Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 32
Hinn 1. desember 2010 voru stofnuð ný landssamtök um al- mannarétt, útivist og verndun náttúru Ís- lands undir nafninu Ferðafrelsi. Þessi dag- setning var valin sér- staklega vegna þess að hún tengist frelsisbar- áttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði og er því táknræn um þá baráttu fyrir ferðafrelsi á Íslandi sem stofn- aðilar samtakanna standa í þessa dagana. Stofnun þessara nýju lands- samtaka byggist í grunninn á sam- starfi margra útivistaraðila, ferða- þjónustufyrirtækja og ferðatengdra aðila um baráttu fyrir almannarétti til ferðafrelsis í Vatnajökulsþjóðgarði sem staðið hefur yfir síðustu mánuði. Stofnaðilar samtakanna töldu mikla þörf á að setja samstarf þeirra sem ferðast á vélknúnum far- artækjum, fara um á hestum og aðila sem reka ferðaþjónustutengd fyr- irtæki í hálendisferðum í formlegan farveg. Þeir sem standa að nýju samtök- unum hafa þegar hrundið af stað nokkrum verkefnum og má þar nefna útgáfu á kynningarblaðinu Ferða- frelsi með Fréttablaðinu í júní á þessu ári þar sem kynntar voru ferðaleiðir sem stjórn Vatnajök- ulsþjóðgarðs leggur til að loka í sín- um tillögum í stjórnunar- og vernd- aráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð. Í september var síðan sett af stað kynningarherferð í dagblöðum sem endaði með miklum viðburði á Kistuöldu á Sprengi- sandi þar sem hátt í þúsund manns reistu risakross til minningar um Vonarskarðsleið sem á að loka sam- kvæmt tillögum stjórn- ar Vatnajökuls- þjóðgarðs. Á svipuðum tíma var safnað á fimmta þúsund undirskrifta frá al- menningi þar sem lok- unum í Vatnajökulsþjóðgarði var mótmælt og þær undirskriftir af- hentar umhverfisráðherra. Síðan er í gangi stórt verkefni þar sem verið að vinna sjónvarpsmynd um skyn- samlega náttúruvernd sem sýnd verður í Ríkissjónvarpinu eftir ára- mót. Tilgangur þessara nýju lands- samtaka er að vera málsvari almenn- ings, fyrirtækja, félagasamtaka, stofnana, félaga, samtaka og hópa gagnvart stjórnvöldum og öðrum í sameiginlegum hagsmunamálum um rétt til útivistar í náttúru Íslands. Hlutverk samtakanna er að standa vörð um og berjast fyrir rétti al- mennings á Íslandi til að umgangast náttúru landsins á ábyrgan hátt. Samtökin munu standa vörð um al- mannarétt, ferðarétt, útivistarrétt, veiðirétt og verndun á náttúru Ís- lands og í starfi sínu leitast við að koma náttúru Íslands sem mest óbreyttri til komandi kynslóða og leggja grunn að ábyrgri framtíð- arumgengni um náttúruna. Stofnun og starfsemi hinna nýju landssamataka má líklega að stærst- um hluta rekja til stofnunar Vatna- jökulsþjóðgarðs, en það er mjög áríð- andi að stofnun hans verði í góðri sátt við almenning og hagsmunaaðila í landinu. Í tillögum stjórnar Vatna- jökulsþjóðgarðs að stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins, sem liggja fyrir hjá umhverfisráðherra, er gert ráð fyrir lokunum á mörgum fal- legum ferðaleiðum og fólki mismunað um rétt til að gista í tjöldum innan garðsins. Einnig er harkalega gengið á rétt skotveiðimanna, en um 23% af veiðanlegu landi innan Vatnajök- ulsþjóðgarðs eru lokuð fyrir þeim. Ekki má gleyma því