Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
3
8 2 6
5
7 6
6 2 9 8
1 7 5 2
5 1
1 3 8
3 7 6 5 2
7 8
4 5
8 5 9
1 2
3 4 7
7 9 4 8
9 2 4 5
3 8 5
7 1
3 6
8 4
5 9
6 2
2 1
8 4 7 9
2 4 6
1 7
4 3 5 7
3 4 5 1 7 8 2 9 6
9 7 8 2 6 5 1 3 4
2 1 6 3 9 4 7 8 5
7 2 3 5 8 9 6 4 1
4 8 1 6 2 7 9 5 3
5 6 9 4 3 1 8 2 7
8 9 4 7 5 6 3 1 2
6 5 2 8 1 3 4 7 9
1 3 7 9 4 2 5 6 8
7 6 3 5 4 1 8 9 2
1 9 2 6 8 3 4 5 7
8 5 4 7 9 2 6 1 3
3 1 9 8 7 5 2 6 4
6 4 8 2 1 9 3 7 5
5 2 7 3 6 4 9 8 1
4 8 6 1 2 7 5 3 9
2 3 1 9 5 8 7 4 6
9 7 5 4 3 6 1 2 8
6 1 8 2 5 3 4 7 9
2 9 7 1 8 4 3 5 6
3 5 4 9 7 6 1 8 2
4 8 6 7 1 2 9 3 5
9 7 3 8 4 5 2 6 1
5 2 1 3 6 9 8 4 7
7 6 9 4 3 1 5 2 8
8 3 2 5 9 7 6 1 4
1 4 5 6 2 8 7 9 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 4. janúar, 4. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Því hungraður var ég, en
þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var
ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka.
(Mt. 25, 42.)
Sem kunnugt er hækkaði gjald-skrá Strætó bs. í gær. Víkverji
notar ekki strætó nema til hátíða-
brigða en málið kemur honum eigi
að síður við, þar sem hann á tvo ung-
linga sem nýta sér þjónustu vagn-
anna töluvert.
Hækkunin er nokkuð kostuleg
eins og hún snýr að ungmennum. Í
stað þess að greiða 100 krónur fyrir
staka ferð þurfa þau nú annað hvort
að greiða hámarksgjald, kr. 350 fyrir
staka ferð, ellegar festa kaup á sér-
stökum tuttugu miða kortum, þar
sem þau greiða kr. 105 fyrir ferðina.
Það er sumsé 5% hækkun.
Víkverji er ekki betur gefinn en
svo að hann skilur ekki alveg þessa
breytingu. Hvers vegna mega ung-
menni á aldrinum tólf til átján ára
ekki greiða kr. 105 fyrir staka ferð í
vagninum sjálfum? Hvers vegna
þurfa þau, eða einhver fyrir þeirra
hönd, að leggja leið sína reglulega í
Mjóddina eða á Hlemm til að kaupa
þessi ágætu kort?
Alla vega. Ekki tjáir að deila við
dómarann, þannig Víkverji nýtti
matarhlé sitt í gær til að skreppa
niður á Hlemm (mundi ekki í svipinn
eftir Mjóddinni), sem er dágóð leið
úr Hádegismóum, til að kaupa téð
tuttugu miða kort fyrir börnin sín.
En hvað var a’tarna? Þau voru ekki
komin í hús. Víkverji varð því frá að
hverfa – tómhentur. Þegar hann
spurði hvort börnin hans mættu þá
borga kr. 105 fyrir næstu ferð eða
þangað til kortin verða aðgengileg
var svarið beint nei. „Þau þurfa að
borga 350 krónur!“
Og hananú!
x x x
Víkverji fylgdist með flugeldasýn-ingu höfuðborgarbúa ofan af
Kjalarnesi um áramótin og þótti
mikið til koma í blíðunni. Sá flestar
ef ekki hreinlega allar rakettur sem
fóru á loft.
Bjartast var yfir Grafarvogi og
Árbænum að þessu sinni en Seltirn-
ingar voru áberandi slappastir. Ekki
veit Víkverji hvað veldur en veltir
fyrir sér hvort þetta hafi verið þeirra
leið til að mæta umdeildri hækkun á
útsvari. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 forneskjulegur, 8
sakaruppgjöf, 9 ánægð, 10
húsdýra, 11 nemur, 13
hafna, 15 ljóðasmiður, 18
vegurinn, 21 kraftur, 22 ön-
ug, 23 kynið, 24 hreinskilið.
