Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 18

Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 –– Meira fyrir lesendur MEÐAL EFNIS: Viðtöl við leikmenn Íslenska liðsins og þjálfara. Kynning á liðunum. Dagskrá mótsins. Ásamt öðru spennandi efni Þetta er blaðið sem allir íþrótta- unnendur hafa við höndina þegar keppnin verður sýnd í sjónvarpinu. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, föstudaginn 7. janúar. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Erling Adolf Ágústsson erling@mbl.is Sími: 569-1221 Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað 13. janúar 2011 um Heimsmeistaramót karlalandssliða í handbolta þar sem landslið Íslendinga er meðal þátttakenda. Keppnin er haldin í Svíðþjóð og stendur yfir frá 13. – 31. janúar. HM KARLA sé rb la ð Í HANDBOLTA Einar Kristján Har- aldsson skrifaði grein í Morgunblaðið 3. des. sl. þar sem hann óskaði eftir víðsýni þegar fjallað væri um veiðar og víðerni í Vatnajök- ulsþjóðgarði. Einar kallar reyndar þá sem unnið hafa að stjórn- unar- og vernd- aráætlun „kálhausa“ og því sér svæðisráð Austursvæðis sig knúið til svara. Í upphafi er rétt að leiðrétta nokkrar villur, bæði höfundi og les- endum til fróðleiks. „Krækifætur“ eða rjúpnaveiðar eru hvergi nefnd í Hrafnkelssögu. Frásögnin sem Ein- ar vitnar til er í Fljótsdælasögu sem samin er um 1500. Kirkjumáldaginn sem vísað er til er Vilchinsmáldagi frá 1397. Í honum segir að kirkjan á Hallormsstað eigi „mannsfar í gás- veiði í Þóriseyjum“, en ekki á Vest- uröræfum. Hin 150 ára gamla veiði- mynd er væntanlega sú sem Daniel Bruun tók af Elíasi Jónssyni bónda á Aðalbóli í Hrafnkelsdal 1901 þar sem hann var að koma heim af veið- um á Brúaröræfum með fullorðna álft á baki. Eyjafjöll eru ekki til á há- lendi Austurlands en væntanlega á Einar við Eyvindarfjöll og leiðina í Fjallaskarð. Veiðar hafa vitaskuld verið stund- aðar á Fljótsdalsheiði og allt inn að jökli frá örófi alda (nema hrein- dýraveiðar). Alla jafnan hafa Fljóts- dælingar og Jökuldælingar þó ekki þurft að fara langt til að draga björg í bú og því má færa rök fyrir því að ekki sé löng hefð fyrir rjúpnaveiði kringum Snæfell. Ásókn rjúpna- veiðimanna á þetta svæði var lítil fram eftir 20. öld og það var ekki fyrr en vélsleðar og jeppar komu til sögunnar að veiðimenn komust þangað að vetrarlagi með góðu móti. Vegabætur vegna virkjanarann- sókna á 8. áratugnum höfðu sitt að segja og síðustu 30 árin hefur ásókn- in vaxið með bættum vegum. Hið sama á við um gæsaveiðar á Eyja- bökkum og Vesturöræfum. Sér- staklega breytti nýr vegur með Hálslóni aðgengi að votlendi Vest- uröræfa. Þar er „hefð“ fyrir gæsa- veiðum því vart meira en fimm ára. Umræða um hærra verndarstig með takmörkun á veiðum á hluta af Austursvæði er ekki ný af nálinni. Á Héraði var árið 2006 rætt við marga hagsmunaaðila og efnt til opinna funda vegna við vinnu ráðgjaf- arnefndar um stofnun þjóðgarðs. Þá var m.a. rædd sú hugmynd að Eyja- bakkasvæðið og hluti af fellunum yrði með meiri friðun. Fékk sú hug- mynd jákvæðar viðtökur enda geng- ið út frá því að garðurinn skiptist í mismunandi verndarflokka. Al- mennt var gert ráð fyrir því að hefð- bundnar nytjar, svo sem beit og veiðar, yrðu með svipuðu sniði og verið hefði en þó þyrftu að gilda skýrari nýtingarreglur innan þjóð- garðs en utan. Frekari útfærslu var vísað til gerðar verndaráætlunar. Svæðisráð er skipað 3 fulltrúum sveitarfélaga og 3 frá hags- munaaðilum, þ.e. frá ferðaþjónustu, náttúruverndarsamtökum og