Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 ✝ Elín Jónsdóttir fráGemlufalli, hús- freyja á Neðra-Hálsi í Kjós, til heimilis í Fells- múla 8, Reykjavík, fæddist 29. júní 1921. Hún lést 26. desember 2010. Elín fæddist á Gemlufalli í Dýrafirði. Foreldrar hennar voru Jón Ólafsson, f. 29.3. 1891, d. 26.2. 1963, bóndi og k.h. Ágústa Guðmundsdóttir, f. 3.8. 1890, d. 20.3. 1973. Systkini Elínar: Sigríður Kristín, f. 1917, d. 1999, gift Eiríki J. Eiríks- syni, presti og þjóðgarðsverði á Þingvöllum; Nanna Valborg, f. 1919, d. 1919; Jónína, f. 1920, d 2010, gift Pétri Sigurjónssyni húsa- smíðameistara, Reykjavík; Ingi- björg, f. 1922, d 2006, gift Gísla Andréssyni, hreppstjóra, Neðra- Hálsi; Guðmundur, f. 1924, d. 1983, húsasmíðameistari, Flateyri. Ekkja hans Steinunn Jónsdóttir. Fóst- ursystkini Elínar: Ragnheiður Stef- ánsdóttir, f. 1911, d. 1985, gift Steinþóri Árnasyni, bónda, Brekku; Skúli Sigurðsson, f. 1932, d. 2009, bóndi, Gemlufalli. Ekkja hans Ragnhildur Jónsdóttir. sinni. Ólafur kvæntist Þórunni Sig- urðardóttur. Dóttir þeirra; b) Elva Guðrún, í sambúð með Öyvind Nordhagen. Synir þeirra; Óli og Aron. Ólafur og Þórunn skildu. Ólafur var í sambúð með Bergljótu Þorsteinsdóttur, dóttir þeirra; c) Hrund. Dóttir Bergljótar; Steinunn Gunnlaugsdóttir. 5) Kristján, f. 1954, kvæntur Dóru Ruf, bændur Neðra-Hálsi. 6) Lilja, f. 1960, gift Jóhanni Kristjánssyni. Börn þeirra; a) Elín Björk, b) Snæfríður, c) Odd- ur Goði. Elín ólst upp á Gemlufalli og gekk þar snemma til ýmissa verka. Veturinn 1943-1944 var Elín á Hús- mæðraskólanum Laugum í Þingeyj- arsýslu. Hún var sumarið eftir vinnukona hjá Kristjönu Péturs- dóttur skólastýru og fór þá á jurta- litunarnámskeið hjá Matthildi Hall- dórsdóttur í Garði. Veturinn 1945-1946 var Elín ráðskona í eld- húsi Héraðsskólans á Núpi. Þar kynntist hún tilvonandi eiginmanni sínum sem kenndi söng hluta úr vetri. Elín og Oddur hófu búskap á Neðra-Hálsi 1947. Elín var hand- verkskona. Hún óf jafnan og litaði sjálf garnið í púðum sínum og veggteppum. Hún rak síðar heimili með börnum sínum og barnabörn- um í Fellsmúla 8, en ræktaði garð- inn sinn á Neðra-Hálsi á sumrum. Útför Elínar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 4. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Elín giftist 1.11. 1947 Oddi Andr- éssyni, bónda og al- þingismanni, f. 24.11. 1912, d. 21.6. 1982, frá Neðra- Hálsi. Hann var organisti og kór- stjórnandi í sveit sinni. Börn Elínar og Odds: 1) Ágústa, f. 1947, gift Sæbirni Kristjánssyni. Synir þeirra: a) Egill, í sambúð með Marciu Moraes, b) Kristján Oddur, kvæntur Áslaugu Eiríks- dóttur. Dætur þeirra; Sesselja Fanney og Birna. 2) Ólöf, f. 1948. Sonur hennar og Páls Árnasonar; Arnar, kvæntur Solveigu S. Hall- dórsdóttur. Börn þeirra: Þorgeir, Áshildur og Teitur. 3) Valborg, f. 1950. Sonur hennar og Everts Ing- ólfssonar; Emil Örn, í sambúð með Þórhildi Knútsdóttur. Synir þeirra: Kári og Sindri. Valborg var í sam- búð með Lárusi Má Björnssyni. 