Morgunblaðið - 04.01.2011, Page 14

Morgunblaðið - 04.01.2011, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 STUTTAR FRÉTTIR ● Viðskiptin á skuldabréfamarkaðnum fóru af stað á nýju ári með litlum krafti. Skuldabréfavísitala Gamma stóð í stað í viðskiptum gærdagsins og nam heild- arvelta viðskiptanna á markaðnum um 5,4 milljörðum króna. Meiri velta var með óverðtryggð bréf í gær en viðskipti með þau námu 3,15 milljörðum króna. Veltan með verðtryggðu bréfin nam 2,24 milljörðum. Rólegt í skuldabréfum Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Birgðir af hefðbundnum glóperum eru að renna út í Evrópu og árið 2012 verða þær með öllu bannaðar í Evr- ópusambandinu. Framleiðendur ljósapera, sem nota minna rafmagn, losna því við samkeppnina frá frum- stæðari lýsingu glóperanna. Er því ekki að undra að framleiðendurnir eru að hækka heildsöluverð á um- hverfisvænni perum og í Bretlandi er gert ráð fyrir því að smásöluverð á perunum þrefaldist innan næstu þriggja mánaða. Pera sem áður kost- aði 33 pens mun með öðrum orðum kosta meira en eitt pund innan skamms og munu sumar sparneyt- nari perur kosta meira en þrjú pund. Evrópusambandið hefur nú þegar bannað smásölum að kaupa inn 100 vatta perur og frá september næst- komandi verður óheimilt að kaupa inn sextíu vatta perur. Sem áður seg- ir verður sala á glóperum alfarið bönnuð árið 2012. Framleiðendur umhverfisvænni ljósapera hækkuðu heildsöluverð fyrir tveimur árum þegar ákveðið var að banna glóperur og eru að leika sama leikinn aftur núna. Fleira spilar inn í hækkunina í Bretlandi en minnkandi samkeppni meðal ljósaperuframleiðenda. Hing- að til hafa raforkuframleiðendur ver- ið neyddir til að niðurgreiða kaup al- mennings á umhverfisvænum perum, en í mars næstkomandi verð- ur niðurgreiðslunum hins vegar ætl- að að hjálpa fólki að bæta einangrun húsa sinna. Niðurgreiðslurnar hafa því falið raunverulegt verð á perun- um undanfarin ár. Þessar ástæður saman munu leiða til þess að kostnaður almennings við lýsingu húsa sinna mun hækka til muna. Morgunblaðið/Skapti Perur Sparperur nota minna rafmagn en hefðbundnar glóperur en kosta umtalsvert meira og útlit er fyrir að verðið komi til að hækka enn meira. Ljósaperur þrefaldast í verði  Hækka verð í skjóli minni samkeppni Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Skilanefnd Glitnis nýtti sér for- kaupsrétt sinn að fullu í hlutafjár- útboði flugfélagsins Icelandair, sem fór fram milli jóla og nýars. Talsverð umframeftirspurn var í útboðinu. Icelandair tilkynnti að tæplega 1,1 milljarður nýrra hluta að nafnvirði yrði boðinn út, en tilboð bárust í meira en 2,8 milljarða nýrra hluta í félaginu. Útboðsgengi var 2,5 krónur á hvern hlut. Vildu verja eignina Árni Tómasson, formaður skila- nefndarinnar, segir að Glitnir hafi eignast forkaupsréttinn eftir fjár- hagslega endurskipulagningu Ice- landair. Glitnir á rúmlega 4,6% hlut í flugfélaginu. „Okkur bárust engin viðunandi tilboð í þennan forkaups- rétt. Því mátum við stöðuna þannig að við værum að verja eignir kröfu- hafa Glitnis með því að taka þátt í hlutafjárútboðinu, án þess þó að fara út í nýjar fjárfestingar,“ segir Árni í samtali við Morgunblaðið. Hann seg- ir Glitni hafa keypt í útboðinu fyrir um það bil 90 milljónir króna. Miðað við að útboðsgengið var 2,5 krónur á hlut, keypti skilanefndin því um 3,3% af nýseldu hlutafé Icelandair. Árni segir að skilanefndin hafi ekki keypt neitt umfram þann forkaupsrétt sem hún átti í útboðinu. Ekki hafi verið áhugi á því innan skilanefndarinnar á nokkru stigi málsins. Inntur eftir því hvort það sé ekki frekar hlutverk skilanefnda að selja eignir og greiða kröfuhöfum út í reiðufé, segir Árni að oft hafi borist tilboð í hinar ýmsu eignir skilanefnd- ar Glitnis: „Alveg frá hruni höfum við fengið ítrekuð tilboð frá aðilum sem segjast reiðubúnir til að aðstoða skilanefndina við það að losna við eignir. Það versta er að slík tilboð hljóða yfirleitt upp á of lágt verð,“ segir Árni. „Menn ráðast ekki í það að selja hluti í fyrirtækjum á verði sem er ekki ásættanlegt. En við er- um svo sem að selja eignir á hverjum degi, þó það fari ekki hátt.