Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
ÞÚ ERT
ÞAÐ SEM
ÞÚ BORÐAR
holar@holabok.is
LOKSINS FÁANLEG
AFTUR Á ÍSLANDI
Bók sem hefur hjálpað
mörgum til betra lífs.
Um áramót er ákveðið hvaðstandi upp úr á liðnu ári.
Þetta var m.a. mat eins vefmiðils-
ins:
Stjórnmála-skólastjóri árs-
ins: Bryndís Hlöð-
versdóttir,
fyrrverandi þing-
maður Samfylking-
arinnar, var ráðin
skólastjóri stjórn-
málaskóla Samfylk-
ingarinnar. Hún tók
við af Magnúsi Árna
Magnússyni, fyrr-
verandi þingmanni
jafnaðarmanna.
Hann tók við af
Ágústi Einarssyni, fyrrverandi
þingmanni Þjóðvaka. Hann tók við
af Runólfi Ágústssyni, fyrrverandi
efsta manni á framboðslista Þjóð-
vaka á Vesturlandi.
Heimur ársins: Már Guðmunds-son skýrði Jóhönnu Sigurð-
ardóttur frá því að „í hinum al-
þjóðlega seðlabankaheimi“ væri
grannt fylgst með því hvort hann
fengi 400.000 króna launahækk-
unina sem honum hefði verið lofað í
forsætisráðuneytinu, þrátt fyrir úr-
skurð kjararáðs. Það myndi hafa
slæm áhrif á orðspor Íslands ef
launin yrðu ekki hækkuð.
Niðurstaða ársins: Skúli Helga-son greiddi því atkvæði að
Geir Haarde yrði ákærður. Kvaðst
hann hafa rannsakað málið mjög
vel áður en hann hefði tekið
ákvörðun. „Mín niðurstaða er sú að
Geir H. Haarde, sem er fjár-
málaráðherra frá árinu 1995, hafi
haft allar upplýsingar sem hann
þurfti til þess að grípa til mark-
vissra viðbúnaðaráætlana og
tryggja það að þeim væri fylgt
kröftuglega eftir,“ sagði Skúli í við-
tali eftir atkvæðagreiðsluna. Geir
varð ekki fjármálaráðherra fyrr en
1998. Hvernig ætli flóknari atriði
séu í huga þingmannsins?
Skúli Helgason
Árans ári
STAKSTEINAR
Már
Guðmundsson
Veður víða um heim 3.1., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -1 snjókoma
Egilsstaðir -1 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 4 skýjað
Nuuk 0 heiðskírt
Þórshöfn 5 þoka
Ósló -7 heiðskírt
Kaupmannahöfn -3 heiðskírt
Stokkhólmur -12 heiðskírt
Helsinki -13 skýjað
Lúxemborg -1 skýjað
Brussel 2 léttskýjað
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow 2 súld
London 2 alskýjað
París 2 skýjað
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg 0 þoka
Berlín -2 skýjað
Vín 1 snjókoma
Moskva -10 heiðskírt
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 10 léttskýjað
Mallorca 10 léttskýjað
Róm 8 skýjað
Aþena 11 skúrir
Winnipeg -25 léttskýjað
Montreal -2 skýjað
New York 0 heiðskírt
Chicago -1 léttskýjað
Orlando 16 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:16 15:50
ÍSAFJÖRÐUR 11:57 15:19
SIGLUFJÖRÐUR 11:41 15:01
DJÚPIVOGUR 10:54 15:11
Lögreglustjórinn á höfuðborg-
arsvæðinu krafðist í gær – og fékk
samþykkt – gæsluvarðhalds yfir karl-
manni sem handtekinn var vegna lík-
amsárásar í miðborg Reykjavíkur á
nýársnótt. Maðurinn verður í haldi
lögreglu til föstudagsins næstkom-
andi. Fórnarlamb mannsins var flutt
á gjörgæsludeild Landspítala eftir
árásina en hefur verið útskrifað af
deildinni.
Athygli vekur að öðrum karlmanni
sem játaði á sunnudagskvöld að hafa
veist að manni í miðborginni aðfara-
nótt sunnudags, að tilefnislausu, var
sleppt úr haldi í kjölfarið. Fórn-
arlamb hans er enn í lífshættu á gjör-
gæsludeild Landspítala.
Ómari Smári Ármannsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn sagði í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is,
í gær að farið hefði verið fram á
gæsluvarðhald á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna. Árásin hefði verið
það alvarleg að grundvöllur var fyrir
kröfunni.
