Morgunblaðið - 04.01.2011, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 04.01.2011, Qupperneq 19
UMRÆÐAN 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Undanfarin ár, og einkenni þeirra með tilheyrandi hruni, var fráhvarf frá mjúkum mannlegum gildum, friðhelgi einkalífsins, almennum tryggingar- réttindum og jöfnuði milli landsmanna. Tímabilið var tímabil hinna hörðu gilda og lögmál markaðs- og peningahyggju voru og eru enn alls ráðandi og allt hitt líka. En þetta var líka tímabil ógnar sjálfhverfu þar sem við vorum stórasta þjóð í heimi að sögn þeirra sem við treystum til forystu. Lands- mönnum er brugðið og líður illa og leita náttúrulegs jafnvægis með öll- um tiltækum aðferðum og hug- myndum, bæði skynsamlegum og arfavitlausum eins og gengur. Því þótt allt fari fyrir ekkert og ekkert sjálfbært finnist fyrir ekkert, heyr- um við að mat fólks á lífsgæðum er að taka breytingum og mjúku gild- anna er leitað á ný. Það að hafa land- rými og óspilta náttúru eru hámark lífsgæða. Þar með er brátt forrétt- indi að fá að búa á landsbyggðinni við öfluga iðju af sjálfbærum hráefn- um og orku. Og búa þar í nánd við og í sátt við náttúruna og með aðgengi að hreinu, tæru og heilnæmu and- rúmslofti ásamt hreinu berjalyngi að áliðnum júlímánuði. Það verður og er svo sannarlega seljanleg menningar- afurð. Þetta er auðvitað „þetta ann- að“ sem afneitarar hafa verið að benda á, blessaðir. Við hljótum þó að krefjast þess að ekki sé tekið mark á málflutningi aft- urhaldsafla sem virðast hafa það meginmarkmið að þjóðin búi við sult og seyru svo hún verði leiðitöm og „nytsamir sakleysingjar“ í anda Stalíns og félaga. En eins og sagan sýnir jókst afneitun á framleiðsluiðn- aði hrikalega á hávaxtartímanum, ál til álna var og er enn landráð í huga menningar elítunnar og þar fremst- ur í flokki í „pólitískum síðhvörfum“ Austfirðingurinn og höfundur stór- iðju á Reyðarfirði, Hjörleifur Gutt- ormsson f.v. iðnaðarráðherra. En menningarelítan segist ekki nein hjáleiga frá stórbýlum sjávar og landbúnaðar. Hún veltir miklu meiri fjármunum en stórbýlin samanlögð fanga, segir í niðurstöðu rannsóknar á framlegð greinanna til daglegra brauðþarfa okkar Íslendinga, ásamt að sjálfsögðu framlegð í trygging- arsjóði til „Framtíðarlandsins“ og byggingar sjálfbærra atvinnutækja. Vísindaþekking jarðvísinda okkar mikilhæfu stofnana og skóla er hins vegar enn það fáa sem eftirsótt er og dýrmætt útflutningsverðmæti og til álna í framleiðni og í askana í að láta. Annað virðist hingað til dægradvöl, þótt virðingarverð sé. Velferð okkar einkennist auðvitað af fram- færslugetu auðlinda landsins og nýt- ingu þekkingar, sem viðheldur auði auðlindanna ásamt með tilheyrandi atvinnuuppsprettu, viðhorfum, lífs- stíl og pólitískri jarðbindingu. Þrátt fyrir allt vona ég að þeir pilt- ar og þær stúlkur sem áttu sæti í meirihluta við afgreiðslu deiliskipu- lags í Straumsvík séu ekki sátt við eigin afrek. Því ég er fráleitt sáttur með vingulsháttinn þeirra í Alcan-málinu varðandi breytingu skipulagsins og ásamt með virðingarleysi bæjarstjórnar við kjöl- festufyrirtæki Hafn- firðinga til áratuga, að skoðanakönnunin sem fram fór fékk ekki formlega afgreiðslu í bæjarstjórn og bæj- arráði, því þá hefðu meirihlutafulltrúarnir mínir þurft að gera grein fyrir afstöðu sinni til málsins samkvæmt lýðræðisreglum. En það vildu fulltrúar okkar síst af öllu vegna hræðslu við eigið bakland. Það átti bara að koma „eitthvað ann- að“ til atvinnuauka án stækkunar versins í Straumsvík, sögðu grænir, Hvar er atvinnuaukinn nú í atvinnu- leysinu? spyrjum við gaflarar. Sem jafnaðarmaður frá barnæsku hef ég orðið fyrir miklum von- brigðum með íslenska umræðu um atvinnu og auðlindamál sem fjöl- miðlar af dugnaði