Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
ÍTRX notar hver og einn sér-stakt band til að gera fjöl-breyttar æfingar sem reyna áallan líkamann. TRX stendur
fyrir „total body resistance exerc-
ise“ en æfingarnar ganga einmitt út
á að nota líkamsþyngdina sem mót-
stöðu. „TRX snýst um að hvar sem
þú ert þá geturðu alltaf notað band-
ið. Þú getur hengt það í ljósastaur, í
tré eða á hurð. Það er líka létt og
meðfærilegt,“ segir Sveinbjörn sem
rekur TRX á Íslandi.
Hann segir alla sem skrá sig í
herinn í Bandaríkjunum fá TRX
band og eru hermönnunum kenndar
æfingar en að auki fylgja geisla-
diskur og lítil kennslubók með band-
inu. „Þetta er opinbert æfingatæki
fyrir herinn,“ segir Sveinbjörn en
TRX bandið var valið eitt besta tæk-
ið til að þjálfa allan líkamann árið
2009 í tímaritinu Men’s Health.
Skemmtilegt en erfitt
Sveinbjörn segir hvern og einn
stjórna mótstöðunni og álaginu á
æfingum. „Með því að nota böndin
geturðu stjórnað því hve mikinn
hluta af þinni líkamsþyngd þú notar.
Þannig hentar þetta fyrir hvern sem
er og fólk í tímum hjá okkur sem er
í dúndurformi er jafnbúið á því eftir
æfingu og fólk sem er í nær engu
formi og er að stíga fyrstu skrefin.
Um leið og þú ert byrjaður að nota
þína eigin líkamsþyngd en ekki lóð
og annað þá verður líka minna álag
Hægt að æfa TRX
hvar sem er
Þegar Randy Hetrick var í bandaríska hernum á 10. áratug síðustu aldar var
hann stöðugt að leita leiða til að halda sér í góðu formi. Hann prufaði sig áfram
með fallhlífabönd ásamt félögum sínum og árið 2005 hóf hann að markaðssetja
þetta nýja æfingakerfi sem hann nefndi TRX. Sveinbjörn Sveinbjörnsson heldur
TRX námskeið hér á landi og segir hann æfingarnar henta öllum, atvinnu-
íþróttafólki sem og þeim sem hafa lítið æft.
Morgunblaðið/Ernir
Þjálfarinn Sveinbjörn Sveinbjörnsson heldur TRX námskeið hér á landi.
Bar Method nefnist líkamsrækt-
araðferð sem mótar líkamann og liðk-
ar hann. Haldið er úti bloggsíðu fyrir
Bar Method á slóðinni Blog.barmet-
hod.com þar sem margt gagnlegt má
lesa um líkamsrækt. Auðvitað koma
bloggfærslur sem eru auglýsingar á
bókum, mynddiskum og öðru sem
viðkemur Bar Method en flestar
færslurnar eru líkamsræktatengdar.
Til dæmis er nýleg færsla sem
fjallar um tíu áramótaheit sem inni-
halda ekki æfingar. Heitin eru hugsuð
fyrir fólk sem er í þjálfun því fólk sem
æfir veit að breyting er möguleg, það
hefur gert það áður og getur því gert
það aftur á öðrum sviðum. Áramóta-
heitunum er skipt í þrjú fyrir líkam-
ann, þrjú fyrir hugann, þrjú fyrir
hjartað og svo er eitt sem hvetur til
þess að það sé a.m.k farið eftir einu
af hinum heitunum níu. Þarna er t.d
farið í líkamsstöðu og hvernig má
bæta hana og eitt heitið fjallar um
hversu gott það er fyrir hjartað að
leyfa einhverjum nánum að vinna rök-
ræður.
Fleira er á síðunni, þarna er fjallað
um æfingar fyrir námsmenn og annað
kyrrsetufólk sem er stíft í öxlum, baki
eða hnjám. Þetta eru léttar æfingar
sem hægt er að gera hvar sem er.
Vefsíðan www.blog.barmethod.com
Reuters
Hlauparar Það hafa eflaust margir strengt þess heit að fara út að hlaupa.
Margt gagnlegt um líkamsrækt
Það þýðir ekkert að tala dig-
urbarkalega á gamlárskvöld, vera
með stórar yfirlýsingar um að nú eigi
að skafa af sér kílóin, borða hollar,
stunda meiri útivist og vera betri
manneskja og gleyma svo öllum
þessum stóru orðum í þynnkunni á
nýársdag.
Áramótaheit eru til þess að standa
við þau og best er að nálgast þau
skipulega. Ekki rjúka út í næstu lík-
amsræktarstöð og kaupa þér árskort,
veltu fyrst fyrir þér hvernig þú ætlar
að nýta kortið, hvar þú kemur rækt-
inni fyrir í daglegri rútínu og hvernig
þú nærð sem mestu út úr þessari
fjárfestingu.
