Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 48
48 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HERRA BORGARSTJÓRI,
GEISLAVIRKU RISASNÍGLARNIR
ERU AÐ NÁLGAST BORGINA!
HERSHÖFÐINGI, HVAÐ
HÖFUM VIÐ LANGANN TÍMA?
ALLAVEGANA
SEX TIL SJÖ
MÁNUÐI
ÉG ÆTTI
AÐ HAFA TÍMA
TIL AÐ FÁ MÉR AÐ
BORÐA
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
ÞETTA Á AÐ
VERNDA MIG
FYRIR SÓL-
MYRKVANUM
ÞAÐ ER ENGIN LEIÐ AÐ
HORFA BEINT Á SÓLMYRKVA
ÁN ÞESS AÐ HLJÓTA
AF ÞVÍ SKAÐA
ÞESS VEGNA STAKK ÉG GAT Á
ÞETTA SPJALD SVO ÉG
GETI SNÚIÐ ÞVÍ AÐ
SÓLMYRKVANUM OG SPEGLAÐ
HONUM Á HITT SPJALDIÐ
ÉG EFAST UM AÐ BEETHOVEN
HEFÐI DOTTIÐ ÞETTA Í HUG
HVERSU MARGA
STRÍÐSMENN ERTU MEÐ
OG HVERSU VEL
ÞJÁLFAÐIR ERU ÞEIR?
HVER
ER ÞETTA
HRÓLFUR?
ÞETTA ER VEÐMANGARI, HANN ÞARF AÐ
REIKNA ÚT STUÐULINN FYRIR BARDAGANN
ÉG FÍLA
JÓHÖNNU
SIGURÐAR-
DÓTTUR
MÉR FINNST
GAMAN ÞEGAR
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
MÆTIR Í VIÐTÖL
EÐA ÞEGAR ÞAÐ
ERU GREINAR UM
JÓHÖNNU
SIGURÐARDÓTTUR
Í MOGGANUM
ÞANNIG AÐ
ÞÚ FYLGIST MEÐ
STJÓRNMÁLUM?
NEI, MÉR
FINNST BARA
GAMAN AÐ
SEGJA JÓHANNA
SIGURÐAR-
DÓTTIR
ÞAÐ VIRÐIST VINSÆLT AÐ
VERA MEÐ SINN EIGIN
MATJURTARGARÐ
VIÐ ÆTTUM LÍKA
AÐ RÆKTA GRÆNMETI,
ÞAÐ SPARAR PENING OG ER
UMHVERFISVÆNT!
FÁUM VIÐ
SKATTAAFSLÁTT?
NEI, EN ÞAÐ ER
MJÖG GEFANDI AÐ RÆKTA
SITT EIGIÐ GRÆNMETI
ÞAÐ ER FERÐALANGUR KOMINN
TIL NEW YORK...
EF
TIL VILL
HEFÐI ÉG EKKI
ÁTT AÐ KOMA
TIL BAKA
ÉG
KANN BETUR
VIÐ MIG Í
VÍÐÁTTUNNI
ÞAÐ ER
EINS GOTT AÐ
ÞÚ SÉRT MEÐ NÓG
AF SEÐLUM!
EN Á
HINN
BOGINN
GETUR BORGIN LÍKA VERIÐ
SKEMMTILEG FYRIR WOLVERINE!
Velferðar- eða
betlisamfélag?
Sumir úr ríkisstjórn-
inni segja að hér eigi
að vera norrænt vel-
ferðarsamfélag.
Hvernig má það vera
þegar fólk á ekki
fyrir mat og bíður í
löngum biðröðum
fyrir utan hjálpar-
stofnanir? Þarna bíð-
ur sjúkt fólk, gamalt
og konur með börn
sem standa úti í
hvaða veðri sem er,
frosti og kulda í
þeirri von að fá smá
matarbita í poka. Ég heyrði í
fréttum útvarps að það væri ekki
hægt að hjálpa öllum sem leituðu
til hjálparstofnana.
Þess vegna vil ég
spyrja ríkisstjórn Ís-
lands: Hvað ætla þeir
að gera til að hjálpa
þessu fólki? Hvernig
væri að fara að
standa við kosninga-
loforð þar sem öllu
fögru var lofað um að
hlúa að þeim sem
minnst mættu sín?
Það er til skammar
fyrir stjórnvöld
hvernig ástandið er
orðið hérna.
Sigrún Reynisdóttir.