Lóðrétt | 2 braukar, 3 end-
urtekið, 4 fuglinn, 5 hlýði, 6
endaveggur, 7 sálar, 12 reið,
14 rengja, 15 regn, 16 skrifa
á, 17 íláts, 18 lífga, 19 pinna,
20 nálægð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skolp, 4 skart, 7 áttur, 8 ríkum, 9 tjá, 11 daun, 13
Erna, 14 áfram, 15 form, 17 mauk, 20 bak, 22 loppa, 23 uglur,
24 tinna, 25 niður.
Lóðrétt: 1 skáld, 2 ostru, 3 port, 4 strá, 5 akkur, 6 tomma, 10
jurta, 12 nám, 13 emm, 15 fullt, 16 ræpan, 18 aflað, 19 kúrir, 20
baga, 21 kunn.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 h6 8. Bh4 Be7
9. Df3 Rbd7 10. O-O-O Dc7 11. Be2 b5
12. Bxf6 Rxf6 13. e5 Bb7 14. Dg3 dxe5
15. fxe5 Rd5 16. Rxe6 fxe6 17. Dg6+
Kd7 18. Bg4 Dxe5 19. Rxd5 Dg5+ 20.
Rf4+ Kc7 21. Dxe6 Had8 22. Kb1 Bd6
23. Rd5+ Bxd5 24. Hxd5 De7 25. Df5
Bxh2 26. a4 Hhf8 27. Dd3 Hxd5 28.
Dxd5 Dd6 29. Db3 Dd4 30. Bf3 Be5 31.
Hd1
Staðan kom upp í fyrstu deild Ís-
landsmóts skákfélaga en fyrri hl. móts-
ins var í Rimaskóla sl. október. Hjörv-
ar Steinn Grétarsson (2398) hafði
svart gegn sænska skákmanninum
Tairi Faruk (2298). 31… Hxf3! 32. c3
hvítur hefði orðið mát eftir 32. Dxf3
Dxb2#. 32… De4+ 33. Ka1 Hf4 34.
axb5 Da4+ 35. Dxa4 Hxa4+ 36. Kb1
axb5 37. Hd5 Bf6 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þögn og þula.
Norður
♠ÁK
♥ÁKD753
♦K64
♣G4
Vestur Austur
♠G732 ♠10986
♥9 ♥G1086
♦D72 ♦108
♣K8762 ♣1095
Suður
♠D54
♥42
♦ÁG953
♣ÁD3
Suður spilar 7♦.
„Þylst hann um eða þrumir,“ segir
í Hávamálum um afglapa er til kynnis
kemur. Sama mætti segja um varn-
arspilara í slemmu. Sá sem lítið hefur
að verja þylst um og spyr í þaula, en
hinn sem gætir gullsins dregur sig
inn í skel sína og lætur lítið fyrir sér
fara.
Skotinn Barnet Shenkin hefur veitt
þessu athygli. Hann var í suður,
sagnhafi í alslemmu í tígli. Sagnir
tóku sinn tíma, en vestur sýndi þeim
engan áhuga og lagði útspil sitt á
hvolf. Austur lét hins vegar spurning-
arnar dynja á mótherjunum. Þegar
vestur fékk loks leyfi til að fletta upp
hjartaníunni var Shenkin með stöð-
una á hreinu. Hann fór heim á ♣Á í
öðrum slag, spilaði ♦G og lét hann
rúlla!
Uppi var þá geð guma.
4. janúar 1917
Ríkisstjórn Jóns Magnússonar
tók við völdum, en þetta var
fyrsta íslenska ráðuneytið.
Aðrir ráðherrar voru Sig-
urður Jónsson og Björn Krist-
jánsson. Sigurður Eggerz kom
í stað Björns í ágúst 1917.
Stjórnin sat til 25. febrúar
1920 en þá myndaði Jón aðra
stjórn.
4. janúar 1984
Stórviðri með snjókomu olli
miklum samgönguerfiðleikum
á höfuðborgarsvæðinu og víð-
ar. Fjöldi fólks lenti í hrakn-
ingum. „Annasamasti dagur í
starfi lögreglunnar í Reykja-
vík. Öngþveiti skapaðist, öll
umferð nánast stöðvaðist,
skólastarf féll niður og at-
vinnulíf lamaðist,“ sagði í
Morgunblaðinu.
4. janúar 2002
Hjúkrunarheimilið Sóltún í
Reykjavík var formlega tekið í
notkun, en heilbrigðisráðu-
neytið hafði gert samning við
Öldung hf. um byggingu og
rekstur heimilisins. Rými voru
fyrir 92 aldraða, öll í sérbýli.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Stefán Þór Herbertsson, iðnrekstrarfræðingur í
Snæfellsbæ, er 55 ára í dag. Stefán fæddist í Nes-
kaupstað og ólst þar upp. Hann kvaðst ætla að
gera sér dagamun í dag og fara út að borða í
höfuðborginni með konu sinni og tveimur bræðr-
um og eiga með þeim góða stund.
