Morgunblaðið - 04.01.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 04.01.2011, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Hreggviður Harðarson, 21 árs Ak- ureyringur sem slapp úr húsi við Eiðsvallagötu á sunnudagsmorgun eftir að eldur kom upp í kjallara, seg- ist ekki hafa gert sér almennilega grein fyrir því hve naumlega hann og vinir hans sluppu fyrr en eftir að hafa séð fréttir um málið. Fjögur ungmenni voru sofandi í húsinu þegar eldur kviknaði í kjall- ara. Reykur var gríðarlegur og lagði um húsið. Einn íbúanna, sem svaf á efri hæðinni, vaknaði þegar húsið var barið utan. Hann gat ekki vakið par sem líka svaf á efri hæðinni en náði að vekja Hreggvið, sem svaf á jarðhæð. Parið á efri hæðinni vaknaði ekki fyrr en reykkafarar brutust inn til þess og komu því út. Sá sem vaknaði fyrstur reyndi síðan að komast niður í kjall- ara þar sem hann taldi að minnsta kosti einn vin sinn sofandi, jafnvel tvo. En svo mikill reykur gaus upp þegar hann opnaði dyr niður í kjall- arann að hann varð frá að hverfa. „Annar strákanna sem býr niðri er ekki mikið heima – er mest hjá kær- ustunni, en hinn þurfti að vinna dag- inn eftir. Við vorum með gaml- árspartí, hann hélt að við yrðum jafnvel aftur með partí og hann gæti ekki sofið vegna hávaða og ákvað því að fara heim til mömmu sinnar um nóttina og sofa þar,“ sagði Hreggviður í gær, spurður um félaga sína sem búa í kjallaranum. „Við héldum að að minnsta kosti annar væri niðri og vor- um í algjöri sjokki.“ Hreggviður var að skemmta sér í miðbænum fram eftir nóttu en hélt heim á leið eftir að hann hitti vinkonu eins samleigjenda sinna. „Við fórum heim, ég fór svo að sofa einhvern tíma á milli 5 og 6 og var svo vakinn stuttu seinna. Ég hafði verið að drekka og áttaði mig ekki strax á því hvað hafði gerst.“ Ungmennin fóru öll fjögur á Sjúkra- húsið á Akureyri og höfðu verið þar í um hálfa klukkustund þegar þau fengu að vita að enginn hefði verið í kjall- aranum. Og var þá heldur betur létt, að sögn Hreggviðs. Héldu tvo sofandi í kjallaranum  „Vorum í algjöru sjokki“  Fengu að vita eftir hálftíma á sjúkrahúsi að engum hefði orðið meint af  Reykkafarar brutu upp hurð og vöktu sofandi par Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Áttaði sig ekki strax Hreggviður Harðarson ræðir við vin sinn í síma í gær. Undir lok síðasta árs átti Seðlabank- inn stór gjaldeyrisviðskipti sem stuðla eiga að því markmiði að draga úr gjaldeyrismisvægi í bókum fjár- málastofnana, einkum stóru við- skiptabankanna þriggja. Við stofnun þeirra myndaðist misvægi milli eigna og skulda í erlendum gjald- miðlum, en stór hluti eigna föllnu bankanna var í formi útlána í erlend- um gjaldmiðlum. Samsvarandi skuldir urðu hins vegar eftir í þrotabúunum. Gjaldeyrismisvægið hefur verið umfram reglur Seðla- bankans, en töluvert hefur þó dregið úr því á árinu. Seðlabankinn keypti nú annars vegar gjaldeyri fyrir 24,6 milljarða króna, og gerði hins vegar samning um framvirk viðskipti fyrir alls 47,9 milljarða króna við Íslandsbanka. Síðarnefndi samningurinn felur það í sér að á næstu fimm árum mun Ís- landsbanki greiða Seðlabankanum jafnvirði þessara tæpu 48 milljarða í erlendri mynt. Seðlabankinn greiðir Íslandsbanka sömu upphæð í ís- lenskum krónum. Með þessum viðskiptum slær Seðlabankinn tvær flugur í einu höggi, því auk þess að draga úr gjaldeyrismisvægi bankanna stækk- ar gjaldeyrisforði hans án þess að til lántöku komi. Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að hann hafi keypt gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir um 30 milljarða króna á síðasta ári, að meðtöldum vikulegum kaup- um sem hófust undir lok ágúst. einarorn@mbl.is Kaupir gjaldeyri fyrir 72,5 milljarða króna Morgunblaðið/Ernir  Dregur úr gjaldeyrismisvægi og eykur við forða Margfaldur ræðukóngur Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra, talaði mest allra á haustþinginu sem hófst 1. október síðastliðinn. Steingrímur hefur talað alls 180 sinnum í ræðum og andsvörum það sem af er 139. löggjafarþinginu og samtals í 591 mínútu. Næstur hon- um kemur annar ræðukóngur, Pétur H. Blöndal, sem tekið hefur til máls 205 sinnum og talað í samtals 547 mínútur. Í þriðja sæti er Ásbjörn Óttarsson sem talað hefur 135 sinn- um, samtals í 479 mínútur. Guð- laugur Þór Þórðarson hefur tekið til máls 130 sinnum og talað í 430 mín- útur samtals. Steingrímur er sem kunnugt er þingmaður VG en hinir þrír eru í Sjálfstæðisflokknum. Sá sem styst hefur talað er Atli Gíslason, þing- maður VG. Hann hefur talað þrisv- ar, samtals í 5 mínútur. Þegar Stein- grímur var í stjórnarandstöðu var hann ræðu- kóngur Alþingis á nokkrum þingum og sömu sögu má segja af félögum hans Jóni Bjarna- syni og Ögmundi Jónassyni. Hins vegar dró úr ræðuhöldunum þegar þeir félagar settust í ráðherrastóla. Hlé var gert á störfum Alþingis 18. desember síðastliðinn og það mun koma saman á ný 17. janúar næstkomandi. sisi@mbl.is Steingrímur með for- ystu eftir fyrstu lotu Steingrímur J. Sigfússon Fuglalífið er fjörugt við Bakkatjörn á Seltjarn- arnesi og þar á margur fuglinn sér öruggt grið- land. Þegar kalt er í veðri eiga aðrir gestir og gangandi það líka til að koma færandi hendi og það kunna íbúarnir vel að meta enda er þá gjarn- an kallað til ættar- og vinamóts. Morgunblaðið/Ómar Fuglafjör við Bakkatjörn Ekki er vitað hvernig eldur kviknaði í þvottaherbergi í kjall- ara hússins við Eiðsvallagötu. Lögreglan útilokar ekki að kviknað hafi í af mannavöldum en segir reyndar ekkert benda sérstaklega til þess. Vert er þó að nefna að mestur eldur var ekki við rafmagnstækin heldur í hillu næst opnum glugga. Eldsupptök eru enn óljós EIÐSVALLAGATA Opinn Kjallaraglugginn á húsinu. Vinnueftirlitinu bárust 15.686 til- kynningar um vinnuslys frá 1. janúar 2001 til 31. desember 2010, segir í pistli Kristins Tómassonar yf- irlæknis á heimasíðu eft- irlitsins. Þar af voru 32 banaslys, 203 slys sem leiddu til þess að starfsmenn urðu óvinnufærir og 768 sem urðu til þess að starfsmenn voru frá vinnu í 14 daga eða meira eftir slys. „Öll þessi 15.686 slys sem tilkynnt voru á tíu ára tímabili eru í eðli sínu óþörf og hefði með einum hætti eða öðrum mátt fyrirbyggja,“ segir Kristinn. Þessi slys séu einungis þau alvarlegustu, og þar af leið- andi tilkynningarskyld til Vinnu- eftirlitsins. Reynir segir það grundvallarmannréttindi að búa við öryggi í vinnu og að líkamlegri eða andlegri heilsu sé ekki stefnt í voða. Á tímum sparnaðar sé árang- ursríkt „að bæta mannréttindi, og er vinna án vinnuslysa mikilvægur hluti af því“. Yfir 1.500 alvar- leg vinnuslys á ári í áratug Kristinn Tómasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.