að einkaaðilar eru í auknum mæli að loka vegum um sín svæði og jafnvel vegum og slóðum þar sem almenningur hefur fullan rétt til að ferðast. Landssamtökin Ferðafrelsi gagn- rýna mjög vinnuferlið við stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, en lítið sam- ráð var haft við hasgmunaaðila og al- menning í undirbúningsvinnu vegna garðsins. Það er líka alvarlegt að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs tók nán- ast ekkert tillit til athugasemda sem gerðar voru við stjórnar- og vernd- aráætlun um starfsemi garðsins og braut líklega stjórnsýslulög með því að svara ekki formlega þeim aðilum sem gerðu athugasemdir, en eitt staðlað bréf var sent á alla sem gerðu athugasemdir. Fyrstu skrefin í starfi hinna nýju landssamtaka verða að senda þeim aðilum hér á landi sem koma að há- lendismálum beiðni um formlegt samstarf og samvinnu í þeim verk- efnum sem eru í gangi, s.s. endur- skoðun á reglugerð um Vatnajök- ulsþjóðgarð, stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og mörgum fleiri. Við í Ferðafrelsi vonum að í framtíðinni verði hægt að breyta starfsháttum stjórnvalda og vinna að málefnum hálendisins með samstarfi og sam- vinnu. Með slíku samstarfi stjórn- valda, hagsmunaaðila og almennings varðandi málefni hálendisins væri lagður grunnur að því að skapa sátt um framtíðarstefnumótun í þessu umhverfi. Ferðafrelsi – ný landssamtök um almannarétt til ferðalaga Eftir Guðmund G. Kristinsson » Við í Ferðafrelsi von- um að í framtíðinni verði hægt að breyta starfsháttum stjórn- valda og vinna að mál- efnum hálendisins með samstarfi og samvinnu. Guðmundur G. Kristinsson Höfundur er sölu- og markaðsstjóri, formaður landssamtakanna Ferða- frelsis, er í Ferðaklúbbnum 4x4 og í nefnd Samtaka útivistarfélaga um Vatnajökulsþjóðgarð. 32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Tímabundin opnun séreignarsparnaðar vegna greiðsluerf- iðleika einstaklinga og heimila er vel heppnuð efnahags- aðgerð. Með henni hefur tekist að hjálpa mörgum ein- staklingum í greiðslu- erfiðleikum án þess að það hafi komið niður á fyrirkomulagi séreign- arsparnaðar. Það er einnig mjög jákvætt að langflestir halda áfram að leggja fyrir til eftirlaunaáranna með þessum hætti. Einstaklingar í greiðsluerf- iðleikum fengu með opnuninni að- gang að sparnaði sem annars hefði verið bundinn til 60 ára aldurs og hefur það komið sér vel fyrir marga. Hver og einn hefur val um að nýta sér þessa heimild og hafa rúmlega 50.000 manns gert það. Fjöldinn var mestur fyrst en á síð- ustu mánuðum hefur fækkað í hópnum. Það er afar jákvætt að flestir sem hafa nýtt sér þessa heimild hafa haldið áfram að spara. Séreignarsjóðirnir, sem höfðu bundið eignir til langs tíma, gátu staðið undir útborgunum af því að sett var þak á úttektarfjárhæð auk þess að dreifa útborgunum yfir tíma. Opnunin hefur því ekki haft áhrif á eignasamsetningu og fjár- hagslegan styrk sjóðanna. Punkturinn yfir i-ið er að ríki og sveitarfélög hafa fengið auknar skatttekjur vegna opnunarinnar sem hefur komið sér vel á erfiðum tímum. Það hefði ekki gerst hefð- um við ekki borið gæfu til að byggja upp lífeyriskerfi þar sem iðgjöld eru lögð fyrir