Morgunblaðið - 04.01.2011, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
Æfinganámskeiðið „Toppaðu með
66°Norður og Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum“ verður nú haldið
fjórða árið í röð. Námskeiðið býr
fólk undir göngu á Hvannadals-
hnjúk, hæsta fjall Íslands. Þjálfunin
hefst núna í janúar.
Í verkefninu er boðið upp á fyr-
irlestra og námskeið þar sem þátt-
takendur eru fræddir um næringu,
klæðnað, búnað, öryggi og um-
hverfislega ábyrgð. Þá er boðið upp
á fjórtán göngur sem ætlað er að
efla kunnáttu, öryggi, líkamlegt
form og reynslu áður en haldið er á
Hvannadalshnjúk. Sérstakt kynn-
ingarkvöld verður haldið í dag,
þriðjudag, kl. 20:00 í verslun
66°Norður í Faxafeni 12.
Morgunblaðið/RAX
Á toppnum Gönguferðir á Hvannadals-
hjúk verða vinsælli með hverju árinu.
Æft fyrir Hnjúkinn
Í dag, þriðjudag,
efnir Lífeðlis-
fræðistofnun Há-
skóla Íslands til
málþings. Á
þinginu munu 10
íslenskir fræði-
menn halda er-
indi um rann-
sóknir í
lífeðlisfræði.
Málþingið fer
fram í Öskju, stofu 132, og stendur
frá kl. 10-18.
Málþingið er haldið til heiðurs
Jóhanni Axelssyni, prófessor em-
eritus. Jóhann lauk doktorsprófi í
lífeðlisfræði árið 1962 frá Háskól-
anum í Lundi og doktorsprófi í
lyfjafræði frá Oxfordháskóla 1964
og hefur frá árinu 1957 birt fjölda
greina um mörg rannsóknarefni.
Málþing um rann-
sóknir í lífeðlisfræði
Jóhann
Axelsson
ur og fjallar um fullvinnslu á afurð-
um úr dýraríkinu.
Ungur Siglfirðingur, nemandi í
10. bekk, Sigurjón Sigtryggsson,
mun keppa í frjálsum íþróttum á
Special Olympics, sem haldnir verða
í Aþenu í Grikklandi 25. júni til 4. júlí
2011.
Vegagerðin hefur nýlega sett
upp veðurstöð undir Herkonugili,
vestan Strákaganga. Myndavélar
komust í gagnið þar í haust. Ekki
þarf að hafa um það mörg orð hvílíka
þýðingu þetta hefur fyrir þá öku-
menn sem þurfa að fara Siglufjarð-
arveg um vetur, ekki síst í tvísýnu.
Samskonar tæki voru einnig
sett upp í Ólafsfjarðarmúla, við Rí-
pil. Og myndavélar eru nú jafnframt
við alla munna Héðinsfjarðarganga.
Treflinum hennar Fríðu Bjarkar
Gylfadóttur, sem ríflega 1.400
manns tóku þátt í að prjóna og lagð-
ur var á milli austur- og vesturhluta
sveitarfélagsins í tilefni opnunar
Héðinsfjarðarganga 2. október, var
komið fyrir í Menningarhúsinu Hofi
á Akureyri eftir það, í tilefni al-
þjóðlegu athafnavikunnar. Hann
verður svo í Ráðhúsi Reykjavíkur
frá 10. janúar, í tvær vikur.
Áramótin voru heiðskír og stillt,
en þó köld. Púðursprengingar
Fjallabyggðunga sáust víst úti í
Grímsey.
Frá miðjum nóvember til 28. jan-
úar búa Siglfirðingar við sólarleysi.
En þegar sú gula birtist aftur er
fagnað með viðeigandi hætti, kaffi
og pönnukökum.
Veturinn er annars snjóléttur og
mannlíf gott.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Ljósadýrð Siglufjörður upp úr miðnætti 1. janúar 2011.
Veðurfar og mann-
líf gott í Siglufirði
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigurður Ægisson
Siglufjörður
Grunnskóli Fjallabyggðar tók
til starfa 1. ágúst 2010 og leysti af
hólmi Grunnskóla Ólafsfjarðar og
Grunnskóla Siglufjarðar.