úti- vistarfélögum. Svæðisráð Aust- ursvæðis fékk Náttúrustofu Austur- lands til að vinna drög að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir sitt svæði. Við gerð hennar voru auglýstir opnir fundir, bæði í upp- hafi og þegar tillögur voru farnar að skýrast. Það stenst því ekki að allt hafi verið unnið fyrir luktum tjöld- um og almenningi og hags- munaaðilum haldið frá. Svæðisráð bókaði um veiðar á fundi sínum 1. feb. 2010. Mánuði síðar var aug- lýstur kynningarfundur um áætl- unina og drög gerð aðgengileg á net- inu. Í kjölfarið komu þarfar athugasemdir eins og vonir stóðu til. Svæðisráð boðaði skotveiðimenn og hreindýraleiðsögumenn sérstaklega á sinn fund 8. apríl og breytti síðan kaflanum um veiðar heilmikið áður en drög að verndaráætlun fóru til stjórnar þjóðgarðsins. Í grunninn eru þau atriði sem Einar og fleiri hafa á hornum sér þessi: 1. Griðland verði kringum Snæfell og á Eyjabakkasvæðinu. Þar verði hreindýra- og fuglaveiðar ekki leyfð- ar (sjá kort). Svæðið er um 117 km² eða rúm 2% af heildarflatarmáli þjóðgarðsins utan jökla. Griðlandið er innan við 10% af veiðilendum milli Fljótsdals og Jökuldals. Rökin fyrir griðlandinu eru af tvennu toga. Ann- ars vegar er gróður svæðisins við- kvæmur, bæði hlíðar og votlendi. Hins vegar hentar svæðið vel fyrir ferðamennsku sem snýst um útivist, fræðslu og rannsóknir, t.d. fyrir skólahópa á haustin. Það samræmist illa að kynna þetta svæði og byggja upp sem slíka útivistarperlu en stunda samhliða veiðar. Þá stendur til að lýsa votlendið austan Snæfells Ramsarsvæði sem eykur enn á vægi þess til rannsókna á gróðurfari og lífríki. 2. Utan þessa griðlands verði veið- ar heimilar en þó lagt til að hrein- dýraveiðar hefjist 15. ágúst í stað fyrsta á Snæfellsöræfum, m.a. vegna ferðamanna. Sú takmörkun er göm- ul og gilti allt til 2006. Þá er lagt til að gæsaveiðar hefjist 1. sept. í stað 20. ágúst enda margt sem bendir til þess að heiðagæsin verpi seinna vestan Snæfells (ekki á Eyjabökk- um) eftir að varp hennar færðist úr um 550 m hæð og upp í um 650 m með tilkomu Hálslóns. Við bjóðum Einar velkominn í þjóðgarðinn en vonumst til að hann sýni sjálfur þá víðsýni sem hann ósk- ar eftir að aðrir sýni. Skotveiðar eru hluti af útivist en veiðimenn líkt og aðrir sem njóta íslenskrar náttúru verða að þola það að náttúran njóti stundum vafans og dýr og fuglar eigi sér griðlönd. Veiðar eru og verða leyfðar innan þjóðgarðsins en aðeins bannaðar í litlum hluta hans. Þjóð- garðurinn hefur því ekki úthýst neinum. Eftir Björn Ármann Ólafsson, Ruth Magnúsdóttur, Magnhildi Björns- dóttur, Skúla Björn Gunnarsson, Skarphéðin G. Þórisson og Þórhall Þorsteinsson » Veiðar eru og verða leyfðar innan þjóðgarðsins en aðeins bannaðar í litlum hluta hans. Þjóðgarðurinn hefur því ekki úthýst neinum. Höfundar eru í svæðisráði aust- ursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. „Kálhausar“ svara ávirðingum Margir líta svo á, að áramótaávörp valda- manna séu bara til há- tíðabrigða og hafi enga merkingu umfram flug- eldasýningar og annað sem áramótum til- heyrir. Þetta viðhorf er alrangt og við höfum fyrir augunum dæmi sem sannar fullyrðingu mína. Nú hafa flutt ára- mótaávörp sín Ólafur Ragnar Gríms- son og Jóhanna Sigurðardóttir. Sam- anburður á þessum tveimur ávörpum endurspeglar gjörólík lífsviðhorf og gjörólíka mannkosti. Ljóst má vera, að forseti lýðveldisins lítur á sig sem umboðsmann almennings, en for- sætisráðherra er fulltrúi erlends valds og framandi hugmyndafræði. Almenningur