4) Ólafur, f. 1951. Dóttir hans og Önnu Björnsdóttur; a) Kristín Linda, gift Stuart A. Rae. Sonur þeirra; Alexander Emil. Kristín Linda var hjá móður sinni fyrsta árið. Ólst svo upp hjá Elínu, ömmu Móðir okkar ástkær og blíð, borin ert burtu héðan. Langri ævi lýkur um hríð, leikum í þögninni á meðan. Mögnuð sú þraut sem lífið lét leika um þínar lendur. Hugur róaðist þegar ég grét þétt við faðmsins mjúku hendur. Í pottaskápnum og skotum lék, skarkala mikinn framdi. Fótum þínum framhjá vék, fann þar lokin og lamdi. Signa mátti eftir bað og engla til mín kalla. Kaldur mátti þola það þar til krossinn lést falla. Lítill drengur í stelpubuxum, skárra en ekki neitt. Úr fátækt við öll svo uxum, samt í huganum leitt. Í leiknum fann mín lausnarorð, lagaðist þá spennu-þrotinn. Út að hjóla, moka, leggja á borð, svo litla sálin yrði ekki brotin. Þó ástæða ærin væri, engar skammir fékk. Man ekki að undan særi, sátum saman á bekk. Hænsnahurðin klemmdi fingur, komst grátandi í læknis hendur. Júlli á rútunni vega slingur, viðgerður heim síðan sendur. Á afmælum alltaf fékk regnbogatertu fína. Í barnsins draumasmekk enn sé tertuna þína. Skapandi elju og starfið fína, sé yndi mikillar móður. Ofnar mottur og teppi sýna, digur er þinn sögu sjóður. Ferðalag um geðsins garða gerði þig stóra og sterka. Rósemi og grið tókst að varða í Fellanum mikla og merka. Fellans fjölskrúðuga sál fangaði fjölskylduböndin. Allra barnanna móðurmál markaði kærleikslöndin. Þín þöglu spor, þegar andaði vanda, voru okkar vor, tókst okkur að landa. Fyrir þetta og allt annað þakka ég, móðir kær. Kærleika og ást fann, að alltaf ég væri þér nær. Enn fer út að moka traktornum á. Einmanaleikann úti loka, ég er þér hjá, mamma. Ólafur Oddsson. Ég ætla að skrifa til þín nokkrar línur, mamma, til að kvitta fyrir sam- leið okkar á móður jörð. Ég þykist vita að þú sért ekki farin langt, enn sem komið er, og ég vænti þess að innihald þessa bréfs komist til skila, þótt það fari ekki með hinum hefð- bundna pósti. Ég á einhvern spotta eftir hérna megin, en fyrir þig var þetta orðinn ansi langur tími eða 89 ár og líkami þinn orðinn illa nothæfur í lokin. Það var því ekki um annan kost að velja en að yfirgefa flakið og láta sig svífa inn í nýjar víddir. Ég vona að sú um- breyting hafi verið þér þægileg og til óvæntrar ánægju og óska ég þér alls hins besta á nýrri vegferð. Ég ætla ekki að rifja hér upp okk- ar sameiginlegu lífstíð, nema að ör- litlu leyti, þar sem annað er ógjörn- ingur. Ég veit að í þínu lífi og mínu hafa skipst á skin og skúrir, meðvind- ur og mótvindur. Í lífinu þroskast fólk í ýmsar áttir. Sumum finnst gott að vera í sviðsljósinu, aðrir hafa til- hneigingu til að skerma sig frá skarkalanum. Aðalatriðið var að standa alltaf með sjálfum sér og halda út hvað sem á dynur, og það án lyfja. Það gerðir þú og munt upp- skera samkvæmt því. En við munum kryfja lífið í fyllingu tímans, hvort í sínu lagi, svo af því megi læra. Það verður ekki gert hér. Ég vil þakka þér fyrir að hafa fætt mig í þennan heim og gefið mér tæki- færi til að þróast og eflast á þroska- brautinni. Þú hafðir sérstakt lag á því við okkur krakkana í uppeldinu að gefa okkur svigrúm til að efla okkar eigið ímyndunarafl. Það var lítið um boð eða bönn, meira um óskráðar reglur, enginn heilaþvottur, aðeins ótakmörkuð þjónusta, umburðar- lyndi