Við skólann eru þrjár starfs-
stöðvar: Yngri deild í Ólafsfirði, þar
sem eru u.þ.b. 65 nemendur, yngri
deild á Siglufirði, með u.þ.b. 75 nem-
endur, og eldri deild á Siglufirði,
með um 135 nemendur. Tónskóli
Fjallabyggðar leit einnig dagsins
ljós á haustdögum, í stað Tónskóla
Ólafsfjarðar og Tónlistarskóla Siglu-
fjarðar. Nemendur þar eru 152 tals-
ins.
Í byrjun desember voru átta
Englendingar og tveir íslenskir að-
stoðarmenn í Siglufirði við efnis-
öflun og myndatökur hjá Ramma og
Primex fyrir sjónvarpsþátt sem
sýndur verður hjá BBC seinna í vet-
Gámaþjónustan í
samstarfi við
Skógræktarfélag
Reykjavíkur mun
sjá um söfnun
jólatrjáa á höfuð-
borgarsvæðinu.
Verðið á þjónust-
unni er 800 kr.
og er gróður-
setning á einu tré í Jólaskóginum
innifalin.
Fyrir hvert jólatré sem Gáma-
þjónustan safnar gróðursetur
Skógræktarfélagið tré í Jólaskóg-
inum í Heiðmörkinni. Best er að
panta þjónustuna á netinu á slóð-
inni www.gamar.is fyrir 10. janúar.
Einnig má hringja í söludeild
Gámaþjónustunnar í síma 535 2510.
Safna jólatrjám á
höfuðborgarsvæði
Á jóladag bauð Síminn við-
skiptavinum sínum að hringja án
endurgjalds úr heimasíma í vini og
vandamenn sem búa eða dvelja er-
lendis. Símtölum til útlanda í kerf-
um Símans fjölgaði úr rúmlega
5000 á jóladag 2009 í tæplega
12.000 núna. Fólk talaði einnig
miklu lengur en venjulega á jóla-
dag en heildarlengd símtala rúm-
lega þrefaldaðist á milli ára og var
vel yfir 140.000 mínútur.
Hringdu oftar út
og lengur í senn
Guðni Einarsson og
Sigurður Bogi Sævarsson
Verð á flestum gerðum bíla breyttist
um áramótin, ýmist til lækkunar eða
hækkunar. Frumvarp um breytingu
á vörugjöldum sem lögð eru á bíla
breyttist talsvert í meðförum Alþing-
is. Við lokaafgreiðslu málsins
skömmu fyrir jól var ákveðið að fara
hægar í sakirnar við aukna gjaldtöku
en upphaflega hafði verið ráðgert.
Innheimta vörugjalda af eyðslufrek-
ari bílum, t.d. stærri jeppum, mun
ekki hefjast af fullum þunga strax,
heldur verður gefinn afsláttur af
vörugjöldum bíla í efstu fjóru flokk-
unum (G-J) af tíu vörugjaldsflokkum
næstu árin. Fyrra árið verður afslátt-
urinn 20% af vörugjaldi en 10% á síð-
ara aðlögunarárinu. Vörugjöldin
leggjast svo á stóru bílana af fullum
þunga árið 2013.
Binda vonir við þróun véla
„Þetta er mun skaplegra en það
leit út í upphafi,“ sagði Özur Lárus-
son, framkvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins (BGS), um breyting-
arnar sem Alþingi gerði á vörugjaldi
af ökutækjum. Hann sagði BGS vera
sátt við að tekið sé mið af losun út-
blásturs við ákvörðun vörugjaldanna.
Hins vegar hafi þeim þótt allt of bratt
farið í gjaldtöku.
