Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Jólahár Nú er nóg að gera hjá hárgreiðslufólki því flestir láta snyrta sinn haus fyrir hátíðirnar og vilja skarta jólaklippingu. Golli Hrun hlutabréfa- markaðarins í Banda- ríkjunum árið 1929 var einn af afdrífarík- ustu atburðum síðustu aldar, og bar þó margt við á þeirri öfgafullu öld. Kreppan sem sigldi í kjölfarið lagði afkomu milljóna manna á Vest- urlöndum í rúst og greiddi götu öfgaafla í þróuðum menningarríkjum. Fjármálakrepp- an sem riðið hefur yfir okkar heimshluta undanfarin misseri er í eðli sínu lítið frábrugðin því sem gerðist 1929; ofgnótt ódýrra pen- inga þrýsti öllu eignaverði upp og ýtti undir gríðarlega skuldsetningu sem aftur var réttlætt með bólgnu eignaverðinu. Þetta var hefðbundin bóla og hún hlaut sömu örlög og aðrar bólur: Hún sprakk. Fjölmörg dæmi, gömul og ný má nefna um slíka atburðarás. Fyrsta bankahrunið í Bandaríkjunum varð 1819 í kjölfar mikillar verðhækk- unar á baðmull sem leiddi til hækkunar og skuldsetningar á ræktarlandi ásamt því að pen- ingamagn í umferð jókst gríð- arlega. Þegar sú bóla sprakk hafði skuldsetning með veði í land- areignum sjöfaldast á einungis fjórum árum. Svo alvarleg urðu áhrifin á almenn lífskjör að haft var á orði að aldrei myndi renna upp glaður dagur í Bandaríkjunum á ný. Tveimur árum síðar var hag- kerfið komið aftur í lag. Kreppa varð að kreppunni miklu Kreppan sem fylgdi hruni hluta- bréfamarkaðarins 1929 stóð í ára- tug. Mikið hefur verið rætt og rit- að um orsakir hrunsins, en ekki síð- ur og jafnvel enn frekar, hafa augu manna beinst að við- brögðum stjórnvalda við hruninu. Er þá bæði horft til Seðla- banka Bandaríkjanna og ríkisstjórnarinnar. Færð hafa verið fyrir því veigamikil rök að sú stefna, sem í upp- hafi var mörkuð af Herbert Hoover og síðar Franklin D. Roosevelt, hafi í raun gert illt verra. Hugmyndir hagfræðingsins Keynes um hlut- verk ríkisins hafi í höndum þess- ara forseta komið í veg fyrir að hagkerfinu tækist að aðlaga sig jafnhratt og gerst hafði áður þegar hrun hafði orðið. Gríðarleg aukn- ing ríkisútgjalda skilaði ekki ár- angri og ummæli sem fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, Henry Morgenthau yngri, lét falla í maí 1939 segja mikla sögu: „Við höfum reynt að eyða peningum. Við eyðum meiri peningum en nokkru sinni fyrr og það dugar ekki … Þessi ríkisstjórn hefur set- ið í bráðum átta ár og atvinnuleys- ið er nærri það sama og þegar við tókum við … og skuldirnar eru orðnar gríðarlegar“ Í ofanálag hef- ur verið rökstutt að stefna Roose- velts, einkum á árunum 1935 til 1940, hafi grafið undan trausti fjárfesta og því hafi fjárfesting einkaaðila orðið miklu minni en annars og þar með hægt á öllum bata. Viðbrögðin skipta máli Við Íslendingar glímum nú við afleiðingarnar af hruni fjár- málamarkaðarins. Vandinn er enn erfiðari viðureignar en ella sökum þess að útgjöld hins opinbera höfðu vaxið mjög mikið árin fyrir hrun jafnvel þótt afgangur hefði orðið. Þrátt fyrir nokkurn nið- urskurð hjá hinu opinbera hefur ekki verið undið ofan af þessari miklu útgjaldaaukningu. Rík- issjóður stendur nú mjög illa og ríkið hrúgar upp skuldum og erfitt verkefni