Morgunblaðið - 11.12.2010, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vanda sig Kúnstin er að
lykta vel með opinn munn
áður en dreypt er á.
PRUFUTÍMINN
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Jú, það var heilmikið fjósþarna, tjara eins og á gam-alli bryggju, reykur ogjafnvel myrkur. Hvar þá?
Nú í viskíinu sem ég smakkaði hjá
honum Elvari Ástráðssyni, en hann
leyfði mér, leikmanninum, að koma
til sín og prófa viskísmökkun og
fræðast um viskí. Ég mætti til
smökkunar með eins opnum huga
og mér var unnt, en í ljósi þess að
mér hefur aldrei þótt viskí gott, þá
var það heilmikil áskorun. Elvar
var fljótur að draga úr mér allan
ótta, sagði að sennilega þætti mér
viskí vont af því ég hefði aldrei
fengið að smakka gott maltviskí.
„Við sem erum áhugafólk um
viskí drekkum aldrei annað en
maltviskí og ég ætla að leyfa þér
að smakka sjö ólíkar tegundir svo
þú áttir þig á breiddinni.“
Úff, þetta hljómaði eins og ég
væri að fara fyrir aftökusveit. Gæti
ég komið þessu niður án þess að
gera mig að fíflí? Sem betur fer
þurfti ég ekki að gangast undir
þessa þolraun strax, því Elvar
byrjaði auðvitað á því að fræða
mig um hinn gullna drykk, áður en
til smökkunar kom.
Handgert á gamla mátann
„Einmöltungur eða „single
malt“ viskí, er hugtak sem Skotar
ráða yfir og gerir viskíið að því
sem það er. Single malt stendur
fyrir viskí sem er framleitt úr
einni malttegund. Og af því Skot-
arnir ráða þessu þá er það viskí
sem er framleitt úr byggmalti ein-
göngu. En það er í raun ósann-
gjarnt, því aðrar þjóðir framleiða
mjög gott viskí úr öðru en byggi.
Ameríkanar framleiða til dæmis
mikið af góðum einmöltungi úr
rúgi, einnig þekkist að nota hveiti.
Það er gríðarleg kúnst að eima
viskí þannig að það verði gott og
sérstakt. Eimarar Skot-
anna eru litlir og flottir,
úr kopar, og því er af-
skaplega sjónræn upp-
lifun að heimsækja
viskíverksmiðjur,“ segir
Elvar sem hefur
heimsótt nokkrar
slíkar í Skot-
landi. „Þar er
allt handgert og
gert á gamla
mátann enda
skilar það mikl-
um gæðum.
Orðstírinn bygg-
ist á því að þeir
geri þetta eins
og það var gert í
lok nítjándu ald-
ar. Í minnstu
verksmiðjunum
eru þrír til fjórir
karlar sem sjá
um alla þessa
handavinnu.
Masterblender er
sá sem metur
gæðin, ákveður hvenær viskíið er
orðið passlega gamalt, og blandar
saman ólíkum tunnum svo þetta
12 ára sé eins og það var í fyrra.
Hann smakkar viskíið nær aldrei,
heldur gerir þetta einvörðungu
með nefinu.“
Eldra er ekki sjálf-
krafa betra
En hvað er svona
frábært við viskí?
„Það er þessi skyn-
upplifun, að finna hvernig
allt rennur saman. Og svo
er það fjölbreytileikinn.
Margir finna sér eitt viskí
og vilja ekkert annað, en
það er synd að missa af
fjölbreytninni,“ segir Elv-
ar en honum finnst gam-
an að smakka nýtt viskí,
meira að segja þó hann
viti að það sé vont. Hann
skráir það niður, enda
heldur hann skipulagða
smakkskrá sem á eru
nokkur hundruð ólíkar
viskítegundir. „Sumir segja að
vont maltviskí sé ekki til, en ég hef
því miður einu sinni eða tvisvar
smakkað vont viskí. Viskí er til
dæmis alls ekki sjálfkrafa betra
eftir því sem það er eldra, af því
að það fúlnar. Elsta viskí sem ég
hef heyrt um er 60 ára en sjálfur
hef ég smakkað 40 ára viskí og það
voru gríðarleg vonbrigði, það var
alls ekki gott. Aftur á móti smakk-
aði ég eitt sinn feikilega gott 30
ára viskí. Mín tilfinning er að viskí
ætti almennt ekki að verða eldra
en 20 ára. Og dýr viskí eru alls
ekki alltaf ávísun á gæði. Það
hækkar í verði með aldrinum. Ef
viskí er sjaldgæft hækkar það í
verði mjög fljótt, gæði hjálpa
reyndar uppá.“
Fjölmargar bækur hafa verið
gefnar út um viskí en Biblían í
þeim fræðum er uppflettiritið The
Whisky Distilleries of the United
Kingdom, útgefin 1887, en höfund-
ur hennar Alfred Barnard heim-
sótti allar eimingarstöðvar á Bret-
landseyjum 1886 en þær voru þá
liðlega 160.
