Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
✝ Kristín Rögn-valdsdóttir fædd-
ist á Torfhóli í Hofs-
hreppi í Skagafirði
24. ágúst 1922. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Fjalla-
byggðar 29. nóv-
ember 2010.
Foreldrar hennar
voru Jóhanna Björg
Aðalsteinsdóttir, f.
29. mars 1892 á Húns-
stöðum í Holtshreppi
í Skagafirði, d. 18.
nóvember 1989, og
Rögnvaldur Jónsson, f. 25. mars
1890 á Torfhóli í Óslandshlíð í
Skagafirði, d.13. desember 1938.
Kristín var tekin í fóstur af Guð-
björgu Stefánsdóttur frá Hólakoti í
Hofssókn og hjónunum Margréti
Erlendsdóttur og Sigmundi Sig-
1947. Börn Kristínar og Baldurs
eru: Guðbjörg, f. 1943, gift Svein-
birni Vigfússyni og eiga þau þrjú
börn. Bryndís, f. 1945, gift Gunnari
Steinþórssyni og eiga þau þrjú
börn, Guðrún Margrét, f. 1947, gift
Viktori Ægissyni og eiga þau þrjú
börn, Ólafur, f. 1952, hann á tvo
syni, móðir þeirra er Margrét Jón-
asdóttir, Brynhildur, f. 1961, gift
Jóhanni Ottesen og á hún einn son,
faðir hans er Björn Hannesson.
Barnabörnin eru 12 og barna-
barnabörnin eru 12.
Kristín vann við síldarsöltun eins
og flestar ungar stúlkur gerðu á
Siglufirði á þessum tímum, dvaldi
síðan einn vetur í Reykjavík þar
sem hún var í vist hjá Soffíu Guð-
laugsdóttur leikkonu. Eftir lát
Baldurs vann hún við versl-
unarstörf, fyrst í Bókaverslun
Hannesar Jónassonar og síðar í
verslun Kaupfélags Eyfirðinga á
Siglufirði. Kristín var til margra
ára virkur félagi í Kvenfélaginu
Von á Siglufirði.
Útför Kristínar fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 11. desem-
ber 2010, og hefst athöfnin kl. 14.
tryggssyni. Þau flutt-
ust til Siglufjarðar ár-
ið 1933. Systkini
hennar voru Ragna
Rögnvaldsdóttir, lát-
in, Axel Rögnvalds-
son, látinn, Pálmi
Rögnvaldsson og Ing-
valdur Rögnvaldsson.
Fóstursystkini henn-
ar voru Erlendur Sig-
mundsson, Hulda Sig-
mundsdóttir og
Sigríður Sigurð-
ardóttir sem öll eru
látin.
Kristín kvæntist Baldri Ólafssyni
múrarameistara frá Siglufirði, f.
13. mars 1925, d. 6. desember 1967.
Foreldrar Baldurs voru Þorfinna
Sigfúsdóttir, f. 3. maí 1903, d. 4.
febrúar 1990, og Ólafur Vilhjálms-
son, f. 25. mars 1898, d. 30. janúar
Elsku amma mín, mig langar að
minnast þín með nokkrum orðum.
Hugurinn reikar til baka til allra
góðu stundanna sem við höfum átt
saman frá því ég var lítil stelpa. Ég
man eftir sumrunum, ég vildi alltaf
fara til ömmu á Sigló í öllum fríun-
um. Oftast kom ég ein fljúgandi frá
Akureyri en líka með foreldrum
mínum. Það var alltaf svo gaman og
gott að koma til þín, ég fékk að sofa
uppi í hjá þér og ekkert jafnaðist á
við að fá „ömmugraut“ og lumm-
urnar þínar, sem enginn gerði eins
og þú. Það var alltaf svo notalegt að
vakna hjá þér á sunnudagsmorgn-
um við messu í útvarpinu og finna
lyktina af lambalæri í ofninum, en
þetta er liðin tíð í dag. Á föstudags-
kvöldum gerðum við okkur daga-
mun, ég man alltaf eftir því að ég
rölti niður í Nönnubúð þar sem ég
átti alltaf að kaupa það sama, kók,
nammi og dömuvindla (annars
reyktir þú ekki). Ég man líka alltaf
eftir þér í glugganum á Hvanneyr-
arbrautinni að kíkja eftir því hvort
við værum að koma til Sigló eða
veifa til okkar þegar við vorum að
fara heim til Akureyrar. Það var al-
veg fastur punktur þegar við keyrð-
um inn á Siglufjörð; skyldi amma
vera í glugganum?