að ná þar jafnvægi. Ef við leysum ekki vanda ríkissjóðs og komum í veg fyrir enn frekari lam- andi skuldsetningu hans, mun hag- kerfið festast í varanlegum hæga- gangi. Verði hagkerfið á hinn bóginn fast í hægagangi verður enginn tekjuauki hjá ríkissjóði og sífellt erfiðara verður að ná jafn- vægi í rekstri ríkisins. Hagkerfið lendir í vítahring skulda, sam- dráttar og atvinnuleysis. Ekki verður annað séð en sá vítahringur sé þegar hafinn. Á Íslandi, rétt eins og í Bandaríkjunum forðum, skiptir höfuðmáli hvernig brugðist er við hruninu. Fyrir ári birtist rannsókn, sem hagfræðingurinn (og ný-Keynesist- inn) Gregory Mankiw við Harvard- háskóla, vann ásamt fleirum. Þar var athugað hvernig aðgerðir í rík- isfjármálum hefðu reynst til að vinna bug á alvarlegum samdrætti. Rannsóknin tók til 91 tilfellis í 21 ríki frá árinu 1970 til þessa dags. Borin voru saman þau tilfelli þar sem árangur náðist og þau þar sem árangur náðist ekki. Þar sem tókst að snúa vörn í sókn mátti nær ævinlega rekja árangurinn til þess að skattar voru lækkaðir. Þeir, sem mistókst að örva hag- kerfið, höfðu oftast reynt að halda í eða auka ríkisútgjöldin. Þessar niðurstöður koma ekki á óvart. Varhugaverð efnahagsstefna Efnahagsstefna núverandi rík- isstjórnar byggist m.a. á því að draga nokkuð saman í útgjöldum ríkisins og hækka skatta stórlega bæði á fyrirtæki og einstaklinga. Þetta getur ekki talist líklegt til þess að endurvekja efnahagslífið. Fyrir ári var við því varað á Al- þingi að ríkissjóður myndi ekki fá tekjur í eins ríkum mæli og fjár- málaráðuneytið taldi vegna skatta- hækkana. Jafnframt var á það bent að efnahagsstefna sem byggð- ist á skattahækkunum væri var- hugaverð, einkum þar sem heimilin í landinu væru mjög skuldsett og því væri mjög mikil hætta á að auknir skattar og álögur – samfara minni atvinnu og miklum afborg- unum – drægju úr möguleikum hagkerfisins til að rétta úr kútnum Ótraustvekjandi hagvaxtarspá Seðlabanki Íslands birti hagspá sína fyrir skömmu. Þar kom fram það mat bankans að samdráttur í landsframleiðslu á þessu ári yrði meiri en talið var fyrir ári og að hagvöxturinn á næsta ári yrði minni en talið var. Jafnframt að hagvöxtur á næstunni yrði einkum drifinn áfram af aukinni einka- neyslu, en fjárfestingar atvinnulífs- ins yrðu í lágmarki. Þessar fréttir eru alvarlegt áfall. Eins verður að segjast eins og er að það er ekki traustvekjandi að ætla að hag- vöxtur hér á næstu árum verði einkum knúinn af aukinni einka- neyslu. Æskilegra hefði verið að fjárfestingar og verðmætasköpun atvinnulífsins stæðu undir ætl- uðum hagvexti. Hrunið réttlætir ekki ranga stefnu Röng efnahagsstefna í kjölfar hruns bankakerfisins verður ekki endalaust réttlætt með því að það hafi orðið hrun. Hættan er sú að það sama gerist hér og gerðist í Bandaríkjunum á fjórða áratugn- um, að afleiðingar hrunsins verði miklu verri þegar upp verður stað- ið vegna rangra viðbragða. Þar ræðir bæði um rangar aðgerðir og aðgerðaleysi. Ekki bæta svo úr skák stefnumið, sem miða að því að auka óvissu í efnahags- og at- vinnulífi, líkt og hún sé ekki næg fyrir. Sú óvissa sem ríkisstjórnin hefur skapað í sjávarútvegi dregur mjög úr