og kærleikur. Meira er ekki hægt að fara fram á þegar maður er barn. Þú kenndir mér kristin lífsgildi, og snemma áttaði ég mig á tilveru æðri máttar. Fyrir alla þessa umgjörð er ég þakklátur. Ég þakka þér líka fyrir stuðninginn við mitt lífsverkefni og fyrir að kenna mér að bera virðingu fyrir náttúrunni, hversu miklu það skiptir að sýna alúð og vandvirkni í verkum sínum. Ég mun seint gleyma grænsápugerðinni í stóra þvottahús- inu og lyktina finnur maður ennþá. Ég þakka líka fyrir alla kaffiboll- ana í Fellanum, sem alltaf voru born- ir fram á undirskál, sem ég hlýt að líta á sem sérstakan virðingarvott gagnvart mér, því systurnar kvört- uðu alltaf yfir því að fá ekki slíka þjónustu eins og strákarnir. Og takk fyrir allar sandkökurnar, loftkökurn- ar og konfektmolana, svo ég tali nú ekki um alla þá samræðu sem fram fór yfir öllum þessum gjörningum. En stopp í Fellsmúlanum taldist til ánægjulegrar skyldu þegar skroppið var í kaupstaðinn. Ég þakka þér líka fyrir hópinn sem þú skildir eftir í kringum mig, systk- ini mín og afkomendur þeirra. Þetta er góður hópur og hann mun vissu- lega halda upp þínu merki í framtíð- inni. Ég og Dóra þökkum þér samfylgd- ina, allar góðu kærleiksstundirnar sem við áttum saman. Guð blessi þig og þínar minningar á jörðu. Gakk þú á Guðs vegum. Kristján Oddsson. Elsku amma mín. Nú er komið að því að leiðir skiljast. Þó þú hafir verið orðin 89 ára þá átti ég samt ekki von á því að þú myndir kveðja í bráð. Því þú varst alltaf svo sterk. Margoft beygð en aldrei buguð. Elsku amma mín, ég þakka þér fyrir samveru okkar í þessi næstum því 40 ár. Sem foreldri og barn geng- um við saman í gegnum þetta líf, þetta líf sem var alltaf fullt af gagn- kvæmri ást og þakklæti. Síðustu árin gengum við 4 saman og er ég svo þakklát fyrir að sonur minn fékk að kynnast þér. Ógleym- anlegar eru þær stundir þegar þú bauðst honum að fá sér „eina bunu“ og ófá voru hlátrasköllin sem bárust um alla íbúð þegar litli stubburinn fann uppá einhverju til að bralla með þér. Bless, amma mín. Þú mátt fara núna. Óskastjarnan þín bíður. Þín, Linda. Elsku amma mín. Hvernig get ég skrifað stuttan texta um þig? Það er hægt að skrifa svo margt fallegt um þig. Það var alltaf svo gaman að ræða við þig, skemmtilegar sögur sem þú kunnir og alltaf stutt í hláturinn hjá okkur. Þú hlustaðir líka svo vel og þess vegna var gaman að segja þér fréttir. Þú varst sérstaklega upptek- in af lífinu í Noregi og hvernig ég hefði það. Oft byrjuðu bestu samtölin yfir spilastokknum við eldhúsborðið og með heimatilbúið meðlæti. Þú varst svo upptekin af að gefa okkur barnabörnunum eitthvað gott í gogg- inn. Takk fyrir að vera svona góð við mig, systur mínar og fjólskylduna. Þú munt lifa áfram í hjarta mínu og Aron og Óli munu kynnast þér í gegnum mig. Hafðu það gott, elsku amma. Elska þig. Knús frá Elvu. Elva Guðrún Ólafsdóttir. Amma setti ákveðinn tón í líf mitt. Þessi tónn var ljós og fallegur og hef- ur fylgt mér æ síðan. Það fólst í upp- eldi hennar. Ég var í pössun hjá ömmu á hverj- um degi eftir skóla þar sem ég lék mér við frændsystkini mín, Arnar og Lindu. Ef frændsystkini mín höfðu fengið ís einn