hafa miklað og við- haldið með mikilli þrætubókarlist við blóðrauða þrá eftir að naívistar og anarkistar, ásamt og með núver- andi og uppgjafa pólitískum piltum og stúlkum, færu af standinum og gleymdir menningarvitar færu á flug og gleymdu að taka pillurnar sínar. En viðhorf sérfræðinga til mála, nei takk, ekki samræður, bara átakamál, þau eru söluvænni. Þannig var með málstað okkar Hafnfirðinga farið sem vorum með- mælt nýju deiliskipulagi í Straums- vík sem um var kosið fyrir hrun. Listatónsmiður okkar Gaflara, Magnús Kjartansson, sagði okkur sennilega vera haldna elliglöpum, og sjálfur höfuðkratinn og félagi minn til margra ára, Jón Baldvin, dáðist að heilbrigðri dómgreind andstæð- inga tillögunnar af listrænni fágun en fordæmdi dómgreindarleysi okk- ar hinna. Áttatíu atkvæða munurinn var upphaf nýs tíma Íslandssög- unnar að mati f.v. ráðherrans. Þetta var vel blágrátt í hillingum þeirra vonlausu eins og samtalsform þeirra tveggja greinir. En við öll sem byggjum „Framtíðarlandið“ verðum að skilja, að Ísland verður aldrei grænt né grátt, það er af öll- um regnbogans litum, fjölbreytt sem mannlífið. Til að gera betri grein fyrir mínu máli var ég 1971 einn af stofnendum fyrsta náttúruvernd- arfélags landsmanna og var í fyrstu stjórn þess, en hætti þegar ég sá að pólitískar öfgar helguðu tilganginn. Stéttabaráttan framleiddi ekki leng- ur atkvæði. Þess vegna grænar öfg- ar, því með öfgum nær maður at- hygli og atkvæðum. En eins og áður eru við öll elsk að íslenskri náttúru og hreinu and- rúmslofti. Það verður að koma „eitthvað annað“ Ísland Eftir Erling Garðar Jónasson »En eins og sagan sýnir jókst afneitun á framleiðsluiðnaði hrikalega, ál til álna var og er landráð í huga menningarelítunnar. Erling Garðar Jónasson Höfundur er fv. rafveitustjóri. Það er furðulegt að fylgjast með um- ræðunni um sjávar- útveg á Íslandi. Hún er meira og minna í æsi- fréttastíl þar sem skiptast á sérkenni- legar andstæður. Þeg- ar vel gengur er rætt um „ofurhagnað“ og þegar blæs á móti er vísað til „ofurskulda“. Hvorugu hugtakinu fylgir nokkur frekari skilgreining. Flestir þeir sem tala niður til sjávarútvegsins virðast fastir í hugtökum á borð við þessi. Það kemur e.t.v. ekki á óvart en mér þótti samt dapurt að sjá að Sigurjóni Þórðarsyni voru „ofurskuldir“ sjávar- útvegs hugleiknar í grein hans í Morgunblaðinu þann 21. desember sl. En hvað er á bak við þetta gild- ishlaðna orð? Þegar betur er að gáð er rökstuðningurinn enginn. Árs- reikningar fyrirtækja á sjálfu hrun- árinu 2008 leiða ýmislegt athyglisvert í ljós. Þannig voru nettóskuldir 14 stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins 168 milljarðar króna í árslok 2008. Það er vissulega umtalsverð upphæð en samt 42 milljörðum lægri en skuldir Orkuveitu Reykjavíkur, sem námu 210 milljörðum króna á sama tíma. Hlutfall skulda af veltu var 2,47 hjá stærstu sjávarútvegsfyr- irtækjunum en 10,73 hjá Orkuveit- unni. Þá var hlutfall EBITDA og nettóskulda 5,90 hjá stærstu sjáv- arútvegsfyrirtækjunum en 18 hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hinar raunverulegu „of- urskuldir“ liggja ekki hjá sjávarútvegsfyr- irtækjunum. Auðlindir aðeins í sjónum? Orkuveitan er hins vegar í þeirri öfunds- verðu stöðu að hún situr ein að sínum við- skiptavinum og getur því gripið til gjald- skrárhækkana til þess að auka tekjur sínar eins og hún hefur þegar gert. Sjávarútvegsfyrirtækin eru ekki í þeirri aðstöðu enda í grimmri sam- keppni á alþjóðlegum mörkuðum. Og einhverra hluta vegna þurfa OR og önnur orkufyrirtæki ekki að greiða auðlindagjald eins og sjávarútvegur- inn. Ég stóð í þeirri trú að fallvötn og jarðhiti væru auðlindir. Ef gæta ætti jafnræðis á milli orkugeirans og sjáv- arútvegsins þyrfti