Özur telur að Íslendingar geti ekki
borið sig saman við aðrar þjóðir þeg-
ar kemur að losun gróðurhúsalofts
frá umferðinni. Ástæðan er sú að
kerfi almenningssamgangna er ekki
jafn þróað hjá okkur og viðmiðunar-
þjóðunum. „Við höfum þurft að reiða
okkur miklu meira á einkabílinn en
þær,“ sagði Özur. Hann vonar að ör
þróun verði í smíði bílvéla áður en af-
slátturinn af vörugjaldi stærri bíla
fellur niður árið 2013. „Að það verði
þá komnar nýjar vélar í þessa bíla
sem við þurfum sannarlega á að
halda hér á landi þannig að bílar sem
lenda í 65% flokki í dag fari eitthvað
neðar.“
Özur benti á að Alþingi hefði
breytt efri mörkum svonefnds H-
flokks úr 220 g/km CO2 í 225 g/km
CO2. Þess vegna muni t.d. nokkrar
gerði jepplinga bera 55% vörugjald í
stað 60%. Einnig sagði hann muna
mikið um afsláttinn sem gefinn var af
innheimtu vörugjalda bíla í fjórum
efstu vörugjaldsflokkunum á þessu
ári og því næsta. Þá var hámarks-
afsláttur af vörugjaldi bíla sem nota
metan sem aðalorkugjafa hækkaður í
1.250.000 kr. en í fyrstu var lagt til að
afslátturinn yrði 750.000 kr.
Özur segir að gjaldabreytingin
valdi því að einkum smærri gerðir
bíla muni lækka þó nokkuð í verði.
„Það kemur sér vel fyrir þann flokk
bíla,“ sagði Özur. „Á móti kemur að
bílar sem hafa kannski þjónað okkur
best heilt yfir, þeir hækka allir, en
það er búið að milda áhrifin.“ Hann
sagði að hækkun yrði á vörugjöldum
allra stærri jeppa og flestra gerða
jepplinga. Þó geti munað því hvort
t.d. jepplingar eru beinskiptir eða
sjálfskiptir hvort þeir hækka eða
lækka í verði.
Bílaumboðin reikna nýtt verð
„Við fögnum því að ekki var farið í
eins ákveðnar hækkanir á vörugjöld-
um og til stóð,“ sagði Páll Þorsteins-
son, upplýsingafulltrúi Toyota á Ís-
landi. „Það að
vinsælustu bílarnir
hækki ekki
nú um
áramótin
er auðvit-
að ánægju-
efni. Síðan sjáum við allt að 15%
lækkun á fólksbílum sem mun von-
andi hafa jákvæð áhrif á sölu okkar
bíla. Best væri hins vegar ef skatta-
umhverfið yrði einfaldað, að einn
skattur leysti marga skatta á bíla af
hólmi. Einfaldast er að skattleggja
einu sinni og það við eldsneytisdæl-
una.“
Sigurður Kr. Björnsson, markaðs-
stjóri Heklu, sagði að margir af vin-
sælustu bílunum sem þeir selja hafi
lækkað í verði um áramótin. Hann
nefndi t.d. tilteknar gerðir af Skoda
Octavia, VW Golf og VW Polo. Fleira
ræður þó verðinu en vörugjaldið og
er nokkuð um verðbreytingar frá
framleiðendum.
„Viðmiðið er losunin og nýjar vélar
frá Volkswagen og Skoda með minna
slagrými og lægri útblástur en eldri
vélar gerir verð bílanna sérlega hag-
stætt,“ sagði Sigurður. Hann segir að
metanbílar hafi verið vörugjaldslaus-
ir og verði það áfram. Þeir hafi verið
og verði áfram mjög hagstæðir í verði
í samanburði við bensín og dísilbíla.
Sigurður sagði að almennt muni
stærri bensínjeppar hækka í verði við
vörugjaldsbreytinguna, en Hekla
reikni með að viðskiptavinir muni
færa sig yfir í dísiljeppa því þeir muni
lækka eilítið í verði.
Loftur Ágústsson, markaðsstjóri
Ingvars Helgasonar ehf., sagði að
þeir hefðu ákveðið að láta verð jepp-
linga vera sem mest óbreytt, að
minnsta kosti fyrst um sinn. Hann
sagði að verð margra BMW-bíla
muni lækka vegna háþróaðra véla
sem mengi lítið. Af jeppum mun t.d.