daginn beið mín ís í ís- skápnum daginn eftir. Hún gerði okkur alltaf jafnt undir höfði. Hún lék sér við okkur eða lét okk- ur leika okkur í friði, allt eftir því sem við átti. Hún færði okkur mikinn og góðan orðaforða sem kom sér vel. Hluti af gæfu minni í mínum sam- skiptum við jafnaldra mína í skólan- um hlýtur að hafa orðið til fyrir til- stilli ömmu. Hún var óþreytandi að ræða um heima og geima við okkur og seinna á unglingsárum og ung- mannsárum virtist hún vera mjög fær í að fylgja manni eftir í þeim pæl- ingum, sem þá voru efst á baugi. Amma setti ákveðinn grunntón í líf mitt sem ég óska að ég muni ná að færa áfram til þeirra sem umgangast mig. Þessi grunntónn var réttlátur, hvetjandi og hlýr. Amma var listamaður. Hún bjó til innkaupapoka úr gömlum böndum utan af jólagjöfum. Allt var endur- nýtt. Þessir pokar hafa hangið heima hjá mér sem listaverk því enn á ný hittir hún beint inn á púls nútímans, líklegast óafvitað. Endurnýting þótti ekki fín lengi framan af en amma bar með sér þessi gildi allt aftur úr sinni barnæsku. Engu var hent ef möguleiki var að nota það upp á nýtt á einhvern hátt. Nú á tímum þegar endurnýtingar- gildi eru orðin viðteknari en áður passar hún amma alveg inn í nú- tímann og stundum hugsa ég að sumt sem hún býr til gæti passað inn á sýningu í einhverju nútímagalleríinu. Hún var naturalisti í notkun á lit- um, djarfir litir og samsetningar lentu alltaf á fótunum eins og köttur sem fellur niður um fleiri hæðir en lendir þó alltaf á fjórum fótum. Áður fyrr óf hún í vefstól og litaði garn með íslenskum jurtum, berki og lyngi. Eru til margar myndir sem hún saumaði út með þessu efni. Hún gerði við allt, lagaði allt, end- urnýtti allt, gaf okkur allt og gerði allt fyrir mann. Hún var uppfinn- ingasöm, bjargaði sér og sýndi alúð í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Með nærveru sinni og fordæmi lagði hún semsagt ákveðinn grunn- tón sem er jákvæður og góður. Amma var gæfurík að mörgu leyti. Hún átti sex börn og var í miklu sam- bandi við þau öll. Einnig var hún í góðu sambandi við barnabörn sín til hverra ég telst og barnabarnabarna sinna. Hún var skýr í kollinum, sinnti sínum hússtörfum allt til loka og gat búið heima hjá sér alla tíð eins og hún óskaði sér. Það er mikil gæfa. Með einlægri kveðju, Egill Sæbjörnsson. Elsku amma. Ást og þakkir er erf- itt að binda í orð. Það var dásamlegt að alast upp í Fellsmúlanum, umferð- ar- og félagsmiðstöð fjölskyldunar. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur krakkana. Þú leyfðir köstulum og ævintýralöndum að standa dögum eða vikum saman, uppi á borðstofu- borði. Og það var hreint stórkostlegt að sjá þig hálfníræða konuna, kasta bolta til barnabarna og jöggla þeim til skemmtunar. Þegar við lágum í pest, settist þú við rúmstokkinn og skófst epli ofan í lítinn munn. Það var sem handtak þitt eitt dygði til að kippa barninu yf- ir erfiðasta hjallann. Við Linda fórum oft með þér gangandi í Vörumark- aðinn. Einn vetrardag tókum við snjóþotu með. Minningin er óljós, en ég vona að þú hafir bara dregið okk- ur niður brekkuna, ekki upp hana ásamt fullum sleða af vistum. Sögur þínar voru okkur einnig mikill inn- blástur, um lífið á Gemlufalli, ferju- manninn föður þinn og líf ykkar systkina. Þú fræddir okkur einnig um réttlæti og ranglæti veraldar. 