Orkuveita Reykja- víkur að hækka gjaldskrá sína um 5- 10% og öll sú hækkun að renna til rík- isins sem auðlindagjald. Eins og málum er nú komið er auðlindagjald í sjávarútvegi hreinn landsbyggð- arskattur. Sigurjóni eru meintar tugmilljarða afskriftir til sjávarútvegsfyrirtækja hugleiknar. Samkvæmt upplýsingum sem Ólína Þorvarðardóttir alþing- ismaður lét taka saman nemur heild- arupphæð afskrifta til sjávarútvegs- fyrirtækja sex milljörðum króna. Vissulega há upphæð en fær á sig annan blæ þegar haft er í huga að af- skriftir vegna bílalána nema 27 millj- örðum króna. Frjálslyndi flokkurinn nafnið eitt Sigurjón gefur í skyn að staða sjáv- arútvegsins hafi nú ekki verið svo slæm þegar kvótakerfinu var komið á. Lengi skal manninn reyna. Ég man nefnilega þá tíð sem starfsmaður í sjávarútvegi að hafa sjálfur þurft að bíða eftir laununum mínum í allt að þrjá mánuði á sama tíma og við bjuggum við óðaverðbólgu, geng- isfellingar og kaupmáttarrýrnun sem taldist í tugum prósenta. Það er hroki að halda því fram að þetta hafi ekki haft alvarleg áhrif á stöðu heimila í landinu en ég skil nú betur af hverju Frjálslyndi flokkurinn er orðinn nafnið eitt. Ég hef haldið því fram að þjóðin sé illa upplýst um stöðu sjáv- arútvegsins og tilurð kvótakerfisins. Væri raunin önnur hlyti þá málflutn- ingur Frjálslynda flokksins ekki að hafa náð betur til almennings? Fregnir hafa borist af því að und- anförnu að sjávarútvegsráðherra sé með hugmyndir um að ríkið leigi við- bótaraflaheimildir til þess að fjár- magna rekstur heilbrigðisstofnana úti á landi. Það var og. Ef við hefðum t.d. sleppt því að ljúka byggingu til- tekins húss við Reykjavíkurhöfn þyrftum við ekki að horfa upp á nið- urskurð í grunnþjónustu á borð við heilsugæslu, menntun eða löggæslu. Því miður virðist hugur núverandi stjórnvalda ekki vera hjá atvinnulíf- inu eða heimilunum í landinu en ég er samt engu nær um hvar hann er. Eftir Pál Stein- grímsson Páll Steingrímsson »Hinar raunverulegu „ofurskuldir“ liggja ekki hjá sjávarútvegs- fyrirtækjunum. Höfundur er sjómaður. Af „ofurskuldum“ og öðrum skuldum Annað árið frá hruni er liðið. Og hvað hefur svo sem gerst? Gomma af ritgerðum hefur birst og risastór rannsókn- arskýrsla. Og allar óeigindir manna hafa, að því er virðist, verið tíundaðar eða hvað? Græðgi, tillitsleysi, eig- ingirni, heift o.s.frv. Verður því sem gerðist nokkuð lýst betur? Og eigum við land- ar að leggja hendur í skaut þar sem ljóst er hvað gerðist og af hverju? Kannski gerðu menn ekki vettvangs- könnun. Svona eins og löggan gerir í krimmum. Sérstakur saksóknari rannsakar bækur og skjöl, en hann veit ekki hvernig ástatt var í brenni- depli hrunsins, bankahverfinu, þegar brallað var með fjöregg þjóðarinnar og því stolið fyrir framan augun á margmenni. Síðan þá hafa margir fengið letigarðsdóma eða ígildi þeirra vegna atvinnuskorts. Og æskan sér fram á aukinn menntunarkostnað og almenningur á varla fyrir mat. Þjóðin hefur þurft að skipta um gír. Í Reykjavík er gatan Borgartún. Þar risu glæsileg hús með neonljósum og undarlegum nöfnum, group þetta eða hitt, og skammstöfunum, sem sumar sögðu ekkert. Margir höfðu á orði að gatan væri sem Wall Street, slíkur var glæsibragurinn. Og Höfð- ahverfið var fyllt með bönkum út á Kleppsveg og augljóslega átti að byggja meira. Já, miklir menn erum við landarnir. Höfuðstöðvar Kaup- þings eru glæsilegar og með svo hárri hringhurð, að hún hefði sómt sér vel við Persaflóa. Til hvers eru hringgler- hurðir, sem eru þrisvar sinnum of há- ar? Og fyrir innan er svo stórt atrium, eða forskáli, að hið hálfa væri nóg. Þetta var til að imponera pen- ingamenn. Var það ekki málið? Og inni fyrir mátti sjá unga menn á skyrtunum skjótast úr einni vist- arverunni í