Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 39

Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 ✝ Þórdís IngibjörgJónsdóttir, alltaf kölluð Lóa, fæddist í Reykjavík 5. desem- ber 1926. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 26. nóvember sl. Foreldrar hennar voru Júlíana Péturs- dóttir frá Malarrifi á Snæfellsnesi, f. 16. október 1896, og Kjartan Ólason, ætt- aður frá Kasthvammi í Laxárdal, S-Þing. Eiginmaður Þórdís- ar var Benedikt Björnsson frá Þor- bersstöðum í Dalasýslu, f. 20. febr- úar 1918, d. 26. júlí 2006, þau skildu árið 1981. Börn Þórdísar eru: 1) Sveinbjörg I. Jónsdóttir, f. 31. júlí 1944, maki Þorvaldur Stefánsson, f. 15.7. 1932, þeirra börn eru: Stefán, Júlíana, Hrund, Sigurborg og Þór- dís, barnabörnin eru fjórtán. 2) Vignir Benediktsson, f. 1. september nær samfleytt til sextán ára aldurs, uns hún kom aftur til Reykjavíkur. Lóa eignaðist ung elstu dóttur sína, Sveinbjörgu en hún ólst upp hjá Júl- íönu ömmu sinni. Hún kynntist litlu síðar mannsefni sínu honum Benna og bjuggu þau saman á fjórða ára- tug og eignuðust Vigni og Birnu. Vegna veikinda Lóu af völdum berkla urðu samvistir hennar við börnin í uppvexti þeirra stopulli en hún hefði kosið, þar sem hún var oft veik og dvaldi langdvölum á Vífils- staðaspítala. Eftir að Lóa hafði náð nokkrum bata af veikindum sínum fluttust þau Benni að Sogavegi 162, og þangað flutti Birna Dís til þeirra, en Vignir átti áfram athvarf hjá fóstru sinni, Vigdísi Blöndal, í heimavist Laugarnesskólans og ólst upp hjá henni. Þau Benni fluttust síðar að Grýtubakka 12 og þar bjó Lóa áfram eftir skilnað þeirra, allt þar til að hún fluttist í þjónustuíbúð á Dalbraut 27 fyrir hálfu öðru ári og síðasta hálfa mánuðinn fyrir andlát- ið dvaldi hún á hjúkrunarheimilinu Eir. Jarðsett var í kyrrþey 6. desem- ber 2010. 1947, d. 11. apríl 2002, hans kona var Guðrún Magnúsdóttir, f. 11. nóvember 1947, d. 19. apríl 2008, þeirra börn eru Vigdís Elín, Davíð Örn og Andri Reyr, barnabörnin eru níu. 3) Birna Dís Bene- diktsdóttir, f. 5. janúar 1949, f.m. Viktor Jóns- son, f. 20. ágúst 1945, þeirra börn: Benedikt Orri (látinn) og Helga Rún, s.m. Birgir Ingi- marsson, f. 25. júní 1956, og er þeirra sonur Brynjar Ýmir, barnabörnin eru fjögur. Lóa ólst upp í Reykjavík hjá Júl- íönu móður sinni og gekk í Austur- bæjarskóla, á sumrin dvöldu þær mæðgur oft vestur á Malarrifi. Um tíu ára aldur fór Lóa austur á Fá- skrúðsfjörð til vinafólks móður sinn- ar, hjónanna Rósu og Marteins kaupmanns og hjá þeim dvaldi hún Við systkinin eigum hvert sínar minningar um ömmu Lóu, enda 17 ár á milli bræðra minna, Benna og Brynjars og svo er ég í miðjunni. Benni var auðvitað mest hjá ömmu og afa, enda bjó hann hjá þeim fyrsta árið með mömmu og pabba. Þá myndaðist strengur á milli ömmu og Benna sem aldrei slitnaði og áttu þau mjög skemmtilegt og stundum sérstakt samband alla tíð. Hann komst upp með hluti sem enginn annar gerði og hann gerði allt sem hún bað um en ekki endi- lega alveg um leið. Fáir stóðu jafn- þétt við hlið hans og voru tilbúnir að verja hann eins og amma þegar honum skrikaði fótur. Mínar minningar um ömmu snú- ast meira um varaliti, naglalökk og búðarferðir. Amma var ótrúlega vandvirk, nákvæm og listræn, vissi hvað hún vildi og ekki