Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 20
þrautaganga ríkis- stjórnarinnar vegna aðgerða í þágu skuldugra heimila og fyrirtækja hefur ekki verið tengd lausn Icesave-deilunnar. Þröskuldurinn Í stefnuræðu for- sætisráðherra nú í október, réttu ári eftir hina fyrri, var Icesave-málið enn ekki komið út af borðinu. Jó- hanna endurómar að miklu leyti framsetningu Steingríms í greina- flokki hans. Hún gerir fjármál rík- isins og fjármögnunarmöguleika þess að umtalsefni. Góður árangur hafi náðst á því sviði, en „Icesave- málið er því miður þröskuldur í þeim efnum. Það er og verður sameig- inlegt verkefni okkar allra að ljúka því máli.“ Við sama tækifæri ræddi Steingrímur um skuldavanda heim- ila og fyrirtækja. Hann tengdi það hins vegar ekki Icesave að þessu sinni, en sagði það þó eitt af því sem helst stæði í vegi fyrir bata í hag- kerfinu. Af ummælum að dæma virðist afstaða þeirra Steingríms og Jóhönnu til eðlis Icesave-málsins hafa breyst nokkuð með tímanum, og dregið úr vægi þess, þó að enn sé það vissulega mikilvægt. Þau hafa þó aldrei hvikað frá þeirri sannfær- ingu sinni að réttast sé að ljúka mál- inu með samningum, frekar en að láta til dæmis dómstólum eftir að skera úr um ábyrgð í málinu. Önnur „Icesave-aðventa“ Nú þegar nýjum samningum hef- ur verið landað má gera ráð fyrir því að kapp verði lagt á að mæla fyrir frumvarpi um samþykkt þeirra á Al- þingi. Að því gefnu að þingið sam- þykki frumvarpið munu böndin á ný berast að forsetanum. Erfitt er að meta mögulegar afleiðingar þess að hann synji lögunum staðfestingar, en ljóst er að það yrði ríkisstjórninni afar þungt. Sé mið tekið af rök- stuðningi forsetans fyrir synjuninni í ársbyrjun er þó óhætt að gera ráð fyrir því að hann horfi til þjóðarinn- ar. Líklegt má telja að ófá jólaboðin litist af því – annað árið í röð. FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann, og hans fólk, landi glæsi- legri niðurstöðu fyrir okkur,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, um samn- ingaviðræður Svavars Gestssonar við Breta og Hollendinga um lausn Icesave-deilunnar, í viðtali við kosn- ingasjónvarp mbl.is. Síðan hann lét ummælin falla, hinn 23. mars 2009, hafa tvennir samningar verið kynnt- ir og Alþingi samþykkt annan. Þeim samningi var hafnað með fádæma afgerandi hætti í þjóðaratkvæða- greiðslu fyrr á þessu ári. Áhersla á að ljúka málinu Steingrímur sagðist í áðurnefndu viðtali bera ábyrgð á störfum „Svav- arsnefndarinnar,“ hverrar niður- stöðu var hafnað af þjóðinni. Hann hefur verið ötull talsmaður þess að málinu sé lokið með samningum, og mikilvægt að það sé gert sem fyrst, þar sem það standi efnahagsbata Ís- lands fyrir þrifum. Svavar Gestsson sagði í samtali við Morgunblaðið, í kjölfar þess að samningar náðust, að mikil áhersla hafi verið lögð á að klára málið, þar sem hann hafi verið orðinn „leiður á því að hafa þetta hangandi yfir [sér].“ Í umræðum um þann samning sagði Steingrímur þau lánskjör sem samningurinn fæli í sér þau hagstæðustu sem Ísland gæti fengið. Ef þingmenn felldu hann myndu öll aðgerðaplön stranda, „og þá [kæmi] október aft- ur“. Um svipað leyti lét hann hafa það eftir sér að málið væri of flókið til þess að því yrði vísað í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Málið kom hins veg- ar á endanum til kasta þjóðarinnar, sem hafnaði samningunum. Hætta á einangrun Íslands Í stefnuræðu sinni við setningu Alþingis í október 2009 sagði Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra: „Ef við viljum ekki einangr- ast sem þjóð og loka öllum samskiptaleiðum við alþjóðasam- félagið er okkur nauðugur einn kost- ur að leiða Icesave-málið til lykta.