“ Engin tímapressa Skilanefnd Glitnis á forkaupsrétt að tryggingafélaginu Sjóvá. En sem kunnugt er mistókst Seðlabanka Ís- lands að selja félagið fyrir skömmu, þegar kaupendahópur undir forystu Heiðars Guðjónssonar sagði sig frá söluferlinu á lokasprettinum. Árni segir ekki hafa komið til umræðu, enn sem komið er, að nýta forkaups- réttinn: „Það er þó aldrei að vita ef við höfum kaupanda í hendi. En á móti erum við ekki undir neinni tímapressu, það eru skilaboðin frá kröfuhöfum Glitnis,“ segir hann. Skilanefndin nýtti sér for- kaupsrétt í hlutafjárútboði  Hefur ekki rætt að nýta forkaupsrétt að Sjóvá, sem kemur þó til greina síðar Skilanefnd Árni Tómasson segir að skilanefnd Glitnis sé ekki undir tíma- pressu í störfum sínum. Eignir verði ekki seldar á óviðunandi verði. Morgunblaðið/Heiddi Eignastýring Glitnis » Skilanefnd bankans nýtti sér forkaupsrétt í hlutafjár- útboði Icelandair. Keypti 3,3% af nýju hlutafé fyrirtækisins fyrir 90 milljónir króna. » Árni Tómasson, formaður skilanefndarinnar, segir að kaupin hafi verið gerð til að verja eignir kröfuhafa bank- ans. » Árni segir að ekki hafi kom- ið til tals að nýta kauprétt á tryggingafélagið Sjóvá, þó að það komi vissulega til greina ef kaupandi finnst að félaginu. Þann 20. desem- ber síðastliðinn ákvað Fjármála- eftirlitið að sekta Exista fyr- ir brot á lögum um verðbréfa- viðskipti og nemur sektin 15 milljónum króna. Er Exista talið hafa brotið gegn upplýsingaskyldu um innherjaupplýsingar þegar fé- lagið sendi ekki tilkynningu til Kauphallar Íslands um 8,4 millj- arða króna lán, sem Exista veitti félaginu ELL 182 í tengslum við sölu á 39,6 prósenta hlut í Bakka- vör Group árið 2008. ELL 182 er félag í eigu bræðr- anna Lýðs og Ágústs Guðmunds- sona, sem á þessum tíma voru stærstu eigendur Exista. Telur FME að upplýsingar um lánið telj- ist til innherjaupplýsinga, sem fé- laginu hafi borið að birta. Fleira er tilgreint í ákvörðun eft- irlitsins. Exista birti ekki opin- berlega upplýsingar um gjaldfell- ingar og stefnu á hendur félaginu er vörðuðu verulegar fjárhæðir, en FME telur þessar upplýsingar einnig vera innherjaupplýsingar sem borið hafi að birta. Tilkynn- ingar Exista um yfirvofandi van- efndir hafi haft að geyma ófull- nægjandi upplýsingar fyrir fjárfesta og ekki hafi verið tilkynnt um framhald mála vegna þessara vanefnda. Tekið er fram að brotin hafi átt sér stað í tíð fyrrverandi eigenda og stjórnenda Exista hf., en nýir eigendur hafa nú tekið félagið yfir. bjarni@mbl.is Milljóna sekt Exista  Sektað fyrir brot fyrri eigenda                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-. +/0-., ++,-1/ .2-,03 +1-/2+ +/-+3 +.3-2/ +-4+4 +//-/4 +,3-4+ ++,-4/ +/0-50 ++5-3+ .2-543 +1-/,1 +/-+0 +.3-4+ +-4+0+ +/0-./ +,3-04 .20-350 ++,-/4 +/1-++ ++5-5, .2-/23 +1-0+/ +/-.3 +.3-/, +-4... +/0-0 +,4-./ ● Jón Helgi Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri HugarAx frá og með áramótum. Jón Helgi hefur gegnt starfi forstöðumanns sérlausnasviðs hjá félag- inu undanfarin ár. Jón Helgi tekur við af Gunnari Ingimundarsyni, sem verið hef- ur framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá miðju ári 2007. Gunnar var einn stofn- enda Hugar, forvera HugarAx og lengi framkvæmdastjóri þess félags. Um áramótin tók Gunnar við starfi framkvæmdastjóra markaðsmála og viðskipta- þróunar hjá Skýrr. Þá tekur Gunnar við sem stjórnarformaður HugarAx. Jón Helgi framkvæmdastjóri HugarAx ● Kínversk stjórnvöld hyggjast kaupa spænsk skuldabréf, að því er fram kom í aðsendri grein Li Keqiang, að- stoðarforsætisráðherra Kína, í spænska dagblaðinu El Pais. Yfirlýs- ingin er enn ein staðfestingin á vaxandi efnahagsmætti þessa fjölmennasta rík- is heims. Kínverjar hafa keypt skulda- bréf ríkja á evrusvæðinu að und- anförnu og eru nú orðnir einn stærsti kaupandi spænskra ríkisskuldabréfa, með um 10% hlutdeild. „Við höfum trú á evrópskum fjármálamarkaði, einkum og sér í lagi spænska fjármálamark- aðnum,“ skrifaði Li í El Pais. Kínverjar kaupa spænsk skuldabréf í stórum stíl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.