síður hvað hún vildi ekki. Þegar farið var út í búð tóku leiðbeiningar og fyrir- mæli lengri tíma en búðarferðin sjálf. Þá var iðulega farið út í Breiðholtskjör og þá þurfti athygl- isgáfan að vera í góðu lagi, kaupa Robin-appelsínur, bláberjaskyr, Jacob’s gráfíkjukex og svo bara fallega ávexti og gott grænmeti. Svo fékk maður eitthvað gott að launum, en alltaf hollt fyrst og hef- ur sú regla erfst í beinan kvenlegg, ef ekki víðar. Hún var með ein- dæmum forvitin og mátti ekki missa af neinu, hlustaði á alla fréttatíma og oft var kveikt á út- varpi og sjónvarpi. Enda var hún ótrúlega fróð um hina ólíklegustu hluti og einu sinni heyrði ég hana ræða um nýjustu efni í múrvið- gerðum við gest í afmælisveislu. Það lenti meira á bræðrunum, Benna og Brynjari að skutlast með ömmu hitt og þetta, til læknis, í Nettó og víðar, enda báðir mun þolinmóðari en systirin. Hún kall- aði Brynjar alltaf Benna en leið- rétti sig, baðst afsökunar og það endaði með því að hann bað hana hreinlega að hætta að leiðrétta sig, hann skyldi bara svara Benna nafninu. Þá voru frændurnir Brynjar og Arnar (Benediktsson) stundum hjá Lóu ömmu og hafa í seinni tíð rifjað upp hvað amma var alltaf áfjáð í að bjóða þeim eitt- hvað að borða og þeir kunnu aldrei við að segja nei þótt þeir væru pakksaddir. Þá áttu þeir til að stríða hvor öðrum og segja ömmu að hinn væri alveg að drepast út hungri og yrði að fá eitthvað að borða og þá færði hún þeim kókó- mjólk og kleinu, nú eða bláberja- skyr. Daginn áður en hún dó fór Brynjar í heimsókn til hennar upp á Eir með Björgu og Dúu litlu. Hún var farin að gleyma hver var hvað undanfarið en var alltaf klár á hver Björg væri, enda stolt af söngkonunni sem dóttursonurinn kom með í fjölskylduna. Þennan dag átti Björg afmæli og hafði frumkvæði að því að heimsækja ömmu á nýja heimilið. Þau stopp- uðu stutt en Dúa fékk að sitja í fanginu á langömmu sinni, spjallaði við hana og heillaði upp úr skónum. Amma leit vel út, var hress og kát og spjallaði, þau sögðu henni frá að Anný hefði verið að kenna mömmu að steikja kleinur og nú væri prjónakennslan næst. Daginn eftir var hún látin. Við þökkum Lóu ömmu fyrir hlýjar og góðar minningar og vit- um að hún er hvíldinni fegin. Helga Rún, Brynjar Ýmir Birnubörn. Fegurð þeirri er gæfan gaf við glötum ei né týnum þó burðarásinn brysti af burðarþunga sínum. Þú ert kona kná og greind sem kosti ýmsa dylur. Yfir þér er einhver leynd sem ekki margur skilur. Ekki verið alltaf hraust, átt samt sterkan vilja, og þér virðist vandalaust að vita margt og skilja. Almættið sem enginn sér ætíð hjá þér vaki. Það er ljóst að ellin er óralangt að baki. (Benedikt Björnsson) Þetta ljóð sendi Benni Lóu ömmu þegar hún var 70 ára eða fyrir 14 árum sem lýsir henni vel og vil ég taka undir fallega ósk um að almættið vaki yfir henni. Með ljúfri kveðju frá Þórdísi Þorvaldsdóttur. Okkur langar til að minnast Lóu sem var fyrri eiginkona Benna móðurbróður míns og systurdóttir Ólafs, fóstra hans Gunna. Hún var alla tíð hluti af lífi okkar beggja og þótti okkur svo undur vænt um hana. Fyrstu minningar mínar tengjast litla húsinu á Sogaveginum en þangað var alltaf notalegt að koma, allt smekklegt og í „sétteringu“ eins og hún sjálf, sem passaði að vera alltaf vel „glöttuð“ (varalituð) og