Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Barnagaman er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Óla G. Jó-
hannssonar listmálara sem
opnuð verður í Stúdíó Stafni,
Ingólfsstræti 6, í dag kl. 15. Á
sýningunni eru olíumálverk,
tússteikningar og akrýlmyndir
á pappír en eins og nafnið gef-
ur til kynna er hún sérstaklega
ætluð börnum. „Ég er gamall
refur, sýndi fyrst 1973, og hef
orðið var við hnignun í aðsókn
að sýningum hér á landi. Mín skýring er sú að nýir
árgangar koma ekki inn vegna þess að íslenska
þjóðin hefur gleymt myndlistarfræðslu til barna í
svo langan tíma,“ segir Óli sem vill stemma stigu
við þeirri þróun. Sýningunni lýkur á þriðjudag.
Myndlist
Myndlist á líka
erindi við börn
Eitt af verkum Óla
á sýningunni.
Íslandsdeild Amnesty Inter-
national býður öllum að koma á
skrifstofu deildarinnar í
Reykjavík í dag, laugardag, frá
13 til 18 að Þingholtsstræti 27
og taka þátt í alþjóðlegu bré-
famaraþoni Amnesty Inter-
national sem fram fer í meira
en 60 löndum víða um heim.
Íslandsdeildin tekur nú í sjö-
unda sinn þátt.
Hljómsveitin Varsjár-
bandalagið kemur fram.
Fólki gefst kostur á leggja þolendum mannrétt-
indabrota lið. Í ár er sjónum beint að sex ein-
staklingum í jafn mörgum löndum sem þurfa allir
á stuðningi að halda.
Mannréttindi
Bréfamaraþon Am-
nesty International
Varsjárbandalagið.
Á morgun, sunnudag klukkan
15, verður Kristín Dagmar Jó-
hannesdóttir listfræðingur
með leiðsögn um sýningu hins
nafntogaða norska listamanns
Gardars Eide Einarsson, sem
stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og
hefur verið mjög vel sótt.
Mun Kristín Dagmar varpa
ljósi á hina pólitísku skírskotun
sem felst í verkum listamanns-
ins. Vald og uppreisn er útgangspunktur í verkum
Gardars Eide en þau lúta einnig sínum sjónrænu
lögmálum. Þau eru unnin í ólíka miðla; skúlptúra,
myndbönd, ljósmyndir, fána, málverk og dreifi-
miða.
Myndlist
Leiðsögn um sýn-
ingu Gardars Eide
Kristín Dagmar
Jóhannesdóttir
Fjöldi tónleika af öllu tagi er hald-
inn á aðventunni. Nú um helgina
nær tónlistarframboðið hámarki,
þegar kórar, einsöngvarar, hljóm-
sveitir og ýmiskonar tónlistarhópar
fylla kirkjur og samkomuhús af
fögrum tónum.
Laugardagur
Á aðventutónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands hljómar jóla-
tónlist frá ýmsum tímum í flutningi
tveggja breskra stórsöngvara,
James Gilhrist tenórs og Katherine
Watson sópran, þar sem tónlist eftir
Bach, Handel, Corelli, Mozart og
fleiri verður flutt.
Háskólabíó kl.17.00.
„Hátíð fer að höndum ein“ –
aðventustemning með tónlist og
heitu súkkulaði í Hallgrímskirkju.
Listavinafélag Hallgrímskrikju
býður til tónlistarveislu í kirkjunni.
Í boði verður samfelld aðventu- og
jóladagskrá með kórsöng og org-
elleik Fram koma: Schola Cantor-
um, Björn Steinar Sólbergsson org-
anisti, Drengjakór Reykjavíkur,
Hörður Áskelsson organisti og Mó-
dettukór Hallgrímskirkju.
Hallgrímskirkja, kl. 14-17.
Á jólatónleikum Grafarvogs-
kirkju koma fram kór kirkjunnar
og Vox Populi og flytja jóla- og að-
ventulög. Jón Rafnsson leikur á
bassa, Vignir Stefánsson á píanó,
organistar og kórstjórar eru Hákon
Leifsson og Guðlaugur Viktorsson.
Grafarvogskirkja kl. 17.00.
Hinir árlegu jólatónleikar Gra-
duale Nobili í Langholtskirkju eru
á laugardagskvöldið. Að venju
verða flutt verkin Dancing Day, eft-
ir John Rutter, og Ceremony of Ca-
rols, eftir Benjamin Britten. Einnig
verða flutt íslensk jólalög. Stjórn-
andi er Jón Stefánsson.
