Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 60

Morgunblaðið - 11.12.2010, Side 60
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Logi Geirs búinn að missa það 2. Pabbi á bar - barn beið í bíl 3. Hún hélt ég væri hommi 4. Íslendingar ráða ekki við skuldir  Fyrsti jólasveinninn, Stekkjarstaur, kemur til byggða á morgun og mun hann koma við í Þjóðminjasafninu kl. 11, þegar morgunverkinu lýkur, þ.e. að gefa góðum börnum í skóinn. Morgunblaðið/Golli Stekkjarstaur í Þjóðminjasafninu  Hljómsveitin Brother Grass fór með sigur af hólmi í Jólalaga- samkeppni Rásar 2 með lagið „Jól“. Lagið samdi Örn Eldjárn gítarleikari en auk hans skipa fjórar stúlkur hljómsveitina: Sandra Dögg Þorsteins- dóttir, Soffía Björg, Ösp Eldjárn og Hildur Halldórs- dóttir. Í 2. sæti varð lag Valgeirs Skag- fjörð, „Ástfangin á aðfangadags- kvöld“. Brother Grass átti besta jólalagið  Á morgun kl. 14 verður frumgerð jóla- og bílnúm- erarevíu Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Del- eríum Búbónis, frá árinu 1954, flutt í Útvarps- leikhúsi Rásar 1. Í verkinu segir af Ægi Ó. Ægis, for- stjóra Gleðilegra jóla hf., sem hyggst flytja inn jólatré og ávexti fyrir jólin. Óvænt atvik setur strik í reikninginn og vart annað hægt að gera en að fresta jólum fram í mars. Deleríum Búbónis í Útvarpsleikhúsinu FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða bjartviðri, en dálítil væta við vesturströndina síðdegis. Hiti 1 til 8 stig, en vægt frost í innsveitum norðaustan til á morgun. Á sunnudag Fremur hæg suðlæg átt. Skýjað en úrkomulítið vestanlands, annars bjart- viðri. Hiti 1 til 7 stig, en vægt frost í innsveitum norðaustan- og austanlands. Á mánudag Suðaustan 5-10 við suðvesturströndina, annars hægari. Víða léttskýjað og hiti 0 til 7 stig, en vægt frost til landsins. „Maður hafði virkilega gaman af þessu eftir að hafa verið orðinn mjög þreyttur og virkilega farinn að spá í að hætta í fótboltanum,“ segir Gunn- ar Heiðar Þorvaldsson, knatt- spyrnumaður frá Vestmannaeyjum, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann skoðar nú næsta skref sitt á ferlinum og segir að þar komi ýmislegt til greina. »1 Var virkilega farinn að spá í að hætta þessu „Er það bara ég, eða finnst fleirum kjánalegt að sjá áletranir eins og „Gud- mundsdottir“ og „Sig- urdsson“ aftan á keppnis- treyjum íslenska íþróttafólksins okkar á stórmótunum? Einhverra hluta vegna hef ég aldrei verið sáttur við að sjá föðurnöfnin á íslensku landsliðsbúningunum.“ Sjá pistil í íþróttablaðinu. »2 Eiginnöfnin aftan á búningana? „Má ég þá biðja um kraftaverk og á ég þá ekki við hljómsveitina Krafta- verk frá Bolungarvík. Nú er alla vega þörf á góðu kraftaverki svo að ís- lensku handboltakonurnar geti skellt heimsmeisturunum með átta marka mun á sínu fyrsta stórmóti,“ skrif- ar Kristján Jónsson frá Árósum um kvennalands- liðið í handbolta. »4 Nú er þörf á góðu kraftaverki í Árósum Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Við höfum alltaf sungið rosalega mikið og mikil sönghefð inni á heim- ilunum þegar allir voru að alast upp,“ segir Anna Sigga Ellerup, lögfræð- ingur og kórsöngkona. Um helgina halda Frostrósir inn- reið sína í höfuðborgina með fernum tónleikum og svo skemmtilega vill til að á sviðinu í Laugardalshöll samein- ast hvorki meira né minna en níu fjöl- skyldumeðlimir af þremur ættliðum. Fyrsta má nefna móðurbræður hennar tvo, sem hafa um árabil sung- ið með karlakórnum Fóstbræðrum. Kona annars þeirra og tvær dætur þeirra syngja með Önnu Siggu í kvennakórnum Vox Feminae, sem kemur fram á tónleikunum. Syngja líka á gamlárskvöld Þriðji Fóstbróðirinn úr fjölskyld- unni sem syngur á tónleikunum er eiginmaður Önnu Siggu, Geir Gunn- laugsson. Þau hjónin deila sviðinu því með frænkum og frændum, en einnig börnum sínum. Dóttir þeirra, Sigrún Helga, er að- eins átta ára en er þó að syngja á sín- um fimmtu jólatónleikum með Stúlknakór Reykjavíkur. „Hún var með í fyrra og fannst svo skemmti- legt á Frostrósum að hún pantaði að fá að vera með á öllum tón- leikum héðan í frá,“ segir Anna Sigga og bætir því við að það sé mjög gef- andi fyrir börnin að fá að taka þátt í svo metnaðarfullum æf- ingum með þraut- þjálfuðu tónlistar- fólki. Tvíburabróðir Sigrúnar Helgu, Gísli Gunnlaugur, tekur einnig þátt í tónleikunum sem eitt af vetrarbörnum Frostrósa. Aðventan er því hreinlega undirlögð af tónleika- haldi og æfingum hjá fjölskyldunni. Kannski má þó segja að það sé aðeins löng upphitun fyrir áramótin, en þá er einmitt vaninn að fjölskyldan hittist öll og syngi saman langt fram á nótt. Jólatónlistin færir gleði „Það fer allur tíminn í þetta, því svo erum við auðvitað öll með okkar tón- leika að auki. Það hafa því nánast ver- ið æfingar á hverjum degi.“ Anna Sigga þverneitar því þó að fjölskyldan sé orðin leið á jólalög- unum þótt þau hafi byrjað að syngja þau í byrjun nóvember og jafnvel fyrr. „Þegar maður syngur svona fal- lega tónlist þá fær maður gleði í hjartað og jólin koma. Þetta er alveg dásamlegt.“ Öll aðventan undirlögð af söng  Níu fjölskyldu- meðlimir á sviði með Frostrósum Morgunblaðið/Kristinn Mörg Geir Gunnlaugsson, Anna Sigga Ellerup, Svana Kristín Elísdóttir, Gunnar Reynarsson, Ástrós Elísdóttir, Elís Reynarsson, Steinunn Kristín Jónsdóttir. Fyrir framan eru systkinin Sigrún Helga og Gísli Gunnlaugur Geirsbörn. Frostrósir halda alls 29 tónleika á aðventunni en stórfjölskyldan kemur þó aðeins fram öll saman á þeim tónleikum sem fram fara í Reykjavík. Mikill fjöldi tónlistarfólks tengist tónleikunum því auk helstu flytjenda voru ýmsir kórar á landsbyggðinni fengnir til þess að stíga á svið á hverjum stað fyrir sig þeg- ar hópurinn ferðast um landið. Þar má nefna Stúlknakór Ísafjarðar, barnakór Snæfellsbæjar, barnakór Egilsstaða- kirkju, karlakórinn Geysi á Akureyri, kór Holtaskóla, ung- lingakór Selfosskirkju, skólakór grunnskóla Reyðarfjarðar o.fl. Fernir tónleikar verða í Laugardalshöll um helgina og er uppselt á þrenna þeirra en enn eru nokkrir lausir miðar á aukatónleika á sunnudag klukkan 16. Kórar um allt land eru með TUGIR SÖNGFÓLKS SYNGJA MEÐ FROSTRÓSUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.