“ Endurreisn atvinnulífsins yrði teflt í tvísýni og atvinnuleysi ykist stórum ef það yrði ekki gert. Tæpum þrem- ur mánuðum síðar synjaði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Icesave-lögunum staðfestingar. Ákvörðun sinni til stuðnings vísaði hann meðal annars til þess að ljóst væri að mikill meirihluti landsmanna væri andsnú- inn lögunum. Ekki væri hægt að líta fram hjá vilja þjóðarinnar. Ráðamenn lýstu miklum vonbrigðum með framferði forsetans, og sagði Steingrím- ur meðal annars að skammtíma- verkefnið væri nú að „draga úr þeim skaða sem orðspor Íslands hefur beðið og byggja trúverðugleikann upp að nýju,“ en hann hefði tapast með synjun forseta. Paul Myners, þáver- andi bankamálaráðherra Bretlands, gaf Íslendingum ekki ástæðu til bjartsýni, og var ómyrkur í máli. Hann sagði að ef Íslendingar myndu falla frá samkomulaginu jafngilti það því að Ísland væri „í raun að segja að það vildi ekki vera hluti af alþjóðakerfinu í stjórnmálum.“ Umskipti þrátt fyrir töf Gylfi Magnússon, þáverandi efna- hags- og viðskiptaráðherra, sagði ákvörðun forsetans koma til með að hafa slæm áhrif, einkum á atvinnu- ástand og hugsanlega kaupmátt. Þrátt fyrir þetta bakslag í baráttu stjórnvalda fyrir því að samningar næðust, tóku aðstæður í efnahagslíf- inu að skána eftir því sem á árið hef- ur liðið. Í greinaflokki sínum, „Landið tekur að rísa!“ færir Stein- grímur í löngu máli rök fyrir því að umskipti hafi orðið í efnahagsmál- um, og staðan smám saman að batna. Icesave-málið skipti fyrst og fremst máli hvað varði samskipti Ís- lands og annarra þjóða. Lausn máls- ins sé liður í að „koma á eðlilegu ástandi í samskiptum okkar við um- heiminn, opna aðgang að erlendum fjármálamörkuðum og endurreisa orðspor okkar.“ Í þessu samhengi má til að mynda benda á það að Landið tekið að rísa þrátt fyrir Icesave  Afstaðan til mikilvægis samninga breyst á tveimur árum Jóhanna Sigurðardóttir Steingrímur J. Sigfússon Gylfi Magnússon „Ég var nú eigin- lega bara orðinn leiður á því að hafa þetta hangandi yf- ir mér,“ sagði Svavar Gestsson Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Stjórnvöld leggja mikla áherslu á lausn Icesave-málsins nú eins og áður. Óvíst er hvernig samskiptum ráðherra og Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Íslands, verður hátt- að þegar lögin, verði frumvarpið samþykkt, berast honum til stað- festingar. Jóhanna Sigurð- ardóttir, forsætisráðherra, sagði í kjölfar synjunar forseta í ársbyrjun: „Við áttum auðvitað samtöl við hann og fórum yfir stöðuna og lýstum yfir áhyggjum okkar af því að hann myndi láta þetta mál fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Samskiptin voru þó ekki nánari en svo að Jóhanna frétti ekki af nið- urstöðu forseta fyrr en hann kynnti hana þjóðinni í fjölmiðlum. Forset- inn sagði hins vegar á blaðamanna- fundinum að hann hefði þegar kynnt forsvarsmönnum ríkisstjórn- arinnar niðurstöðu sína. Vissu ekki af ákvörðuninni SAMSKIPTAÖRÐUGLEIKAR Icesave-málið hefur frá upphafi vakið mikla athygli er- lendra fjölmiðla. Í mörgum tilfellum hefur samúð með málstað Íslendinga verið lýst í ritstjórnargreinum, þó það sé að sjálfsögðu ekki einhlítt. „Íslendingar eru sannarlega óskammfeilnir. Þegar forseti þeirra stöðvaði samkomulag um að landið greiddi Bretum og Hollendingum 3,9 milljarða evra skuld sína skoruðu Íslendingar umheiminn á hólm. Sú ákvörðun hefur reynst þeim vel,“ á þessum orðum hefst ritstjórnarpistill í enska dagblaðinu Financial Times þann 26. febrúar síðastliðinn. Þegar pistillinn birtist hafði þjóðin enn ekki greitt atkvæði um samninginn, en að mati pistlahöfundar hafði þróun mála frá synjun forseta reynst Íslend- ingum vel. Bretar og Hollendingar litu til dæmis út eins og yfirgangsseggir vegna framgöngu sinnar í málinu. Þrátt fyrir þetta sé hólmgangan ekki áhættulaus. Ís- lendingar gætu átt það á hættu að einangrast á alþjóða- vettvangi ef alls engin niðurstaða fengist í málið. Wolfgang Hansson, pistlahöfundur hjá Aftonbladet, einu mest lesna blaði Svíþjóðar, sagði í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar að hann gæti „á vissan hátt skilið [Íslendinga],“ sem hefðu þegar þjáðst vegna hruns bankakerfisins. Innstæðueigendur hefðu fengið greitt í kjölfar pólitískrar ákvörðunar yfirvalda Bret- lands og Hollands, sem hafi óttast pólitískar afleiðingar þess að gera það ekki. „Kannski ættu þeir að taka á sig hluta kostnaðarins.“ einarorn@mbl.is Samúð með málstað Íslendinga Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.