Hins vegar gat Ómar Smári ekki
svarað því hvers vegna ekki var farið
fram á gæsluvarðhald yfir hinum
manninum, þá á grundvelli almanna-
hagsmuna þar sem hann hefur þegar
játað. Vísaði Ómar Smári á Jón H.B.
Snorrason, yfirmann ákærusviðs lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins. Ekki
náðist í Jón H.B. þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir í gærdag.
Litið til ýmissa þátta
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fengust þó frá lögreglunni er all-
ur gangur á því hvort farið sé fram á
gæsluvarðhald í árásarmálum þar
sem játning liggur fyrir. Líta þurfi til
sakarferils árásarmannsins, tildraga
árásarinnar og hvort það stríði gegn
réttarvitund manna að árásarmað-
urinn gangi laus á meðan mál hans er
til meðferðar. andri@mbl.is
Annar árásarmanna
verður áfram í haldi
Fórnarlömbin bæði enn á sjúkrahúsi
Jón Laxdal Arnalds,
fyrrverandi dómari og
ráðuneytisstjóri, and-
aðist á heimili sínu s.l.
sunnudag. Hann var
fæddur í Reykjavík
28. janúar 1935, sonur
hjónanna, Guðrúnar
Jónsdóttur Laxdal,
kaupkonu í Reykjavík,
og Sigurðar Arnalds,
útgefanda og stór-
kaupmanns. Hann læt-
ur eftir sig eiginkonu,
Ellen Júlíusdóttur.
Hann var áður kvænt-
ur Sigríði Eyþórs-
dóttur og eru börn þeirra Eyþór
og Bergljót.
Að loknu lögfræðiprófi frá Há-
skóla Íslands árið 1961 stundaði
Jón framhaldsnám í hugverka- og
auðkennarétti í London og kynnti
sér einnig þetta sérsvið lögfræð-
innar í Þýskalandi og Danmörku.
Jón starfaði sem héraðsdóms-
lögmaður fyrst eftir framhalds-
námið og varð síðar hæstarétt-
arlögmaður en réðst til starfa í
stjórnarráðinu 1964, fyrst sem
fulltrúi og deildarstjóri en gegndi
síðan starfi ráðuneytisstjóra í sjáv-
arútvegsráðuneytinu frá stofnun
þess árið 1970 til 1985.
Jón átti sæti í fjölmörgum op-
inberum nefndum og stjórnum en
einnig var hann fulltrúi Íslands í
ýmsum alþjóðlegum nefndum um
fiskveiðimál á þeim
árum þegar Íslend-
ingar færðu út land-
helgina úr 12 mílum í
200 mílur og má sem
dæmi nefna að hann
var fulltrúi Íslands í
íslensk-norskri fisk-
veiðinefnd um fram-
kvæmd á stjórnun
fiskveiða á Jan Ma-
yen svæðinu 1980 til
1985 og form. sendi-
nefndar Íslands á að-
alfundum
Norðaustur--
Atlantshafsfiskveiði-
nefndarinnar 1972 til 1985 og for-
seti nefndarinnar í nokkur ár.
Hann átti einnig sæti í sendinefnd
Íslands á hafréttarráðstefnum SÞ
1974 til 1982.
Eftir að Jón lauk störfum í sjáv-
arútvegsráðuneytinu varð hann
borgardómari. Hann var einnig
dósent, stundakennari og prófdóm-
ari við lagadeild Háskóla Íslands
um langt skeið og eftir hann liggja
ýmis fræðirit og greinar um einka-
leyfarétt og helstu meginreglur
vörumerkjaréttar. Hann átti og
rak einkaleyfaskrifstofuna Faktor
frá 1969-2006.
Jón sat um skeið í stjórn Verð-
bréfaþings Íslands hf. og Kaup-
hallarinnar hf. Hann var alllengi
forseti Guðspekifélags Íslands, svo
og aðalræðismaður Indlands.
Jón Laxdal Arnalds
Andlát
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga safnar notuðum frímerkjum í
samstarfi við Póstinn fram til loka
janúar, en ágóðanum af söfnuninni,
sem hefur yfirskriftina „Hendum
ekki verðmætum!“ verður varið í
þróunarstarf á sviði menntunar
barna, unglinga og fullorðinna í Eþí-
ópíu og Keníu. Tekið er á móti frí-
merkjum, bæði afklipptum og á um-
slögum, á póstafgreiðslum Póstsins
um land allt til 31. janúar. Einnig er
tekið á móti frímerkjum allan ársins
hring á Basarnum og skrifsotfu
Kristniboðssambandsins í Austur-
veri við Háleitisbraut, og í Litla hús-
inu við Glerárgötu á Akureyri.
Styrkja menntun í Afríku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Söfnun Notuð frímerki eru verðmæt