Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Fjölskylduhjálp Íslands opnaði sína
þriðju starfsstöð á Hafnargötu 29 í
Reykjanesbæ á miðvikudag undir
stjórn Önnu Jónsdóttur verkefna-
stjóra. Tuttugu sjálfboðaliðar hafa
tekið til starfa. Þörfin á aðstoð kom
ekki á óvart þar sem atvinnuástand
hefur verið bágborið sl. ár, segir í
tilkynningu. 162 fjölskyldur fengu
aðstoð. „Teljum við þetta vera topp-
inn á ísjakanum sem hafi komið í
ljós í gær og áætlum við að mun
fleiri sæki sér aðstoð á næstu vik-
um,“ segir í tilkynningu. „Við mun-
um endurskoða starfið í Reykja-
nesbæ eftir sex mánuði, en gerum
samt ráð fyrir að starfa áfram líkt
og í Reykjavík.“
Gjafmildi Fulltrúar Fjölskylduhjálpar taka
við gjöfum í Reykjanesbæ.
Tuttugu sjálfboða-
liðar bætast við
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Sovét Ísland óskalandið. Að-
dragandi byltingar sem aldrei varð
1921-1946 eftir Þór Whitehead sagn-
fræðing kom út í gær hjá Bókafélag-
inu Uglu. „Kommúnistaflokkur Ís-
lands var beinlínis stofnaður um það
markmið að gera byltingu í landinu,“
segir Þór við Morgunblaðið um efni
bókarinnar. „Flokkurinn gerðist
strax deild í heimsbyltingarsam-
bandinu Komintern samkvæmt
firnaströngum skilyrðum um vinnu-
brögð og skipulag. Hann hét því
meðal annars hátíðlega að lúta í einu
og öllu stjórn Moskvu. Bókin lýsir
því hvernig kommúnistar und-
irbjuggu valdatöku sína á Íslandi
undir þessari einræðisstjórn og hvik-
uðu aldrei frá markmiði sínu. Þeir
breyttu hins vegar um bar-
áttuaðferðir 1930-1946 eftir því sem
yfirstjórnin í Moskvu sagði þeim fyr-
ir verkum og aðstæður breyttust.“
Í stað byltingar í einni svipan
1930-1934 stefndu kommúnistar t.d.
að byltingu í áföngum á tímum „sam-
fylkingar“ 1935-1939 og „þjóðfylk-
ingar“ 1941-1946. „Kommúnistar
trúðu því 1930 að kapítalisminn væri
að hrynja og heimsbylting yfirvof-
andi,“ segir Þór. „Komintern fylgdi á
þessum árum ofsafenginni bylting-
arstefnu, hvatti til ofbeldis bæði hér
og annars staðar og fyrirskipaði öll-
um deildum sínum að flýta fyrir bylt-
ingunni með hvers kyns mótmælaað-
gerðum, verkföllum og upphlaupum.
Skipulagt ofbeldi og slys
Í bókinni leiði ég rök að því, að
ýmis hörðustu átök kreppuáranna á
Íslandi hafi verið bein afleiðing af
þessari ofsavinstrilínu Kominterns.
Menn hafa lýst ofbeldinu sem ein-
hvers konar sjálfkrafa viðbrögðum
verkamanna við kreppuástandi. Þeg-
ar kafað er niður í heimildir frá Kom-
intern og Kommúnistaflokknum
kemur allt annað í ljós. Ofbeldið var
iðulega skipulagt og miðaði að því að
flýta fyrir byltingunni.“
Þór tekur sem dæmi Gúttó-
slaginn 1932. Þar hafi alls
ekki verið um einstakan at-
burð að ræða, því Gúttóslag-
irnir hafi í raun verið fjórir
frá 1930.
