Morgunblaðið - 06.12.2010, Page 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2010
Harry Potter, Hermione Granger, Ron
Weasley og Voldemort eru komin aftur í
magnaðasta ævintýri allra tíma
Aðsóknar-
mesta myndin
á Íslandi í dag
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
HHHH
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSKÖLL, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
„THE BEST ROMANTIC
COMEDY OF THE YEAR!“
- GREG RUSSELL,
MOVIE SHOW PLUS
„HIN FULLKOMNA
STEFNUMÓTAMYND.“
- BONNIE LAUFER, TRIBUTE CANADA
„KATHERINE HEIGL AND JOSH
DUHAMEL SIZZLE IN A COMEDY
THAT’S SURE TO WIN YOUR HEART.“
- JEANNE WOLF, PARADE
„SPRENGHLÆGILEG.“
- ALI GRAY, IVILLAGE.COM
„HEIGL AND DUHAMEL
ARE THE BEST ON-SCREEN
COUPLE OF THE YEAR.“
- JOAN ROBBINS, ENTERTAINMENT
STUDIOS
„YOU’LL FALL IN LOVE
WITH ‘LIFE AS WE KNOW IT.’“
- MARIA SALAS, THE CW
„FUNNY, SEXY AND
SURPRISINGLY SWEET!“
- SAINT BRYAN, NBC-TV
SÝND Í KRINGLUNNI
„EXCELLENT.
A ZEITGEIST FILM.“
- RICHARD CORLISS, TIMES
„SHARP, TIMELY
AND VERY FUNNY.“
- KAREN DURBIN, ELLE
BESTA SKEMMTUNIN
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10 10 RED kl. 8 - 10:20 12
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30 VIP KONUNGSRÍKI UGLANNA kl. 5:50 ísl. tal 7
/ ÁLFABAKKA
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30 L DUE DATE kl. 8 - 10:10 10
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 9 10 GNARR kl. 5:30 L
/ EGILSHÖLL
Íþáttaröðinni Með öngulinn írassinum færa tvíburabræð-urnir Ásmundur og GunnarHelgasynir íþróttakeppnina
inn í laxveiðina. Víst eru margir
stangveiðimenn kappsamir, þótt ekki
þyki öllum veiðimönnum það til sóma
að stæra sig af aflabrögðum, en
bræðurnir flytja kappið hér á annað
svið. Undir merkjum óhaminnar
skemmtunar keppa þeir í því hvor
veiðir fleiri laxa, hvor veiðir stærri
lax, hvor velur betur í flugubox, hvor
er betri flakari. Þeir keppa líka í því
hvor kastar lengra og bjóða mis-
þekktum gestum að etja kappi við
sig. Allt verður þeim bræðrum að
keppni og keppnin er það sem best er
lukkað við
þessa fjörmiklu
þætti.
Inn á milli, en
nokkuð handa-
hófskennt og
ómarkvisst,
koma stutt inn-
slög þar sem
ætlunin er að
fræða áhorf-
andann, eins og um gárubragðið eða
muninn á því að kasta með einhendu
og tvíhendu, og svo hafa bræðurnir
„öldungaráð“ til taks, reynda veiði-
menn sem tjá sig um hitt og þetta, og
þeir leita meira að segja til spákonu.
Bræðurnir veiða í nokkrum róm-
uðustu veiðiám landsins. Í Vatns-
dalsá, á báðum laxveiðisvæðum Lax-
ár í Aðaldal og í Langá. Þeim gengur
misvel að setja í laxa, og ennþá ver að
ná þeim að landi; er það ágæt
skemmtun að fylgjast með togstreit-
unni á milli þeirra – sem er mögnuð
skemmtilega upp með því hvernig
þeir tala inn á þættina.
