Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 14

Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 14
FRÉTTASKÝRING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Astmi og langvinn lungnateppa eru meðal algengustu dánarorsaka í heiminum en talið er að um fjórar milljónir manna hafi látist úr þessum sjúkdómum 2005. Heiðursvísinda- maður Landspítalans 2010 Þórarinn Gíslason, yfirlæknir á lungnadeild Landspítalans, og teymi hans eru að fara af með þriðju rannsóknina á þessu sviði og nær hún sem fyrr til margra landa. Kortleggja mengun Langtímarannsókn á ofnæmi, astma og lungnasjúkdómum fór fyrst fram árið 1990 og voru þátttakendur á aldrinum 20-24 ára. Rannsóknin var gerð í mörgum löndum Evrópu, Portland í Bandaríkjunum og Melbo- urne í Ástralíu eða alls á 36 stöðum í 16 löndum. Þá var talið að ofnæmi og astmi væri vaxandi vandamál í hin- um vestræna heimi en fyrirliggjandi niðurstöður rannsókna voru mis- munandi enda ósambærilegir hópar skoðaðir og mismunandi rannsókn- araðferðum beitt. Þá höfðu aðeins þverskurðarrannsóknir verið gerðar, en Þórarinn bendir á að mikilvægi þess að geta dregið ályktanir af gildi ýmissa áhættuþátta felist í því að geta fylgt hópum eftir. „Til þess að við vitum meira um astma, ofnæmi og lungnasjúkdóma er gildi fram- virkra rannsókna miklu meira heldur en þverskurðarannsókna,“ segir hann. Til áréttingar segir hann ekki enn vitað hvort það skipti máli í sam- bandi við öndunargetuna á efri árum hvort viðkomandi hafi haft ofnæmi á unglingsárum eða ekki. „Veldur of- næmisastmi skaða í lungum sem síð- an veldur langvinnri lungnateppu?“ spyr hann. Rannsóknin var endurtekin árið 2000 og nú er verið að fara af stað með þriðju rannsóknina. Henni er ætlað að veita mikilvæga vitneskju um þróun ofnæmis og hvað veldur því að astmi og langvinn lungnateppa koma fram hjá sumum einstakling- um en ekki öðrum. Leyfi frá vísinda- siðanefnd og persónuvernd liggja fyrir en á allra næstu dögum verður sendur út spurningalisti til allra þeirra sem tóku þátt í rannsókninni 1990, tæplega 3.000 manns. Ýtarlega verður spurt um áhættuþætti astma, ofnæmis og langvinnrar lungnateppu, leitað verður upplýsinga um svefn, líkamshreyfingu, þætti sem snúa að tíðahvörfum, astmaeinkenni, lífsgæði og fæðuvenjur. Fyrsti hluti rannsóknarinnar fer fram á Norðurlöndunum og nær til um 20.000 manns. Þórarinn rifjar upp að þegar rannsóknin var gerð 2000 voru jafnframt gerðar mæl- ingar á mengun við heimili á annað hundrað þátttakenda. Niðurstaðan hafi verið sú að heildarmengun á höf- uðborgarsvæðinu hafi verið með því minnsta sem þekktist í Evrópu, en þeir sem bjuggu nálægt stofnbraut hafi búið við svipaða mengun og væri í stórborgum erlendis. Umhverfis- mengun og það að vera nálægt mengandi bifreiðaumferð tengdist greinilega öndunarfærasjúkdómum. Þessu verði fylgt eftir í núverandi rannsókn í samstarfi við alþjóða- samstarfið Escape um loftmengun og heilsufar og hugmyndin sé að hægt verði að kortleggja mengun á hverju heimilisfangi á höfuðborgar- svæðinu. Umhverfisþættir og loftmengun Að sögn Þórarins er víða erlendis mikill áhugi á að skoða umhverf- isþætti og loftmengun, umhverfi á heimilum og mengun á vinnustöðum. Niðurstöður fyrri rannsókna í Evr- ópu bendi til þess að um 15% þeirra sem fá astma á fullorðinsárum fái hann vegna aðstæðna á vinnustað. Þessi þáttur verði skoðaður sér- staklega með áherslu á þá sem vinna með hreinsiefni. Þórarinn segir að vegna fyrri þátt- töku hafi hópurinn aðgang að kostn- aðarsömu vísindasamstarfi og auð- veldi það alla framkvæmd enda væri rannsóknin annars óframkvæmanleg vegna kostnaðar. Stuðningur þátt- takenda sé líka ómetanlegur og ekki síst skipti máli að fá svör frá þeim sem séu einkennalausir til þess að geta borið þá sama sem eru sjúkir að einhverju leyti. „Tilgangurinn með svona rannsókn er að skoða samspil fleiri hugsanlegra áhættuþátta sam- tímis og nýta síðan niðurstöðurnar meðal annars til forvarna út frá al- mennum lýðheilsusjónarmiðum. Engin