„Þetta sígur á mann smátt og smátt,“ sagði Stef-
án þegar hann var spurður um aldurinn. „Ellin
nær manni brátt. Maður vonar að maður verði
hress sem lengst.“
Stefán er í stjórn Kalak, vinafélags Íslands og
Grænlands, og var um skeið formaður félagsins.
„Sigurður Pétursson ísmaður, kunningi minn, býr þarna úti og ég fór
að heimsækja hann. Ég heillaðist af landi og þjóð og hef síðan verið
með annan fótinn meira og minna í Grænlandi,“ sagði Stefán. Hann
hefur unnið mikið sjálfboðastarf fyrir grænlensk börn. Það byrjaði
með skákkennslu sem Hrókurinn stóð fyrir í Ammassalik-sýslu á
Austur-Grænlandi og var Stefán leiðangursstjóri í nokkrum skák-
kennsluferðum. Síðan fór Kalak, í samvinnu við Kópavogsbæ, að
bjóða 11 ára börnum úr sex litlum þorpum í A-Grænlandi til Íslands.
Von er á börnum hingað í 6. skipti næsta haust. gudni@mbl.is
Stefán Þór Herbertsson er 55 ára í dag
Heillaðist af Grænlandi
Flóðogfjara
4. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.35 0,2 8.50 4,3 15.11 0,2 21.20 3,9 11.16 15.50
Ísafjörður 4.41 0,2 10.45 2,5 17.20 0,2 23.20 2,0 11.57 15.19
Siglufjörður 1.14 1,3 6.50 0,2 13.11 1,4 19.30 0,0 11.41 15.01
Djúpivogur 6.00 2,4 12.16 0,3 18.13 2,0 10.54 15.11
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert ekki einfær um að hrinda í
framkvæmd þeirri áætlun, sem stendur
huga þínum næst. Byrjaðu bara á fyrsta
verkefninu og leystu þau svo eitt af öðru.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þegar kemur að krossgötum, er sjálf-
sagt að staldra við og velja framhaldið af
kostgæfni. Stundum er ný hárgreiðsla allt
sem þarf til að sjá hlutina í nýju ljósi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þig langar kannski ekki að hlusta
á það sem ástvinur vill segja þér – en þú
ert rausnarleg/ur og góð/ur. Haltu fast í
allar jákvæðar hugsanir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Óklárað verkefni tekur ósjálfrátt frá
þér kraft. Reyndu að sýna þolinmæði því
við vinnum ekki öll á sama hraða.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vertu heiðarleg/ur. Einhver á inni hjá
þér greiða og þér finnst það óþægilegt. Þú
ert á réttri braut í ástamálunum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú átt það til að draga þig í hlé til að
forðast árekstra við annað fólk. Haltu þig á
hliðarlínunni svo að atburðarásin hrífi þig
ekki viljalausa/n með sér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert einstaklega kærulaus í dag og
ættir því alls ekki til að ræða einkamál eða
ákveða nokkuð í þeim efnum. Sumir læra
aldrei.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur nánast jafnmikið dá-
læti á áskorunum og auðveldum sigrum og
ert því tvístígandi um þessar mundir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert að hugsa um of mörg
mál í einu og missir við það alla starfsorku.
Nú er rétti tíminn til þess að ræða launa-
málin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú finnur til sívaxandi þarfar fyr-
ir að leggjast í ferðalög og víkka sjóndeild-
arhringinn á einhvern hátt. Góður und-
irbúningur tryggir farsæla framkvæmd.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér finnst þú búa við eitthvert
andstreymi þessa dagana. Reyndu að kom-
ast hjá hverskonar ábyrgð á meðan.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst óþolandi þegar aðrir
grípa inn í starf þitt og reyna að beina þér á
aðrar brautir en þú vilt. Fólk virðist bæði al-
varlegt og jarðbundið í dag.
Stjörnuspá
Á nýársdag
áttu heið-
urshjónin Ásgeir
Halldórsson og
Rósamunda
Kristín Kára-
dóttir í Hrísey
fimmtíu ára
brúðkaups-
afmæli. Þau voru gefin saman af
séra Birgi Snæbjörnssyni í Ak-
ureyrarkirkju 1. janúar 1961.
Gullbrúðkaup
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is