Keppnin, sem drifkraftur þátt-
anna, er þó ekki nóg til að gera þá að
vönduðu sjónvarpsefni. Stór hluti af
því að stunda veiðiskap er að upplifa
náttúruna og umhverfið, og fyrir
áhorfandann sem situr heima og
fylgist með fer sú upplifun fyrir ofan
garð og neðan, ekki síst sökum
ómarkvissrar kvikmyndatöku í þátt-
unum. Undirritaður þekkir vel til
allra þessara veiðisvæða en hér mis-
tekst alveg að gefa tilfinningu fyrir
sérkennum þeirra og töfrum; það lag
vantar í kvikmyndagerðina. Þá er
einnig undarlegt að sjá öðrum kvik-
myndatökumanni bregða oft fyrir í
myndrömmunum, nokkuð sem á ekki
að sjást ef notaðar eru fleiri en ein
tökuvél, og oftar en ekki er þessi
tökumaður úti í ánni og jafnvel fyrir í
hylnum (!) en engu að síður er ekkert
notast við það efni sem hann er að
taka upp.
Auðvitað er mismunandi hvernig
veiðimenn nálgast veiðiskapinn en
stundum var kappið í leikurunum
það mikið að þeir gerðu að ósekju lít-
ið úr gjöfum þessara náttúruperla
sem þeir höfðu aðgang að, eins og
þegar í ljós kom að „bara bleikjur“
tóku fluguna.
En keppnin er málið og keppnin
knýr þættina áfram; án þess að segja
nokkuð um úrslitin þá er þó að mati
undirritaðs ekki víst að sanngjarn
sigur hafi unnist; áttundi „lax“ ann-
ars bróðurins var nefnilega alls ekki
lax heldur fallegur sjóbirtingur …
En það er oft gaman af þessu.
Með öngulinn í rassinum
bbbnn
Sex stangveiðiþættir á DVD í leikstjórn
Gunnars Helgasonar.
Framleiðsla: Himnaríki ehf. og Enjoy
ehf.
Lengd alls 182 mínútur.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
MYNDDISKUR
Ærslafull keppni í laxveiði
fyrir Dean
Martin og
Frank Sinatra í
Ragga. Ekki
leiðum að líkj-
ast. Meðsöngv-
arar hans eru
heldur ekki af
verri endanum – Páll Óskar,
Diddú, Laddi, Guðrún Gunn-
arsdóttir og Björgvin Halldórsson
auk bakradda. Fjölmenn hljóm-
sveitin gegnir veigamiklu hlutverki
sem og strengjasveitin, Reykjavík
Session Orchestra. Félagarnir í
Sumargleðinni, Hermann Gunn-
arsson, Magnús Ólafsson, Ómar
Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson
og Þuríður Sigurðardóttir, eru ekki
með á plötunni en láta vel til sín
taka á mynddisknum eins og
barnabörn Ragga.
Raggi Bjarna stendur auðvitað
alveg fyrir sínu og hefur gert í ára-
tugi en þátttaka fyrrnefnds tónlist-
arfólks og fleiri gefur plötunni og
mynddisknum aukið vægi. Á tón-
leikunum sagði Raggi að ekkert af
þessu hefði orðið að veruleika án
fólksins en því má bæta við að í
mörgum tilvikum hefði fólkið ekki
heldur náð saman án Ragga. Þetta
er gullmoli, sem við eigum, sagði
Björgvin og ég er sannfærður um
að margir hafi haldið glaðir út í
nóttina eftir að hafa vangað við
lokalagið, Við bjóðum góða nótt.
Það er bara einn Raggi Bjarna og
þetta verður varla betra.
Ragnar Bjarnason hefurglatt Íslendinga meðsöng sínum, afslappaðriframkomu og einskærri
gleði frá því elstu menn muna. All-
an þennan tíma hefur geislað af
honum og útgeislunin eykst með
hverju árinu. Og hann er enn að,
nú með röppurum af yngri kyn-
slóðinni, en það er önnur saga.
Tónleikarnir í tilefni af 75 ára af-
mæli Ragga Bjarna fyrir um ári
þóttu heppnast eins og best verður
á kosið. Nú eru þeir komnir út á
mynddiski og plata með aðeins
færri lögum fylgir með eða öfugt.