Amma mín, þú kenndir mér
margt, þú vildir hafa allt í röð og
reglu og það var ekki sama hvernig
gengið var frá hlutunum. Það varð
allt að vera alveg akkúrat. Þú vildir
alltaf vera fín og vel tilhöfð og
fylgdist svo vel með öllu. Þú fylgdist
vel með knattspyrnu hvort sem það
var hér heima, enski boltinn eða
ítalski og varst með alla leikmenn á
hreinu. Einnig kappakstri og form-
úlunni. Þetta fannst mér alltaf svo-
lítið skemmtilegt.
Það var góður tími sem við áttum
saman sumarið eftir að ég lauk
menntaskóla og kom og vann á
sjúkrahúsinu á Sigló. Ég fékk að
búa hjá þér. Þá spjölluðum við mik-
ið saman um gamla daga þegar þú
vannst í síldinni, um afa og svo
margt, margt fleira. Við vorum
mjög nánar og góðar vinkonur þeg-
ar heilsa þín leyfði og við gátum
rætt allt.
Eftir stúdentspróf var ég að velta
því fyrir mér að fara út til náms en
þér leist ekkert á það, vildir frekar
að ég færi beint í HÍ. Þú varst ekki
róleg ef barnabörnin þín voru á
miklum ferðalögum erlendis.
Lengst af fylgdist þú vel með Baldri
bróður og öllum hans ferðum um
heiminn og hvar hann var staddur í
heiminum hverju sinni í gegnum
póstkortin sem hann sendi þér.
Við spjölluðum alltaf reglulega
saman í síma meðan heilsa þín
leyfði og hringdum oft hvor í aðra
en sl. þrjú ár hefur það ekki verið
hægt þar sem bæði heyrn þinni
hrakaði og heilsu.
Ævi þín var ekki auðveld, þú
varðst ekkja um fertugt með fimm
börn, þó svo að þau tvö elstu hafi
verið farin að heiman. Þá fórst þú út
á vinnumarkaðinn og vannst mikið
alla þína tíð, m.a. í bókaverslun
Hannesar Jónassonar og síðar hjá
KEA.
Síðastliðin þrjú voru þér erfið þar
sem þú dvaldist á Heilbrigðisstofn-
un Fjallabyggðar en við góða
umönnun. Ég var svo glöð í sumar
þegar við mæðgurnar komum til
Siglufjarðar og þú þekktir mig með
nafni og líka hana litlu Guðbjörgu
Lind mína.
Elsku amma mín, ég geymi minn-
inguna um þig alla tíð. Hvíl í friði.
Huld.
Við kveðjum hana elsku ömmu
okkar með söknuði og það eru
margar minningar sem koma upp í
hugann þegar við hugsum til ömmu
Stínu á Sigló.
Minnisstæð eru kvöldin hjá
ömmu í eldhúsinu á Hvanneyrar-
brautinni þar sem amma var með
útsýni út á fallega fjörðinn, þar sát-
um við systurnar við gluggann og
horfðum út, sáum bátana koma inn
og hlustuðum á hana segja
skemmtilegar sögur. Einnig þegar
við keyrðum inn fjörðinn þegar við
komum að heimsækja hana, þá bið-
um við eftir að finna gluggann
hennar því hún beið alltaf eftir okk-
ur til þess að taka á móti okkur veif-
andi.