Land Rover Discovery hækka lítil-
lega. Loftur taldi að breytingin á
vörugjaldinu gæti orðið til þess að
örva bílasölu. Loftur sagði þá hafa
óttast að hækkunin yrði mikil á fjór-
hjóladrifnum bílum í millistærð, en
breytingin hefði ekki verið jafn slæm
og þeir óttuðust. Afslátturinn af
vörugjaldinu í hærri flokkum á þessu
ári og því næsta skiptir þar máli.
Loftur sagði að það væri ekki hægt
að andmæla því að tengja saman los-
un gróðurhúsalofttegunda og skatt-
lagningu. „En það leit fyrst út fyrir
að þetta myndi koma harðast við þá
sem síst skyldi. Það geta ekki allir
verið á litlum bílum,“ sagði Loftur.
Hann sagði að t.d. í Austurríki væri
innheimt ákveðið grunngjald og síð-
an kosti hvert umframgramm í losun
ákveðna upphæð.
Verð minni bíla lækkar
Farið var hægar í hækkun vörugjalds af stærri bílum en fyrst var ráðgert
Vörugjald af eyðslufrekari bílum mun hækka í áföngum til ársins 2013
Meginhugsunin í nýgerðum
breytingum á lögum um vöru-
gjald af ökutækjum er að við
ákvörðun vörugjalds er tekið til-
lit til þess hvað hver tegund og
gerð bíla losar mikið af gróður-
húsalofti. Verð eyðslugrannra
bíla með lítinn útblástur CO2
lækkaði því almennt en bílar sem
losa meira hækkuðu. Gerð gír-
skiptingar getur ráðið í hvaða
vörugjaldsflokki tiltekin bílgerð
lendir.
Önnur veigamikil breyting
varð sú að pallbílar eru ekki leng-
ur skilgreindir sem sendibílar og
fara nú í sama vörugjaldsflokk
og aðrir bílar með sambæri-
lega losun. Þetta veld-
ur því að flestar
gerðir algengra pall-
bíla hækka talsvert.
Gjaldið ræðst
af losuninni
BREYTT GJÖLD AF BÍLUM
Breytt verð á bílum
Bíll Vélarst. Skipting Eldsn. Verð áður Verð nú
NissanMicra 1,2 bsk bensín 2.490.000 2.190.000
Nissan Qashqai 4WD 2,0 ssk bensín 4.990.000 4.990.000*
Hyundai i20 1,4 bsk bensín 2.590.000 2.490.000
Isuzu D-Max 3,0 ssk dísil 4.690.000 5.990.000
BMWX5 30d 3,0 ssk dísil 11.780.000 11.070.000
BMW316 d 2,0 bsk dísil 5.810.000 5.180.000
ToyotaYaris Terra 1,0 bsk bensín 2.660.000 2.370.000
ToyotaAuris Sol 1,4 bsk dísil 4.380.000 3.820.000
Toyota Corolla Terra 1,33 bsk bensín 3.580.000 3.350.000
Toyota Corolla Sol 1,6 ssk bensín 4.290.000 4.460.000
Toyota Prius Sol CVT 1,8 ssk tvinnbíll 5.590.000 5.120.000
Toyota Rav4 4WD 2,0 ssk bensín 5.790.000 6.050.000
Toyota Rav4 4WD 2,2 bsk dísil 6.750.000 5.840.000
Toyota LandCruiser 150VX 3,0 ssk dísil 11.370.000 11.320.000
Toyota Hilux DC SR 3,0 ssk dísil 5.820.000 6.920.000
Vokswagen Golf Trendline 1,6 bsk dísil 3.890.000 3.190.000
Volkswagen Passat Comf. 2,0 ssk dísil 5.520.000 5.190.000
SkodaYeti Ambiente 2,0 bsk dísil 4.820.000 4.470.000
Skoda SuperbAmbition 2,0 ssk dísil 5.290.000 4.890.000
Mitsubishi ASX Intense 1,8 bsk dísil 4.990.000 4.690.000
Mitsubishi Pajero Instyle 3,2 ssk dísil 10.750.000 10.390.000
*Umboð tekur hækkun á sig um sinn. Samkvæmt upplýsingum frá Ingvar Helgasyni, Toyota á Íslandi og Heklu
STUTT