fer með fullveldi landsins Forseti lýðveldisins lagði áherslu á að almenningur fer með fullveldi landsins og að þeim skoðunum, að hér ríki annað stjórnarfar en lýð- veldi, ber að hafna. Þjóðin verður að snúast hart gegn þeirri framandi hugmynd að hér ríki þingræði, svo ekki sé nefnd sú atlaga sem felst í hugmyndum um að leggja þjóðveldið undir yfirráð Evrópuríkisins. Ólafur Ragnar sagði: »Á liðnu ári sýndi þjóðin að hún getur tekið forystuna. Atkvæða- greiðslan 6. mars var afdráttarlaus vitnisburður um hve vel stjórnskipun lýðveldisins virkar þegar mest á reynir, að þjóðin er fullfær um að fara með valdið sem henni ber. Allt tókst það vel þótt ýmsir spáðu öðru.« Forseti lýðveldisins sagði einnig: »Kjarni lýðræðisins er vilji fólksins. Svo ein- falt er það, hvað sem líð- ur kenningum eða visku spekinganna. Hinn ein- dregni þjóðarvilji hefur á örlagastundum reynst Íslendingum býsna vel og því er mikilvægt að átök, harka eða óbilgirni lami ekki afl okkar til góðra verka.« Til samanburðar er hollt að líta til þess sem forsætisráðherra hafði um þetta að segja: – Ekkert! Forsætisráðherra landsins heldur áramótaávarp á greinilegum tímamótum í sögu þjóð- arinnar og segir ekki aukatekið orð um þjóðaratkvæðið 6. marz 2010, né heldur eitt orð um þingsályktun Al- þingis frá 16. júlí 2009, um innlimun landsins í Evrópuríkið. Biðraðir eftir matargjöfum er smánarblettur Forseti lýðveldisins fjallaði einnig ýtarlega um biðraðir fólks eftir mat- argjöfum, sem er smánarblettur á ásýnd þjóðarinnar. Valdhafarnir yppa bara öxlum og láta sér ekki koma til hugar að úrbóta sé þörf. Um þetta sagði Ólafur Ragnar eftirfar- andi: »Efnahagskreppan, hrunið sem við nefnum svo, hefur þrengt svo að þús- undum Íslendinga að í viku hverri bíður fjöldi í röðum eftir mat- argjöfum. Fátækt hefur að vísu fylgt okkur lengi en nú hefur fjárhags- vandi margra, biðraðirnar eftir mat, orðið að smánarbletti.« Einnig sagði forsetinn: »Hafi fyrir átta árum, þegar vel- megun ríkti hér á flestum sviðum, verið ástæða til að ræða fátæktina er nú brýnt að grípa til aðgerða. Hún er til muna útbreiddari, örlög þúsunda nístandi. Samfélag sem kennir sig við norræna velferð getur ekki liðið að vikulega standi þúsundir í biðröðum eftir mat. Við skulum sameinast um að afmá þennan smánarblett strax á næstu mánuðum.« Hvað ætli forsætisráðherra hafi sagt um biðraðirnar eftir matar- gjöfum: – Ekkert! Jóhanna Sigurðardóttir lítur svo á, að hungur þúsunda Íslendinga sé ekki mál til að nefna í áramóta- ávarpi. Hún hefur meiri áhyggjur af áliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og nýlenduveldanna Bretlands og Hollands (alþjóðasamfélagið). Um þessa aðila sagði forsætirráðherrann: »Látum þetta verða árið þegar far- sælu samstarfi við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn lauk og full sátt náðist við alþjóðasamfélagið á ný.« Ólafur Ragnar Grímsson og Jó- hanna Sigurðardóttir hafa flutt ára- mótaávörp sín. Öllum mega nú vera ljós gjörólík lífsviðhorf og gjörólíkir mannkostir þessara tveggja ein- staklinga. Spurningin er bara, hvaða lærdóm ætlar almenningur að draga af þeim staðreyndum sem liggja aug- ljósar fyrir? Áramótaávörp forseta og forsætisráðherra Eftir Loft Altice Þorsteinsson » Forseti lýðveldisins lítur á sig sem um- boðsmann almennings, en forsætisráðherra er fulltrúi erlends valds og framandi hugmyndafræði. Loftur Altice Þor- steinsson Höfundur er verkfræðingurog vís- indakennari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.