Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 56

Morgunblaðið - 11.12.2010, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 SPARBÍÓ 3D 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRSÝND Í ÁLFABAKKA FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER HHHH - HOLLYWOOD REPORTER HHHH - MOVIELINE HHHH - NEW YORK POST BRUCE WILLIS, MORGAN FREEMAN, JOHN MALKOV- ICH OG HELEN MIRREN ERU STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGU GRÍN HASARMYND SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝ D Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK BESTA SKEMMTUNIN MEGAMIND-3D kl.43D ísl. tal -83D m/ ensku tali L DUEDATE kl.5:50-8-10:10 10 THELASTEXORCISM kl.6 -8-10:10 16 ÆVINTÝRISAMMA-3D ísl. tal kl.1:303D L LIFEASWEKNOWIT kl.5:30-8-10:30 10 KONUNGSRÍKIUGLANNA ísl. tal kl.1:30-5:40 7 HARRYPOTTER kl.2 -4-5:30-8:30-10 VIP KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D ísl. tal kl.3:303D 7 HARRYPOTTER kl.5:30-8:30 10 FURRYVENGEANCE kl.2 L / ÁLFABAKKA NARNIA3D kl. 23D - 53D - 83D - 10:303D L DUEDATE kl.8 10 LIFEASWEKNOWIT kl. 5 - 8 - 10:30 L ÆVINTÝRISAMMA-3D kl.23D ísl. tal L HARRYPOTTER kl. 2 - 5 - 8 - 10:10 10 KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D kl.23D ísl. tal 7 MEGAMIND-3D kl. 53D ísl. tal L / EGILSHÖLL Frá Íslandsvininum Eli Roth sem færði okkur Hostel ásamt framleiðendum Dawn of the Dead Óhugnaleg spennumynd sem fór beint á toppinn í USA og Bretlandi! Komdu í ferðalag og upplifðu ævintýri Narnia eins og þú hefur aldrei séð áður „ÓGNVÆNLEGA SKEMMTILEG.“  SARA MARIA VIZCARRONDO  BOXOFFICE MAGAZINE HHHHH „SKÖRP OG ÓGNVEKJANDI MYND.“  KIM NEWMAN  EMPIRE HHHH AF TÓNLIST Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Ég er víst í hópi hinna 12 þús-und léttgeggjuðu Íslend-inga sem létu himinhátt miðaverð ekki aftra sér frá að fara í Laugardalshöllina að sjá Björgvin Halldórsson og jólagesti hans. Þetta var á laugardagskvöldinu, á öðrum tónleikum af fernum þá helgi í borginni en þeir fimmtu verða á Ak- ureyri í kvöld. Stemningin var góð í þéttsett- inni Höllinni og dagskráin byrjaði með því að krakkarnir úr Barnakór Kársnesskóla komu inn syngjandi og svífandi með jólaandann. Vín- andi sveif einnig í loftinu en engar hömlur voru á því hvað tónleika- gestir gátu borið með sér af bjór og léttvíni inn í salinn. Þegar á tón- leikana leið var þetta orðið hvim- leitt, ekki síst er bjórdósirnar byrj- uðu að rúlla niður tröppurnar í stúkunni með tilheyrandi hávaða. Björgvin tjaldaði öllu til að þessu sinni og hefur líklega aldrei tekist betur upp en nú. Var ekki að- eins með magnaða söngvara, kóra og hljóðfæraleikara með sér heldur einnig leikstjóra og handritshöf- und, þá Gunnar Helgason og Björn G. Björnsson, að ógleymdum Þóri Baldurssyni hljómsveitarstjóra. Handrit og leikstjórn skemmdu eflaust ekki fyrir en tónleikar sem þessir mega ekki verða of stífir og hátíðlegir, listamenn verða að hafa ákveðið svigrúm til að segja og gera það sem þeir vilja. Ef einhverju var ofaukið í þessum stjörnufansi þá var það annars hinn skemmtilegi leikari, Örn Árnason, því Björgvin hefði vel getað séð um kynninguna sjálfur. Fyrir utan það að sum lögin voru ekkert kynnt og söngvarar kynntu hver annan í einhverjum til- vikum. Ánægjulegast var að sjá að hin- ir íslensku söngvarar stóðu þeim er- lendu ekkert að baki. Paul Potts var þó hápunktur kvöldsins; þvílík rödd sem þessi maður hefur! Og erfitt að ímynda sér að sögurnar sem hann sagði milli laga hafi verið eftir handriti. Ég set Potts efst á listann minn og þar á eftir úr röðum karl- söngvara koma Högni í Hjaltalín, sem flutti Cohen-lagið „Hallelúja“ með ógleymanlegum hætti, Gissur Páll Gissurarson (ótrúlegir tónar frá þeim netta manni), Haukur Heiðar í Diktu og norska hetjan Ry- bak. Helgi Björns var líka góður með ítalska jólasmellinn „Ef ég nenni“. Held hann hafi þó gleymt sér um stund og fundist hann vera kominn á eigin rokktónleika en ekki jólatónleika. Mér fannst hins vegar Summer Watson lítið eiga í þær íslensku dív- ur sem stigu á svið; Röggu Gísla, Valgerði Guðna, Sigríði Thorlacius í Hjaltalín og Jóhönnu Guðrúnu. Watson var ágæt en hinar voru bara betri. Jóhanna var þó að mínu mati helst til of hátt uppi, en það gæti hafa verið hljóðkerfið sem truflaði. En hljóðkerfið mun hafa farið verst með stórtenórinn Kristján Jóhanns- son. Í öllu falli fékk maður þá skýr- ingu eftir á, í viðtali við Kristján á Bylgjunni, að eitthvað hefði farið úrskeiðis, en þaðan sem ég sat uppi í stúkunni miðri kom þetta út eins og Kristján hefði eitthvað farið út af sporinu í Ave María. Það getur tæp- ast hafa verið þannig og vonandi virka tólin fyrir hann á heimavelli fyrir norðan í kvöld. Þar verða eng- ar erlendar stórstjörnur en í hópinn bætist annar heimamaður, Óskar Pétursson frá Álftagerði. Því segi ég að lokum við Björgvin: Takk fyr- ir mig, en næst þarftu ekki að sækja söngvatnið yfir lækinn. Landinn er bestur – og líka ódýrari! Söngvatnið sótt yfir lækinn » Takk fyrir mig,Björgvin, en næst þarftu ekki að sækja söngvatnið yfir lækinn. Landinn er bestur – og líka ódýrari! Ljósmynd/Guðmundur Lúðvíksson Jólagestir Björgvin Halldórsson var flottur í Laugardalshöllinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.