Framtakið er frábært og afurðin
enn ein minningin um stórkostleg-
an listamann í um 60 ár.
Eðlilega hefur stuðpinninn kom-
ið víða við á löngum ferli, sungið
með mörgum og tónleikarnir báru
þess merki. Þeir endurspegluðu
þannig að mörgu leyti tímabilin
sem Raggi gekk í gegnum með KK
sextettinum, Svavari Gests og
Sumargleðinni.
Platan rennur ljúflega í gegnum
fóninn og á stundum finnur maður
Gleðigjafi nokk-
urra kynslóða
Raggi Bjarna– 75 ára afmælistón-
leikar
bbbbb
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Eggert
Goðsögn „Framtakið er frábært og afurðin enn ein minningin um stórkost-
legan listamann í um 60 ár,“ segir Steinþór Guðbjartsson um plötuna. Hér
er Raggi á tónleikunum með Páli Óskari.
Hrafn er hugsandi drengurá unglingsaldri. Honummislíkar hvert heimurinner að fara og hvernig full-
orðna fólkið hugsar, því virðist vera
sama um framgang mála að mati
Hrafns. Eins og algengt er með ung-
linga kraumar mikil reiði í Hrafni
sem hann hefur ekki stjórn á. Hann
veldur usla í skólanum og er rekinn
þaðan tímabundið. Afi hans og nafni
fær hann með sér í sumarbústað sinn
upp í sveit til að létta áhyggjum af
foreldrum piltsins. Þeir félagarnir ná
ágætlega saman enda afinn ekkert að
bölsótast út í skammarstrik stráksins
heldur reynir að beina honum á rétta
braut með því að ræða við hann.
Hrafni finnst afi sinn afskaplega
gamaldags, hann talar í spakmælum
og vill ekki tengja rafmagn í bústað-
inn. En hann ber mikla virðingu fyrir
honum og kann að meta sam-
verustundir þeirra.
Sumarbústaðarferðin á sér stað um
hávetur og allt er á kafi í snjó. Í gáleysi
lendir Hrafn yngri í hremmingum
þegar hann fer í langan göngutúr. Afi
hans kemur honum til bjargar en þar
með er ekki sagan öll, það þarf að
koma sér heim í snjó og éljahríð.
Tengslin á milli þeirra styrkjast við
þetta ævintýri. Afi fær Hrafn til að
skilja lífið á annan hátt, losa aðeins um
reiðina og gefa öðrum tækifæri, t.d.
foreldrum sínum sem honum finnst
ægilega þröngsýnir og skilningslausir.
Einnig sýnir hann honum fram á að
það fylgi ungdómsárunum að gera vit-
leysur og það geti oft verið þroskandi.
Fyrir utan reiðina og skammar-
strikin finnst mér Hrafn heldur
óraunhæfur unglingur. Hann er með
svo sterkar skoðanir á umhverfis-
málum, stjórnmálum og heims-
ástandinu að manni þykir nóg um. Ég
efast stórlega um að unglingar í efri
bekkjum grunnskóla hugsi eins og
Hrafn. Afinn og aðrar persónur eru
aftur á móti raunhæfar.
Tungumálið í bókinni er svolítið
gamaldags og hef ég trú á að það sé
meðvitað hjá höfundi sem vill að unga
fólkið, sem bókin er stíluð inn á,
kynnist því, sem sumir myndu kalla
góða íslensku.
Bókin er svolítið stirð í byrjun en
liðkast svo þegar á líður og eru lýs-
ingar Eysteins á hrakningum þeirra
Hrafnanna góðar og lifandi. Þetta er
saga um samskipti tveggja kynslóða
og hvernig þær ná saman með því að
sýna hvor annarri skilning og þolin-
mæði. Skapsveiflur Hrafns eru svolít-
ið eins og veðrið sem hann lendir í,
birtir til á milli élja, og þannig er bók-
in líka, hún á sína góðu spretti.
Birtir til á milli élja
Hrafnaspark bbmnn
Eftir Eystein Björnsson
Ormstunga 2010
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Eysteinn
Björnsson.