Þór segir að um sextíu
lögregluþjónar og hjálpar-
menn þeirra hafi meiðst í
átökum við kommúnista í
Reykjavík og á Norðurlandi. Tvisvar
hafi kommúnistum tekist að yfirbuga
alla lögregluna í Reykjavík, í
„drengsmálinu“ 1921 og í „Gúttó-
slagnum mikla“ 1932. Þá hafi þrír
fjórðu hlutar lögregluþjónanna í
Reykjavík legið eftir í sárum sínum,
sumir stórslasaðir af bardagaliði,
sem kommúnistar beittu þá í fyrsta
sinn. Þrír lögregluþjónar hafi orðið
að hætta störfum á þessum erfiðu
tímum vegna örorku, en ýmsir fleiri
aldrei talið sig ná aftur fullri heilsu
eftir barsmíðar og grjótkast. „Þetta
kom ekki aðeins hart niður á mönn-
unum sjálfum, heldur einnig eigin-
konum þeirra og börnum, eins og
lýst er í bókinni í fyrsta sinn,“ segir
Þór. Hann nefnir einnig dæmi um að
ráðist hafi verið á allmarga þing-
menn og bæjarfulltrúa og þeir áreitt-
ir eða beittir ofbeldi.
„Að lokum þurfti að kveðja til á
þriðja hundrað manns í varalið fyrir
lögregluna í Reykjavík og á Akureyri
til þess að bæjarstjórnirnar þar gætu
starfað með eðlilegum hætti. Þessi
saga hefur að mestu leyti verið
gleymd og grafin, en það er helber
misskilningur að stjórnmálabarátta á
Íslandi hafi alltaf verið friðsöm.“
Bardagalið
Annað dæmi um byltingarundir-
búning kommúnista, sem Þór lýsir,
er bardagalið þeirra, Varnarlið
verkalýðsins. „Yfirlýst markmið ís-
lenska Varnarliðsins var að leiða
verkalýðinn til byltingar,“ segir
hann.
Þór greinir einnig frá því, að
harður kjarni flokksmanna í Reykja-
vík hafi safnað að sér skotvopnum að
hvatningu dansks kommúnista. Að-
alþjálfari Varnarliðsins var hins veg-
ar Hallgrímur Baldi Hallgrímsson,
útskrifaður úr tveimur byltingar-
skólum í Moskvu. Hann hélt síðar til
Spánar á vegum Kommúnistaflokks-
ins ásamt tveimur félögum sínum og
fullnumaði sig í hernaði í borgara-
stríðinu 1937-1938.
Strangleynilegt nám
Þór segir einnig svo frá, að
Kommúnistaflokkurinn hafi sent á
þriðja tug valinna flokksmanna,
karla og kvenna, í strangleynilegt
nám í byltingarskólum í Sovétríkj-
unum. Þetta fólk er talið upp í við-
auka í bókinni með dulnefnum, sem
það var látið ganga undir í Moskvu.
„Ég birti heimildir um það frá
kollegum á Norðurlöndum að skot-
æfingar, meðferð vopna, herstjórn-
arlist og neðanjarðarstarfsemi hafi
verið fastir liðir í byltingarnáminu.
Norrænu nemarnir voru að læra
hagnýt efni eins og hvernig ætti að
heyja götubardaga og standa að
vopnaðri uppreisn.“
Þór segir að norrænir sagn-
fræðingar, sem hafi þaulkannað gögn
í Moskvu, hafi ekki fundið neinar vís-
bendingar um að íslenskir byltingar-
nemar hafi verið undanþegnir þess-
ari herþjálfun.
Njósnir og neðanjarðarstarf
Þór segir að athyglisvert hafi
verið að uppgötva hvernig íslenskir
kommúnistar tengdust á ýmsan hátt
alþjóðlegu neðanjarðarstarfi. Sov-
éskir leyniþjónustumenn, sem hing-
að komu á stríðsárunum, hafi gengið
hér að tengilið – erindreka – undir
dulnefni. Hann telur allar líkur á að
undir því nafni hafi leynst Eggert H.