Ást er…
… þegar orð geta sært.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Hótel Borg var opnuð árið 1930.Þetta var þá veglegasta gisti-
hús borgarinnar og veitingasalinn
sóttu margir góðborgarar. En
þetta ár var nokkrum Indverjum,
sem áttu leið um Ísland og vildu
gistingu á staðnum, úthýst vegna
litarháttar síns.
Tómas Guðmundsson skáld hafði
forgöngu um að mótmæla þessu
ásamt tveimur kunningjum sínum,
þeim Hendrik Ottóssyni og Vil-
hjálmi S. Vilhjálmssyni. Gestgjaf-
inn á Hótel Borg, Jóhannes Jós-
efsson glímukappi, samþykkti að
bera afgreiðslubannið undir at-
kvæði fastagesta. Reyndust um
200 þeirra vera andvígir banninu,
en aðeins um 20 hlynntir því.
Orti Tómas eftir þetta hið fræga
ljóð um stúlkuna frá Súdan, þar
sem þessi vísuorð eru:
Mér dvaldist við hennar dökku feg-
urð.
Samt dáðist ég enn meir að hinu,
hve hjörtum mannanna svipar saman
í Súdan og Grímsnesinu.
Röskum tveimur áratugum síðar
gerðist það hins vegar, að fest var
upp spjald í anddyri Hótel Borgar,
laugardagskvöldið 10. maí 1952.
Þar stóð: „We do not cater for
colored people here.“ Hér fær þel-
dökkt fólk ekki afgreiðslu. Daginn
eftir gerði Sigurður Magnússon
kennari, sem var um skeið blaða-
fulltrúi Loftleiða, sér lítið fyrir og
reif spjaldið niður. Var af-
greiðslubannið eftir það úr sög-
unni. Sennilega hefur Jóhannes á
Borg ekki verið að fylgja eftir
neinum eigin fordómum í þessi tvö
skipti, heldur aðeins að þóknast
einhverjum viðskiptavinum.
Hið sama er eflaust að segja um
Hermann Jónasson, sem var for-
sætisráðherra árið 1941, þegar Ís-
lendingar sömdu við Bandaríkja-
menn um hervernd. Í skeyti frá
Bertil E. Kuniholm, ræðismanni
Bandaríkjanna á Íslandi, til Banda-
ríkjastjórnar 23. júní 1941 segir:
„The Prime Minister requests that
no negroes be included in the unit
assigned here.“ Forsætisráðherra
óskar eftir því, að engir svertingjar
verði í liðssveitinni, sem skipað
verður niður hér. Þessi setning var
af einhverjum ástæðum felld niður
úr útgáfu Bandaríkjastjórnar á
skjölum árið 1959, án úrfelling-
armerkis, eins og dr. Þór White-
head prófessor hefur bent á.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Í Súdan og Grímsnesinu
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Ég mætti karlinum á Laugaveg-inum léttum á fæti. Hann var
með bók undir hendinni, Fiðrild-
adans eftir Þorstein Valdimarsson.
„Þær eru góðar hjá honum limr-
urnar,“ sagði hann. „Sérstaklega
þessi um kratana, þegar maður
þekkir slektið,“ bætti hann við:
Gamla Vilmundarvitið
er vitanlega’ orðið slitið
á stöku stað –
og þeir stíga’ ekki’ í það
nema stundum, eins og þið vitið.
Og svo fór hann upp Frakkastíg-
inn og sönglaði:
Já, víst er það velkt og slitið
svo verður ei framhjá því litið
að til þess að þvarga
þarf ekki marga
þegar Þorvaldur leggur til vitið.
Jakon Ó. Pétursson var lengi rit-
stjóri Íslendings á Akureyri, einn
þeirra skáldmæltu manna sem svo
mjög settu svip sinn á Akureyri um
miðbik síðustu aldar. Þeir sóttu
gjarna yrkisefni sín í viðburði dags-
ins eða pólitíkina ellegar ortu hver
á annan. Vorið
1974 var risið lágt á krötum sem
oftar:
Æskan skipar öruggt lið,
upp á við hún ratar,
engir leita ofan á við
aðrir en gamlir kratar.
Þegar ég var í MA ljóðuðum við
oft hver á annan fyrir vísnaþáttinn.
Einhverju sinni sagði ég við Jón E.
Einarsson, síðar prest í Saurbæ:
Margan hefur manninn hent
af menntavegi hrata.
Og hann svaraði að bragði:
Andskotans var öngli rennt
upp í flesta krata.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
… þegar Þorvaldur
leggur til vitið
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is