Langholtskirkja kl. 22.00.
Sunnudagur
Tónleikar verða haldnir í
Listasafni Íslands, til minningar um
Karl Kvaran listmálara í tengslum
við yfirlitssýningu á verkum hans.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir
Schuloff, Hafliða Hallgrímsson og
Kodály. Flytjendur: Gteta Salóme
Stefánsdóttir, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, Jón Gunnar B. Magn-
ússon og Sigurður Halldórsson.
Listasafn Íslands kl. 14.00.
Árlegir aðventutónleikar kórs
Dómkirkju Krists konungs í Landa-
koti verða á morgun, sunnudag;
tvennir tónleikar. Á efnisskrá eru
innlend og erlend lög og tónverk
tengd aðventu og jólum. Einsöngv-
arar eru Björg Þórhallsdóttir og
Hlöðver Sigurðsson, Hilmar Örn
Agnarsson stjórnar.
Kristskirkja kl. 16.00 og 20.00.
Drengjakór Reykjavíkur held-
ur árlega jólatónleika sína í Hall-
grímskirkju. Dagskráin verður fjöl-
breytt, íslensk og erlend jólalög og
sálmar. Félagar úr Karlakór
Reykjavíkur, sem er verndari
drengjakórsins, koma einnig fram.
Friðrik S. Kristinsson stjórnar,
Lenka Matéóvá leikur á orgel og pí-
anó, Hallfríður Ólafsdóttir á flautu.
Hallgrímskirkja kl. 17.00.
Haukur Guðlaugsson organisti
og fyrrum söngmálastjóri heldur
orgeltónleika í Dómkirkjunni.
Haukur leikur orgelverk tengd að-
ventunni og eigin umritanir.
Tónleikarnir eru hluti af 25 ára
afmæli orgels Dómkirkjunnar.
Dómkirkjan kl. 17.00
Á jólatónleikum Kammerkórs
Mosfellsbæjar verður frumflutt
„Ave Maria“ eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Á tónleikunum verður
fjölbreytt efnisskrá, m.a. verk eftir
Caccini, Handel, Elgar og Cohen,
auk þekktra jólalaga. Stjórnandi er
Símon H. Ívarsson og meðleikari
Arnhildur Valgarðsdóttir.
Guðríðarkirkja kl. 20.00.
Söngsveitin Fílharmónía held-
ur tvenna tónleika í vikunni, á
sunnudags- og miðvikudagskvöld.
Einsöngvari er Valgerður Guðna-
dóttir. Á dagskrá er fjölbreytileg
blanda af kunnum jólalögum og
annarri áhugaverðri tónlist. Stjórn-
andi er Magnús Ragnarsson.
Seltjarnarneskirkja kl. 20.00.
Fjöldi allrahanda tónleika um helgina
Breskir einsöngvarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands Viðamikil dagskrá í Hallgrímskirkju „Ave
Maria“ eftir Gunnar Reyni frumflutt Karls Kvarans minnst Jóla- og aðventutónlist í forgrunni
Katherine
Watson
Björg
Þórhallsdóttir
Haukur
Guðlaugsson
Valgerður
Guðnadóttir
Sýning Hannesar
Lárussonar
myndlistarmanns,
Líkamshlutar í
trúarbrögðum,
verður opnuð á
morgun, sunnu-
dag, kl. 12.10 í
Hallgrímskirkju.
Sýningin er sú
þriðja í sýn-
ingaröð sem List-
vinafélag kirkjunnar stendur að og
kallast „Kristin minni“.
„Ég sýni ný verk; myndbandsverk
sem er hálfgerð altaristafla á þremur
skjáum, svo er ljósmyndaverk í 63
hlutum, og einn stór skúlptúr,“ segir
Hannes.
„Svo er þetta líka performans-
tengt,“ segir hann. Hannes verður
með performans við opnunina, í bún-
ingi og í gervi Hallgríms Péturs-
sonar.