óskattlögð og skattur greiddur af lífeyr- isgreiðslum. Þraukaðu ef þú getur Nú hefur verið lagt til að opn- unin verði framlengd, fjárhæð laus til útborgunar verði hækkuð í 5 milljónir króna og útborgunartími verði styttur í 12 mánuði. Hækk- unin kemur sér eflaust vel fyrir marga en eingöngu þeir sem nauð- synlega þurfa á sparnaðinum að halda ættu að nýta sér heimildina. Þeir sem eru í verulegum fjár- hagsvandræðum verða þó að gæta sín og ættu alls ekki að taka út séreignarsparn- aðinn ef gjaldþroti verður ekki forðað. Séreignarsparnaður er nefnilega lögvarinn en það þýðir að ekki er hægt að ganga að hon- um við gjaldþrot. Þeir sem eru í vinnu og taka sparnaðinn út lenda hugs- anlega í að greiða tekjuskatt í hæsta skattþrepi af útborgunum. Fæstir lífeyrisþegar greiða svo háa skatta og þeir sem eiga sér- eignarsparnað geta dreift útborg- unum þannig að skattar verði sem lægstir. Þannig nýtist sparnaður- inn best. Tilgangurinn með viðbótarlífeyr- issparnaði er að byggja upp sjóð til að bæta við eftirlaunin í starfs- lok. Það skiptir máli því flestir verða fyrir a.m.k. 40%-50% tekju- lækkun þegar þeir hætta að vinna. Sá sem leggur fyrir 2% af launum í 30 ár í séreignarsparnað og fær önnur 2% í mótframlag eignast sjóð sem eykur lífeyri um sem nemur 25% af launum í 10 ár. Sér- eignarsparnaður er einnig vara- sjóður við starfsorkumissi vegna örorku eða veikinda og einnig við gjaldþrot. Það munar um séreignarsparn- aðinn eftir að vinnu lýkur. Það er staðreynd að við hættum öll að vinna fyrr eða síðar og þurfum að lifa á eftirlaunum. Ef heilsan er góð er sorglegt að geta ekki haldið óbreyttu lífsmynstri eftir að vinnu lýkur vegna lágra eftirlauna. Vel heppnuð efnahagsaðgerð Eftir Gunnar Baldvinsson Gunnar Baldvinsson » Opnun séreignar- sparnaðar er vel heppnuð aðgerð og hef- ur hjálpað einstakling- um, ríki og sveitarfélög- um án þess að draga úr fjölda þeirra sem spara. Höfundur er framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins. Lítil grein í Morg- unblaðinu miðvikudag- inn 8. desember gefur tilefni til leiðréttingar og til að koma á fram- færi réttum upplýs- ingum. Grein Ægis Arnar Sveinssonar fjallar um skilyrði það sem sett er í vilja- yfirlýsingu lífeyr- issjóða, fjármálastofn- ana og ríkisstjórnarinnar um niðurfellingu skulda að 110% af verðmæti fasteignar. Barnabætur og vaxtabætur Í greininni kemur réttilega fram að til þess að eiga kost á niðurfell- ingu skulda skv. vilja- yfirlýsingunni er skilyrt að skuldari beri kostn- að af greiðslum af lán- um sem svara til a.m.k. 20% af tekjum. Grein- arhöfundur tekur dæmi af hjónum sem skulda 25 m. kr og eiga 3 börn. Bendir höfundur á að greiðslur af láninu geti verið 108 þúsund krón- ur á mánuði og finnur að 20% af þeirri tölu séu 540 þús. kr. Þá eru raunir fjölskyldunnar raktar, reikn- uð framfærsla fjölskyldunnar og birtur útreikningur sem sýna á að „rekstrarniðurstaða“ heimilisins sé neikvæð um 19,9 þús. kr. og ályktar: „Fjölskyldan sem um er að ræða lepur dauðann úr skel.