Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ífyrra notaðiSteingrímurJ. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, orðin „glæsileg niðurstaða“ til að lýsa Icesave-samningunum. Þessum fagnaðarlátum fylgdi hann eftir á Alþingi með því að hóta þingi og þjóð því að yrði hin glæsilega niðurstaða ekki samþykkt „þá kemur október aftur“. Þjóðin mundi – og man enn – vel eftir október 2008 svo að lengra gat Steingrímur ekki gengið í efnahagslegum hræðsluáróðri sínum. Fylgispakir menn innan þings og utan, ekki síst í at- vinnulífi og fjölmiðlum, kyrj- uðu sama sönginn. Fullyrt var að samninganefndin hefði unnið mikið þrekvirki að ná þessari glæsilegu niðurstöðu og að ef að þjóðin tæki ekki á sig Icesave-klafann biði henn- ar ekkert annað en langvar- andi volæði. Þjóðin sá í gegnum áróður- inn og hafnaði hinni „glæsi- legu niðurstöðu“ á eftirminni- legan hátt. Þar með hefði málið átt að vera úr sögunni, en þá gerðist það að ríkis- stjórnin með fjármálaráð- herra í broddi fylkingar dró Breta og Hollendinga aftur að „samningaborðinu“ og tókst að lokum að knýja fram nýja samninga. Aðdragandinn varð svo ná- kvæmlega sá sami og í fyrra skiptið. Steingrímur J. sagði á Alþingi að ekkert væri verið að undirrita og daginn eftir var samninganefndin komin heim með undirritaðan samn- ing. Viðbrögð Steingríms J. eru hin sömu nú og þá; samn- ingurinn er glæsileg niður- staða. Nú eins og þá heldur Steingrímur J. því fram að áhættan af samningnum sé ekki mikil og nú eins og þá tel- ur hann þjóðinni stafa mikil hætta af því að lyppast ekki niður gagnvart ranglát- um og ólögmætum kröfum hinna er- lendu ríkja. Og engum þarf að koma á óvart að hinir fylgispöku söngvarar í Icesave-kór Steingríms J. skuli nú hefja upp raust sína á nýjan leik og dásama samn- ingana og mælast eindregið til þess að samningarnir verði af- greiddir með hraði. Og líkt og fyrri daginn vilja hinir ís- lensku stuðningsmenn kröfu- gerða Breta og Hollendinga að samningarnir verði af- greiddir með hraði, með sem minnstri umræðu og sem minnstum upplýsingum til þeirra sem klyfjarnar eiga að bera. Nú ganga þeir ósvífnustu úr röðum þeirra sem ávallt hafa stutt Icesave-kröfur Breta og Hollendinga jafnvel svo langt að halda því fram að þar sem nýju samningarnir eru ill- skárri en hinir fyrri þá eigi þjóðin að taka þeim fegins hendi. Þeir sem áður voru jafn glámskyggnir og raun ber vitni telja sig þess ekki aðeins umkomna nú að veita ráðgjöf í Icesave-málum heldur telja þeir að samningurinn frá því í fyrra sé einhver viðmiðun í málinu. Samanburðurinn við fyrri samninga kann að segja þá sögu að þeir sem börðust fyrir samþykkt þeirra ættu nú að sjá sóma sinn í að draga sig í hlé. Að öðru leyti eru þeir frá- leitu samningar engin við- miðun. Og þó að þeir samn- ingar hafi verið enn verri fyrir íslensku þjóðina en þeir sem nú liggja fyrir fer því vita- skuld víðs fjarri að samning- arnir sem nú liggja fyrir séu ásættanlegir. Þvert á móti blasir við að fyrir Íslendinga eru þeir fullkomlega óásætt- anlegir. Sömu menn flytja nú sömu ræður til stuðnings ólögmæt- um kröfum Breta og Hollendinga} „Glæsileg niðurstaða“ kynnt á nýjan leik Ríkisstjórnin áerfitt með að sætta sig við að hærri skattar breyta hegðun fólks og draga hlutfallslega úr skatttekjum. Dæmi um þetta er að í fjár- lagafrumvarpinu er gert ráð fyrir aukinni sölu á eldsneyti þrátt fyrir að reynslan sl. tvö ár sýni að hækkandi eldsneyt- isverð, meðal annars vegna stöðugt hækkandi skatta, dregur úr sölunni. Nú á enn að hækka þessa skatta og gera samt ráð fyrir meiri sölu. Í þessu máli eins