Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 6

Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 6
FRÉTTASKÝRING Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Skilanefnd Landsbankans stendur fast á því mati sínu að endurheimtur af eignum bankans upp í 1.319 millj- arða forgangskröfur verði um 1.138 milljarðar króna, eða um 86%. Þetta er nýjasta mat skilanefndarinnar sem birt var í uppgjöri fyrir þriðja árs- fjórðung. Um er að ræða um 180 milljarða gat, en Icesave-samninga- nefndin áætlar engu að síður að kostnaður ríkisins vegna nýs samn- ings muni aðeins nema tæplega 50 milljörðum króna. Lárus Blöndal, sem á sæti í samninganefndinni, segir eðlilegar skýringar á þessu. Krafa Breta og Hollendinga sem Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) yfirtæki ef samningsdrögin yrðu samþykkt stæði í 659 milljörðum króna. Lárus segir 86% af þeirri fjár- hæð vera 584 milljarða króna. „Allir okkar útreikningar byggja á for- sendum frá skilanefnd Landsbank- ans að því undanskildu að við tökum með inn í reikninginn þá vexti af skuldabréfi NBI sem eru ekki þegar áfallnir. Út líftíma skuldabréfsins nemur samanlögð fjárhæð þeirra vaxta sem greiddust inn á kröfu TIF, 23 milljörðum króna. Þar að auki reiknum við með að tekjur Lands- bankans umfram kostnað af því 800 milljarða eignasafni sem eftir stend- ur muni skila TIF um 10 milljörðum króna til júní 2016 sem er mjög hóf- legt mat,“ segir Lárus. „Þetta leiðir til þess að miðað við endurheimtuáætlun skilanefndar Landsbankans að viðbættum áætl- uðum 33 milljarða framtíðartekjum af eignum bankans þá ættu að fást 618 milljarðar upp í kröfuna. Upp- greiðsluverð á kröfu Breta og Hol- lendinga er hins vegar 610 milljarðar kr. þannig að TIF fær samkvæmt þessum forsendum 8 milljarða kr. upp í vaxtakostnað. Vaxtakostnaður er áætlaður 76 milljarðar kr. Að frá- dregnum 20 milljörðum kr. sem til eru í TIF og þessum 8 milljörðum kr. er heildarkostnaður ríkisins áætluður 48 milljarðar kr. Þessi niðurstaða miðast við gengi krónunnar um síð- ustu mánaðarmót. Í framsetningu samninganefndarinnar er hins vegar miðað við reikniforsendur Seðla- banka Íslands um þróun á gengi krónunnar fram á mitt ár 2016 sem gefur 47 milljarða kr. niðurstöðu,“ segir Lárus. Láta reyna á forgang Morgunblaðið hefur samningana við Breta og Hollendinga undir hönd- um, en í þeim er hið svokallaða Ragn- ars Hall-ákvæði óbreytt frá fyrri samningum. Kröfur TIF og inni- stæðutryggingasjóða Breta og Hol- lendinga eru því jafnréttháar kröfum TIF. Staðan nú er því sú að gera á ís- lenska ríkið ábyrgt fyrir greiðslu á fyrstu 20.887 evrum Icesave-innlána, en TIF (eigandi kröfunnar í þrotabú Landsbankans) hefur ekki forgang á útgreiðslur upp að evrunum 20.887. Hins vegar er að finna kunnuglegt ákvæði um að TIF geti látið reyna á að öðlast forgang útgreiðslna með úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur í þá veru. Einnig er sett sem skilyrði í samningunum að EFTA gefi álit vegna málsins. Lárus Blöndal segir að það liggi fyrir að látið verði á það reyna hvort lágmarksinnistæður, það er að segja þær innistæður sem samningsdrögin fjalla um, njóti verndar umfram aðrar innistæður. Verði það niðurstaðan leiði það til þess að kostnaður ríkisins muni lækka allnokkuð. Miklar deilur voru um rétthæð krafna í þrotabú Landsbankans í að- draganda samþykktar síðastu laga um ríkisábyrgð á Icesave. Ákvæði um forgang krafna TIF fram yfir aðrar forgangskröfur var jafnan kennt við lögfræðinginn Ragnar Hall, sem benti á þetta atriði fyrstur manna. Bretar og Hollendingar fá sam- kvæmt samningunum undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Í samningunum er jafnframt að finna fyrirvara vegna fjórðu endurskoðunar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins (AGS), sem áætlað er að ljúka í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Fyrirvararnir sem um ræðir fela þó lítið efnislegt í sér. Þeir kveða á um að ef fjórða endurskoðun AGS gefur vísbendingar um að sjálf- bærni skuldastöðu Íslands sé ekki fyrir hendi lengur muni fulltrúar Breta og Hollendinga koma á fundi við Íslendinga til að ræða þá stöðu, og hvort eða hvernig sam- komulag milli þjóðanna þurfi að taka breyt- ingu vegna þess. Sjóðstreymi af eignum skilanefndar öðrum en skuldabréfi Ár: 2009 2010 2011 2012 2013 Síðar 173 173 93 138 53 201 Samtals 346 439 577 630 831 Forgangskröfur 1.319 milljarðar ISK Heildareignir 1.138 milljarðar ISK Eignir Milljarðar króna Milljarðar evra Eignir utan skuldabréfs á NBI 831 5 Skuldabréf á NBI 307 1,8 1.138 6,8 Skuldir Krafa TIF (Icesave) 674 4,1 Innistæðutryggingar Bretlands og Hollands* 476 2,9 Heildsöluinnlán 171 1 Aðrir kröfuhafar 1.891 11,4 3.212 19,4 Endurheimtuhlutfall 86,3% *það sem er umfram 20.887 evrur Morgunblaðið/Kristinn Icesave Lee Buchheit, formaður samninganefndar Íslands í Icesave- deilunni. Nýr samningur var kynntur til sögunnar í fyrradag. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Forsíðumynd Morgunblaðsins í gær- dag, þar sem þeir Lee Buchheit og Guðmundur Árnason sitja hvor sín- um megin við málverk á kyningar- fundi Icesave-samninganna, hefur vakið áhuga fjölmargra lesenda og mest er spurt að því hver hafi málað verkið. Því er til að svara að verkið mál- aði Þórarinn B. Þorláksson árið 1903. Aðeins er á reiki hvar verkið er málað en líklegt talið að það sé á ættarslóðum hans í Vatnsdal. Eig- endur Iðnó keyptu það á uppboði í Gallerí Fold árið 2005. Verkið eftir Þórarin Morgunblaðið/Kristinn Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Við höfum áhyggjur af því að Ís- lendingum muni ekki takast að greiða upp alla skuldina á samnings- tímanum,“ segir Elly Blanksma, þingmaður Kristilegra demókrata (CDA) á hollenska þinginu, um áhyggjur flokkssystkina sinna af greiðslugetu íslenska ríkisins næstu áratugi. Horft til stöðu efnahagsmála Eins og kunnugt er miðast nýi Ice- save-samningurinn við að afborgun- um ljúki í síðasta lagi árið 2046 og segir Blanksma aðspurð að horft sé á stöðuna sem nú sé uppi í íslensku efnahagslífi þeg- ar greiðslugeta íslenska ríkisins í framtíðinni er áætluð. Blanskma, sem á sæti í fjárlaga- nefnd hollenska þingsins, kveðst ekki hafa rætt við fulltrúa annarra flokka um þessa hlið málsins, en flokkur hennar, Kristilegir demó- kratar, hefur verið einn valdamesti stjórnmálaflokkur í Hollandi í ára- tugi. Hún segir engan stjórnmálaflokk á hollenska þingingu setja sig gegn nýja samkomulaginu. Hafa áhyggjur af greiðslugetunni  Hollenskur þingmaður um Icesave Elly Blanksma Þrátt fyrir að Icesave-samningar séu nú í höfn og bíði samþykkis þings og staðfestingar forseta Ís- lands, eru ýmis önnur mál sem kunna að hafa áhrif á hugsanlegan og endanlegan kostnað ríkissjóðs Íslands. Ásamt hraða útgreiðslna úr búi Landsbankans og uppsöfnun vaxtakostnaðar, eru nokkur álita- efni sem bíða úrlausnar dómstóla sem haft geta veruleg áhrif á end- anlega niðurstöðu Icesave-málsins. Ef dómstólar á Íslandi dæma í þá veru, eins og látið verður á reyna, að TIF hafi fullan forgang á út- greiðslur úr þrotabúi Landsbank- ans, mun ekki verða mikið vanda- mál að greiða Hollendingum 1,3 milljarða evra og Bretum 2,3 milljarða punda. Enda eignir Lands- bankans um fimm milljarðar evra. Eins og staðan er núna fær TIF um 52% sjóðstreymis af eignum Landsbankans. Verði öll upphæð innlána dæmd í forgang mun TIF fá minna úr Landsbank- anum, og almennir kröfuhafar munu að sama skapi ekki fá neitt fyrir sinn snúð. Um þessar mundir er síðan deilt um hvort svokölluð heildsöluinnlán teljist forgangskröfur. Slitastjórn Landsbankans hefur samþykkt heildsöluinnlán sem forgangs- kröfur, en slitastjórn Glitnis hefur hins vegar hafnað slíkum kröfum en samþykkt sem almennar kröfur. Báðar slitastjórnir standa nú í málarekstri vegna heildsöluinnlán- anna, en úrskurði dómstólar að þau teljist almennar kröfur munu for- gangskröfur í þrotabú Landsbank- ans lækka verulega, eða um 170- 180 milljarða króna. Fari síðan svo að dómstólar á Ís- landi dæmi neyðarlögin ólögmæt, mun forgangur innistæðna falla úr gildi. Kostnaður vegna slíks yrði margfalt meiri en nú er rætt um, og myndi hafa áhrif á allt fjármálakerfi Íslands. thg@mbl.is Áhætta vegna dómsmála ÁLITAEFNI FYRIR DÓMSTÓLUM  TIF hefur ekki forgang á útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans  Í nýju samkomulagi er þó að finna skilyrði sem gera forgang á greiðslur mögulegan  Látið verður á það reyna fyrir dómstólum Aukið virði eigna Landsbankans skili Íslendingum 10 milljörðum Með því að kaupa FRIÐARLJÓSIÐ styrkir þú hjálparstarf og um leið verndaðan vinnustað. P IP A R \T B W A - 10 29 75 LÁTUM FRIÐARLJÓSIÐ LÝSA UPP AÐVENTUNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.