10 ára byssubófum í kúreka og indjána- leik var hollt að fræðast um hörm- ungar seinna stríðs og að indjánarnir voru fórnarlömb en ekki vondu kall- arnir. Það var einnig einstakt að upp- lifa elskuna í rödd þinni þegar þú tal- aðir um sveitina og gleði þína þegar þú fluttir þangað aftur að sumarlagi. Það var að sama skapi átakanlegt þegar þú sagðir að þú hefðir líklega séð sveitina í síðasta sinn. En fólkið þitt fylgdi þér alla leið, og hefði ef- laust fylgt þér lengra væri sú leið fær. Með þökk. Arnar og fjölskylda. Elín Jónsdóttir Það er óhætt að segja að það sé stutt á milli hláturs og gráts í lífinu. Á þriðjudeginum fyrir andlát afa míns kíktum við bræðurnir á afa gamla á Grund, en þetta var síðasti dagurinn sem ég sá hann á lífi. Það fór ekki á milli mála að hann nálg- aðist endapunkt lífs síns með hverj- um deginum sem leið. Hann átti erf- itt með tal, enda mjög máttlaus orðinn, en samt barðist hann í gegn- um orðin. Þrátt fyrir erfiðleikana Guðmundur Jónatan Kristjánsson ✝ Guðmundur Jón-atan Kristjánsson fæddist í Nýjabæ á Eyrarbakka 2. ágúst 1929. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 17. desember 2010. Útför Guðmundar fór fram frá Grens- áskirkju 29. desem- ber 2010. sem hann barðist við fengum við hann til að hlæja gamla góða hlátrinum sem við könnuðumst svo vel við. Gamli hló að því að Manchester United væru komnir á topp- inn í ensku úrvals- deildinni. Lýsandi dæmi fyrir húmorinn sem fylgdi honum afa mínum, bæði hélt hann takmarkað með Man Utd í ensku deildinni og ekki fannst honum leiðinlegt að skjóta á Venna bróður þegar illa gekk hjá liði hans Man Utd. Í gamla daga var alltaf gaman að koma í heimsókn til ömmu og afa í Heiðargerðið. Það er ekki hver sem er sem getur borðað súkkulaðikex með sultu og dass af svínakjöti í ein- um bita en það gerði afi með bestu lyst. Mér verður oft hugsað til Gumma afa þegar ég blanda ólíkleg- asta mat saman og hugsa þá um leið að þetta þætti afa mínum vafalaust gott. En úr eldhúsinu yfir í málar- ann: afi var frábær málari og vand- virkni hans gríðarleg. Þegar ég var lítill man ég að hann var oft að vinna við að mála Grensáskirkju þaðan sem við kveðjum hann nú í dag. Í seinni tíð þegar ég hef verið að mála sjálfur með pabba mínum þá kemur pabbi reglulega með einhver heilla- ráð um hvernig best sé að mála en Gummi afi hafði kennt honum ýmis trix. „Þetta kenndi hann afi þinn mér“ heyrist oft þegar við málum, og núna síðast voru það herbergin mín í Heiðargerðinu hans afa. Það eru vissulega ákveðin forréttindi að fá að búa í húsinu hans í dag, Heiðargerði 27, sem hann byggði sjálfur fyrir langalöngu. Afi var gríðarlega kaldhæðinn og fyndinn karl. Hann lét gjörsamlega allt flakka og var ekkert að skafa af hlutunum þegar hann var að lýsa þeim. Honum fannst ekki leiðinlegt að stríða manni aðeins og fá mann til að brosa. Með þessum orðum kveð ég afa minn og er þakklátur fyrir samveruna með honum gegnum tíð- ina. Guðjón Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.