rannsókn er eins þýðing- armikil fyrir okkur og þessi Evrópu- könnun,“ segir Þórarinn. Mikilvægasta rannsóknin  Evrópurannsóknin Lungu og heilsa er langtímarannsókn á ofnæmi, astma og lungnasjúkdómum  Kannanir sýna að um 15% þeirra sem fá astma á fullorðinsárum fá hann vegna aðstæðna á vinnustað Morgunblaðið/Eggert Teymið Frá vinstri: Gunnar Guðmundsson, Michael Clausen, Hildur Ragnarsdóttir verkefnisstjóri, Davíð Gíslason, Bryndís Benediktsdóttir, Erna Sif Arnardóttir og Þórarinn Gíslason. Auk þess er Lovísa Guðmundsdóttir í hópnum en hún hefur séð um framkvæmd rannsóknarinnar frá 1990. Heimsathygli » Rannsóknirnar 1990 og 2000 hafa vakið mikla athygli víða um heim. Á þriðja hundrað vísindagreinar um Evrópurann- sóknina 1990 og 2000 hafa birst í virtum tímaritum og þar af snerta um 150 þeirra ís- lensku niðurstöðurnar. » Fyrstu hvatningarstyrkirnir úr Vísindasjóði Landspítalans voru veittir í liðinni viku og fékk verkefni Þórarins Gíslasonar og teymis hans einn af þremur þriggja milljóna kr. styrkjum, en stefnt er að því að ljúka verk- efninu 2013. » Þórarinn, Davíð Gíslason og Lovísa Guðmundsdóttir hafa unnið við rannsóknina frá 1990. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Þátttakendur í rannsókninni eru spurðir um einkenni kæfisvefns, dagsyfju, svefnlengd og fleira varðandi svefn og heilsu. „Góður svefn er lykilatriði fyrir and- lega og líkamlega heilsu,“ segir Erna Sif Arnardóttir líffræðingur, sem er með svefninn á sinni könnu í rannsókninni. Erna Sif segir að flestir þurfi 7-8 tíma svefn á nóttu, en sumir sofi minna og aðrir meira með tilheyrandi af- leiðingum. Of lítill svefn auki líkur á því að fólk þyng- ist, skerðing verði á sykurþoli sem er byrjunarstig á sykursýki 2 og líkur á háþrýstingi aukist. Of mikill svefn auki líkur á þunglyndi. Erna Sif bendir á að bæði astma og langvinnri lungnateppu fylgi oft truflun á svefni sem aftur leiði til aukinnar dagsyfju og skerðingar lífsgæða. Þetta samband þurfi að skoða betur. Nær 3.000 Íslendingar nota að staðaldri svefnöndunartæki vegna kæfisvefns, svefnsjúkdóms sem lýsir sér með tíðum öndunarstoppum í svefni. Þeir sem eru með kæfisvefn eru yfirleitt mjög syfjaðir og ómeðhöndl- uðum kæfisvefni fylgir aukin hætta á ýmsum fylgikvillum eins og hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki. Erna Sif segir áhugavert að sjá hvernig einkennin hafa breyst frá 2000. Þyngdaraukning sé einn stærsti áhættu- þáttur kæfisvefns, en dreifing fitunnar skipti líklega einnig miklu máli og því séu þátttakendur beðnir að mæla mittismál. „Íslendingar eru að þyngjast og kæfisvefn eykst,“ segir hún. Kæfisvefninn er algengari hjá körlum en konum vegna þess að konur eru með öðruvísi fitudreifingu en karlar auk þess sem talið er að hormón kvenna séu verndandi. Vonast er til að rannsóknin núna muni varpa ljósi á það hverjum sé hættast við astma og langvinnri lungnateppu. Góður svefn lykilatriði Erna Sif Arnardóttir Sumum þátttakendum í rannsókninni verður boðið að láta börn sín einnig taka þátt í henni og segir Michael Clausen, sérfræðingur í barna- og ofnæmislækningum, að þátttaka þeirra sé mjög mikilvæg með samanburð þriggja ættliða í huga, ekki síst til að varpa ljósi á of- næmissjúkdóma sem liggja í fjölskyldum. Algengi astma hjá 10-11 ára börnum á Íslandi sé um 9%, ofnæmiskvef sé um 17%, allt að fjórða hvert barn sé með exem og fjórða hvert barn með næmi fyrir einhverjum ofnæmisvaka. Michael segir að algengi hjá börnum sé mjög svipað því sem gerist í nágrannalöndunum. Það sé ekki hægt að túlka öðruvísi en að ofnæmi muni aukast hjá fullorðnum. Erfðir og umhverfisþættir leiki stærsta hlutverkið. Hreinlæti hafi aukist mjög mikið, en börn þurfi að komast í tæri við sýkla til þess að örva ónæm- iskerfið í rétta átt og mynda þol gagnvart umhverfisþáttum. Mataræði hafi breyst – fiskneysla og lýsisneysla hafi minnkað mikið, en talið sé að fitusýr- urnar hafi góð áhrif á ónæmiskerfið og dragi úr astma. Fæðuofnæmi getur verið lífshættulegt. Michael