og öðrum sést að ríkisstjórninni er um megn að taka tillit til helstu grundvallarlögmála efnahags- lífsins. Við þessar aðstæður þarf ekki að koma á óvart þótt endurreisnin gangi hægt fyrir sig. Ríkisstjórnin hafnar helstu lögmálum efnahagslífsins} Hafa hærri skattar engin áhrif? Í vikunni sá ég skyndilega allt í nýju ljósi að mér fannst. Icesave, handtöku Ass- ange og raunar Wikileaks-málið í heild, jafnvel nýjustu svikamyllurnar sem komið hefur verið upp um í bankakerf- inu. Allt er þetta skýrara. Eða óskýrara eftir því hvernig á málið er litið. Sýnin á hlutina er í það minnsta önnur en hefur verið síðustu ár. Tíðindi vikunnar, fyrir utan framantalin smá- mál, eru sem sagt þau að ég eignaðist ný gler- augu. Fæstir tóku eftir nýja skrautinu og kom það nokkuð á óvart. Því verður nefnilega ekki á móti mælt að breytingin er töluverð og ekki veitti af. Ykkar einlægur enda kominn á þann aldur að tímabært er að þykjast unglegri en reyndin er og hafa ýmsa fylgihluti nógu áber- andi til að draga athyglina frá gráu hárunum, undirhökunum og öðru meðlæti þeirrar veislu sem síðari hluti ævinnar hlýtur að vera. Gleraugun eru annarrar gerðar en þeir sjónaukar sem ég hef notað hingað til; þrískipt eru þau kölluð og tekur víst tíma að venjast þeim. Vona að minnsta kosti að framhaldið verði ekki eins og fyrstu dagarnir því sjónin hefur satt best að segja verið einkennileg. Sjóveiki hef ég skynjað í fyrsta skipti á ævinni og ýmis mistök er hægt að skrifa á reikning gleraugnanna. Nú skilja félagar mínir í körfuboltanum hvers vegna ég var jafn lélegur á miðvikudaginn og raun ber vitni. Augun eru svo vanstillt að þessi gæðaleikmaður, sem venjulega er, gat bókstaflega ekki neitt … – Þú ert alveg eins og afi Skapti, sagði ein dóttirin þegar hún kom heim. Ekki leiðum að líkjast en ég held reyndar að á myndinni sem hún vísaði til hafi hann verið töluvert eldri en ég er nú. Sjálfum fannst mér ég býsna líkur Art heitn- um Buchwald en líki okkur ekki saman að öðru leyti. Gleraugun eru hugsanlega afbragðs dular- gervi fyrst um sinn en það er ekki endilega heppilegt akkúrat núna. Ég þarf nefnilega að skjótast út fyrir landsteinana og mér finnst eins og maðurinn í vegabréfinu sé allt annar en sá sem veifar því í tollinum. Mundi svo að þann- ig hefur það verið síðustu ár því eftir að passa- myndin var tekin fékk ég mér ný gleraugu, sem nú eru orðin „gömlu gleraugun“ og var ekkert líkur manninum í vegabréfinu. Þetta hlýtur því að reddast. Ef pistillinn að þessu sinni er morandi í stafdstgning- arvillum er best að skella skuldinni á gleraugun því ég hef ekki séð almennilega á skjáinn eða lyklaborðið, samt verið sannfærður um að allt sé kórrétt og því sérstaklega skipað prófarkalesurum blaðsins að breyta engu. Næstu daga mun ég velta því alvarlega fyrir mér, með hjálp góðra manna, hvort ég læt taka af mér nýja mynd eða hvort ég nota áfram þá sömu með pistlunum. Miðað við sýn mína á þau mál sem ég nefndi í upphafi er jafnvel alveg eins gott að henda nýju gleraugunum og setja þau gömlu upp aftur. Góða hegli. skapti@mbl.is Önnur sýn á hlutina Pistill Skapti Hallgrímsson STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Obama forseti þarf á kraftaverki að halda FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is I nnan við tveimur árum frá því að Barack Obama sór embættiseið sem 44. forseti Bandaríkjanna hefur staða hans gjörbreyst. Gífurlegar væntingar hafa snúist upp í von- brigði og er nú svo komið að aðeins 46% Bandaríkjanna lýsa sig ánægð með störf hans, einu prósentustigi minna en segjast ánægðir með George