fjárfestingum í þeirri grein, óvissa um framtíð orkufreks iðnaðar skapar vanda og ótti við frekari skattahækkanir dregur úr vilja til atvinnuuppbyggingar. Skilningur fer nú á því vaxandi – bæði hér heima og ekki síður er- lendis – að ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Seðlabanki Íslands und- ir forystu Davíðs Oddssonar brugðust rétt við hruni bankanna. Ekki var reynt að bjarga þeim frá falli með sama hætti eins og t.d. Írar gerðu. Þar með skapaðist grundvöllur fyrir því að skamman tíma tæki að vinna þjóðina út úr óumflýjanlegri kreppu í kjölfarið. Sá grundvöllur er – þrátt fyrir allt – enn til staðar: nátt- úruauðlindir okkar eru nægar, við erum vel menntuð, hugmyndarík og vinnusöm þjóð og tækifærin liggja víða. Við getum því bæði treyst á landið og þjóðina. En til þess að árangur náist verður að skipta um kúrs í stað þess að kaf- sigla þjóðarskútunni í kröppum vítahring skattpíningar og sam- dráttar. Eftir Illuga Gunnarsson » Til þess að árangur náist verður að skipta um kúrs í stað þess að kafsigla þjóðar- skútunni í kröppum vítahring skattpíningar og samdráttar. Illugi Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Rjúfum vítahring skattpíningar og samdráttar Alþingi þarf nú að taka afstöðu til nýs Ice- save- samkomulags sem samn- inganefnd Ís- lands kynnti á fimmtudag- inn. Hér skal ósagt látið hver örlög hins nýja samkomulags verða á Alþingi, þó ekki væri nema vegna þess að eftir sem áður hvílir engin lagaskylda á íslenskum skattgreiðendum að borga fyrir syndir banka- manna. Það hefur ekki breyst. En þegar þetta nýja sam- komulag er borið saman við Icesave-samning ríkisstjórn- arinnar, sem hún mælti ein- dregið með, barðist fyrir og samþykktur var á Alþingi, en felldur í þjóðaratkvæða- greiðslu með 98% atkvæða, kemur athyglisverð niður- staða í ljós. Hún er sú að nýja sam- komulagið er allt að 432 milljörðum hagstæðara fyrir íslenska ríkið en gamli Ice- save-samningur ríkisstjórn- arinnar. Þegar þessi niðurstaða liggur fyrir er mikilvægt að rifja upp fullyrðingar ráð- herra, stjórnmálamanna, álitsgjafa og svokallaðra hagsmunaaðila um að gamla Icesave-samninginn yrði að samþykkja. Þeir sögðu að ekki væri mögulegt að ná hagstæðari samningi en þeim sem þá lá fyrir, líktu Íslandi við Kúbu norðursins yrði hann ekki sam- þykktur og fullyrtu að hér myndi skella á efnahagslegur frostavetur sem myndi vara um langa hríð. Yfirlýs- ingaglaðastir voru einstakir ráðherrar núverandi ríkis- stjórnar. Nú liggur fyrir að þeir höfðu rangt fyrir sér. Og það er staðfest að ríkisstjórnin og einstaka ráðherrar gerðu sig seka um alvarleg embættisafglöp og hræðileg mistök, sem öðrum tókst sem betur fer að af- stýra. Nú nægir ekki að ráð- herrar ríkisstjórnarinnar skammist sín. Ríkisstjórnin á að viðurkenna eigin mistök, segja af sér nú þegar og biðja þjóðina afsökunar á framkomu sinni í hennar garð. 432 milljarðar Eftir Sig- urð Kára Krist- jánsson Sigurður Kári Kristjánsson » Og það er stað- fest að ríkis- stjórnin og einstaka ráðherrar gerðu sig seka um alvarleg embættisafglöp og hræðileg mistök, sem öðrum tókst sem betur fer að af- stýra. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.