“ En hér gleymist tvennt. Hið fyrra heitir barnabætur og hið síðara vaxtabæt- ur. Fjölskyldan fær 374,6 þús. kr. í barnabætur og 408,4 kr. í vaxtabæt- ur eða samtals 782,9 þúsund skatt- frjálsar krónur á ári. Miðað við að heimilið hafi 540 þús. kr. í tekjur af atvinnu á mánuði svara þessar bæt- ur til tæplega 2 mánaða ráðstöf- unartekna. Ráðstöfunartekjur fjöl- skyldunnar, að barna- og vaxtabótum meðtöldum, eru 482,8 þús. kr. en ekki 414 þús. kr. eins og haldið er fram í greininni. Rekstr- arniðurstaðan verður jákvæð um ríf- lega 45.000 kr. Fjölskyldan greiðir 108 þús. á mánuði vegna íbúða- lánsins en fær rúmlega 34 þús. í vaxtabætur og nettógreiðslan er 74 þús. kr. Áhrif aðgerða á þessa fjölskyldu Gefum okkur að verðmæti fast- eignar þessarar fjölskyldu sé meira en 25 milljónir kr. Af þeim sökum á fjölskyldan ekki rétt á niðurfellingu skulda, en nýtur hinnar nýju vaxta- niðurgreiðslu, sem gæti numið ½% af skuldum, þ.e. 125 þús. kr. á ári eða 10,4 þús. kr. á mánuði. Þessi skatt- frjálsa greiðsla svarar til þess að tekjur fjölskyldunnar fyrir skatta hafi hækkað um 3,2%. Greiðslubyrði fjölskyldunnar af íbúðarláninu lækk- ar úr 74 þús. kr. í 63,6 þús. kr. næstu tvö árin. Gefum okkur síðan að verð- mæti fasteignar fjölskyldunnar sé t.d. 20 milljónir kr. Fjölskyldan á þá rétt á niðurfellingu skulda sem nem- ur 3 milljónum króna. Það myndi lækka greiðslur fjölskyldunnar af láninu úr 74 þús. kr. á mánuði í 61 þús. kr. Til viðbótar myndi fjöl- skyldan síðan fá 110 þús. kr. í vaxta- niðurgreiðslu og nettógreiðslan verður þá komin niður í 52 þús. kr. Aðgerðapakkinn sem kynntur var 3. desember sl. tekur á vanda fjöl- skyldna sem eru með yfirveðsettar eignir og þunga greiðslubyrði. Vaxtabætur bæta hag tekjulágra fjölskyldna. Hin nýja vaxtaniður- greiðsla er almenn aðgerð sem mun koma 50-60 þúsund heimilum til góða. Aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna Eftir Sigurð Snævarr Sigurður Snævarr »En hér gleymist tvennt. Hið fyrra heitir barnabætur og hið síðara vaxtabætur. Höfundur er efnahags- og atvinnu- ráðgjafi forsætisráðherra. RÚMGÓÐ OG NÝLEG 115 fm 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í LYFTUHÚSI MEÐ STÆÐI Í BÍLSKÝLI OG TVEIMUR GEYMSLUM. Íbúðin skiptist í flísalagða forstofu með skáp. Gott eldhús með borðkrók. Rúmgóða stofu með parketi og gólfsíðum gluggum, útgengt út á suðursvalir. Rúmgóð parketlögð herbergi með skápum. Flísalagt baðherb. með innréttingu, sturtuklefa og baðkari. Innaf baðinu er flísalagt þvottahús með innréttingu. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13-14 SKÓGARSEL 41 - 43, REYKJAVÍK Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013 Dan V. S. Wiium Ólafur Guðmundsson hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 sölustjóri s. 896 4090 jöreign ehf Sölumaður tekur vel á móti áhugasömum. VÖNDUÐ OG VEL MEÐ FARIN ÍBÚÐ Á FRÁBÆRUM STAÐ MEÐ GÓÐU ÚTSÝNI. INNGANGUR FRÁ ÚTISVÖLUM. ÍBÚIÐN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. EKKERT ÁHVÍLANDI. FRÁBÆR STAÐSETGNING. GÓÐ STÆÐI OG LÓÐ VEL FRÁGENGIN. VERÐ KR. 33,9 MILLJÓNIR Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá les- endum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðs- ins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða sam- taka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.