Þorbjarnarson, sem átti eftir að
verða framkvæmdastjóri Sósíalista-
flokksins, arftaka Kommúnista-
flokksins, í fjölda ára.
Undirbúningur byltingar
með línu frá Moskvu
Bók eftir Þór Whitehead sagnfræðing varpar nýju ljósi á sögu stjórnmálanna
Morgunblaðið/Eggert
Þór ,,Í bókinni leiði ég rök að þvi, að ýmis hörðustu átök kreppuáranna á Ís-
landi hafi verið bein afleiðing af þessari ofsavinstrilínu Kominterns.“
Handsmíðaðir og sérskreyttir
veiðihnífar verða sýndir í Hand-
verkshúsinu, Bolholti 4 í Reykjavík,
laugardaginn 11. desember, milli
klukkan 12.00 og 16.00.
Jóhann Vilhjálmsson byssu- og
hnífasmiður (www.icelandickni-
ves.com) sýnir þar hnífa sem hann
hefur smíðað frá grunni. Skeptin
eru m.a. úr íslenskum hreindýrs-
hornum. Stefán Erlingsson
(www.123.is/stefan) hefur skreytt
marga hnífanna.
Jóhann er í hópi handverks-
manna sem valdir voru til þátttöku
í Vest-Norden Arts & Crafts og er
hann þar ásamt handverksmönnum
frá Íslandi, Færeyjum og Græn-
landi.
Listasmíð Handsmíðaður hnífur
Handsmíðaðir hnífar
STUTT
Flugfélagið Ernir ábyrgist flug til
Sauðárkróks út næsta ár og hefur
samið við Vegagerðina um áfram-
haldandi áætlunarflug á Gjögur og
Bíldudal.
Ákveðið hefur verið að fjárhags-
legum stuðningi ríkisins við áætl-
unarflug til Sauðárkróks skyldi
ljúka nú um áramót vegna breyttra
forsendna í kölfar opnunar Héðins-
fjarðarganga.
Áfram flogið vestur
Stefán Pjetursson var einn af
þremur helstu leiðtogum Komm-
únistaflokksins ásamt Brynjólfi
Bjarnasyni og Einari Olgeirssyni.
Hann neitaði að beygja sig undir
ofsavinstrilínu Kominterns, sem
kvaddi hann til Moskvu, þar sem
átti að knýja hann til hlýðni. Þór
segir sögu Stefáns í fyrsta sinn
eftir honum sjálfum. Þar er stað-
fest að hann var í mikilli hættu
staddur í Moskvu og komst að
líkindum undan vist í þræla-
búðum, gúlaginu, með því að
leita hjálpar í danska sendi-
ráðinu. Stefán segir einnig að
ýmsir flokksbræður hans úr
hópi stækustu ,,réttlínu-
manna“, þ. á m. Brynjólfur
Bjarnason flokksformaður, hafi
gert allt sem þeir gátu til að egna
Komintern upp gegn honum. Til-
gangurinn hafi greinilega verið sá
að koma í veg að hann gæti snúið
aftur heim til Íslands. Honum hafi
að líkindum verið fyrirhuguð svip-
uð örlög og danska kommúnista-
foringjanum Arne Munch-
Petersen, sem handtekinn var í
Moskvu og veslaðist upp í fanga-
búðum Stalíns með vitund helsta
leiðtoga Kommúnistaflokks Dan-
merkur. Þá greinir Stefán frá því
hvernig fyrrverandi flokkssystkini
hans lögðu hann í einelti, eftir að
hann sneri heim og gerðist blaða-
maður og síðar ritstjóri Alþýðu-
blaðsins.
Stefán Pjetursson og gúlagið
SAGAN FRÁ FYRSTU HENDI Í FYRSTA SINN
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Frábært verð, mik
ið úrval
gefðu
Gjafabréf
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
Jafnvægi fyrir líkama og sál
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
Kínversk
handgerð list
Frábær jólagjöf
á gamla genginu!
Opið sunnudaga kl. 11-16