Taka nógu lítinn sopa
Þá var komið að smökkun.
Nokkrar grunnreglur þarf að hafa
í heiðri, til dæmis að smakka veikt
á undan sterku og bragðminna á
undan bragðmiklu. Glasið þarf líka
að vera þannig í laginu að sem
mest lykt berist upp úr því enda er
sú athöfn að lykta af viskíinu ekki
síður mikilvæg en að smakka. Þeg-
ar lyktað er af veigunum skal hafa
munninn opinn. Og lykta vel og
lengi. Taka síðan nógu lítinn sopa
og velta honum aðeins í munninum
áður en kyngt er.
Fyrst fékk ég einfalt og létt
12 ára hálandaviskí kennt við Dal-
Þetta er allt í nefinu
Til að viskí geti talist „alvöru“ verður það að vera einmöltungur eða „single malt“, en þá er það framleitt úr
byggmalti einvörðungu. Blaðamaður prófaði viskísmökkun eftir kúnstarinnar reglum.
Það kannast orðið flest jólabörn við
hann Júlla á Dalvík sem heldur úti
Jólavef Júlla á slóðinni Julli.is/
jolavefur.htm. Vefurinn er til
skemmtunar og fróðleiks og á honum
má finna nánast allt sem tengist jól-
unum.
Þarna má lesa allskonar fróðleik
um jólin sem Júlli hefur sankað að
sér, t.d. að: „Orðið jól kemur þegar
fyrir í heiðnum sið og var þá notað
um miðsvetrarblót, sólhvarfahátíð.
Síðar þegar kristni barst til Norður-
landa og fæðingar Krists var minnst
á svipuðum tíma færðist heitið á
heiðnu hátíðinni yfir á þá kristnu.“
Þarna má líka lesa um Grýlu og
jólasveinana, Jólaguðspjallið, jóla-
kort, jólasögur og fá jólalegar upp-
skriftir svo eitthvað sé nefnt.
Einnig er jóladagatal sem er stór-
skemmtilegt. Þegar smellt er á dag-
ana kemur upp fallegur fróðleikur
sem nefnist Bros dagsins, jólalegar
myndir og oft er fróðleikur um dag-
inn sem valinn er eða jólasaga sem
Júlli hefur fengið senda. Það er ekki
hægt að kíkja fram í tímann á þessu
jóladagatali, þá fær maður smá
skammir. Jólavefurinn er frábært
framtak hjá honum Júlla.
Vefsíðan www.julli.is/
jolavefur.htm
Morgunblaðið/Kristinn
Jólakort Söguna má lesa á síðunni.
Má lesa allt um
jólin hjá Júlla
„Ég vakna vanalega um sexleytið
og fer í leikfimi en núna ætla ég
að leyfa mér að sofa til níu og fara
síðan í sundlaugina hér á Akranesi.
Eftir heita pottinn þarf ég að
kanna vínföngin fyrir opnunina á
sýningunni minni sem er klukkan
fjögur. Sýningin er komin upp, svo
fram að opnun fer ég að vinna en
ég og Finnur Þórðarson erum sam-
an með gallerí á Akranesi sem
verður opið á morgun, svo ég verð
þar í millitíðinni.
Klukkan fjögur opnar svo sýn-
ingin Fiskur og fínheit í Safnahús-
inu á Görðum. Sýningin er til heið-
urs fiskvinnslufólki í landinu en á
henni sýni ég ljósmyndir sem Guð-
mundur Bjarki tók af starfs-
mönnum HB Granda á Akranesi við
dagleg störf og svo af sama fólk-
inu uppstilltu og prúðbúnu. Síðan
valdi ég tíu manns úr þessum hópi
og sérsmíðaði
skart á það, inn-
blásið af mynd-
unum. Er það allt
úr silfri og fisk-
roði. Verður það
til sýnis í köss-
um fyrir neðan
myndirnar.
Ég vona að ég
fái sem flesta á
opnunina en hún er til klukkan sjö.
Þá fer ég heim í rólegheitin og fæ
mér snarl. Svo á ég von á gestum
og eyði kvöldinu með þeim, bónd-
anum og fjölskyldunni. Ég fer af og
til út á laugardagskvöldum enda
voðalega mikið alltaf um að vera
hérna, tónleikar og aðrir menning-
arviðburðir, og ég reyni að sækja
sem flest.“
Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Fiskur og fínheit Hálsmen eftir Dýrfinnu úr fiskroði og silfri.
Heiðrar fiskvinnslufólk
Dýrfinna
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
Árangur
2.990kr.
5.990kr.
Verð frá
Buxur
Verð frá
Bolir
5.990kr.
8.990kr.
Verð frá
Peysur
Verð frá
Toppar
JÓLAGJÖFIN