Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 1

Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 1. D E S E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  290. tölublað  98. árgangur  HARPA FÉKK STÓRA NÖFNU Á AFMÆLISDAGINN LEYNDARMÁL ASSANGE LÉR KONUNGUR FJÓS, TJARA OG SJÓR Í VISKÍSMÖKKUN SUNNUDAGSMOGGINN PRUFUTÍMINN 10HÖRPUR TVÆR 18 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Samninganefnd Íslands í Icesave- deilunni er bjartsýnni á endur- heimtur úr þrotabúi Landsbankans en skilanefnd þessa sama banka. Samninganefndin gerir ráð fyrir að eignir bankans muni aukast að verð- mæti um 20 milljarða og er verðmat- ið þeim mun hærra en sem kemur fram í mati skilanefndarinnar. Helmingurinn af þessari verðmæta- aukningu renni til greiðslu á Ice- Bjartsýnni um 20 milljarða  Skilanefnd tjáir sig ekki um túlkun annarra á væntum heimtum úr þrotabúi  Samninganefnd tók mið af áætluðum vöxtum á skuldabréfi NBI til næstu ára endurheimtist af eignum var kynnt á síðasta kröfuhafafundi. „Bankinn hefur ekkert að segja um hvernig aðrir túlka það, en þetta er kjarninn í nýjasta matinu sem gert hefur ver- ið innan bankans. Við höfum ekkert frekar um málið að segja, þeir sem kunna að túlka matið á annan hátt verða að svara fyrir það með hvaða hætti þeir lesa úr því,“ segir í svari skilanefndar Landsbankans við fyr- irspurn Morgunblaðsins. save. Til að kostnaðaráætlun samn- inganefndarinnar standist mega eignir Landsbankans ekki lækka í verði. Verða að svara fyrir sitt mat Þá reiknar samninganefndin með að 23 milljarðar sem eru óáfallnir vextir af skuldabréfi Nýja Lands- bankans til þess gamla gangi upp í Icesave en skilanefndin hefur ekki tekið þessar vaxtagreiðslur með í sínum útreikningum. Mat skilanefndarinnar á hvað Mismunandi reikningar » Samninganefndin tekur mið af óáföllnum vöxtum af skulda- bréfi sem Nýi Landsbankinn gaf út til skilanefndarinnar. » Skilanefndin reiknar sér slíka vexti ekki til tekna, heldur bókfærir vextina þegar þeir eru greiddir. MAukið virði eigna »6 Jólabær var opnaður á svokölluðum Hljómalind- arreit við Laugaveg í gær en þar munu skemmti- kraftar, skáld, tónlistarmenn, uppistandarar og jólasveinar koma fram næstu vikur eða til jóla. Svanur „ljósálfur“ eins og hann titlaði sjálfan sig var í óðaönn að setja upp jólaseríur þegar ljósmyndara bar að garði svo að rétti jólaandinn svifi örugglega yfir vötnum í bænum, borg- arbúum til yndisauka í desembermyrkrinu. Morgunblaðið/Golli Ljósadýrð í jólabænum Yfir 20% íbúa á Suðurnesjum lifa á atvinnuleysis- og örorkubótum. At- vinnuleysið hefur ekki aðeins áhrif á fjárhag íbúanna heldur þrúgandi sál- ræn áhrif um allt samfélagið. Fólk virðist ekki hafa mikla von um að ástandið lagist fljótt að því er fram kemur í umfjöllun um ástandið í Sunnudagsmogganum. „Þú missir svo mikið þegar þú missir vinnuna, bæði félagsskap og stöðu í samfélaginu,“ segir Gunnar H. Gunnarsson, verkefnisstjóri Virkjunar sem er félagsmiðstöð at- vinnuleitenda. „Það skiptir mestu máli að eitthvað fari að gerast í at- vinnumálum hérna. Það er hægt að fá endalausan frest á nauðungarupp- boðum og afborgunum en það bætir ekki hag viðkomandi fyrr en hann fer að fá reglulegar tekjur til þess að geta greitt,“ segir hann. » 20% lifa á bótum Þrúgandi andrúms- loft á Suðurnesjum Morgunblaðið/Kristinn Höfnin Lítið líf er í Keflavíkurhöfn. Íslenska ríkið tryggir Arion fyrir öllum skaða sem kann að verða vegna yfirtöku bankans á innlánum Spron á sínum tíma. Að sama skapi tryggir ríkið Íslandsbanka fyrir lausafjáráhættu í tengslum við yfir- töku bankans á útlánum Straums með því að skuldbinda sig til þess að láta bankann fá ríkiskuldabréf sem eru veðhæf hjá Seðlabank- anum. Þessar skuldbindingar er ekki að finna í ríkisreikningi síð- asta árs og gagnrýnir Ríkisend- urskoðun það í skýrslu sinni um reikninginn. Þó að lausafjárstaða Arion og Ís- landsbanka sé góð hafa báðir bank- arnir nýtt heimildir sínar vegna samninga um yfirtöku innlánanna í endurhverfum viðskiptum við Seðlabankann að undanförnu. Eins og fram kemur í skýrslu Ríkisendurskoðunar felur sam- komulag fjármálaráðuneytisins við Íslandsbanka í sér að því er skylt að taka við Straumsbréfinu og láta af hendi veðhæf ríkisskuldabréf. Hins vegar er um almenna skaðleysisyf- irlýsingu að ræða í tilfelli Arion. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að Seðlabankinn hafi neitað að taka við skuldabréfinu í þrotabú Spron í endurhverfum viðskiptum við Arion og því hafi fjármálaráðu- neytið neyðst til þess að láta bank- ann fá veðhæf ríkisskuldabréf. »24 141 milljarðs skuldbinding íslenska ríkisins utan efnahagsreiknings Morgunblaðið/Þorkell  Astmi og langvinn lungnateppa eru meðal algengustu dánarorsaka í heiminum en talið er að um fjórar milljónir manna hafi látist úr þess- um sjúkdómum 2005. Heiðursvís- indamaður Landspítalans 2010, Þórarinn Gíslason, yfirlæknir á lungnadeild Landspítalans, og teymi hans eru að fara af stað með þriðju rannsóknina á þessu sviði og nær hún sem fyrr til margra landa. Að þessu sinni fer fyrsti hluti rannsóknarinnar fram á Norð- urlöndum og nær til um 20.000 manns. Henni er ætlað að veita mik- ilvæga vitneskju um þróun ofnæmis og hvað veldur því að astmi og lang- vinn lungnateppa koma fram hjá sumum en ekki öðrum. »14 Af hverju fá bara sumir astma og lungnateppu? Stekkjastaur kemur í kvöld www.jolamjolk.is dagar til jóla 13

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.