Morgunblaðið - 06.12.2010, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
6 2 9 3 4
4 6
9 7 5
7 5 9
1 6 5 7
9 4 3
2 4
1
4 6
5 2 7
7 9 4
3 1
4 7 9 6
2 4
5 2
2 1 9 7
1
9 3
4 9 2 1
6 4
5 7
7 2 6 8
9 6 1 7
4 2
6 9
7 8
1 6
8 4 3 2 7 9 1 6 5
5 1 7 3 6 8 2 9 4
2 9 6 4 5 1 3 8 7
6 3 1 8 4 5 7 2 9
9 8 2 6 1 7 5 4 3
4 7 5 9 3 2 8 1 6
1 6 4 5 2 3 9 7 8
3 2 8 7 9 6 4 5 1
7 5 9 1 8 4 6 3 2
2 8 4 5 3 7 9 1 6
5 7 6 9 4 1 2 3 8
9 1 3 8 6 2 7 4 5
1 3 2 6 7 5 4 8 9
4 6 9 3 1 8 5 7 2
7 5 8 4 2 9 3 6 1
3 9 5 7 8 6 1 2 4
6 2 7 1 5 4 8 9 3
8 4 1 2 9 3 6 5 7
5 1 7 9 8 2 3 4 6
8 4 3 7 6 5 2 1 9
9 6 2 3 4 1 8 5 7
1 9 8 2 3 7 5 6 4
7 5 4 6 9 8 1 3 2
3 2 6 1 5 4 7 9 8
4 8 1 5 2 6 9 7 3
6 3 5 8 7 9 4 2 1
2 7 9 4 1 3 6 8 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 6. desember,
340. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6,
14.)
Víkverji hefur gaman af tölfræði.Það er erfitt að mótmæla
tölfræðilegri niðurstöðu. 59% hvítra
karla vita það.
Víkverji gramsar stundum eftir
tölfræðilegum upplýsingum á net-
inu. Það bar því vel í veiði um
helgina er Víkverji rakst á lista sem
tekinn var saman af vefsíðunni Poli-
tico yfir bandarískar borgir eftir því
hversu hátt hlutfall menntafólks er.
Bærinn Boulder í Colorado er
efstur á blaði en atgervisvísitalan (e.
brain power index) mælist þar 3.941.
Næst kemur Ann Arbor í Michigan
með 3.228 stig og Washington er í
þriðja sæti með 2.573 stig.
Athygli vekur að íbúafjöldi Boul-
der er nánast sá sami og á Íslandi,
eða um 303.482 árið 2009 og því að
líkindum ríflega 305.000 um áramót-
in. Kannski þykir Víkverja einum
þetta áhugavert.
x x x
Annað sem vekur athygli er að íBoulder hættu 6,17% íbúanna í
skóla áður en þeir luku stúdents-
prófi en til samanburðar 33,93% í
Merced í Kaliforníu, borginni sem er
í 200. og neðsta sæti atgervislistans.
Hlutfall þeirra sem falla útbyrðis
af menntaskútunni er þó ekki hæst í
Merced. Það er hæst í McAllen-
Edinburg í Texas eða 39,31%. Íbúa-
fjöldi þar er 741.152 sem þýðir að ríf-
legur íbúafjöldi Íslands hefur þar
ekki lokið stúdentsprófi.
Því vaknar sú spurning hvernig
staðarblöðin líti út í plássinu.
Aðalblaðið heitir The Valley Town
Crier og má merkja af efnistökunum
að áherslan er á nærsveitir.
McAllen-Edinburg á sína álits-
gjafa og er Mark Noe í þeirra hópi.
Hann veltir því fyrir sér hvort
sannleikskorn kunni að leynast í
þeirri staðhæfingu að börn í dag séu
snjallari en fyrir nokkrum áratug-
um. Noe ræðir málið út frá Biblíunni
og nýlegum bókum um taugavísindi.
Víkverji er hrifinn af nálgun Noe
og telur hana til marks um að líklega
sé lítið að marka listann.
Prófgráður eru ekki algildur
mælikvarði á andlegt atgervi eins og
heimskreppan er svo afgerandi til
vitnis um. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fífldjarfir menn, 8
auðug, 9 hnugginn, 10 dvelj-
ast, 11 gleðskap, 13 magran,
15 fjöturs, 18 nurla saman,
21 stefna, 22 hélt, 23 stéttar,
24 okrara.
Lóðrétt | 2 snjóa, 3 stjórn-
um, 4 sárs, 5 Mundíufjöll, 6
vot, 7 hugboð, 12 blóm, 14
fiskur, 15 ósoðinn, 16 smán-
arblett, 17 galtar, 18 vísa, 19
afréttur, 20 svara.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 búlki, 4 falds, 7 geiga, 8 rugga, 9 næm, 11 afar, 13
knáa, 14 endar, 15 horf, 17 ógát, 20 ari, 22 mælum, 23 lesin, 24
renna, 25 tjara.
Lóðrétt: 1 bugða, 2 leifa, 3 iðan, 4 form, 5 lúgan, 6 skaða, 10
æddir, 12 ref, 13 kró, 15 húmar, 16 rolan, 18 gusta, 19 tunna, 20
amla, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 Rf6 4. e3 d5 5.
cxd5 exd5 6. d4 Rc6 7. Be2 Be7 8. 0-0
0-0 9. dxc5 Bxc5 10. b3 a6 11. Bb2 Dd6
12. Hc1 Ba7 13. He1 He8 14. Rb1 Re4
15. Rbd2 Dh6 16. Rxe4 dxe4 17. Rd2
Bf5 18. Bc3 Hac8 19. Dc2
Staðan kom upp á alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem haldið
var árið 1980. Hinn tvítugi Margeir
Pétursson hafði svart gegn norska al-
þjóðlega meistaranum Knud Helmers
en sá varð fyrstur Norðmanna til að
gerast atvinnumaður í skák. 19Rd4!
20. exd4 Bxd4 21. Bc4 svartur hefði
einnig unnið eftir 21. Db2 e3! 21. …
Bxf2+! 22. Kh1 Bxe1 23. Hxe1 b5 og
hvítur gafst upp. Síðan 1980 hefur mik-
ið vatn runnið til sjávar og hafa nú
Norðmenn á að skipa einum sterkasta
skákmanni skáksögunnar, Magnusi
Carlsen.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hræringshækkun.
Norður
♠K9876
♥Á1073
♦D42
♣3
Vestur Austur
♠D43 ♠10
♥652 ♥D
♦K106 ♦ÁG9753
♣8752 ♣ÁKDG10
Suður
♠ÁG52
♥KG984
♦8
♣964
Suður spilar 5♥ dobluð.
Í tímamótabók sinni Partnership
Bidding (1993) skilgreindu Robson &
Segal hugtakið „mixed raise“ sem
stuðningssögn á milli hindrunar og
áskorunar. Hræringshækkun sýnir
spil sem eru of sterk í hindrun, en of
veik í áskorun – fjórlitarstuðning og
6-9 hápunkta. Robson & Segal vildu
nota 2G í þessum blandaða tilgangi, en
í seinni tíð hafa sést fleiri leiðir til að
melda slíkar hendur.
Spil dagsins er frá haustleikunum í
Orlando. Austur vakti á 1♦, suður kom
inn á 1♥ og norður stökk í 3♦ til að
sýna hræringsstuðning. Austur var
engan veginn útmeldaður og sagði 4♣,
sem vestur hækkaði í 5♣. Suður sá þá
fyrir sér einspil hjá makker í laufi og
bullandi hliðarfitt í spaða. Hann reyndi
því 5♥ og fékk ellefu slagi með því að
finna ♠D.
6. desember 1593
Yfirdómur, æðsti dómstóll á
Alþingi, var stofnaður. Hann
starfaði í rúmar tvær aldir.
6. desember 1949
Ríkisstjórn Ólafs Thors, sú
þriðja undir forsæti hans, tók
við völdum. Þetta var minni-
hlutastjórn Sjálfstæðisflokks-
ins. Hún sat í 98 daga, en það
er skemmsti starfstími ís-
lenskrar ríkisstjórnar.
6. desember 1955
Verslunarmiðstöðin Vest-
urver við Aðalstræti í Reykja-
vík var opnuð. Þar voru níu
verslanir. „Nýtískubragur í
verslunarháttum,“ sagði
Morgunblaðið.
6. desember 1963
Þrír blaðamenn frá franska
stórblaðinu Paris Match urðu
fyrstir til að stíga á land á
Surtsey (sem þá var nefnd
Syðstaey) en eldgos hófst þar
þremur vikum áður. Viku eftir
landgöngu Frakkanna komust
Vestmannaeyingar út í eyj-
una.
6. desember 1965
Íþróttahöllin í Laugardal var
formlega tekin í notkun. Hún
var talin marka þáttaskil fyrir
innanhúsíþróttir og sýn-
ingahald.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Kristinn Guðnason frá Skarði, bóndi í Árbæj-
arhjáleigu, fjallkóngur á Landmannaafrétti og
formaður Félags hrossabænda, er sextugur í dag.
Kristinn ætlar að halda upp á afmælið sunnu-
daginn 12. desember. „Það verður afmælisveisla á
Laugalandi í Holtum frá klukkan 13-16. Það verð-
ur svona hefðbundin dagskrá og allir velkomnir,“
sagði Kristinn. Hann sagðist ekki hafa haldið mik-
ið upp á afmæli sín hingað til. En hvernig leggst
það í hann að ná þessum áfanga?
„Það leggst bara vel í mig eins og annað. Nú er
maður allt í einu orðinn með elstu mönnum,“ sagði
Kristinn og hló. Hann er á fullu í búskap og hestamennsku, en ætlar
hann að vera áfram fjallkóngur? „Já, það er nú það eina sem maður
vonast til að geta verið í svo lengi sem maður dregur andann. Hin fé-
lagsmálin mættu fara að hægja á sér,“ sagði Kristinn. Hann varð fjall-
kóngur 1981 og hefur því ríkt í 30 ár 2011. En hvað um framtíðina?
„Hún leggst ágætlega í mig. Mér finnst hins vegar of mikill aum-
ingjaskapur í þjóðfélaginu. Menn tala bara um hvað þetta hafi allt far-
ið illa í staðinn fyrir að rífa sig af stað. Ég sé mörg tækifæri í mínu
umhverfi og hef reyndar alltaf séð þau,“ sagði Kristinn. gudni@mbl.is
Kristinn Guðnason bóndi er 60 ára í dag
Orðinn með elstu mönnum!
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
6. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.12 0,5 6.29 4,2 12.47 0,5 18.48 3,8 10.59 15.40
Ísafjörður 2.16 0,4 8.26 2,4 14.57 0,3 20.38 2,1 11.38 15.10
Siglufjörður 4.26 0,3 10.38 1,4 16.59 0,1 23.29 1,2 11.23 14.52
Djúpivogur 3.39 2,4 9.57 0,5 15.50 2,0 21.56 0,4 10.36 15.01
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gættu þín í umgengni við aðra, eink-
um þá sem þú telur ekki á þínu bandi. Stapp-
aðu stálinu í vin sem er í vanda.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú leggur mikið undir í augnablikinu,
sem þýðir að þú sveiflast milli þess að finna
til sjálfstrausts og óöryggis. Vertu ekki að
berjast ein/n, fáðu einhverja í lið með þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Stundum brenna á þér spurningar
sem þú færð engin svör við. Það ríður á að þú
haldir haus og standir upprétt/ur.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú ert tíminn til að viðra vandamál
sem þú hefur lengi falið. Vertu eins kurteis og
þú getur við ástvini. Þú hefur alltaf fylgt
straumnum, ætlar þú ekki að breyta því?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Víkkaðu út sjóndeildarhringinn þegar
kemur að því að tjá hrifningu þína. Vertu
óhrædd/ur við að segja þeim sem þú hittir
daglega að þeir skipti þig máli.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Demdu þér í slaginn og láttu engan
bilbug á þér finna þótt hart sé að þér sótt.
Láttu slag standa og hafðu öll spjót úti til að
ná verkefni sem þig langar í.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Mættu þangað sem þér er boðið, annars
vakna grunsemdir um áhugaleysi þitt.
Treystu því að þú verðir samþykkt/ur og láttu
þína innri rödd leiða þig áfram.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ef þú fæst við hópa fólks í dag
skaltu ekki fallast á skilafrest eða markmið.
Gott væri að ræða við maka um orlof og
skapandi verkefni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú kannt að hefja nýtt ástarsam-
band eða að núverandi samband mun þróast
áfram. Komdu vináttu í samt horf .
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér finnast öll spjót standa á þér
þannig að þú náir ekki andanum. Stíllinn
skiptir máli og þú hefur hann svo sannarlega.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Góð regla er að skrifa niður verk-
efnalistann þegar margt er á döfinni. Láttu
kíkja á þig ef vanlíðan hefur verið að angra
þig, eða losaðu þig við neikvæðar venjur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Nú er komið að þér að gefa. Fortíðin
felst jafn mikið í því sem kom fyrir þig, og því
sem þú trúir að hafi komið fyrir þig.
Stjörnuspá