„Ég er að vinna út frá líkamspört-
unum sem birtast alltaf í trúar-
brögðum, tek þá fyrir og nota þá –
augu, tunga, brjóst, typpi, og ég hef
líka rassinn, með spurningarmerki,“
segir hann. „Íkonagrafían í líkams-
pörtunum er þarna.“
Hannes segir að það hafi ekki
breytt nálgun sinni neitt að vera boð-
ið að sýna í kirkju. „Það eina sem er
öðruvísi er að Hallgrímur Pétursson
verður hluti af sýningunni. Það kem-
ur til af því að þessi mynd af Hall-
grími er eina íkonið sem er til á Ís-
landi. Í öllum íkonum er gull og ég hef
hann með gullskalla.“
Við opnun sýningarinnar munu
Hannes og Ólafur Gíslason listfræð-
ingur segja nokkur orð um sýn-
inguna.
Í sýningaröðinni er listamönnum
boðið að vinna verk sérstaklega fyrir
kirkjuna og fá guðfræðing og list-
fræðing til samráðs og samræðu.
Sýningastjóri er Guðrún Kristjáns-
dóttir.
Áður hafa þær Ólöf Nordal og
Hulda Stefánsdóttir sýnt í röðinni.
Hannes
sýnir lík-
amshluta
Sýnir sálmaskáld-
ið með gullskalla
Hannes Lárusson
Held hann hafi þó
gleymt sér um stund
og fundist hann vera kominn
á eigin rokktónleika...56
»
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í gær kom út hjá Crymogeu vegleg
bók um Guðjón Ketilsson myndlist-
armann og er þetta þriðja bókin í
flokki Listasjóðs Dungal um ís-
lenska samtímamyndlistarmenn.
„Ég er mjög sáttur við útkomuna,
vissulega. Það er skrýtin tilfining að
vera kominn með bókina í hendur og
að sjá þetta allt saman. En það er
góð tilfinning,“ sagði Guðjón í gær.
Hann bætti við að hann væri mjög
þakklátur Listasjóði Dungal og út-
gefanda fyrir framtakið.
Guðjón segir að það sé forvitnilegt
fyrir sig að fletta bókinni og þannig
skoða feril síðustu áratuga.
„Ætli ég viti ekki betur núna á
hvað leið ég hef verið,“ segir hann
hugsi. Bætir svo við: „Og þó, ég veit
það í raun ekki neitt!“
Samtímis opnaði Guðjón sýningu í
höfuðstöðvum Crymogeu við Bar-
ónsstíg.
„Þar er ég bæði með splunkuný
verk, teikingar sem ég hef ekki sýnt
áður, og elsta verkið í bókinni, sjálfs-
mynd í tré sem ég sýndi í Nýlista-
safninu fyrir 20 árum. Mér fannst
áhugavert að hafa það verk með, það
markaði ákveðið upphaf.
Nýju verkin eru teikningar með
einskonar „óskiljanlegri“ skrift,
hugsanaflæði. Það er tilraun sem ég
vann að í sumar.
Tilraun er kannski of hátíðlegt orð
– ég byrja verkin nefnilega oft á
hálfgerðu bulli,“ segir hann síðan.
„Oft er ég í vafa um það hvert verkin
stefna en ég teikna
alltaf mikið og stund-
um færast teikning-
arnar út í þrívíða út-
færslu.“
Fyrstu 100 eintök-
um bókarinnar um
Guðjón fylgir tölusett
grafíkverk, kopar-
æting, sem hann vann
upp úr einræðuverk-
unum frá í sumar.
„Ég byrja verkin nefnilega
oft á hálfgerðu bulli“
Guðjón Ketils-
son fagnar útgáfu
bókar með sýn-
ingu
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamaðurinn „Ég teikna alltaf mikið og stundum færast
teikningarnar út í þrívíða útfærslu,“ segir Guðjón.
Í gær kom út bók um Guðjón
Ketilsson myndlistarmann (f.
1956) og feril hans. Ólafur
Gíslason er höfundur textans.
Um leið var opnuð sýning á nýj-
um verkum hans í höfuð-
stöðvum útgefandans, Crymo-
geu, á Barónsstíg 27. Bókin um
Guðjón er sú þriðja í ritröð um
samtímalistamenn sem Crymo-
gea gefur út í samstarfi við List-
sjóð Dungal. Tilgangur bókanna
er að beina sjónum að ein-
stökum, íslensku samtíma-
listamönnum sem
hafa skapað sér
sérstakt og sterkt
tjáningarform. Í
bókinni um Guðjón
sést hvernig lista-
maðurinn vekur
spurningar með
verkum sínum,
spurningar um til-
gang hlutanna og
notkunargildi.
Í ritröð um
samtímalist
BÓKIN UM GUÐJÓN