aðrar. Svipurinn ákveðinn og flestir laglegir menn, en gump- urinn á sumum í stærra lagi. Augn- svipurinn gaf til kynna að menn vissu hvað þeir væru að gera. Þeir voru sem tæknivæddustu tannlæknar sem voru ekki að sóa tímanum. Og ef gægst var inn í herbergin mátti víðast hvar sjá hvar menn rýndu í tölvuflatskjái og ekki bara einn heldur allt upp í fjóra hver. Já, tölvutæknin er eins og guðsgjöf. Og talnarun- urnar, upp og niður, til hægri og vinstri. Sennilega excel- forrit, sem allir tala um. Og þau eru svo fullkomin að þau reikna stöðugt summur einstakra dálka eða marg- feldi úr tveimur dálkum. Þetta var ekki eins og á gömlu kontórunum þar sem menn dunduðu við að leggja sam- an tölur í huganum. Excel var komið í staðinn fyrir yfirbókarann. Öryggi var tryggt og unnt að keyra endur- yfirferðir með ógnarhraða. Tölvur verða ekki plataðar og yfirmenn þurfa aðeins að rýna rétt snöggvast á skjáina. Þvílík tækni. Hún var ekki dónaleg Laugarnesvíkin séð frá sjón- um. Hún gat sómt sér vel í Dubai. Og áhugamenn um stjórnmál ræddu um að gera Ísland að fjármálamiðstöð. Gat það verið? Þá yrði landið eins og Liechtenstein, sem lifir á því að ávaxta peninga fyrir ríkt fólk. Jafnvel háskólakennarar töldu þetta og það hlaut að boða gott. Kýlum bara á það! Umsvif stóru bankanna voru geysi- leg. Peningarnir flóðu og lúxusbílar voru svo margir að þeir höfðu varla pláss á götunum. Og einkaþotur söfn- uðust á flugvellinum. Þessa sögu þekkja allir. – En núna eftir hrun velta menn fyrir sér hvað fór úrskeið- is? Okkur er sagt að stærð bankanna hafi orðið tíföld þjóðarframleiðslan og það var mjög hættulegt. Í hvaða ex- cel-dálki mátti lesa það? Útlendingar voru gáttaðir, en við stolt. Og Danir voru bara afbrýðisamir. En nú vitum við að þriðjungur bankanna var bara loft, uppskáldaðar tölur. Fyrirtæki og bankar skráðu í bækur væntingar eða viðskiptavild. Mátti sjá það í excel- dálkum? Og nú eftir hrun heyrum við að endurskoðendur, með virðulegum útlendum nöfnum, skrifuðu at- hugasemdalaust upp á reikninga. Það endurspeglaði öryggi og kórrétt mat á eignum. Hverjum datt í hug, að endurskoðendur sæju ekki loftdálk- inn? Eða sáu þeir hann? Loftdálkur- inn hlýtur að hafa sést á þeirra skjám. Auðvitað. Flatskjárguttar við Skógarhlíð eða Smáratorg eru gletti- lega klárir. Skárra væri það nú. Summan? hefur verið álitleg. Svo senda þeir nótur upp á efstu hæð, en þær eru leyndarmál. Eins og störf endurskoðenda séu opin almenningi? Og bossarnir hafa bankaleynd, eins og bankastjórar. Já, leyndarhjúpinn eftirsótta. Og þeir verðlögðu vinnuna og létu flatskjárrýni skrifa reikninga. Og hér sannast hið fornkveðna. Sá á hund sem elur. Nýjasta undur tölvuheimsins og forn spakmæli kvíslast saman í vafninga og stóra reikninga því enginn tekur mark á litlum. Flatskjárrýnar lifa í tveimur víddum, en þriðja víddin vísar til sið- ferðis. Verkaskipting ræður því að siðferði er á efstu hæð. Fullyrt er að endurskoðendur hafi átt að sjá loftið. Og svo ætla menn í mál. En loftið gagnaðist í bönkunum til að sækja bara meiri peninga og setja loft í staðinn. Og loftið var líka gagnlegt fyrir PriceToilette þegar greiða skal stóra reikninga. Það er bara smjörk- lípuaðferð. Eins og verðlagsbætur á laun. Og ekkert tilefni er til mála- ferla. Þjóð í klípu verður að þekkja sinn vitjunartíma og elta ekki villu- ljós. Flatskjái með loftdálki vantaði bara á efstu hæð. Þetta er bara spurning um fjölda af flatskjám. Eftir Jónas Bjarnason » Þriðjungur stóru bankanna var bara loft. Siðferði var metið á efstu hæð hjá þeim og endurskoðendum. Þetta var bara spurning um fjölda af flatskjám. Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur. Sá á hund sem elur ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.