Endilega …
… standið við
áramótaheitið
Morgunblaðið/Ómar
Áramót Standið við stóru orðin.
aræðinu. Það ku hafa góð áhrif á mat-
arlystina, og draga úr henni ef eitt-
hvað er, að fá sér eldheitan
morgunmat. Nánar tiltekið að chilí að
morgni dags dragi úr svengd það sem
eftir lifir dags. Mörgum finnst jú
kannski ekkert sérstaklega spenn-
andi að fá sér chilí í morgunmat
en það er enginn sem segir að þú
þurfir að sitja og
narta í ein-
tómt
chilí
við morgunverð-
arborðið. Settu
það frekar út í
eggjakökuna
eða hrærðu eggin sem þú
setur ofan á gróft brauð.
Fennel-te
Fennel er stútfullt af
kalsíum, magnesíum og
B- og C-vítamíni. Fennel
á bæði að draga úr mat-
arlyst og hraða brennslu líkamans
sem er jú ekki slæmt ef þú ert að
reyna að missa nokkur kíló. Fennel-te
er tilvalið til þess að innbyrða dálítið
af þessu öllu saman og tilvalið að
drekka það á milli mála eða byrja
daginn með því.
maria@mbl.is
Þegar tekið er til við að færa mat-
aræðið til betri vegar er gott að hafa
ýmislegt við hendina sem tal-
ið er bæta heilsuna. Ýmist
meltingu, brennslu eða al-
menna heilsu. Við vitum
flest hvað er hollara en
annað en hér er
þrennt sem
sagt er gott að
eiga í og með.
Kanill
Kanill ku
vera of-
urkrydd
þar
sem
það
gerir
margt gott fyrir
heilsuna. Það er gott
að nota kanil til að
halda blóðsykrinum í
jafnvægi. Rannsóknir hafa
sýnt að aðeins um
fjórðungur af te-
skeið af kanil á dag
geti lækkað bæði
blóðsykurinn og kólestról. Kanill er
tilvalinn til að setja út á hafragraut-
inn eða jafnvel út í morgunkaffið eða
teið.
Chillí
Það er ekkert nema gott um það að
segja að kynda dálítið undir mat-
Heilsa
Chilí í morgunmat
Eldheitt Chillí er gott að fá sér
í morgunmat t.d. í eggjaköku.
Það er ekki sérstaklega ánægjulegt
að vera með kvef en gamanið kárnar
verulega þegar kvefið leiðir af sér
kinnholubólgu. Ár hvert fá fjölmargir
kinnholubólgu sem lýsir sér þannig
að frárennslisgöng frá kinnholum til
nefsins bólgna og stíflast. Helstu ein-
kenni eru verkir í enni, kinnbeinum,
gagnauga, hnakka eða bak við augu.
Vísindamenn hafa fundið óvenju-
lega lausn við vandanum: að humma.
Þannig flæðir loft greiðlega milli
kinnholanna og nefholsins sem getur
komið í veg fyrir að frárennslisgöngin
stíflist. Í nýlegri könnun, sem fram-
kvæmd var í Bandaríkjunum, var loft-
streymi kannað hjá fólki annars veg-
ar þegar það hummaði og hins vegar
við venjulega útöndun. Mælingar
leiddu í ljós að þegar fólk hummar
andar það frá sér allt að fimmtán
sinnum meira nituroxíði en í venju-
legri útöndun. Nituroxíð myndast í
kinnholunum og með því að humma
losnar nituroxíðið frekar og þar með
dregur úr líkum á að frárennsl-
isgöngin stíflist. Vísindamennirnir
segja þó frekari rannsókna vera þörf.
Heilsa
Reuters
Jóga Í jóga er hummað og því er það líklega gott við kinnholubólgu.
Hummað á fyrirbyggjandi hátt
Gamlárshlaupi ÍR fór fram í miðborg
Reykjavíkur á gamlársdag. 1167
manns tóku þátt í hlaupinu.
Kári Steinn Karlsson úr Breiðablik
sigraði í hlaupinu á 30:46 mínútum
sem er nýtt brautarmet. Stefán Guð-
mundsson. Breiðabliki varð í 2. sæti á
32:39 mín og Ragnar Guðmundsson
úr Ægi varð í 3. sæti á 34:05 mín. Í
kvennaflokki varð Arndís Ýr Hafþórs-
dóttir Fjölni í 1. sæti á 37:20 mín. Íris
Anna Skúladóttir úr Fjölni varð 2. á
38:08 mín og Birna Varðardóttir 3. á
39:45 mín.
Hlaup
Gaman í Gaml-
árshlaupi ÍR