Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 40
Upplýsingatækni Landsbankans telur 114 manns og
ber ábyrgð á framþróun og nýtingu Upplýsingatækni
hjá Landsbankanum. Innan deildarinnar eru þrjár
einingar: Hugbúnaður, Rekstur og Arkitektúr &
gæðamál. Yfirmaður Upplýsingatækni ber ábyrgð
á þessum einingum og framþróun þeirra.
Upplýsingatækni er hluti af Þróunarsviði bankans.
Hugbúnaðarvinna er unnin samkvæmt SCRUM
aðferðafræði í náinni samvinnu við Verkefnastofu
bankans sem einnig er á Þróunarsviði. Hugsjónir
Agile eru hafðar að leiðarljósi í allri þróunarvinnu
og leggur hópurinn áherslu á að afhenda virði
til annarra eininga bankans. Innan hugbúnaðar-
einingarinnar eru þróuð umfangsmikil vöruhús
bankans, auk þess sem ráðgjöf er veitt um nýtingu
og aðlaganir á stærri kerfum.
Rekstur ber ábyrgð á miðlægum búnaði bankans
og gagnaverum, runuvinnslum, útstöðvum og
almennri notendaþjónustu. Ferli einingarinnar eru
byggð á ITIL og mikil áhersla er lögð á stöðugleika
og hátt þjónustustig við starfsmenn og viðskipta-
vini bankans.
Almenn hönnun kerfa og ferla fer fram hjá
Arkitektúr & gæðamálum sem er stoðeining við
framleiðsludeildirnar.
Landsbankinn hefur verið virkur þátttakandi í
framþróun tæknimála á Íslandi og staðið að baki
fjölmörgum verkefnum á þeim vettvangi. Yfirmaður
upplýsingatækni er kyndilberinn í þessum
verkefnum fyrir hönd bankans og andlit hans í
ýmiss konar samstarfi.
Yfirmaður
Upplýsingatækni
Upplýsingatækni Landsbankans er einstaklega vel mönnuð metnaðarfullu og
hæfu tæknifólki. Landsbankinn leggur áherslu á að efla starfsfólk sitt og birtist
það meðal annars í öflugu menntunar- og fræðslustarfi innan Upplýsingatækni.
Laust er til umsóknar starf yfirmanns Upplýsingatækni hjá Landsbankanum.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að vera:
• Afar fær í mannlegum samskiptum og geta leitt
krefjandi mál til lykta með farsælum hætti
• Lausnamiðaður og hafa skilning á þeirri tækni
sem bankinn býr yfir
• Trúaður á öguð ferli í daglegri starfsemi
• Fær um að marka starfseminni stefnu með
hliðsjón af stefnumótun bankans
• Með háskólamenntun sem nýtist í starfi
Æskilegt er að viðkomandi hafi:
• Skilning á undirliggjandi starfsemi bankans
• Víðtæka reynslu af rekstri og þróun kerfa og
nýtingu upplýsingatækni almennt
• Skilning á Agile hugmyndafræði og þeim
aðferðum sem þar er beitt
Helstu verkefni:
• Dagleg umsjón með starfsfólki.
• Móta stefnu og sýn deildarinnar. Tryggja að
verkefnin fylgi stefnu og að unnið sé að þeim
málum sem fyrir liggja.
• Þátttaka í þróunarstarfi annarra deilda bankans
og ráðgjöf um nýtingu tækni.
• Þátttaka í verkefnum utan bankans sem eru
þjóðfélaginu til framfara og bankanum til heilla.
Nánari upplýsingar veita:
Baldur G. Jónsson mannauðsstjóri í síma 410 7904,
netfang: baldur.g.jonsson@landsbankinn.is og
Jensína Böðvarsdóttir framkvæmdarstjóri Þróunar
í síma 410 7011, netfang: jensina.k.bodvarsdottir@
landsbankinn.is.
Umsókn fyllist út á vef bankans www.landsbankinn.is
merkt „Yfirmaður Upplýsingatækni“.
Umsóknarfrestur er til og með 22. desember nk.
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn ehf.
leita að hugmyndaríkum og metnaðarfullum
starfsmanni í skipulagningu og framkvæmd
ferða í hvata- og alferðadeild.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í vaxandi
fyrirtæki. Leitað er að einstaklingi með góða kunnáttu
í frönsku og ensku og reynslu úr ferðaþjónustu.
Umsóknarfrestur er til 17. desember 2010
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu
Íslenskra Fjallaleiðsögumanna
www.fjallaleidsogumenn.is
Sérfræðingur
á viðskiptaþróunarsvið
Ríkiskaup óska eftir að ráða sérfræðing í
fullt starf á viðskiptaþróunarsvið. Um er að
ræða nýtt starf, sem er í senn fjölbreytt,
spennandi og krefjandi. Verkefni sviðsins
eru einkum fræðslu- og kynningarmál og
rekstur rammasamningakerfis Ríkiskaupa.
Meðal helstu verkefna sérfræðings
verða:
Ráðgjöf og greining á þörfum og mark-
miðum fyrir útboð á rammasamningum
Miðlun og öflun upplýsinga um ramma-
samninga til viðskiptavina
Greining á þörfum fyrirtækja og stofnana
ríkisins m.t.t. vöru- og þjónustu-
framboðs í gegnum rammasamninga
Áætlanagerð og mat á árangri samninga
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun, sem nýtist í starfi helst á
sviði viðskipta eða rekstrar
Krafist er 3-5 ára reynslu úr atvinnulífinu
Þekking á innkaupum og reynsla af verk-
efnastjórnun er kostur
Við leitum að einstaklingi sem sýnir frum-
kvæði, er agaður, sjálfstæður og nákvæmur
í vinnubrögðum og vel skipulagður.Tungu-
málakunnátta auk íslensku er að lágmarki
enska og/eða eitt Norðurlandamál.
Ríkiskaup er þjónustufyrirtæki í fremstu röð þar sem vilji er til að
alltaf séu við störf vel þjálfaðir og hæfir starfsmenn sem sinna
starfi sínu af fagmennsku, alúð og ánægju. Ríkiskaup eru ef-
tirsóttur vinnustaður fyrir metnaðarfulla einstaklinga með menn-
tun, reynslu og hæfni til að takast á við áhugaverð og krefjandi
verkefni. Ríkiskaup gera gott fólk betra.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samn-
ingum fjármálaráðuneytisins og viðkom-
andi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Jóhanna E. Hilmarsdóttir, forstöðumaður
Viðskipta- og þróunarsviðs, í síma 530-1410
eða á netfanginu: johanna@rikiskaup.is.
Áhugasamir leggi inn umsókn í afgreiðslu
Ríkiskaupa eða sendi póst á ofangreint
netfang fyrir 23. desember nk.
Smáauglýsingar augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl
atvinna - nýr auglýsingamiðill bílar leiga atvinna fasteignir raðauglýsingar