Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 18
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Harpa María Gunnlaugsdóttir skartgripahönnuður varð fyrir þeirri óvæntu ánægju á afmælisdaginn sinn í fyrra að nýja tónlistar- og ráð- stefnuhúsinu við Reykjavíkurhöfn var gefið nafnið Harpa. Hún segir að nafn tónlistarhússins hafi komið sér á skemmtilega á óvart og þótti henni vænt um þessa tilviljun. Harpa María fæddist 11. desember 1961 á Ólafsfirði. Þegar foreldrar hennar tilkynntu prestinum hvað litla dótt- irin ætti að heita mótmælti hann nafngiftinni harðlega. „Það hét enginn þessu nafni á Ólafsfirði, en ég var ekki sú fyrsta sem bar nafnið á landinu. Presturinn samþykkti þetta ekki og sagði að þetta væri ekki nafn! En þetta gekk nú samt,“ sagði Harpa. Nokkru síð- ar kom nýr prestur til Ólafsfjarðar og sá nefndi dóttur sína Hörpu svo honum hefur líkað nafnið betur en forvera hans. Þótti nafnið sitt skrítið Harpa veit ekki með vissu hvers vegna henni var gefið nafnið enda enginn í hennar ætt sem bar það. Nafnið Harpa er frekar talið vera dregið af mánaðarheitinu harpa, sem er fyrsti sumarmánuðurinn, en af hljóðfærinu, að því er segir í bók- inni Nöfn Íslendinga. Ef til vill var nafnið vísan í nöfn móðurafa hennar og -ömmu sem hétu Hartmann og María. „Mér hefur alltaf þótt vænt um Hörpu-nafnið mitt, þó mér hafi stundum þótt það hálfskrítið þegar ég var lítil. Nú kann ég mjög vel að meta nafnið mitt og þykir það skemmtilegt og fallegt.“ Harpa veit af einni stúlku sem nefnd var eftir henni, beint eða óbeint. „Það var maður á Ólafsfirði sem eignaðist sína þriðju dóttur. Þær sem á undan voru komnar hétu báðar nöfnum sem byrjuðu á H. Maðurinn vildi fá þriðja stelpunafnið sem byrjaði á H og spurði Sig- ursvein, föðurafa minn, hvort hann vissi um nafn. Þá sagði afi að sér hefði alltaf þótt nafnið Harpa svo fallegt. Stúlkan fékk nafnið. Það er gaman að því,“ sagði Harpa. Hún rekur Listaselið á Skóla- vörðustíg 17 ásamt fjórum öðrum listakonum. Þær stofnuðu Listaselið fyrir meira en áratug. „Við vinnum hver í sínu efninu. Ég smíða úr silfri, hrauni, náttúrusteinum, perlum og öðru. Hinar eru með eitthvað annað. Við skiptumst á um að vinna einn dag í viku hver í Listaselinu,“ sagði Harpa. Hún segir að margt hand- verksfólk og listhneigt sé í ætt henn- ar. Sonur Hörpu nemur arkitektúr í Listaháskólanum og hún segir að dóttir sín stefni einnig í listnám. „Frá því ég man eftir mér hef ég verið að búa eitthvað til. Það gef- ur lífinu lit að skapa og vinna við listina,“ sagði Harpa. Hún hefur þó ekki lagt sig eftir tónlistariðkun, en hlustar mikið á tónlist. Fékk stóra nöfnu á afmælisdaginn Morgunblaðið/Eggert Hörpur Harpa María Gunnlaugsdóttir við Tónlistarhúsið Hörpu sem var gefið nafn á afmælisdegi Hörpu Maríu.  Tónlistarhúsið var nefnt Harpa 11. desember en þá á Harpa María Gunnlaugsdóttir skartgripahönnuður afmæli Nafnið Harpa » Nafnið Harpa er ungt sem mannsnafn, að því er segir í bókinni Nöfn Íslendinga. Engin kona bar nafnið 1910 en á 3. áratug síðustu aldar var tveim- ur stúlkum gefið þetta nafn. » Í þjóðskrá 1989 báru 455 konur nafnið sem einnefni eða fyrra nafn af tveimur en 145 að síðara nafni. » Í þjóðskrá 1. janúar 2010 báru 674 konur nafnið Harpa sem fyrsta eiginnafn og 250 sem annað eiginnafn. Karlmaður sem réðst á fyrrverandi sambýliskonu sína í Hveragerði í september var í Héraðsdómi Suður- lands í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, brot gegn umferðar- lögum, fíkniefnalöggjöf og vopnalög- um. Var hann dæmdur til að greiða konunni 700 þúsund krónur í miska- bætur og allan sakarkostnað vegna málsins. Þá er hann sviptur ökurétt- indum ævilangt. Valur Sigurðsson, sem er 29 ára gamall, var ákærður fyrir að hafa slegið fyrrverandi sambýliskonu sína hnefahöggi með hnúajárni í höf- uðið og ýtt við henni svo hún féll nið- ur á gólf og þá er hún lá niðri ítrekað slegið hana höggum með handar- jaðrinum með hnefann krepptan um hnúajárn sem lentu á höfði hennar, efri hluta líkama, á baki, öxlum og á neðri hluta háls. Stuttu síðar greip hann með báð- um höndum um háls hennar og lyfti henni í hálstaki upp frá gólfi og hélt henni upp við vegg svo þrengdi að öndunarvegi og henni sortnaði fyrir augum. Þá sleppti hann takinu og ýtti við henni svo hún féll niður og lenti ofan í baðkari með þeim afleið- ingum að hún hlaut fjölmarga áverka um allan líkamann. Valur var einnig ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkni- efna þennan dag milli Reykjavíkur og Hveragerðis en hann var stöðv- aður af lögreglu við Rauðavatn. Jafnframt var hann ákærður fyrir vörslu fíkniefna en 2,79 grömm af amfetamíni fundust við leit í bifreið- inni. Einnig fannst kannabis við hús- leit á heimili hans. Tveggja ára fangelsi fyrir að ráðast á konu með hnúajárni Hrotti Árásin var stórhættuleg.  Einnig dæmdur fyrir fíkniefnaakstur og vörslu fíkniefna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.