna
hjá okkur, ekki bara sem góðs fé-
laga heldur líka sem kærs vinar sem
við virtum mikils um árabil.
Við hugsum til ykkar, kæru fé-
lagar, vinir, og ekki síst fjölskyldu
Ingibjargar, sem núna upplifir
mikla sorg og söknuð og sendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Í kvöld mun ég kveikja á kerti
fyrir Ingibjörgu og Ísland hér í
Kaupmannahöfn. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Fyrir hönd stjórnar, starfsmanna
og vina hér í HK Kaupmannahöfn,
Per Tönnesen.
Í dag verður borin til grafar
traustur samstarfsfélagi minn um
og vinur, Ingibjörg R. Guðmunds-
dóttir, eftir stutta en erfiða sjúk-
dómslegu. Það verður ekki annað
sagt en að við fráfall Ingibjargar
hafi verkalýðshreyfingin misst einn
sinn besta mann og mikið skarð hef-
ur verið höggvið í forystusveit VR
og Landssambands íslenzka verzl-
unarmanna.
Ingibjörg hefur unnið fyrir verka-
lýðshreyfinguna af miklum heilind-
um um langa hríð og hef ég verið
Ingibjörg Rannveig
Guðmundsdóttir
✝ Ingibjörg Rann-veig Guðmunds-
dóttir, formaður LÍV,
fæddist í Reykjavík
19. ágúst 1949. Hún
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 24. nóvember
2010.
Útför Ingibjargar
var gerð frá Nes-
kirkju 3. desember
2010.
svo heppinn að fá að
kynnast og njóta leið-
sagnar þessarar hæfi-
leikaríku og góðu
konu. Okkar kynni
hafa m.a. verið í gegn-
um kjarasamninga-
gerð fyrir LÍV og VR
á síðustu árum en þar
hefur hún leikið stórt
hlutverk. Í kjara-
samningum hafa kost-
ir Ingibjargar komið
vel í ljós, því þar
skipta hlutir miklu
máli eins og þraut-
seigja, skipulag, færni í mannlegum
samskiptum og ekki síst traust og
trúverðugleiki.
Öll vinnubrögð Ingibjargar voru
með þeim hætti að hún ávann sér
ávallt mikla virðingu manna, sama
hvorum megin við samningaborðið
menn sátu, enda var hún manneskja
sem hægt var að treysta. Það er því
ljóst að samningalota sú sem fram-
undan er á vinnumarkaði verður
erfiðari fyrir okkur verslunarmenn
en vonir stóðu til, af þeirri ástæðu
einni að við njótum ekki lengur leið-
sagnar og reynslu „okkar konu“
sem var kannski aldrei mikilvægari
en einmitt núna þar sem mörg erfið
mál liggja fyrir.
Eitt af mörgum verkefnum „okk-
ar konu“ var að halda utan um og
skapa erlend samskipti fyrir VR og
LÍV. Þar sem samstarfstími okkar
Ingibjargar var farinn að teljast í
áratugum, hef ég kynnst Ingibjörgu
líka við störf á erlendri grundu, t.d.
á fundum verslunarmanna í Evrópu.
Þar naut þessi hlýja kona sín til
fullnustu, enda rætur hennar í
ferðaþjónustugeiranum, þar sem
tengslanetið skiptir miklu máli og að
ná sem mestum árangri á sem
skemmstum tíma. Erlendis kom hún
ár íslenskrar verkalýðshreyfingar
þannig fyrir borð að Ísland virkar
mun stærra og mikilvægara en í
raun ætti að vera og held ég að þar
skipti mestu máli sá sterki persónu-
leiki sem Ingibjörg hafði að geyma.
Um leið og ég kveð þessa góðu
konu með þakklæti og virðingu vil
ég votta fjölskyldu hennar samúð
mína.
Elías Magnússon.
Nú er fallin frá sterk kona og góð-
ur samstarfsfélagi, Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir, langt fyrir aldur
fram. Ingibjörg skilur eftir sig stórt
skarð í samstilltum hópi starfs-
manna VR og verður hennar minnst
með virðingu og söknuði.
Ingibjörg var baráttukona af lífi
og sál sem lét sig hag alls launafólks
varða. Hún var ekki eingöngu for-
maður Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna og varaforseti ASÍ
heldur einnig félagi okkar í VR.
Hún var sannur leiðtogi í starfi og
leik, hafsjór af fróðleik og reynslu-
brunnur í öllum málum sem varða
vinnumarkaðinn. Verkalýðshreyf-
ingin naut krafta hennar í rúma þrjá
áratugi og starfsfólk VR átti lengi
samleið með henni.
Ingibjörg var mikil jafnréttiskona
og verndari lítilmagnans. Hún var
sjálfstæð kona, framsýn og fylgin
sér. Hún var manneskja sátta,
raunsæ og réttlát. Hún átti auðvelt
með að hrífa fólk með sér og þau
voru mörg málin sem hún leiddi far-
sællega til lykta. Á Ingibjörgu var
hlustað og eftir henni var tekið.
Hún var trúuð kona með ríka
réttlætiskennd. Ingibjörg lét sig
varða líðan fólks og rétti hjálpar-
hönd þeim sem þurftu. Það var ekki
í hennar eðli að tala illa um fólk og
hún hallmælti aldrei neinum manni.
Við minnumst glæsilegrar konu sem
sópaði hvarvetna að. Fas hennar
einkenndist af yfirvegun, rólyndi og
festu og henni fylgdi birta og kraft-
ur. Ást hennar og umhyggja fyrir
drengjunum sínum snart okkur og
er hugur okkar hjá þeim á þessari
stundu.
Mörg okkar unnu með Ingibjörgu
árum saman, bæði innan VR og
LÍV. Hún var góður félagi, glaðlynd
og hláturmild. Það fetar enginn svo
glatt í fótspor hennar. Eftir situr
minning um kraftmikla konu sem
hafði mikil og varanleg áhrif á líf
okkar.
Við þökkum Ingibjörgu innilega
samfylgdina.
F.h. starfsfólks VR,
Anna Björg Siggeirsdóttir.
Það var árið 1993 sem ég hitti þig
fyrst, kæra Ingibjörg. Ég að stíga
mín fyrstu spor í verkalýðsbarátt-
unni blaut á bak við eyrun. Mætti á
fyrsta LÍV-þingið, tveimur mánuð-
um eftir að ég tók við sem formaður
Verslunarmannafélags Vestmanna-
eyja. Þú tókst vel á móti mér, frá
þér streymdi öryggi. Í 17 ár hafa
leiðir okkar legið saman í blíðu og
stríðu, í vinnu og einkalífi, í gleði og
sorg. Þú kenndir mér svo ótal
margt, af þér var gott að læra. Við
áttum svo margt sameiginlegt. Þær
voru gefandi spjallstundirnar okkar,
stuðningur þinn, húmor og um-
hyggjusemi.
Drengjunum þínum Bjarna og
Andrési bið ég Guðs blessunar svo
og ættingjum og vinum.
Takk fyrir samstarfið og ómet-
anlega vináttu. Far þú í friði, kæra
vinkona
Guðrún Erlingsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Ingi-
björgu Rannveigu Guðmunds-
dóttur bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendi-
kerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á
netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar