Morgunblaðið - 06.12.2010, Page 28

Morgunblaðið - 06.12.2010, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010 Þegar líður á jólamánuðinn opna landsmenn hjarta sitt og híbýli í sönnum jólaanda. Einkum eru þeir opnir fyrir gestum sem geta glatt börnin því jólin eru jú hátíð barnanna. Þetta notfæra sér ýmsir mis- indismenn og skálkar til að hrekkja saklausan almúgann og ræna eigum hans. En nú hefur útgáfan Orgvél gefið út forvarnarlag gegn þessu hyski og heitir það Jólaheimsókn. Lagið er í flutningi Heiðu Árnadóttur og er eftir Benóný Ægisson en Guðmundur Einarsson sá um hljóðvinnslu. Lagið Jólaheimsókn er hægt að nálgast á vef Lýðveld- isleikhússins http://www.this.is/great Tónlist Benóný veltir jóla- sveinum fyrir sér Benóný Ægisson Ljóðabókin Draumar eru lengi að rætast eða … und Traume brauchen langerer er heiti nýrrar ljóðabókar eftir Önnu S. Björnsdóttur. Bókin er á ís- lensku og þýsku og annaðist Eberhard Rumbke þýðingu hennar. Bókin skiptist í þrjá kafla er nefnast, Ást og fjötrar, Birta og Kyrrð og hafa að geyma 22 ljóð, á hvoru tungu- máli. Myndskreytingar eru gerðar af Önnu G. Torfadóttur myndlistarmanni. Bókin fæst í helstu bókabúðum og á Listasafni Íslands. Anna hefur gefið út fjölda bóka á löngum og farsælum ferli en fyrsta bók hennar, Örugg- lega ég, kom út árið 1988. Ljóðlist Ný ljóðabók Önnu S. Björnsdóttur Anna S. Björnsdóttir Strengjasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur á tón- leikum í röðinni Te og tónlist á Bókasafni Seltjarnarness í dagkl. 17.30. Hljómsveitin leik- ur meðal annars nokkur lög úr Töfraflautunni eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) og Jólakonsert eftir ítalska fiðluleikarann og tónskáldið Corelli (1653-1713). Stjórnandi hljómsveitarinn er Helga Þór- arinsdóttir víóluleikari. Helga hefur kennt við Tónlistarskóla Seltjarnarness frá 1999. Hún stundaði nám við Royal Northern College of Mu- sic í Manchester og síðar hjá George Neikrug í Boston. Tónlist Te og tónlist á Seltjarnarnesi Helga Þórarinsdóttir Ingvi Þór Kormáksson bókasafns- fræðingur hefur starfað við músík alla sína ævi og er nú í fimmta sinn með lag í úrslitakeppni Evróvisjón. Færri vita af rithöfundahæfileikum mannsins en hann vann Gaddakylf- una í fyrra sem eru verðlaun veitt fyrir bestu glæpasmásögu ársins. Hann gaf út sína fyrstu bók í ár, smásagnasafnið Raddir úr fjarlægð. Lestrarhólisti „Ég hef alltaf verið með lestrarár- áttu. Ég held að Guðmundur Andri hafi kallað þetta að vera lestrarhól- isti. Þessi bók sprettur af því. Ein- hverjar sögurnar urðu til þegar ég hafði verið að þýða bókina Whiskey börnin sem er ævisaga fyllibyttu og þegar því var lokið var ég orðinn svo vanur að setjast við tölvuna á morgnana að ég hélt því bara áfram og skrifaði fimm eða sex smásögur á þessum tíma. Svo söfnuðust hinar upp með árunum. Fyrri helmingur sagnanna tengist mér að einhverju leyti á vissu ævi- skeiði. Þar eru tengingar í músík. Seinni hlutinn er sögur af ýmsu tagi. Þar er meðal annars ein saga úr Evróvisjón keppninni en hún fjallar um mikinn stuðmann sem tekur þátt í keppninni,“ segir Ingvi Þór. Aðspurður hvort það megi búast við fleiri bókum frá honum segir Ingvi Þór að það sé óvíst. „Reyndar er til hugmynd að skáldsögu sem er nokkurskonar glæpasaga en maður sér til hvort af því verður að skrifa þá bók.“ borkur@mbl.is Úr tónlist í bókmenntir Ingvi Þór sendir frá sér smásagnasafn Tengingar Ingvi Þór Kormáksson, tónlistarmaður og rithöfundur. Morgunblaðið/RAX Yrkisefni bókarinnar er á yfirborðinu ver- öld hins hversdagslega, nægjusama manns 29 » Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Tóta tíkarspeni, barnabók Þóris S. Guðbergssonar, hefur verið gefin út að nýju en hún kom fyrst út árið 1978 hjá Almenna bókafélaginu. Í bókinni segir frá Tótu tíkarspena sem hleypur einn dag inn í skóg og finnur þar óvæntan vin og hugarfar hennar breytist. Með börn í kringum sig „Bókin seldist upp á sínum tíma og það hefur verið spurt talsvert mikið um hana í þessi rúmlega þrjá- tíu ár. Nú kemur hún út að nýju og textinn er örlítið styttur og breytt- ur,“ segir Þórir. Þórir á langan feril sem rithöf- undur og langmest hefur hann skrifað fyrir börn. Af hverju valdi hann að skrifa fyrir börn? „Það má segja að ég hafi verið al- inn upp í KFUM, ég vann í Vatna- skógi á sumrin sem leiðtogi í sum- arbúðunum, valdi mér starf sem kennari og var alla daga allt árið með börn í kringum mig, svo þau urðu mér afar hugleikin. Svo tók annað tímabil við eftir að ég fór í fé- lagsráðgjafanám því þá fór ég að vinna við öldrunarmál. Það var líka feikilega spennandi og ég skrifaði þrjár bækur fyrir aldraða og tíu bækur í bókaflokknum Lífsgleði sem eru samtöl við aldraða.“ Sérkennileg viðbrögð Hvað finnst þér að eigi að prýða góða barnabók? „Ég hef alltaf viljað leggja áherslu á góða íslensku. Á und- anförnum árum hef ég verið að þýða mikið fyrir Setberg og í þeim bók- um hef ég leitast við að þýða á nú- tímaíslensku þannig að textinn verði ekki framandi og aldargamall en gleyma samt ekki fortíðinni og öllu því auðuga máli sem við eigum.“ Má ekki segja að það sé sterkur siðferðisboðskapur og trúarþráður í flestum bóka þinna? „Þegar ég byrjaði að skrifa lang- aði mig í langflestum bókum mínum að verða eins og séra Friðrik. Hann sagði stundum við mig: „Ég var ekki að skrifa af því ég héldi að ég væri rithöfundur heldur vegna þess að mig langaði til að koma boðskap á framfæri.“ Ég hugsa að það hafi verið svipað með mig í upphafi. Ég fékk nokkuð sér- kennileg viðbrögð við fyrstu barnabókunum mínum. Vinstri- sinnaðir menn settu mikið út á það hversu mjög væri talað um Guð en þeim fannst bækurnar samt skemmtilegar að öðru leyti. Mörgum af trúbræðrum mín- um fannst ég hins vegar skrifa alltof lítið um Guð. En auðvitað verður maður alltaf að fara þann veg sem manni finnst réttastur, bestur og sanngjarnastur hverju sinni.“ Fer þann veg sem mér finnst réttur hverju sinni  Barnabókin vinsæla, Tóta tík- arspeni, hefur ver- ið endurútgefin Morgunblaðið/Ernir Þórir S. Guðbergsson „Bókin seldist upp á sínum tíma og það hefur verið spurt talsvert mikið um hana í þessi rúmlega þrjátíu ár.“ Þórir S. Guðbergsson er fæddur í Reykjavík 7. maí 1938 og alinn þar upp. Hann er sonur hjónanna Guðbergs Jónasar Konráðssonar verkamanns og Herdísar Þóru Sigurðardóttur verkakonu. Eftir stúdentspróf fór hann í Kennaraskólann. Hann stundaði framhaldsnám í Osló og Stafangri. Hann starf- aði lengi við kennslu og skóla- stjórn og síðan sem fé- lagsráðgjafi í Reykjavík. Hann sat í ýmsum nefndum á vegum ríkis og bæjar. Hann starfaði einnig sjálfstætt við kennslu fullorðinna, ráðgjöf og námskeið hjá stofn- unum, stétt- arfélögum og fyr- irtækjum vegna und- irbúnings efri ára og starfsloka. Kona Þóris er Rúna