bendir á að því fylgi ákveðinn kvíði og það geti haft veruleg áhrif á lífsgæði barna og fjöl- skyldna þeirra. Rannsóknin auki skilning á ofnæmissjúkdómum og leiði vonandi til þess að hægt verði að ráðleggja foreldrum með markvissari hætti en hingað til og jafnvel koma í veg fyrir sjúkdómana. Michael Clausen Auka lífsgæði fólks með ofnæmi Bryndís Benediktsdóttir, sérfræðingur í heimilis- og svefnlækningum, segir að komið hafi í ljós að bæði holdafar og framleiðsla kvenhormóna hafi áhrif á lungnastarfsemi. Konur sem byrja snemma á tíðum eða hafa óreglulegar blæðingar séu í meiri hættu á að fá astma en aðrar konur. Lungnastarfsemi versni eftir tíða- hvörf og þeim sem séu í uppbótarmeðferð með kven- hormónum sé líka hættara við astmaeinkennum, einkum ef þær eru grannar. Ofþyngd tengist þó greinilega auk- inni hættu á skertri lungnastarfsemi. Konur sem eigi ekki börn hætti fyrr á tíðum en þær sem eigi mörg börn og séu því í meiri hættu. Þá sé þekkt að svefntruflanir tengist bæði hormónaframleiðslu og holdafari. Að sögn Bryndísar er margt óljóst í þessum málum og mikilvægt að kanna kynjamun í sjúkdóm- unum. Þá sé ljóst að konur noti snyrtivörur meira en karlar, ekki síst í úða- formi, sem hugsanlega geti stuðlað að breytingum á lungnastarfsemi og of- næmi. Því verði sendur út annar spurningalisti til kvenna í rannsókninni í vor þar sem einblínt verður á þennan þátt. Sambærileg könnun verði gerð alls staðar á Norðurlöndum, en svona könnun hafi ekki verið gerð hér áður. Bryndís Benediktsdóttir Lungnastarfsemi og kvenhormónar Rannsóknir benda til þess að síðan 1990 hafi orðið tvö- til þreföldun á astma og langvinnum bólgum í nefi vegna viðkvæmni í öndunarfærum. Davíð Gíslason, yfirlæknir í of- næmissjúkdómum, segir að í öllum tilvikum hafi ofnæmi vegna loftbor- inna ofnæmisvalda (frjókorna, dýra, rykmaura og myglu) verið minnst á Íslandi í Evrópurannsókninni 1990, 21,5%, en það hafi verið fyrsta ná- kvæma faraldsfræðilega rannsóknin af þessu tagi hérlendis. Þar sem ríkir fjárhagsleg vel- megun hefur orð- ið gríðarleg aukn- ing á ofnæmi frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Davíð segir lík- legt að þróunin hafi byrjað seinna hérlendis en munurinn virðist hafa þurrkast út. Saman- burður á mótefnum fyrir fæðuteg- undum í rannsókninni 2000 hafi leitt í ljós að Íslendingar hafi verið með minna af fæðuefnamótefnum en aðr- ir hópar. Í rannsókn 2007 hafi komið í ljós að þrisvar sinnum fleiri höfðu fengið astmakast en 1990, þrisvar sinnum fleiri notuðu astmalyf og tvisvar sinnum fleiri voru með lang- vinnar bólgur í nefi. „Kostnaður hef- ur aukist vegna þessa og ekki síst vegna vinnutaps og sjúkrahúss- dvalar,“ segir Davíð. Ofnæmi og kostnaður Davíð Gíslason Langvinn lungnateppa er samnefni fyrir lungnaþembu og langvinna berkjubólgu og sést yfirleitt ekki fyrr en fólk er komið yfir fertugt. Gunnar Guðmundsson, að- stoðaryfirlæknir á lungnadeild, segir að venjulega hafi sjúkdómurinn verið tengdur reykingafólki en á liðnum árum hafi hann líka komið í ljós hjá öðrum. Það bendi til þess að erfðaþættir og umhverfisþættir hafi einnig áhrif. Þessir þættir verði skoðaðir og ýmislegt annað, eins og til dæmis hvort bakflæði frá vélinda skiptir máli. Gunnar segir að þrátt fyrir að dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma og annarra sjúkdóma sem tengjast reykingum hafi minnkað mikið sé hún á mikilli uppleið í tengslum við langvinna lungnateppu, en 9% Íslendinga 40 ára og eldri séu með sjúkdóminn. Tíðni sjúkdómsins sé svipuð hér og í nágrannalöndunum og meðal kvenna tengist hann sérstaklega reykingum, en kannanir hafi sýnt að íslenskar konur reyki svipað eða meira en konur í öðrum Evrópu- löndum. Gunnar áréttar að rannsóknin beinist ekki síst að öðrum þáttum en reykingum sem hafa áhrif á langvinna lungnateppu og rannsóknin geti því bætt úr skilningi á þessum ört vaxandi sjúkdómi. Langvinn lungnateppa vaxandi vandi Gunnar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.