Amma Stína var dugnaðarforkur,
góð, glæsileg og hjartahlý kona. Var
vel þekkt meðal fólks í bænum og
vildi öllum vel. Hún elskaði punt og
skraut og gátum við eytt stundun-
um saman í að skoða allt dótið
hennar, hvort sem það var inni í
stofu eða inni á baðherbergi, alls
staðar var fallegt skraut. Hún hafði
einnig gaman af því að hafa sig til,
alltaf með nýlagt hár, bar bleikt
naglalakk og bleikan varalit, því
uppáhaldsliturinn hennar var bleik-
ur.
Elsku amma okkar, við þökkum
þér fyrir samfylgdina og við munum
geyma allar góðu minningarnar í
hjarta okkar.
Vertu blessuð, elsku amma,
okkar hugsun með þér fer
yfir hafið hinum megin
horfnir vinir fagna þér.
Þó við dóminn skapa ei skiljum,
skýrist margt við kærleiks yl.
Lítil barnssál líka getur
leitað, saknað, fundið til.
(Höf. óþ.)
Hvíldu í friði, elsku amma okkar.
Kristín (Stína) og Viktoría
Unnur.
Stína frænka var okkur afar kær
allt frá bernsku. Hún var fóstur-
systir mömmu og mikill samgangur
var á milli heimila okkar þegar við
vorum börn á Siglufirði. Góðvild
hennar hefur fylgt okkur alla tíð og
við átt athvarf hjá henni þegar leið-
in hefur legið á heimaslóðir.
Á þessari stundu leitar því hug-
urinn til baka, allt til þess tíma er
Kristín
Rögnvaldsdóttir
likkistur.is
Íslenskar kistur og krossar.
Hagstæð verð. Sími 892 4605
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG INGVARSDÓTTIR,
sem lést aðfaranótt sunnudagsins 5. desember á
heimili sínu, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju mánudaginn 13. desember kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Jóhannsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SVANLAUG ESTER KLÁUSDÓTTIR,
Fjarðargötu 17,
Hafnarfirði,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt miðvikudagsins
8. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fjölskyldur hinnar látnu.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
INGER M. ÞORMÓÐSSON,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 6. desember.
Hörður Þormóðsson,
Steindór Harðarson,
Björn Stefán Harðarson,
Nanna Elísabet Harðardóttir, Guðmundur B. Ólafsson,
Margrét Nana, Birkir Smári, Hörður Egill.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma okkar,
GÓGÓ GRÓA ENGILBERTSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
3. desember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn
13. desember kl. 13.00.
Oddur Ármann Pálsson,
Jóhanna Halldóra Oddsdóttir, Ketill A. Halldórsson,
Guðrún Eydís Ketilsdóttir,
Svandís María Ketilsdóttir.
✝
Okkar ástkæri,
SNORRI HJARTARSON
rafvirkjameistari,
Heiðarbraut 38a,
Akranesi,
lést miðvikudaginn 1. desember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn
14. desember kl. 14.00.
Ása Guðmundsdóttir,
Ásthildur Bjarney Snorradóttir, Þorsteinn Sigurjónsson,
Hjörtur Snorrason, Ingibjörg M. Jóhannsdóttir,
Margrét Snorradóttir, Ármann Hauksson
og afabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
MATTHÍAS BJÖRNSSON
loftskeytamaður og kennari,
Hlaðhömrum 2,
Mosfellsbæ,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 8. desember.
Útförin auglýst síðar.
Fjóla Guðjónsdóttir,
Steingrímur Matthíasson,
Karl V. Matthíasson,
Oddný Soffía Matthíasdóttir,
Einar Pálmi Matthíasson,
Inga Nína Matthíasdóttir,
Stefán Heimir Matthíasson,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.