Gísla- dóttir, myndlistarkona og kenn- ari og eru börn þeirra Kristinn Rúnar, Hlynur Örn, Þóra Bryndís og Hrafn Þorri. Kennari og félagsráðgjafi MAÐURINN Tónleikar Sinfóníuhljóm-sveitar Íslands á fimmtu-dag voru í svokallaðrirauðri röð sem einkum er helguð stærstu klassísku grein hljómsveitarverka – sinfóníunni, er frá auðhöndlanlegri stærð ítalskra óperuforleikja á 18. öld óx svo í sniðum á rómantíska skeiði hinnar nítjándu að um tíma – þ.e. í nýklassíkinni upp úr 1920 – leit jafnvel út fyrir að flestir tón- höfundar myndu hunza hana. Dagskráin var þannig, sjaldan þessu vant, einleikaralaus. Í staðinn veitti hún í hnotskurn hlustendum kærkomna þróun- arinnsýn með því að bjóða upp á tvö gjörólík verk, með nærri 80 ára millibili frá upphafi stækk- unarferils rómantíkur til loka síðrómantíkur. Alltjent má efast um hvort Schubert – eða jafnvel Beethoven fram að Níunni – hafi órað fyrir hvað verða skyldi 80 árum síðar, þegar greinin tók að teygjast upp fyrir klukkustundar lengd. 8. sinfónía Franz Schuberts í h-moll D759 frá 1822 lá að undrabarninu látnu eftir sem „torsó“ í aðeins tveim þáttum, og ku enn ókunnugt hvað því olli. Það hefur þó aldrei dregið úr vinsældum þessa fagra verks, og í syngjandi tærri túlkun Petren- kos og SÍ stóð það vel fyrir sínu. Þótt hérverandi hlustandi heyrði útkomuna aðeins í „mónó“, staddur yzt við húsvegg, virtist samvægi hljóðfæradeilda samt furðugott, þótt óhjákvæmilega yrði manni hugsað til betri óm- vistaraðstæðna í Hörpu að vori, þegar smágerðari strengjaatriði eiga vonandi eftir að koma betur fram en hér var að heilsa. Hinn lygilega snemmþroska Vasily Petrenko, ef aðeins má marka hvernig hann fyrst birtist í viðtali á Gufunni fyrr um dag- inn, kvað þrátt fyrir ungan aldur (f. 1976) þegar kominn á bekk með fremstu Mahlertúlkendum okkar tíma. Vonir voru því mikl- ar þegar 5. sinfónía Mahlers í cís-moll var flutt eftir hlé í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli þessa síðasta rómantíska hljómkviðu- snillings frá 1902. Sú fyrsta, að nr. 1 undanskilinni, sem nýtur engra söngradda, eða að öllu leyti „instrúmentöl“. Sem fyrr var að ýjað tekur sinfónían drjúgan tíma eða um 70 mín. og er að því leyti með stærri bitum en aðrir en Mahler- aðdáendur torga með góðu móti. Þeim hefur hins vegar fjölgað svo um munar eftir 1960, þegar Mahler var enn tiltölulega óskrifað blað í vestrænum tón- leikasölum. Mátti svo raunar sjá af nærri uppseldu húsi, eða um 920 af 970 sætum. Verkið er óendanlega ríkt að inntaki og fjölbreytni, og gegndi sannast sagna furðu hvað stjórn- andinn frá St. Pétursborg náði að laða fram mikla litadýrð, seið- andi epískan unað og svarrandi snerpu úr Sinfóníuhljómsveitinni í jafnvíðfeðmum ópus eftir aðeins fjórar venjubundnar æfingar. Manni varð fljótt sama þótt hljómsveitin hefði leikið stykkið alls fjórum sinnum fyrr. Öllu skipti að nú gat að heyra stór- innblásna túlkun sem veitti hlustendum kvöldsins upplifun í ótvíræðum sérflokki. Að halda manni stálnegldum á stólkanti í heilar 72 mínútur – ýmist í yndismóki eða aftaka- spennu – er a.m.k. eitthvað sem gerist ekki á hverjum degi. Innblásin Mahlerfimma Háskólabíó Sinfóníutónleikarbbbbm Schubert: Ófullgerða sinfónían. Mahler: Sinfónía nr. 5. Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Stjórnandi: Vasily Petrenko. Sunnudaginn 2. desember kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.