W. Bush, hinn umdeilda for- vera hans, að því er fram kemur í nýjum könnunum Gallups. Efnahagsmálin vega þyngst, að mati Brians Darlings, sérfræðings hjá hugveitunni Heritage Founda- tion, sem telur aðspurður að forset- inn eigi litla möguleika á endurkjöri nema til komi mikill efnahagsbati. Reagan og Clinton náðu sér á strik eftir dýfu vegna kreppu Talið berst að erfiðri stöðu Ron- alds Reagans og Bills Clintons á miðju fyrra kjörtímabili þeirra, þ.e. á árunum 1982 og 1994, og tekur Darling aðspurður undir að efna- hagsmálin hafi reynst forsetunum, sem síðar nutu vinsælda, erfið. Munurinn sé hins vegar sá að efnahagsmálin séu nú í erfiðari stöðu, auk þess sem stuðningur við Obama hafi mælst mun meiri í upp- hafi en hjá forsetunum tveimur. Darling telur að enn geti syrt í álinn hjá Obama og rifjar upp að í síðustu viku hafi forsetinn boðað að senn myndi draga úr atvinnuleysi. Gangi það ekki eftir verði for- setinn í enn þrengri stöðu en áður. Þá muni það svikna loforð bæt- ast á listann þar sem fyrirheit um lokun Guantanamo-búðanna á Kúbu, brotthvarf hermanna frá Írak innan 18 mánaða og auknir skattar á þá efnuðustu séu fyrir, ásamt fleiri lof- orðum sem ekki var staðið við. Á móti komi boðaðar umbætur forsetans í heilbrigðismálum sem óháðir kjósendur telji þó margir hverjir að þingið hafi varið of mikl- um tíma í, á kostnað efnahagsmála. Ein mesta kreppa sögunnar Bandaríkjamönnum fer fjölg- andi sem þýðir að störfum þarf að fjölga í takt við fólksfjölgunina og gott betur, eigi á annað borð að tak- ast að draga úr atvinnuleysi. Deilt er um fjölda fólks sem er án vinnu en opinbera talan, 9,8% at- vinnuleysi, hefur ekki haldist svo há jafn lengi síðan á dögum kreppunnar miklu árið 1929. Þá er staðan á hús- næðismarkaði enn mjög erfið og töldu 58% aðspurðra í nýrri könnun fasteignavefjanna Trulia og Realty- Trac að markaðurinn tæki ekki við sér fyrr en í fyrsta lagi árið 2013, eða eftir að fyrra kjörtímabili Obama lýkur. Við þetta bætist íþyngjandi skuldavandi bandaríska ríkisins, borga og sveitarfélaga sem vinnur gegn fjölgun opinberra starfa. Til að bæta gráu ofan á svart hafa demókratar, flokksbræður for- setans, glatað meirihluta sínum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Palin á möguleika Spurður hvort repúblikanar muni leika þann leik að leggja stein í götu forsetans til að auka enn á fylgistapið segir Darling að Obama eigi tveggja kosta völ: að einangra sig frekar eða rétta repúblikönum sáttahönd í þinginu. Michael T. Corgan, fræðimaður við Boston-háskóla, segir aðspurður að Obama þurfi á „kraftaverki“ að halda. Hann hafi ekki hitt einn ein- asta vinstrimann sem hafi lýst sig ánægðan með frammistöðu forset- ans. Sjálfur sé hann farinn að horfa til þess að Hillary Clinton bjóði sig fram til forseta haustið 2012. Reuters Í erfiðri stöðu Obama lagði mikla áherslu á efnahagsmálin í kosninga- baráttunni 2008. Nú gætu þau komið í veg fyrir endurkjör hans 2012. Obama er enn vinsæll á Vestur- löndum, að sögn Richards Wik- es, sérfræðings hjá Pew-rann- sóknarstofnuninni í Washing- ton. Wikes segir stofnunina hafa gert kannanir á vinsældum Bandaríkjaforseta utan lands- ins frá árinu 2002 en hann kveðst aðspurður ekki vita til annarra sambærilegra og sam- felldra mælinga lengra aftur. Fram kemur í könnun PEW í júní að 64% Breta lýstu sig þá ánægða með stefnu forsetans í alþjóðamálum, miðað við 75% árið áður. Í Frakklandi var hlut- fallið 84% í ár en 93% í fyrra. Enn vinsæll víðast hvar MÆLINGAR PEW Í fyrra Forsetinn sver embættiseið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.