Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 13

Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fimm veiðiskip munu aðstoða skip Hafrannsóknastofnunar við leit að loðnu næstu daga. Fyrsta skipið hélt til leitar í fyrrinótt og í dag er ráð- gert að fleiri bætist við. Skipin leita á svæði norðaustur frá Eyjafirði, austur og suður með landinu til Hornafjarðar. Vilhelm Þorsteinsson hélt frá Ak- ureyri í fyrrinótt og ef veður leyfir er ráðgert að í dag haldi Faxi frá Vopnafirði, Beitir og Börkur frá Neskaupstað og Jón Kjartansson frá Eskifirði. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur síðan til leitar í dag og eftir yfirferð veiði- skipanna er vonast til að mjög fljót- lega verði komin mynd af því hvar loðnan heldur sig. Leiðangur rann- sóknaskipsins geti því verið mark- vissari og tekið skemmri tíma. Sjávarútvegsráðherra gaf í des- ember út 200 þúsund tonn aflamark á loðnu í samræmi við tillögur Haf- rannsóknastofnunarinnar. Þær til- lögur verða endurskoðaðar gefi nið- urstöður þeirra mælinga sem nú eru í gangi tilefni til þess. Samkvæmt mælingum í haust er stærð hrygn- ingarstofns loðnu rúm 630 þús. tonn. Þrjú skip héldu til loðnuveiða í desember, Ingunn, Faxi og Börkur. Um miðjan mánuðinn þegar gert var hlé á veiðunum var loðnan eink- um norður af Melrakkasléttu. Síðan hafa litlar fréttir borist af loðnu, en skipstjóri sem var að veiðum á Hampiðjutorgi djúpt út af Vest- fjörðum greindi Hafrannsóknastofn- un frá því að þar hefði orðið vart við loðnu. Sex skip til loðnuleitar  Tillögur um afla- mark endurskoð- aðar gefi mælingar tilefni til þess Morgunblaðið/Ómar Loðna Loðnuleit stendur yfir og veiðar gætu hafist fljótlega. Umhverfisráðuneytið hefur aug- lýst laust til umsóknar embætti forstjóra Mannvirkjastofnunar. Um er að ræða nýja stofnun sem tók til starfa þann 1. janúar s.l. Mannvirkjastofnun tekur við hlutverki Brunamálastofnunar auk verkefna er varða bygging- armál. Markmið nýrra laga um mannvirki er að auka öryggi og gæði mannvirkja, efla neyt- endavernd, bæta skilvirkni í stjórnsýslu mannvirkjamála og tryggja faglega yfirsýn í mála- flokknum og samræma bygging- areftirlit um land allt, segir í aug- lýsingu um starf forstjóra. Mannvirkjastofnunin hefur einnig það hlutverk að hafa eftirlit með og vinna að samræmingu bruna- varna í landinu, stuðla að sam- vinnu þeirra sem starfa að bruna- vörnum og reka Brunamálaskóla. Hinn nýi forstjóri skal hafa há- skólamenntun á sviði mannvirkja- mála, þekkingu á verksviði stofn- unarinnar og stjórnunarreynslu. Umsóknarfrestur er til 21. janúar næstkomandi. sisi@mbl.is Forstjóra- starf auglýst Enn hefur ekkert spurst til Elísu Auðar Aðal- mundardóttur sem fór af heimili sínu um miðnætti 26.12. 2010. Elísa Auður er um 165 cm á hæð með ljóst axlasítt hár, blá augu og lokk í vinstri augabrún. Þeir sem hafa orðið var- ir við ferðir Elísu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lög- regluna í síma 444 1000. Lögreglan lýsir enn eftir Elísu Auði Elísa Auður Aðalmundardóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók Ástþór Magnússon í gær fyrir utan verslun Byko í Kópavogi. Hann hafði ekki sinnt boðum um að mæta í skýrslutöku. Ástþór greinir sjálfur frá því á bloggsíðu sinni að hann hafi verið boðaður í skýrslutöku hjá lögregl- unni þann 30. desember, en að hann hafi ekki mætt þar sem hann geti ekki tekið alvarlega „lögreglu sem gengur erinda glæpamanna“. Málið snýst um kæru Hreins Loftssonar, eiganda útgáfufélagsins Birtíngs, á hendur Ástþóri, sem er sagður halda úti síðunni sorprit.com. Er hann sakaður um ærumeiðingar. Ástþóri var sleppt eftir skýrslutöku. Handtekinn vegna vefsíðu Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu lýsir eftir Birgittu Ýri Ingólfs- dóttur, 15 ára. Talið er að hún sé klædd í svarta hettu- peysu, þröngar gallabuxur, sé með svartan klút og í svörtum körfuboltaskóm, að því er segir í tilkynningu lög- reglu. Birgitta er frekar grönn, um 172 cm á hæð, bláeygð með dökka augnaumgjörð og stutt dökkt hár með ljósa rót. Síðast er vitað um ferðir hennar eftir miðnætti þann 30. desember sl. á Kjalarnesi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Birgittu hafi samband við lögregluna í síma 444-1000. Lögregla lýsir eftir Birgittu Ýri Birgitta Ýr Ingólfsdóttir Á tónleikunum hljómar sígild Vínartónlist úr ýmsum áttum – m.a. Kampavínspolkinn, Dónár- valsinn sívinsæli og atriði úr Leðurblökunni. Hanna Dóra Sturludóttir syngur með hljóm- sveitinni og er viðbúið að hún gleðji tónleikagesti með hrífandi framkomu. Vínartónleikarnir hafa um árabil verið vinsælustu tónleikar S.Í. enda vart hægt að hugsa sér ljúfari upptakt að nýju ári. Tryggðu þér miða á www.sinfonia.is eða í síma 545 2500. Miðaverð: 4.700/4.400 kr. „Vals og vínglas eru prýðileg forskrift að uppklappi.“ Johann Strauss miðvikudag 5. janúar og fimmtudag 6. janúar islandsstofa.is Borgartún 35 | 105 Reykjavík Kristín A. Árnadóttir og Elín Flygenring, sendiherrar Íslands í Peking og Helsinki, verða til viðtals miðvikudaginn 5. janúar og fimmtudaginn 6. janúar. Fundirnir eru kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja ræða viðskiptamöguleika, menningartengd verkefni og önnur hagsmunamál í umdæmi sendiráðanna. Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Peking, verður til viðtals miðvikudaginn 5. janúar. Auk Kína eru umdæmislönd sendiráðsins: Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea, Taíland og Víetnam. Elín Flygenring, sendiherra Íslands í Helsinki, verður til viðtals fimmtudaginn 6. janúar. Auk Finnlands eru umdæmislönd sendiráðsins: Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína. Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Íslandsstofu, Borgartúni 35, og má bóka þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti, islandsstofa@islandsstofa.is. Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson, andri@islandsstofa.is og Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is. Heimsókn að austan Viðtalstímar sendiherra Íslands í Peking og Helsinki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.