hugguleg. Kynslóðarbilið vafðist aldrei fyr- ir Lóu þegar vinkonurnar og mág- konurnar Ragna (f. 1916), Lóa (f. 1926) og Villa (f. 1935) komu sam- an og seinna fengum við Birna Dís að vera með, vorum við allar eins og jafnöldrur. Skemmtum okkur meðal annars við að spá í bolla og það var alltaf hlegið hátt og mikið og jafnvel fengið sér „smá í te- skeið“ og tekinn snúningur. Lóa var einstaklega minnug og ættfróð sem kom sér vel á ferð okkar um Snæfellsnesið í fyrra- sumar þegar þær Birna og Anný buðu mér með í dagsferð á æsku- slóðir Lóu. Við vorum á tröllajepp- anum hans Bigga sem við þurftum tröppur til að komast upp í en hún lét það ekki aftra sér í að fara alls staðar út til að skoða og fræða okkur um staðhætti og fólkið sem þar hafði búið. Það var ógleymanlegt að koma með henni að Malarrifi þar sem hún var komin „heim“ og þaðan tók hún með sér fallega steina og blóm til minningar um ferðina. Það var líka gott að heimsækja hana á Dalbrautina og finna hvað hún naut sín vel síðasta árið, hafði góða umönnun, félagsskap og nota- legt umhverfi þar sem hún gat set- ið úti í sólinni og spjallað við fólkið. Við erum þakklát fyrir vináttuna og sendum hlýjar kveðjur til af- komenda hennar. Hólmfríður Birna og Gunnar. Þórdís Jónsdóttir Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is                                   ! ""              !"  #   ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát eiginkonu, móður, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR KATRÍNAR JÓNÍNU ÓLAFSDÓTTUR, Faxabraut 13, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs fyrir yndis- lega umönnun og hlýju í hennar garð. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásgeir Einarsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ólöf Birgitta Ásgeirsdóttir, Ása Margrét Ásgeirsdóttir, Auður Ásgeirsdóttir, Hulda Ásgeirsdóttir, Ólafur Sólimann Ásgeirsson, Ásgeir Ásgeirsson, Svafa H. Ásgeirsdóttir, tengdabörn, barnabörn barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs sambýlismanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, RAGNARS BJÖRNSSONAR matsveins. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir góða umönnun síðustu mánuði. Jóna Ásgeirsdóttir, Gunnar Ingi Ragnarsson, Valdís Bjarnadóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Egill Þórðarson, Anna Birna Ragnarsdóttir, Snorri Sigurjónsson, Ásgrímur Ragnarsson, Unni Larsen, Einar Ragnarsson, Hafdís Erla Baldvinsdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Lúther Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ASPAR, Skálateigi 7, Akureyri. Sigríður Jónsdóttir, Skúli Magnússon, Halldór Aspar, Margrét Skúladóttir, Bragi Thoroddsen, Magnús Skúlason og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langa- langafa, GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR frá Bakkagerði. Sæunn Guðjónsdóttir, Birgir Guðjónsson, Björn Guðni Guðjónsson, Halldóra Sigurðardóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KJARTANS MAGNÚSSONAR, Borgarbraut 65a, Borgarnesi. Jóna Sigurðardóttir, Haukur A. Kjartansson, Svanhildur Ólafsdóttir, Eyþór M. Kjartansson, Hanna S. Kjartansdóttir, Anders Larsen, Svandís E. Ragnarsdóttir, afa- og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.